Posted
11:21 f.h.
by Unknown
Síðasta bloggið á þessu ári 2003... Merkilegt ár að mér finnst og í raun eitt merkasta ár í lífi mínu og það er bara seinni helmingurinn af árinu... Það eru fimm atburðir sem standa virkilega uppúr á þessu ári... Tveir þeirra sem ég minntist samt aldrei á hér á blogginu... Hér eru atburðinir í tímaröð, ekki eftir merkilegheitum...
Ég fór á Hróarskeldu sem var náttúrulega gífurleg snilld... (Lesið um það hér)...
Þriggja og hálfs árs samband endaði... (talaði aldrei um það)
Annað drauma samband byrjaði og endaði (fjarlægðinni til Kanada er að kenna (synd))... (talaði aldrei um það, gaf það pínu í skyn)
Ég fór loksins í kvikmyndaskóla og það í Kanada... (ég er held ég alveg viss að ég minntist eitthvað á það)
Ég komst úr öllum skuldum mínum sem var búið að taka mig meira en 18 mánuði (þvílíkur léttir)... (fór aðeins út í það)
Núna er bara að sjá hvað 2004 ber í skauti mér... Merkilegt að 2003 hafi verið svona gott ár því ég hata (HATA) töluna "3"... Talan "4" er hinsvegar uppáhalds talan mín og er því við engu öðru að búast en geðveiku ári...!!!
Fyrst við (ég) erum að tala um hvernig tíminn er að líða þá vill ég enda þetta bloggár með því að sýna ykkur mynd sem sýnir mjög hvernig tíminn líður... Ég er með mynd af mér sem er samsett úr passamyndum á mismunandi æviskeiðum mínum... Að vísu er mynd 1 ekki passamynd og sú síðasta er nýleg mynd frá því í sumar til þess að setja endi á þetta... Ég er á þessum myndum (ég giska) 3, 7, 10, 15, 18, 22, 24 og 25...
Tíminn líður hratt á gervihnattaöld...
Gleðilegt ár...! Takk kærlega fyrir það liðna...! Sjáumst hress og kát á því nýja...!
...to be continued... Ævintýri Ragnars Eyþórssonar halda áfram 2004...
Posted
10:54 f.h.
by Unknown
Alltaf færri og færri dagar eftir hér heima... Dagskráin hljómar sem svo...
Í dag... Áramót... Djammað með fjölskyldunni til yfir miðnætti og svo partý... Hvaða partý ég vel er eftir að koma í ljós...
Á morgun... Ég hef ekkert að gera... ekki baun... Er ekki líka vanalega djamm þann 1. jan fyrir utan nýjársböll...?
Föstudagur... Árlegt fjölskylduboð með systkinabörnum mömmu... Einn besti hópur af spilurum í landinu... Gífurleg stemmning... Hvort einhver nennir svo í bæinn með mér eftirá er spurning (allir konmir með börn!) en eflaust hitti ég þá bara einhvern eftir það...
Laugardagur... Ekkert plan...!
Sunnudagur... Flug til Boston... Verð að gista á einhverju hóteli yfir nóttina...
Mánudagur... Morgunflug til Toronto... Æði svo í næsta leigubíl og bruna í skólann til að ná fyrsta tímanum... Kjúklingavængir um kvöldið og allt ef komið í gamla (nýja gamla samt) farið...
Jamm... skrítið... Ég verð búinn að vera hér 25 daga en mér finnst það bara eins og vika... Time flies when you're having fun... og þessi tími leið svo hratt að ég hlýt að hafa rofið einhverjar eðlisfræðilegar reglur... Sorry Einstein...
Posted
10:41 f.h.
by Unknown
Þá er ég búinn að smakka þetta sem ég talaði um í gær...
Það var alls ekkert skrítið bragð við þetta, heldur bara tilfinningin að maður var að éta þetta... Kjötið kom forsoðið í einhverjum pakka með maður þurfti að hita upp... Svo opnuðum við pakkan og settum innihaldið á disk... Þetta voru tveir sæmilega stórir bitar af bleik rauðu kjötu, veit ekki af hvaða part eða tegund... Ég og pabbi störðum á þetta í smá stund og ég spyr vandræðalega: "Á maður að nota einhverja sósu eða...?".... Eftir smá stund tók pabbi sig til að skar tvo bita, einn handa okkur báðum og maður setti hann mjög hægt uppí sig... Ég ætla ekki að nota frasan "It tastes like chicken" því það var fjarri lagi... Þetta var í rauninni eins og mjög mjúkt saltkjöt...
Eina ástæðan af hverju maður vildi borða þetta upprunalega var til þess eins að geta sagts hafa prófað það... Það verkaði mun sterkar en bara forvittnin... En svo þegar það var að eldast þá varð ég gífurlega spenntur... Svo horfði maður á þetta á disknum og varð ennþá spenntari... Svo kom fyrsti bitinn og ég get ekki sagt að ég hafi pælt mikið í bragðinu... maður var bara hugsandi "er ég virkilega að borða þetta"... Manni fannst að maður væri að gera eitthvað af sér... brjóta eitthvað taboo... Ég og pabbi sátum þarna í þögn, báðir tyggjandi og horfðum á hvorn annan... þegar við vorum báðir búnir að kyngja kom svona spennufall og við hlógum að þessu... Hann fékk sér að vísu bara einn enn lítinn bita áður en hann vildi ekki meira... Það var ekki bragðið sem fékk hann til að hætta bara tilhugsunin... Ég fékk mér að vísu nokkra fleiri bita en hver biti var erfiðari að koma niður en sá fyrri... Maður fékk alltaf meiri og meiri sektarkennd... Loks kom að því að ég gat ómögulega fengið mig til að borða annan bita...
Þetta var mjög mjög forvittnileg reynsla... Ef einhver hefði rétt mér þetta á disk og sagt að þetta væri bara saltkjöt hefði ég spænt þessu í mig... en þetta var ekki saltkjöt og það var mjög erfitt að ímynda sér neitt annað... Þið hugsið kannski að maður sé bara kelling að hafa einhverja samvisku yfir þessu því kjöt er bara kjöt... but don't knock it untill you've tried it... eins lítið og skemmturinn var hefði ég aldrei getað klárað af diskinum...
Á jákvæðum nótum... If you are what you eat, then now I'm mans best friend...!
P.S. (Gamall brandari) Hafðið heyrt um nýju kínverku kokkabókina...? 1001 ways to Wok your dog...
þriðjudagur, desember 30, 2003
Posted
10:47 e.h.
by Unknown
AÐVÖRUN: Dýravinir ekki lesa eftirfarandi blogg... Að vísu hefði fólk sem er rosa rosa miklir kattavinir kanski gaman af þessu...
Ég er að fara næra mig aðeins eftir smá stund á svolitlu sem er ekki hefðbundið hér á landi... Þeir sem hneyksluðust á að ég át höfrung einu sinni er ekki eftir að líka vel við þetta... Allavega, þá er þetta vara sem við fengum gefins frá kínverskri starfskonu sem vinnur hjá pabba... Þetta á víst að vera algjört lostæti en ég mun ekki segja það orðrétt hvað þetta er... Ég mun bara gefa það í skyn með rosa lélegum og augljósum bröndörum... Vá, hvar skal byrja... það nefnilega hægt að gera marga alveg hund lélega brandara um þennan mat...
Segjum sem svo að ég er að fara fá mér bókstaflega Hot-Dog... Talandi um pulsur, þá fékk ég einu sinni með SS pylsupakka skemmtilega danska mynd sem hét eitthvað svipað og I Kine Spiser De um... I Kine Spiser De Ahhhh, hvað var það nú aftur, ég á að vita þetta... það vantar eitt orð í heiti myndarinnar...
Þið verðið kanski tíkarlegt af mér að bulla svona... ég gæti gert ykkur hund fúl... En ég vill endilega smakka þetta sem fyrst... ég vill ekki að góður biti fari í hunds kjaft...
Það er samt skrítið að éta þetta því margir í kringum mig vilja ekki einu sinni smakka þetta... En ég get huggað mig á því að ég er að hefna mín fyrir öll skipti sem ég hef verið bitinn af þessari skeppnu í gegnum ævina... It's a dog eat dog world... Life's a bitch, and then you eat...! Ég skal segja ykkur hvernig þetta smakkaðist á morgun...
Posted
7:11 e.h.
by Unknown
Ég kenni veðrinu um að ég náði ekki að blogga aftur í gær... Í raun hafi ég ekkert annað að blogga um í gær og hefði eflaust bloggað bara um veðrið... En núna hef ég eitthvað að segja...
Í gær fór ég með Inga félaga mínum og Guðnýu (glænýju (eða svona frekar nýju)) kærustu hans uppí bústað til Ásgeirs félaga míns og Ingigerðar kærustu hans... Þetta átti bara að vera stutt heimsókn en vegna færðarinnar þá festum við einn jeppan og það tók okkur meira en klukkustund að losa hann... Við lögðum því ekki í að keyra tilbaka þannig við eyddum kvöldinu og svo nóttinni þarna...
Svo heppilega vildi til að Ásgeir var ný kominn úr tollinum þannig okkur þyrsti ekki neitt... til að byrja með allavega... Því þegar þú ert með mig, og svo Inga og Ásgeir frá Lúxemborg þá rennur hratt á byrgðirnar... þannig í morgun urðum við að reyna að komast í bæinn því maður var ekki á því að eyða öllum áramótunum þarna...
Ég ætla samt að taka það rólega í kvöld og safna kröftum (eins og ég þarnast þess (HAHA!)) fyrir morgundaginn... Ó ljúfa líf...
mánudagur, desember 29, 2003
Posted
11:53 f.h.
by Unknown
Eins og margir vita, þá ef ég blogga ekkert yfir heila helgi, þá þýðir það að hún var mjög góð...
Föstudagurinn var samt frekar rólegur, en hann endaði á því að ég var dreginn í karíókí á Ölver (er nokkur annar staður sem það er hægt?) mep Inga félaga mínum, kærustu hans og vinkonu hennar... Þar sem Ingi gæti ekki einu sinni sungið afmælissönginn án þess að fá nokkrar tilraunir (og hafa textan á blaði fyrir framan sig) þá varð ég að taka fleiri lög og syngja síðan dúett með stelpunum (bara annari í einu (annars hefði það verið tríó (duh!)))... Ég fékk að vísu ekki að velja nein lög nema það fyrsta en ég söng American Pie (eftir Don McClean), One (eftir U2) og svo dúett yfir Time OF My Life (úr Dirty Dancing) og Endless Love (með Lionel Ritchie og einhverri (Chandler og Phoebie tók það saman í Friends einu sinni (aaahh, nú munið þið)))...
Á laugardeginum hinsvegar var stór glæsileg veisla sökum þrítugs afmælis Hauks í Danmörku (hann var náttúrulega ekki í Danmörku um helgina (hann var á Íslandi að halda afmælisveislu (sem ég fór í)))... Þar hitti ég fleiri gott fólk svo sem Geir, Gauta og Önnu og Rögguló úr Stálfélaginu ... Þetta er allt fólk sem lifði af síðustu Hróarskeldu með mér þannig maður var í góðra manna hópi...
Sunnudagurinn hefði náttúrulega átt að fara í slökun en ég æddi út rétt fyrir fjögur með bróður mínum og mági á Players þar sem við drukkum slatta af bjór, nærðumst, spiluðum pool og pílur og fórum svo á Lord Of The Rings: Return Of The Hilmir... Svo var farið aftur á Players í smá öl til að vinda af okkur... Við undum nattúrulega svo vel af okkur að við þurftum leigubíl heim... Leigubíllinn var óvenju lengi á leiðinni og þegar við hringdum og athuguðum, þá var gaurinn bíðandi fyrir framan Goldfinger (segir okkur að hann hafi ruglast (einmitt))...
Allavega, þá var þetta aldeilis fín helgi... og ég haf bara einn séns eftir til þess að ná að slá henni við áður en ég fer til Kanada... Hver vill hjálpa mér að reyna...?
föstudagur, desember 26, 2003
Posted
1:15 e.h.
by Unknown
Ég held ég mun fagna verulega þessa helgi... Who's with me...?!? Ég er nefnilega kominn með einkannir mínar...
Intro to Media Writing: B+ (Handritsgerð)
Intro Computer & Multi Media: A+ (Tölvufræði)
TV Studio Production: B+ (TV stúdíó (duh))
Audio Production Concepts: A+ (Hljóðvinnsla)
Intro to Language of Movies: A (Kvikmyndasaga)
Introduction Media Technology: A (Tæknifræði)
Image Production: C (Ljósmyndun)
Ég hef aldrei á ævinni fengið svona háar einkannir... ALDREI...!!! Síðasta sinn sem ég fékk 10 í einhverju fagi var í ensku í grunnskóla... Það er greinilegt að ég á heima í þessu námi en ekki verkfræði eins og ég fór fyrst í fyrir nokkrum árum...
Ég er samt ekki sáttur við þessa "C" einkunn... Ef ég fékk "C", þá fékk enginn annar í bekknum meira en "C" heldur... Tala við kennarann um leið og ég kem aftur... Vá, heyra í mér... Ég hef aldrei á ævinni heldur talað við kennara út af einkunn og kvartað... Ég hef fengið fimmur og sexur (ekki oft samt) í menntaskóla, sætt mig við það og hugsað það skiptir ekki máli því ég kláraði fagið og þetta var eina sem þurfti... En núna... "C"... "C"!?! Ég "C" rautt...! Urrr... (Afsakið lélega brandarann í lokinn... Ég "C" að mér)
Posted
12:39 e.h.
by Unknown
Var að setja á netið mynd af jólatréinu okkar...
Mamma vann eitt sinn í skógræktinni fyrir löngu (áður en ég fæddist) og eignaðist þar nokkra vini... Núna er einn þeirra skógarvörður fyrir norðann og velur alltaf tré handa okkur og sendir það suður... Við nefnilega erum í minnihluta landsmanna með tegundaval á jólatrjám því við erum furufólk... Það er létt að fá stórt og fallegt rauðgreni (=grænt gólf í nálum)... Einnig er alltaf til góður Norðmannsþinur (sem aldrei hrynur)... en að fá jafna og góða furu er eins og að leyta af furunál í rauðgreni heystakk... Þess vegna allt árið hefur skógarvörðurinn augun opin fyrir tré handa okkur sem hann loks heggur niður og sendir okkur...
Eini gallinn er að tréin eru svo rosalega fersk að norðan að harpixið er gífurlegt... Maður þarf ekki að hengja upp skrautið heldur hendir maður því á og það festist... Í raun gætum við fest tréið sjálf bara við loftið með harpix límingunni, en þá væri svo erfit að dansa í kringum það (við dönsum samt ekki kringum það niðri á gólfi heldur)... að vísu með tréið límt við loftið væri meiri pláss fyrir pakka... verð að umhugsa þetta aðeins...
Allavega, þá er hér mynd af trénu okkar... Mamma mín stendur við það og er að skreyta það (ég festi að vísu allt sem er þarna fyrir (*monnt*))... og nei, hún er ekki dvergur, þetta er bara hátt tré... maður notar stjörnukíkir til að sjá stjörnuna á toppnum...
Posted
12:05 e.h.
by Unknown
Jæja, stærsti hluti jólanna búinn og það gékk áfallalaust (eins og alltaf)...
Nærðumst við á hinu árlega combó af afspassúpu, rjúpu og Tobleron ís (nei, hann er ekki þríhyrndur)... Svo var notast við vörulyftu til þess að keyra fólkið inní stofuna...
Ég fór ekki í jólaköttinn né jólabókaorminn... Fékk tvennar peysur og skó fyrir kuldann í Kanada... Fékk nýja bók eftir Terry Pratchet, kvikmyndabókina 1001 Movies You Must See Before You Die (var búinn að sjá 220 af þeim en það er nú komið uppí 221 sögum góðrar dagskrár í sjónvarpinu í gær) og bókina Python On Python, svakalega þykk og stór bók um ævi og störf Monty Python fólksins skrifað af þeim sjálfum...
Framundan er góð helgi og svo áramótin... Gerum eins og "the artist formerly know as the artist formaly known as Prince" og Let's Party Like It's 1999 (Við vorum nefnilega svo miklu yngri og hraustari þá (ég er bara að hugsa um ykkur, ég er ennþá algjör nagli (ekki einu sinni ryðgaður)))...
miðvikudagur, desember 24, 2003
Posted
2:49 e.h.
by Unknown
Kæru lesendur (já, þið eruð öll mér mjög mjög kær)...
Gleðileg jól...!
Posted
2:47 e.h.
by Unknown
Næstum allt búið fyrir jólin... Búinn að kaupa allar gjafir, skreyta massa jólatré massa vel, byrjað að undirbúa matinn... Það eina sem er eftir er að skrúbba sig, klæða sig (í þeirri röð) og stjast niður til þess ða borða...
Að vísu er eitt sem ég klikkaði pínu á... Ég gleymdi jólagjöfinni til systur minnar í bílnum hjá mömmu ópakkaðri í engum poka (gjöfin er ópökkuð og ekki í poka, ekki mamma (jú að vísu er mamma líka ópökkuð og ekki í poka en ég gleymdi henni ekki í bílnum))... og systir mín er búin að vera keyra bílinn í allan dag að fara með jólagjafir til annara...
Nú þarf ég bara að vona að hún er svo upptekin við aksturinn að hún sér ekki það sem situr í farþegasætinu við hliðina á henni...
Talandi um jólakraftaverk...
þriðjudagur, desember 23, 2003
Posted
3:38 e.h.
by Unknown
Föt sem ég mæli ekki með að klæðast ef þú ætlar að versla í friði í Hagkaup:
Svört flíspeysa og jólasveinahúfa...
Ég var að versla inn í ávaxtadeildinni ýmsa ávexti fyrir jólinn og skoðaði þá gaumgæfilega því ég vanda alltaf sérlega valið... Ég skoða útlitið, stærðina og mýktina... Suma ávexti á maður að taka harða en aðra mjúka... Ég tel mig vera mikinn fagmann í að velja ávexti (you might just think I'm fruity)...
Ég er að handfjatla nokkrar melónur (ekki dónalega (þið voruð samt að hugsa um það er það ekki)) þegar einhver gaur kemur og spyr mig hvar spergilkálið sé... Ég segi ég veit það ekki því ég vinn ekki í Hagkaup... Ég held áfram að handfjatla melónurnar (já, ég handfjatlaði þær lengi, ég er fagmannlegur) þegar einhver kona spyr mig eitthvað um vínber (konur hafa áður spurt mig um vín, berar (en það var ekki þannig núna)) og ég svaraði henni frá vitneskju minni en bætti við að ég ynni ekki þarna... Ennþá er ég að þukla á melónunum (sömu og áðan, ekkert tengt neinni konu hvort sem hún var ber eða ekki (þið getið ekki hætt að hugsa dónalega er það nokkuð (ég var að banka í melónurnar for crying out loud))) þegar eldri kona spyr mig hvort ég ynni þarna... Ég sagði nei en hef mjög góða þekkingu á áxöxtum... Þá spurði hún mig hvort hún væri að velja góða ananasávexti... Ég skoða tvo ananasa (segir maður "ananasa"?) og leist ekki á annan þeirra þannig ég tók hann úr körfunni hennar... Hún þakkaði mér kærlega bað mig um að velja fyrir sig eina melónu... Ég var á þeirri stund kominn með þrjár góðar melónur sem mér leist vel á en þurfti bara tvær (þurfa allir karlmenn ekki bara tvær melónur?) þannig ég lét hana fá þá þriðju og hún var afar þakklát...
Ég er kominn í sítrónurnar og sé að fólk er að fylgjast með mér... Ég skoða hverja sítrónuna á fætur annarar og vel loksins þær fjórar bestu... Ég rétt stíg frá og þá æða tvær konur að og taka sítrónurnar sem ég var greinilega búinn að samþykkja í fimmta til áttunda sæti... Ég sný mér við og þá er gamla konan kominn aftur... Hún spyr hvort ég get valið fyrir sig mangó... Ég skoða mangóin vel, læt hana fá tvö bestu og leyfi hinum konunum að komast að til að taka magnóin sem ég var búinn að dæma í þriðja sæti til sjötta sæti...
Gamla konan þakkar mér aftur og spyr í gríni hvort það sé leið að ná í mig næst þegar hún fer að versla inn (hún meinti það samt alveg örugglega)...
Jamm, svona gerist þegar maður klæðist svartri flíspeysu og jólasveinahúfu í Hagkaup... Þetta var samt frekar gaman... Ég vissi ekki að það væri til fleiri en ein leið til að skemmta sér eftir að hafa þuklað á melónum (núna megið þið túlka þetta eins og þið viljið)...
P.S. Hefði ég átt að minnast eitthvað á banana í þessari sögu...?
mánudagur, desember 22, 2003
Posted
4:01 e.h.
by Unknown
Var að koma úr jólaklippingunni... Var ekki búinn að klippa mig síðan á síðasta vetri... Var sem sagt með frekar sítt hár (gat sett í tagl (gerði það samt aldrei (nema einu sinni til að gá hvort ég gæti sett í tagl (sem ég gat (og gerði það ekki aftur)))))...
Er núna búinn að jafna hárið aðeins út en það eru því ver og miður ennþá draugar af sveipunum sem voru í fyrri hárgreiðslunni... Verð ég því eflaust að setja slatta af hárgeli í þykkasta flokki (þak-tjara) til þess að ég get mótað hárið í þá mynd sem ég kysi frekar...
Samt, er búinn að ganga með jólasveina húfu daglega síðustu daga og vill ekki hætta því þannig spurning er hvenær heimurinn fær að sjá afraksturinn... get it... af-raksturinn... ahaha haha hummmm...
Posted
11:00 f.h.
by Unknown
Mjög góð helgi... Ingi félagi minn sem hefur um of langa stund haldið sér í Lúxemborg var kominn til landsins og skemmtum við okkur konunglega til sjö á föstudags nótt (eða sjö um laugardagsmorgin, hvort sem var lengra)... Maður sofnar um 7:30 en er rifinn upp stuttu seinna (11:00) til þess að fara í barnaafmæli...!
Sem betur fer var næringin á boðstólum þar þess virði að skriða frammúr (ef það er til sögn sem er enn ýktari en "skríða frammúr" þá gerði ég það (t.d. lak frammúr))... Egg, beikon, pulsur, amerískar pönnukökur, allskonar ostar og álegg... Fékk ég síðan vel þegin jólabjór(a) og dagurinn byrjaði að líta enn betur út... Ég vissi samt að ég yrði að taka smá lúr (2-3 tímar) ef ég ætlaði að halda út laugardagsnóttina...
Lúrnum varð hinsvegar að fresta því eftir þetta fór ég að horfa á LOTR:TTT-XSE (Lord Of The Rings: The Two Towers-Extended Special Edition) með öðrum félögum því við erum þegar komnir með miða á LOTR:ROTK fyrir næsta laugardag þannig maður vill vera búinn að sjá allt sem tengist söguþræðinum... Þetta var fjagra tíma mynd (!) þannig ég var ekki kominn heim fyrr en rétt yfir 18:00...
Þá var komið að lúrinu... Með löngu tilhlaupi þá stökk ég uppí rúm í í miðju lofti var hóað í mig til þess að skutla ma og pa í veislu þannig ég frestaði lúrnum... Þegar ég kem heim stekk ég aftur uppí rúm en í loftinu þá hringir síminn... Það var bróðir minn að biðja um smá tölvuhjálp með jólakort... Ég talaði við hann um stund og rétt áður en ég lenti þá spurði hann hvort það væri ekki bara best að drífa í þessu strax sem ég samþykkti þannig aftur frestaðist lúrinn...
Needless to say þá fékk ég engan lúr þennan dag því rétt eftir þetta kemur Steini félagi minn og Ingó og við fórum í eitthvað bjórkvöld með Verkfræði þeirra... Bjórkvöldið varð að bjórnótt sem síðan varð að bjórmorgun og komst ég loks heim um sjöleitið aftur...
Ég slökkti á ljósum og símum, setti slagbrand fyrir dyrnar og einangraði mig frá umheiminum undir þykkri sæng... Það var komið að langþráða lúrnum mínum og eftir litla leit fann ég hann... hrotur galore...!
föstudagur, desember 19, 2003
Posted
10:54 f.h.
by Unknown
Í tilvefni af því að glæsilegi þríleikurinn um Lord Of The Rings er loksins að klárast þá vill ég benda fólki á tvær litlar síður (sem eru að vísu skyldar innbyrðis)... Gæti verið að þið hafið séð þetta áður í kringum fyrri tvær myndirnar...
The Hobbit Name Generator The Elvish Name Generator Úrkomur mínar voru:
Álfanafnið mitt er "Ecthelion Elanessë"... frekar ömurlegt nafn sem ég mun aldrei nenna að bera rétt fram (þó ég gæti það (ef einhver segir mér hvernig "e" með tveimur punktum (eins og "ö" er með) hljómar (held að kommurnar séu bara uppá skraut)))... Það er heldur ekki hægt að stytta það án þess að það hljómar verr... Hey, call me Ecthy...
Hobbitta nafnið mitt er hinsvegar "Wilcomb Hardbottle" (call me Wilco (eða Will (eða Willy)))... Mjög gott nafn... Það myndi passa betur ef það væri "Will Comb Hard Bottle" því ég mun gera það alla þessa helgi (á flösku af Captein Morgan)...
Skál fyrir því og sjáumst vonandi einhverstaðar því það er nær öruggt að allir eru að fara út þessa helgi... Vúhú...
Posted
10:35 f.h.
by Unknown
Mikið verður margmennt heima núna um jólin...
Þegar fólk er búið að vera með maka um einhvern tíma þá róterar það alltaf á hverju ári hjá hvorri fjölskyldunni það á að vera yfir jólin... Það vill svo frábærlega til að öll systkini mín (þrjú) verða hjá foreldrum mínum í ár ásamt börnum (tvö plús þrjú plús núll) og mökum (þrjú)...
Ég verð hinsvegar sá eini þarna sem er makalaus því ég á engan maka... En hvort sem ég er vanalega makalaus eða ekki, er ég samt sem áður ekki alveg makalaus...?
(Kannski verður þessi súkkulaðikaka á staðnum sem ég var með um daginn)
Posted
10:24 f.h.
by Unknown
Var að skoða Lifandi V'isindi... Æðislegt blað... Er búinn að liggja yfir nokkrum svoleiðis síðan ég kom heim því ég er nokkrum tölublöðum á eftir...
Sá þar ljósmynd um hvernig BBC sjónvarpsstöðin dulbýr myndavélar sínar þegar hún er að mynda fíla í Afríku... BBC dulbýr þær sem hrúgur af fílaskít...
Málið er að þessi hrúga af skít lítur nákvæmnlega út eins og hrúga af steinum... og gott að ég er ekki í Afríku því ég veit alveg á hvernig "steinahrúgu" ég myndi setjast vanalega á til að hvíla mig aðeins...
Posted
10:21 f.h.
by Unknown
Það var stjörnu prýtt kvöld í gær á Snoker Sport Bar á Hverfisgötunni...
Á staðnum voru meðal annars plötusnúðar, gaurar úr Quarashi og Sigurrós (gaurar úr Sigurrós, ekki einhver stelpa sem heytir Sigurrós) í billjarð, kvikmyndagerðamaður sem kallar sig Friðrik Þór (eða eitthvað svoleiðis) í snókar er og svo náttúrulega okkar ástkæri rithöfundur og kvikmyndagerðarmaður Ragnar Eyþórsson...
En þökk sé leyndum ferða okkar voru engir papparazzí ljósmyndarar að ónáða okkur...
fimmtudagur, desember 18, 2003
Posted
4:46 e.h.
by Unknown
Ég hringdi í Blóðbankann í dag og spurði hvenær ég máttí leggja mitt af mörkum og tappa af mér... Málið var þegar ég fór út að þá sögðu þau að ég yrði að bíða í þrjár vikur eftir að ég kæmi heim frá Toronto vegna SARS veikinnar...
Hinsvegar var SARS alveg horfin þegar ég kom (þorði greinielga ekki að mæta mér) þannig það varð engin bið fyrir að gefa blóð...
Núna hinsvegar sögðu þau að það var einhver sérstakur sjúkdómur í Kanada á ferli sem dreyfir sér með mosquito flugum þannig ég má ekki gefa blóð fyrr en eftir mánuð að ég kem heim, sem sagt þegar ég er farinn aftur... Ég má hinsvegar gefa blóð strax og ég lendi aftur á Íslandi í apríl (nema það sé kominn einhver ný veiki sem dreyfist með... um... bifukollum?)
Ég vill því biðja ykkur kæra fólk sem er með A+ blóðflokk um að vinsamlegast ekki slasa ykkur fyrr en allaveg eftir mið-apríl því þá koma ferskar byrgðir af mér á spítalanna... Þið hin slasið ykkur af vild... knock yourselves out (bókstaflega)...
Posted
4:36 e.h.
by Unknown
Áááiiii... Eyrun á mér...
Ég var að hjálpa systur minn með afmælisboð handa syni hennar sem var að verða 10 ára... 30 stykki jafnaldrar hans skapa meiri hávaða en farþegaflugvél tengda við magnara... Í þokkabót var verið að spila jólalög á hæsta stigi á græjum sem hafa eflaust verið fengnar að láni hjá Spinal Tap ("these go to 11", græjunar frá Rammstein voru ekki nógu háværar til að yfirgnæfa krakkanna)...
Núna sit ég með suð í eyrunum, dauðuppgefinn...
Ég fékk samt að hefna mín... Á leiðinni heim varð ég að skutla fjórum gaurum þannig ég blastaði bara mitt klassíska rokk sem ég fann á Radíó Reykjavík 104,5 meðan þeir nöldruðu og kvörtuðu og sögðu að þetta gamla rokk væri ömurlegt miðað við þeirra rapp...! Hve glöð er vor æska ég bara spyr...
Ég las þá yfir þeim rokk pistilinn frá "AC-DC" til "Zepplin"... Ég held að þeir eru allir á leið núna í gítarnám... Rock On!
Posted
11:35 f.h.
by Unknown
Hvað er búið að koma fyrir dagblöðin í landinu...? Ég rétt bregð mér frá í örfáa mánuði til Kanada of þegar ég kem aftur þá er búið að fjarlægja aðal menninguna úr þeim...!
Jamm, Morgunblaðið, Fréttablaðið og D.V. eru ekki lengur með teiknimyndasíðu...!!!
Morgunlaðið er að vísu með einhverjar framhaldssögur en hver nennir að lesa svoleiðis... Maður vill fá alla söguna á þremur til fjórum kössum (nema það sé sunnudagur og þá má það vera nokkrar línur) en ekki dreyft yfir marga daga.. Hversu mikla athygglisgáfu heldur fjölmiðlarnir að við séum með... Í þokkabot er Moggin líka með HRÆÐILEGA risaeðlu teiknimynd sem jafnast á við þann ömurlega ófyndnileika (ef þetta orð er ekki til, þá er það til núna) Tomma og Jenna teiknimyndanna og Lubba hunds sem þeir birtu líka (ekki samt Tomma og Jenna í sjónvarpinu, það er gull)...
Teiknimyndasögur er örugglega það menningarlegasta sem til er í heiminum... Slær úr bókmenntir, vísur og leikrit... Hvað haldiði að frummennirnir voru að skapa í hellum sínum fyrir tugþúsundum ára... Ekki voru það ferskeytlur eða smásögur... Nei, þeir máluðu teiknimyndasögur yfir alla veggi... Heimildir herma að Grettir (Garfield) var upprunalega sverðtígur með svakalega matarlyst á ítölskum frumbyggjum (það var ekki búið að finna upp lasagne ennþá)...
Eins gott að ég er með hlekkina á almennilegar teiknimyndarsögur fyrir ykkur hér til hliðar... Góða skemmtun...
Calvin and Hobbes Dilbert Grettir Herman Sherman's Lagoon User Friendly
miðvikudagur, desember 17, 2003
Posted
6:07 e.h.
by Unknown
Var að átta mig á því að enn og aftur er ég að kalla hlutum vitlausu nafni... hélt t.d. lengi að "að bíta á jaxlinn" þýddi að bíta sig í öxlinna (don´t know why)... fyrir freaky tilviljun þá hélt bróðir minn þetta líka og við komumst að réttu merkingunni á sama tíma þegar við bitum báðir í öxlina...
Allavega, þá varð mér ljóst í dag að Lord Of The Rings á íslensku er ekki Hringa Drottningar Saga... heldur Hringa Dróttins Saga...
Þetta útskýrir af hverju ég sá engar drottningar í sögunum... Að vísu er orðið drottning á ensku (queen) notað yfir samkynhneygða karlmenn og samkvæmt mörgum spekulentum (t.d. The Secret Diaries) þá gæti titillinn sem ég hélt að væri yfir bókunum verið réttari eftir allt saman...
Posted
5:59 e.h.
by Unknown
Verð að benda áhugafólki um L.O.T.R. á þennan hlekk (ef þú veist ekki hvað L.O.T.R. er skammsöfun fyrir, þá ertu eflaust ekki áhugamanneskja)... The Secret Diaries...
Það er verið að gera grín (náttúrulega) af L.O.T.R. (ef þú villt vita hvað L.O.T.R. stendur fyrir fléttu því upp á netinu) persónunum... Basicly, þá eru allir sjálfumglaðir hommar í sögunni (ekkert samansem merki samt á milli þess að vera sjálfumglaður og að vera hommi (ég er sjálfumglaður (en ekki hommi (en er orðinn mjög hrifin af þessari súkkulaðiköku sem ég fékk í gær *söknuður*))))...
Þið verðið að lesa dagbækurnar í röð, frá efst til hægri svo efst til vinstri og þannig alla leiðinna niður því húmorinn byggist uppá í hverri dagbók læriru meira um hlutina í fyrri... Snögg lesning og algjör snilld...!
The Secret Diaries...
Posted
11:25 f.h.
by Unknown
Úff...
Í raun ætti ég að segja "úff" með tveimur úum, fjórum effum og upphrópunarmerki (Úúffff!)... Í gær bakaði Sassa systir mín köku... í raun er "bakaði köku" eru ekki rétti orðin... Systir mín "skapaði fullkomnun í fati"... Þvílík og önnur eins gómsæti hafa ekki farið fyrir innan varir mínar hvorki fyrr né síðar... Í þokkabót fékk ég að næra mig á "kökunni" (ef hún má teljast undir þeim flokki) meðan hún var ennþá heit og skolaði henni niður með mjólk sem var svo köld að það voru litlir ískristallar í henni...
Ég vona að aðrir kvennmenn komast ekki að þessari uppskrift því þá væru við karlannir óþarfa gleðigjafar í lífi þeirra... og eftir að ég át þetta í gær þá sorrý stelpur, það er ekki svo mikið til ykkar komið eftir allt saman (prove me wrong)...
Ég er samt ekki orðin piesexual...
þriðjudagur, desember 16, 2003
Posted
2:48 e.h.
by Unknown
Fyrir þá sem muna það ekki, þá samdi ég vísur í fyrra sem hétu Jólasveinar 2002 og var þetta gert í stíl við jólasveinavísurnar frá Jóhannesi úr Kötlum nema ég uppfærði Jólasveinanna í nútímalegri gaura... ég meina hversu oft kemst greyið Askasleikir í ask (ég veit ekki heldur hversu oft hann kemst í sleik (jóladónó))...
Núna er kominn upp íslenskur jólavefur og hefur þar verið sett inn vísurnar mínar (með leyfi náttúrulega) og teikningarnar sem Ingi félagi minn gerði fyrir mig... Sett mjög vel upp... Endilega kíkjið á þessar vísur ef þið hafið ekki séð þær áður... eða náttúrulega ef þið viljið bara rifja þær upp...
Posted
2:13 e.h.
by Unknown
Ég var að keyra framhjá ofvirka jólaskreytingarheimilinu á Bústaðarveginum í gær... Eins og vanalega er húsið upplýstari en alþjóða flugvöllur í þoku... Ég er mjög mjög mikið jólabarn en eins og vanalega verð ég að segja um þetta að öllu má nú ofgera...
En skyndilega (á hraða ljóssins (það gerist varla meira skyndilegra en það)) þá slökknaði á helmingnum af seríunum á trjánum hans... Ætli það hafi sprungið ein pera...? Ég verð að viðurkenna að ég hefði lúmst gaman að vita af honum athugandi peru eftir peru í leit að þeirri sem er biluð... Maður er pínu jóla púki :)
Posted
2:07 e.h.
by Unknown
Ég held ég á ekki eftir að geta horft á nýlegri Coca-Cola jólaauglýsinguna í ár án þess að fyllast skelfingu...
Ég er að tala um auglýsinguna þar sem fullt af upplýstum Coca-Cola trukkum keyra um einhvern jólabæ á meðan raulað er í bakgrunninum "Hollidays are comming, hollidays are comming..."
Ég var nefnilega keyrandi í gærkvöldi út á landi í grenjandi rigningu, brjáluðu roki og kolnaðar myrkri... Maður er keyrandi um á sleipum vegi á jeppa og er frekar pirraður yfir færinu... Skyndilega sé ég svakaleg ljós fyrir framan mig og þaun stefna í áttina að mér... Ég sé að þetta er upplýstur Coca-Cola bíll, alveg eins og í auglýsingunni... Ég byrja að raula "Hollidays are comming, hollidays are comming..." Trukkurinn nálgast og nálgast og ég léttist í skapi og raula áfram hærra "Hollidays are comming, hollidays are comming..." Svo keyrir bíllinn frammhjá mér og ég raula í góðu jólaskapi "Hollidays are comming, holli*WOOOSHHH**SPLASH*AAAAAhhh*SKRANS**SKRANS*AAAAAAhhh*BREMS**SKRANS*AAAAhhhhh!!!!!!"...
Ekki nóg með að bíllin skvetti fimm baðkerum af vatni yfir hverja rúðu (40 baðker samtals) heldur voru ljósinn svo björt að maður bæði blindaðist af ofbirtu og svo lýsti það upp allar rúðurnar þannig ekkert sást þar heldur... Í þokkabót kom svo mikill vindgustur frá hraða bílnum og hann feykti mér til lengst hliðar þannig ég var að missa stjórn á bílnum...
Mikið fékk ég stórt sjokk... Ég ætla að sniðganga þennan drykk núna í langan tíma... Neyðist til að blanda í staðinn bara Captein Morgan og Jólaöl á næsta djammi...
mánudagur, desember 15, 2003
Posted
1:25 e.h.
by Unknown
Fékk mér Bæjarins bestu í hádeginu...
Pulsurnar (pylsurnar) hér eru svo miklu betri en úti... þetta er í raun eins og að segja að ávextirnir hérna eru miklu betri en plastávextirnir í Ikea...
Mér finnst líka frábært að vera í landi þar sem maður biður um "Eina með öllu" og manneskjan veit að maður er að tala um pulsu (pylsu)... Ég bað um "One with everything" í Canada og gaurinn hélt ég væri Búdda í hugleiðslu...
Posted
1:21 e.h.
by Unknown
Ég er að verða vitlaus (í raun vitlausari, er oftast vitlaus (nema þegar ég geri eitthvað heimskulegt (því það er snilld))) því ég get ekki sofið almennilega... Laugardagsnótt var sofið frá fjögur til sex og svo bara legið þarna í pælingum og sjálfsvorkun til átta (yfir því af hverju ég gat ekki sofið)... Ég varð að rembast við að sofa svo ekkert á sunnudeginum því þá ætti ég séns í að snúa sólahringinum við en það mistókst því ég sofnaði klukkan tíu og vaknaði klukkan fjögur í morgun... Reyndi að sofa og lesa til skiptis (ekki í einu, það er frekar vonlaust) og endaði á því að fara frammúr klukkan 5:30 til að elda mér gráðostaommilettu með kjúkling (hvað annað er hægt að gera svona snemma)...
Ég er hér með búinn að gefast upp á því að sofna á eðlilegum tíma og muna sofna hvar og hvenær sem mér dettur í hug... eins gott ég er ekki mikið bakvið stýrið...
Posted
12:59 e.h.
by Unknown
Hjúkkit... Við verðum með íslenska rjúpu í ár...
Það vildi nefnilega svo vel til að í fyrra þá keypti pabbi tvöfaldan skammt og helmingurinn er í góðu lagi núna inní frysti... Jól án rjúpu er eins og páskar án magaverkjar vegna súkkulaði ofáts... Plús, ef ég væri ekki altlaf að mölva tennur mínar á högglunum þá myndi ég aldrei hitta tannlækni minn...
laugardagur, desember 13, 2003
Posted
7:44 e.h.
by Unknown
Kominn með nýtt númer meðan ég er heima á Íslandi yfir jólin...
6996124...
Látíð nú símtölin flæða...
Posted
1:19 e.h.
by Unknown
Klukkan í mér (ekki á mér) er alveg kolrugluð (ég hef samt aldrei séð rugluð kol)... Hún var nógu slæm úti þegar ég svaf vanalega milli 5:00-10:00 á morgnanna (var á Tokyo time) og lagði mig oftast milli 20:00-22:00... en svo kem ég heim, sef fyrst 9:00-17:30... svo sofna ég 00:00 og vakna glaðvakandi um 6:00 sem er 1:00 um nóttina í Kanada... Í gær var ég uppgefinn og dauðþreyttur um 16:00 (11:00 í Kanada), djammaði samt til XX:XX (I don´t know (það táknar gott djamm (XX-5:XX-5 í Kanada)))... Í dag vaknaði ég hinsvegar um 12:00 (sem er 7:00 í Kanada) og þetta eru fyrstu merki um að klukkan er eitthvað smá normal... Þetta gæti hinsvegar verið bara vanalegi miðdegis (kvöld) lúrinn minn og ég á eftir að steinrotast seinna í dag... Only time will tell (not my time though)...
Posted
1:07 e.h.
by Unknown
Mjög góður föstudagur...!
Ég vaknaði að vísu full snemma (6:10)... Nærði mig í morgunmat á ommilettu dauðans () og slakaði á með DVD glápi... Um hádegið fékk ég símtal um að mér var boðið á jólahlaðborð með gömlu vinnunni minni hjá Óðinsvé (Sigga Hall veitingarstaðnum)... Þar var svo svakalega góður matur... góð leið til að byrja hátíðina... Síld, reyktur og grafinn lax (í sitthvoru lagi, ekki bæði á sama laxinum), hangikjöt, súrsað svínakjöt, reyktur lundi, nautatunga, hreindýra paté, hamborgarahryggur, purusteik, hreindýr, kalkúnn og svo sætir eftirréttir að það varð að hafa tannlækni á staðnum...
Svo var ógrynni af snöfsum skellt í síg ásamt meira ógrynni af jólabjór... Við vorum þarna í langan tíma, fórum svo á "Snoker Sport Bar" (Poker Snort Bar (Haha)) til að spila smá "ballskák" (billjarð (pool (púl))) og drukkum meiri bjór og skot...
Svo var smá viðkoma á Viktor til að drekka bjór áður en ég varð að fara til þess að koma öllum félögunum á óvart...
Ég var nefnilega búinn að fá Jón félaga minn til þess að smala öllum "Durgunum" sem voru á landinu á Vegamót þar sem þeir voru að næra sig og jafnvel plana eithvað surprize partý fyrir mig á laugardeginum... Enginn vissi neitt nema Jón... Ég æði inn og sest á borð þeirra þar sem allir líta á mig og hver hugsar um sig "hvaða gaur er þetta sem sest við borðið okkar"... Skyndilega áttuðu þeir sig á því að þetta var ég (það tók mikla sannfæringu) og við áttum góða stund þarna... Svo var náttúrulega pöbarölt út nóttina og enn betri stund... Nú tekur laugardagurinn við... HVER VILL BJÓÐA MÉR Í PARTÝ...?
Posted
12:51 e.h.
by Unknown
Síðustu dagar mínir úti...
Eftir svefnlausan mánudag og tökur á þriðjudegi þá fór ég að læra fyrir síðasta prófið... Ég ákvað að taka svona "all nighter" þó svo að það var ekki mikið lesefni... Eg nefnilega var að fara heim eftir prófið á miðvikudeginum og fannast sniðugt að vaka nóttina á undan líka því þá var pottþétt að ég myndi sofa í fluginu alla leiðina heim...
Miðvikudagsmorgun tók ég prófið, gékk mjög vel... Svo fer ég út á flugvöll og tek fyrsta flugið til Boston frá Toronto...
Mental Note... EKKI drekka bjór áður en þú ferð í gegnum vegabréfa eftirlitið á leið til U.S.A.. Manneskja með minni samkvæmis blöðru en ég væri löngu búinn að pissa á sig á biðinni sem öll skriffinskan (ekkert skylt finnsku) tók... Svo kemst maður ekki á salernið þegar maður er með allar þessar töskur því þú kemur þeim ekki á kamarinn og ef þú skilur þær eftir þá halda allir að þetta séu sprengjur...
Svo fer maður í gegnum öryggishliðið þar sem allir uðri að taka af sér beltin, skónna og fleira... Ég setti hinsvegar upp minn besta "There Is No Bomb In My Shoe" look-ið og þurfti ekki að gera neitt svoleiðis...
Ég bíð í tvo tíma eftir að fara í vélina og er alveg að sofna við flughliðið (búinn að vaka 48 stundir)... Ég sofna samt ekki því annar myndi ég missa af vélinni... Ver og í vélina og "DING" ég er glaðvakandi alla leiðina (var samt bara 90 mínútna flug)...
Fyrir framan mig var mjög skrítinn maður sem ég tel vera annaðhvort flugnaveiðara að halda sér í æfingu, Nasista með flashback eða manneskja með Turrete syndrom... Málið er að á tveggja mínútna fresti (ekki nákvæmnlega (ég var samt ekki að taka tímann)) þá skaut hann hægri hendinni í loftið eins og hann var að grípa flugur eða vinka Hitler (Síg Hæl!)...
Ég kem út í Boston, redda mér á annað "terminal" sem Icelandair er og verð að setja aftur upp "There Is No Bomb In My Shoe" look-ið á leið í gegnum öryggiseftirlitið...
Ég bíð í þrjá tíma eftir vélinni og er alveg að sofna allan tímann þannig ég labba um... Kemst loksins í vélina og "DING"... sef ekkert alla leiðina heim...
Ég var kominn á fimmtudagsmorgni heim... Húrra fyrir því... Lagði mig hinsvegar til hálf sex um kvöldið og missti af öllum deginum... skiptir ekki máli því það var föstudagurinn sem ég beið eftir með pompi og prakti (hvað er prakt?)...
Posted
12:25 e.h.
by Unknown
Af hverju var ég ekki búinn að blogga í tvo daga...? og það á virkum degi... Það er ekki líkt mér... Ástæðan var einföld... Ég laumaði mér til Íslands tveimur dögum fyrr og engin vissi af því... SURPRIZE!
Jamm, ég nefnilega er mjög á móti því að ljúga í bloggi mínu (hvað þá annars staðar) þannig ég vildi ekki segja að ég væri ekki á Íslandi... Ég sagði bara að það væri helgi á Íslandi... en það virkaði eins og ég kæmi á laugardegi... og gat komið öllum á óvart heima... Aha... Clever bugger...
P.S. Hvernig segir maður "SURPRIZE!" á íslensku...?
miðvikudagur, desember 10, 2003
Posted
4:44 f.h.
by Unknown
Úff... Ég verð að ganga frá svo miklu áður en ég fer héðan... Ég verð að taka til í herbergi mínu... það er verk sem er ekki heyglum hæft... Svo verð ég að hreinsa ísskápinn... Það er eitthvað sem er ekki hetjum hæft því það verk gæti reynst ógeranlegt eftir Kool-Aid/Soya-sósu sprenginguna sem litaði allan ísskápinn þessum fallega tón...
Síðan verð ég að pakka... Ég stút fylli eflaust tvær töskur því ég verslaði vel inn fyrir systkinabörnin mín...
Svo verð ég að skilja við íbúðina á einhvern sérstakann máta, taka allt úr sambandi, setja hitt og þetta hingsð og þangað...
Loks eru svo ýmisleg smáatriði í kringum skólann... vera viss um að ég hef skila öllu inn fyrir föstudaginn...
En... það er þess virði að geta eitt laugardegi á Íslandi...
Jibbí, laugardagur a Íslandi... Loksins... Ég vona það sé eitthvað gott í sjónvarpinu þá...
Posted
3:37 f.h.
by Unknown
Vegna þess að við vorum vinnandi næstum í alla nótt þá bjóðum við sem búum á heimavistinni fólki sem býr lengra í burtu að gista í herbergjum okkar á gólfinu... Það vildi samt til að enginn svaf neitt í nótt þannig það skipti ekki máli hver var á gólfinu. Hinsvegar kom þessi ágæta samræða þegar tveir bekkjarfélaga minna þegar þeir voru að ákveða hvernig svefnfyrirkomulagið yrði í herbergi hjá einni stelpunni:
Radek: Let´s just spoon...
Tyler: I call the inside spooning...
Janie: Isn't that sex...?
Raggi: No... Sex is forking...
þriðjudagur, desember 09, 2003
Posted
4:40 e.h.
by Unknown
Ég er svo sybbinn...
Kláraði seinna prófið og gékk bara frekar vel... Svo vorum við að setja upp sviðsmynd og lýsingu í næstum alla nótt og fyrst að tökur á jólaverkefninu byrjuðu klukkan 7 um morguninn, þá sváfum við ekkert...
Ég var núna að koma uppá herbergi til að taka smá sturtu og svo verð ég að fara aftur út að leika enskan leikstjóra fyrir annað jólaverkefni...
Eftir það er lestur fyrir próf sem ég tek á morgun... Eftir það eru bara verið að fara yfir verkefni okkar og gefa okkur einkannir út vikuna...
Svo er það bara "Iceland, here I come..."
Tæknilega séð hefði ég geta lagt mig aðeins í staðinn fyrir að blogga... en ég er bara ekki það klár...
mánudagur, desember 08, 2003
Posted
7:25 e.h.
by Unknown
Er að fara í próf eftir smá stund í kvikmyndafræði en var að klára eitt í ljósmyndafræði (17/20 stig, fínnt) í morgun... Sem undirbúningur fyrir prófin þá (náttúruelga) lærði ég heima en síðan gerði það sem ég hef alltaf gert fyrir próf... Ég svaf með skólabækurnar undir koddanum...
Ég kalla þetta ekki hjátrú... þetta er meira hefð... Ég er ekki hjátrúarfullur en mér finnst mikið af hjátrú hafa orðið að hefðum þannig ég fylgi því mér til gamans hvort sem það er að sofa með bækur undir koddanum, kasta salti yfir öxlina eða sveifla dauðum ketti rangsælis yfir yfir hausnum á sér á fullu tungli...
Hinsvegar voru bækurnar full þykkkar þannig koddi minn (sem þegar er mjög þykkur og brotinn saman í tvennt til að þykkja hann enn meira) var ofur þykkur... Ég rann einu sinni af honum með hausinn og ég hélt að ég myndi aldrei lenda...
sunnudagur, desember 07, 2003
Posted
11:12 e.h.
by Unknown
"Tarmigan"...
Það er orðið sem ég er búinn að vera leita að... "Tarmigan" er enska orðið yfir "rjúpa" sem hefur verið náttúrulega jólamaturinn minn næstum, ef ekki öll mín ár...
Gæta verður á að rugla orðinu ekki við "Toboggian" því það er sleði og bragðast ekki nærru því eins vel í villiberjasósu...
Posted
11:02 e.h.
by Unknown
Hlutur sem hljómar vel á blaði en ekki í bragði...:
Chicken Bacon Jamm, sá svoleiðis þegar ég var að kaupa mér að éta í kjörbúðinni og hugsaði með mér hvað væri nú gott að byrja daginn með því að fá sér egg og bacon í morgunmat fyrir próflesturinn... nema náttúrulega að beikon er óhollt þannig ég villt eitthvað sem er ekki eins slæmt... Svarið var kjúklinga beikon
Úff... og stórt bjakk...! Það var ekkert kjúklingabragð af þessu... Samt stóð á pakkanum "no pork meat"... Ég varð að leita hvort það stóð ekki líka "no chicken meat" en sá í staðinn orðin "now with extra added chicken fat"...!!! Þá er þetta unnið kjúklingakjöt og svo bæta þeir enn meiri fitu í sneiðarnar til að það líkist meira beikon...! Hafiði einhvern tíman heyrt einhvern segja...:"Hmmm, mér finnst vanta meiri kjúklingafitu í þetta..." Only in America...
Ég hennti náttúrulega restinni beint í ruslið...! En ætli það sé til þá "Pork eggs"... Forvitinn að smakka það eins og hið fyrrnefnda... en ég ætla að sniðganga það samt... "Curiosity killed the cat... It gave it a heart attack..."
Posted
8:05 f.h.
by Unknown
Ég var að tala við félaga (Josh) bekkjarfélaga míns (Richard) um herbergisfélaga þanns fyrr nefnda. Hann er í hjólastól en er víst svaka sterkur... á að keppa á Ólympíuleikum fatlaðra næst í hjólastólakappi... Þeir voru eitthvað að glíma á gólfinu um daginn og gaurinn í hjólastólnum vann auðveldlega... Ég varð að spurja Josh aðeins um þetta og svona var samtalið (orð fyrir orð)...:
Raggi: So, why were you wrestling on the floor...?
Josh: Because I kicked him from behind and he flew into the table...
Raggi: You kicked a guy in a wheelchair into a table...!?!
Josh: No, he was standing out of it and trying to walk...
Raggi: ... ... ... ... umm... *hóst* ... ... ...?
Canada menn eru skrítnir...
laugardagur, desember 06, 2003
Posted
11:14 e.h.
by Unknown
Er búinn að eyða allt of miklum tíma í dag að gera annað en að læra... er það ekki bara eins og annað fólk gerir... Maður finnur alltaf eitthvað annað sem tekur athygglina frá námsefninu...
Ég er búinn að hlaða niður (skrítið ég notaði ekki orðið "downloada", vanalega sletti ég mikið í blogginu) fullt af 80's auglýsingum frá æsku minni í U.S.A.... Ég vill ekki nefna síðuna því hún getur dreyft athyggli annara í prófum...
Best fannst mér náttúrulega Coca-Cola jólalagið (sem er að vísu frá 1971)... Jólin eru ekki jól fyrr en ég heyri það...
Allir saman nú:
I'd like to buy the world a home
And furnish it with love
Grow apple trees and honey bees
And snow white turtle doves.
I'd like to teach the world to sing
In perfect harmony
I'd like to buy the world a Coke
And keep it company
That's the real thing.
*snökkt**snökkt* Oh, þetta er bara svo sentimental...
Hinsvegar ef þetta væri samið í dag væri endirinn: "I'd like to buy the world a Diet Caffein-Free Vanilla Coca-Cola Classic... and keep it company"...
Posted
11:00 e.h.
by Unknown
Lestur, lestur, lestur... 2 próf á mánudag og eitt á miðvikudag... Kvikmyndafræði, ljósmyndun og tækni... Svo þarf ég bara að taka upp fyrir mánudag eitt tveggja mínútna myndband einhverstaðar þar sem eru 6 eða fleiri manneskjur og prennta svo út handritið mitt að jólaþættinum fyrir föstudag... Þá er ég búinn...! Iceland here I come...!
Mig vantar hinsvegar einhvern góðan kvöldmat til þess að virkja heila sellurnar... Í augnablikinu líður mér eins og ég hafi étið bara Noodle Soup yfir ævina... Er einhver gáfaður matur til...? Í raun ef maturinn væri gáfaður þá væri hann ekki matur í augnablikinu... sjáðu til dæmis Bugs Bunny... aldrei var hann eldaður...
Spurning um að finna góða svínasteik, langt síðan ég hef fengið svoleiðis... svín eru sæmilega gáfuð, þau bara velta sér í forinni til þess að leyna því...
Skyndilega vaknar smá forvitni í mér... Ég hef séð Andres Önd borða kalkún og kjúkling en sáuði einhvern tímann Porky Pig borða skinku?
föstudagur, desember 05, 2003
Posted
12:28 e.h.
by Unknown
Fékk mér sushi í gær... og nóg af því... Fór til Toronto með Richard bekkjarfélaga...
Ég hélt að staðurinn sem við vorum að fara á væri ekkert spes því ann væri að bjóða uppá "All You Can Eat" sushi... Hinsvegar var þetta mjög góður staður og maturinn frábær...
Síðast þegar ég fór á "All You Can Eat" sushi stað þá var okkur sparkað út fyrir ofneyslu (no joke)... Þessi staður hefur greinilega heyrt af þessu því þau voru búinn að gera ráðstafanir... Á matseðlinum stóð að maður fengi bara tvo tíma til þess að éta eins mikið og maður gat... So much sushi, so little time...
En tímamörkin vr eitthvað sem við þurftum að hafa áhyggjur af... Þjónnin kom að okkur og tók við pönntunum um hvað við vildum... Það var kominn góður listi og við biðum spenntir eftir réttunum... Eftir smá stund kom þjónninn með tvo drekkhlaðna diska og glott í framan því hann var svo viss um að við myndum ekki klára þetta... Reglan var sú að ef maður klárar ekki það sem maður panntar þá verðum maður að borga fyrir það...
En... skömmu síðar var náttúrulega ekkert eftir nema brosið á okkur... Þjónnin kom að okkur og hakann hans datt í gólfið... hann starði á okkur agndofa og trúði ekki sínum eigin eyrum þegar við pönntuðum aðeins meira... Við fengum aðeins meira og rétt náðum að klára það... Ég varð samt að biðja um tvo enn bita af lax því hann var bara svo rosalega góður... Þetta var 18,95$ + smá skattur + þjórfé og endaði því máltíðin í 25$ sem er um 1.300 krónur (nenni ekki að reikna nákvæmnlega, er bara að giska)...
Svo ultum við út og skriðum á næsta bar því við vorum jú komnir til Toronto og vitleysa að fara strax heim... Við fengum okkur bara einn bjór og ég gat ekki klárað hann því það var svo mikill fiskur í maganum á mér... Svo rosa mikill fiskur...
Í morgun vaknaði ég og var kominn tálkn á hálsinum... Núna verð ég að fara læra tálknmál...
Posted
5:07 f.h.
by Unknown
Fann græjurnar sem ég vann í gær á netinu... Þær eru nú ekkert sérlega dýrar... Þær duga mér samt fullkomnlega meðan ég er hér... Þetta eru græjurnar... Eru þær ekki litlar og sætar...
fimmtudagur, desember 04, 2003
Posted
9:39 e.h.
by Unknown
Svakalega er ég búinn að nota rödd mína mikið í verkefnunum...
Ég lék sjö hlutverk á útvarpsleikriti mínu (í raun 8 en hafði ekki tíma til að setja eitt atriði enn inn).
Ég lék íslenskan hnefaleika dómara hjá Rey bekkjarbróðir.
Ég lék Captain Jack blómasala og aðstoðamanninn hans Cristopher fyrir Rich bekkjarbróðir.
Ég lék ónefndan mann á krá, glyðru á krá og hræðilega lélegan trúbador fyrir Trish bekkjarsystur.
Ég er orðin frekar sleiður raddleikar núna... Ég lékk náttúrulega lélegast í byrjun og það er í útvarpsleikriti mínu...
Á morgun á ég að leika leikstjóra í jólaþætti fyrir annan bekk... Ég kann ekki að leika fyrir framan myndavél hinsvegar þannig spurning er hvort ég má fela mig bakvið borð eða eitthvað og nota bara röddina...
Ef þið viljið heyra útvarpsleikritið mitt þá endilega reynið að bjalla á mig á MSN og ég skal senda ykkur það...
Posted
7:52 e.h.
by Unknown
Það var Toga (tó-ga) kvöld í gær á skólakránni... Fyrir fólk sem veit það ekki, þá er Toga það sem grikkirnir klæddust til fórna... sem er basicly lak af rúmmi vafið einu sinni um mann...
Þetta er eitt af vinsælustu vinsælustu atburðunum í háskólum og í fyrsta sinn sem, svona er haldið hér... Tímasetningin var ekki góð samt.... Hvaða snillingur datt í hug að hafa Toga partý í næst síðustu viku skólans í desember þegar það er frost og snjór... Ekki hjýjasti búningur í heimi... Það bætti ekki dæmið að vera líka berfættur í sandölum...
Ef maður mætti í Toga fyrir klukkan 11 þá fékk maður frítt inn og sparaði sér 3 dollara... Hinsvegar verður maður að eyða meira á barnum þannig það var eiginlega vitleysa af mér að drífa mig út... Hinsvegar græddi ég aðeins því þegar maður kom inn þá fékk maður happdrættismiða og svo vildi til að ég var dreginn út... Jáhá... Ég vann Animal House kvikmyndina á DVD... Myndin sem gerð Toga partý svona vinsæl... Snilldar mynd... Hefði ég ekki mætt svona snemma hefði ég fengið þennan miða og ergó ekki unnið DVD myndina...
Æj já... með myndinni fylgdi DVD spilari og heimabíókerfi með 5 hátölurum og bassaboxi...
miðvikudagur, desember 03, 2003
Posted
1:15 f.h.
by Unknown
Það á ekki að hleypa mér í leikfangabúðir því það er svo erfitt að ná mér út... Ég er vonlaus í að kaupa gjafir nema þegar kemur að krökkum... Ég er náttúrulega ungur í hjarta (sumir kalla mig jafnvel barnalegan)...
Sumar búðirnar voru virkilega með sömu leikföngin og voru í gangi þegar ég var krakki... Það var ekki mikið af mínu dóti þarna en ég sá hluti sem systir mín lék sér með... Man núna til dæmis þegar ég sá það að Goog Luck Bear var uppáhalds Care Bears banginn minn *AHEM* þó svo ég lék mér ekki með þá... það er hugsunin bak við hann sem skiptir máli...
Allavega...
Svo sá ég nýju Transformers leikföngin, einhver allt önnur kynslóð... Úff, var ekki alveg að lítast á blikuna... En einhvert afl togaði í mig og lét mig skoða þau vel og bera saman í huganum við upprunalegu... Skyndilega langaði mig að gefa einhverjum frænda mínum svona leikfang til þess eins að geta notað það sjálfur... Það hefði náttúrulega verið rangt... Ég fer ekkert að gefa NÝJU Transformers... Þá væri ég að svíkja þá gömlu og fara þvert á öll mín gildi um 80's frábærleika...
Ég henti þessum pakka sem reyndi að tæla mig með flottum myndum og skræpóttum litum og flúði úr búðinni án þess að líta um öxl...
Ég rambaði þá inní aðrabúð sem kallaði sig safnarabúð... Þar var fullt af bókum, myndsögum, blöðum, upprunalegir Transformers, DVD myndum frá Japan, safnko-WHAT!!! UPPRUNALEGIR TRANSFORMERS...!!! Ég trúði ekki mínum eigin augum... Þeir stóðu þarna undir glerinu á afgreiðsluborðinu ásamt fullt af öðru dóti sem ég lék mér með þegar ég bjó í U.S.A.... Það er eins og þessir gaurar hafa fundið öll mín leikföng sem ég hef nokkurn tímann tínt (eða var þeim stolið... Dunn dunn dunnnnn)...
Ég veit að þessir gaurar í eru ekkert í raun að selja þessi leikföng... Þeir eru bara með þau þarna til þess að atast í mér... Þeir vita, að ég veit, að um leið og búðin lokar, þá taka þeir fram leikföngin og leika sér með þau langt fram á nótt án þess að deila þeim með neinum... og þeir skemmta sér rosalega vel við það... kvikyndin...!
Posted
1:11 f.h.
by Unknown
Í verslunarmiðstöðinni kom einhver kona að mér og spurði hvort ég vildi taka þátt í áfengis könnun... ég svaraði náttúrulega játandi því ég tel mig hafa góða þekkingu á þeim málum... Ég svaraði spurningum um hversu oft ég drykki, hvað mikið í hvert skipti, hvað mikið í viku, hvaða tegundir og svo framvegis... Í lokinn spurði hún mig hvort ég væri búinn að búa á sama stað síðustu fimm árin og ég sagðist vera ný fluttur frá Íslandi... Þá varpaði hún öndinni léttar og sagðist ekki mega nota niðutstöður frá útlendingum... Hún sagði að ég myndi eflaust hækka meðaltalið hjá Kanadamönnum og koma slæmu orði á þá...
Ég veit ekki hvort ég á að vera stoltur eða móðgaður...
Posted
1:10 f.h.
by Unknown
Úff... Ég var að sjá sætasta af sætasta af sætasta ever... Mér er íllt í tönnunum...
Það var ein hver búð í verslunarmiðstöðinni sem hét eitthvað eins og "Create Your Bear" eða "Make A Bear" eða svoleiðis... Ég varð að skoða hvað var í gangi... Svona er ferlið við að búa þá til...:
Basicly, við innganginn geturu valið um fimmtíu og eitthvað mismunandi banga (brúnir, gráir, svartir, hvítir, kóala, panda), hunda (margir möguleikar), hesta (jafnvel einhyrninga) og önnur dýr (skjaldbökur, uglur)... Til að einfalda málið þá kalla ég þetta allt einu nafni "bangsa"...
ATH. Sweetness alert 1: Svo veluru hvernig hljóð kemur frá bangsanum... Segir hann eitthvað (I love you") eða spilar hann lag...
ATH. Sweetness alert 2: Svo ferðu með bangann að tæki þar sem þú fyllir bangan af bómul eða eitthvað svipuðu... ÞÚ FYLLIR BANGANN SJÁLF/-UR...! Þú ræður þannig hversu mjúkur og knúsulegur hann er...
ATH. Sweetness alert 3: Svo læturu loka honum og velur hvaða föt hann fer í... nóg úrval þar skal ég þér segja... Venjuleg föt, regnföt, búningar (kúreki, engill o.fl.)...
ATH. Sweetness alert 4: Svo veluru aukahluti sem fylgja bangsanum (regnhlíf og svoleiðis)
ATH. Sweetness alert 5: Svo læturu nefna bangsann og það er skráð í gagnagrunn ásamt öllum upplýsingunum...
ATH. Consumer alert: Svo verðuru að hætta í skóla til að borga bangsann því öll námslánin þín næstu þrjú árin gætu dugað til að borga fyrir hann því þú valdir allt hið sætasta og besta...
Posted
12:29 f.h.
by Unknown
Var að koma inn úr verslunarferð í stóru verslunarmiðstöðinni "Square One"...
Ég fann strax snilldar gjafir hana syskinabörnum mínum í sömu búðinni... 5 stk, plús afmælisgjöf... Ég varð svo að labba um drekkhlaðinn pökkum í leit að öðrum gjöfum í marga tíma... Gjafirnar voru svo fyrirferða miklar að ég rak þær óvart í í flottri verslun og lét heila hillu hrynja niður af dýrum vörum... ég meinti vörum með dýrum... Þetta var fullt af leikfangaböngsum...
Ég varð svo rammvilltur þegar ég var að versla... Mér fannst ég vera að labba í hringi en í raun var mynstrið sem ég gékk í "Æ"... og ég gékk það mynstur aftur og aftur (Æ, æ, æ)... Þegar ég loksins var að ná áttum og allavega búinn að komast að því hvernig ég gæti sloppið úr völundarhúsinu þá gerði ég þau regin mistök að kíkja á neðri hæðina... Neðri hæðin var nefnilega í allt öðru mynnstri en sú efri og ég gékk um í villu og svima þar líka... Svo þegar ég fór aftur á efri hæðina til að reyna ná áttum þá vissi ég ekkert hvar ég var þar lengur og varð að labba um allt þar aftur...
Ég tókst að kaupa eina gjöf í viðbót en ákvað að klára ekki öll innkaupinn því ég vill náttúrulega vera í allri jólastemmningunni (ösinni) heima á Íslandi líka... Ég á bara eftir litlu systur og foreldra mína þannig no worries there...
Það er hinsvegar greinilegt að ég kemst ekki upp með að fara bara með eina ferðatösku til baka... segir Mr. Obvious...
þriðjudagur, desember 02, 2003
Posted
9:14 f.h.
by Unknown
Um daginn voru allir að gera svona lista... 100 atriði um sjálfan sig... Ég hugsaði að þetta var pínu sniðugt en allir voru að þessu þannig ég nennti ekki að standa í þessu þá því fólk var eflaust með leið á þeim...
Hinsvegar er núna nokkur tími síðan ég hef séð svona lista þannig ég gerði einn um mig...
Vegna þess að margir eru samt ennþá kanski með leið á svona listum þá set ég hann ekki á þetta blogg heldur set bara hlekk á hann hér...
Listann má finna hér.
Mér fannst ég samt sleppa miklu úr... Þið bara spyrjið mig bara ef það er eitthvað meira sem þið viljið vita um mig...
P.S. Er eitthvað á þessum lista sem kom ykkur á óvart eða er skrítið...?
Posted
9:09 f.h.
by Unknown
Ég var að kaupa Lucky Charms morgunmat fyrir leikmuni í upptökunum á morgun... Við þurfum bara tómar umbúðir þannig ég tók innihaldið og er að nasla á því sem nætursnarl eftir að við kláruðum að setja allt upp...
Ég byrja mjög vel að éta Lucky Charms en enda alltaf mjög hægt... Ég VERÐ nefnilega að hafa alltaf minnst einn sykurpúða í hverri skeið sem ég set uppí mig... Ég byrja samt alltaf á því að reyna fá sem flesta í skeiðina þegar skálin er full, en svo þegar það eru bara fáir bitar eftir, þá eru kanski bara 4 sykurpúðar á móti 50 hinsegin og ég er að reyna að veiða sem flesta saman með einn sykurpúða í skeiðinni... Það getur tekið óra tíma skal ég segja ykkur...
Ætli það sé hægt að fá lítið net til að veiða morgunmat...?
mánudagur, desember 01, 2003
Posted
8:37 e.h.
by Unknown
Búinn með útvarpsleikritið, kláraði það í nótt, meira en hálfnaður með DVD hulstur hönnunina og bara eitt tveggja mínútna (óklippt) myndband eftir... Þá eru verkefnin búinn...
Í kvöld (nótt) verðum við hins vegar að setja upp sviðsmynd okkar og lýsingu fyrir tökur í fyrramálið... Ég fæ sem betur fer pínu tíma til þess að fá kjúklingavængi *hóst*bjór*hóst* í kvöld til að fá orku til að vinna enn aðra nótt...
sunnudagur, nóvember 30, 2003
Posted
9:10 e.h.
by Unknown
Talandi um gólfdúk... Vitiði hvað er erfitt að segja gólfdúkur á ensku (Linoleum) þegar maður er fullur, og ekki einu sinni mjög fullur, bara rétt í glasi...
Maður hefur tilhneygingu til að segja eitt af eftirfarandi: Linoneum, Liloneum, Liloleum, Ninoleum, Niloneum eða Niloleum...
Maður færi samt aldrei að segja Ninoneum... það væri bara stupid...
Posted
8:39 e.h.
by Unknown
Gékk mjög vel að setja saman útvarpsleikritið mitt í nótt... Var frá 1:00 til 7:30... Var að setja undir hljóð brellur og tónlist... Í nótt veð ég svo að setja "filtera" á talið og hljóðin til að bæta þau, staðsetja allar raddir og hljóð í steríó (hægri eða vinstri) og laga hæð hljóðrásanna...
Þvílíkur gagnagrunnur af hljóðum sem þeir eru með á tölvunni...! Ég var að hafa áhyggjur af því að finna ekki mörgæsarhljóð þannig ég yrði að herma eftir einni sjálfur... en ég fann fimm mismunandi mörgæsa hljóð... Keisara mörgæs, önnur tegund af mörgæs (veit ekki hvað, ég er ekki fuglafræðingur, ég er í kvikmyndagerð ef þið munið það ekki), bæði karlkyns og kvennkyns mörgæs af sitthvorri tegundinni og svo hópur af mörgæsum...
Ég var svo að leita að fótataki... Váháháááá.... Fyrst var það eftir hvernig gólfið var: Parket, marmari, gólfdúkur, gras, sandur, möl og fleira... Svo var eftir hvernig göngulagið var: Hægt, venjulegt, hratt, hlaup, draga lappirnar, haltur, valhoppandi og fleira... Svo var eftir skó tegundum: Strigaskór, stígvél, sandalar, mokkasíur, spari skór, berfætt, háhælar og fleira... og loks var eftir kyni: Karl eða kona...
Það var ekki til mörgæsalapp en ég beitti smá pælingum um hvað myndi líkjast því mest... Svarið var berfætt kona labbandi hratt á gólfdúk... *slabb**slabb**slab*... No offence ladies...
Posted
3:10 f.h.
by Unknown
Jamm, synd að föstudagshefðin er hætt... Vonandi eru þið drengirnir heima að viðra ykkur samt ennþá eitthvað um helgar...
Posted
3:02 f.h.
by Unknown
Ég var að heyra einn fyndnasta brandara í langann tíma...! Ég veit ekki hvernig smekkur ykkar er á brandörum en mér finnst þessi algjört gull...
Við vorum eitthvað að tala saman ég og félagi minn Chris um ég man ekki hvað... Ég set upp ímyndað dæmi... fyrsta setningin er uppspuni en restin var í samræðunum:
Ég: I had trouble getting enough light for the picture.
Chris: Well, you should have used a buttfor...
Ég: What's a buttfor?
Chris: Pooping...
Finnst ykkur þetta ekki snilld...!!! What's a buttfor... pooping...! HAHAHAHA...
Posted
2:45 f.h.
by Unknown
Fór í dag að framkalla myndir fyrir verkefni sem ég skila á mánudag... Varð að fara í næsta bæ því það er eini staðurinn sem getur framkallað "slides" myndir á einni klukkustund og var opinn á laugardegi... Fyrir góða tilviljun þá var staðurinn við hliðina á stærstu verslunarmiðstöð fylkisins (held ég) þannig ég hafði nóg að skoða meðan ég beið í þessa klukkustund... Það var létt að komast þangað... bara tveir strætó... Einn þeirra reyndi að vísu að höggva af mér hausinn með því að loka á mig þegar ég var að labba út... Hurðirnar skelltust saman á met hraða, ég labba á þær, hrasa og er nærru því búinn að hengja mig því myndavélin mín var um hálsinn á mér en hún sveiflaðist út og var klemmd fyrir utan strætóinn...
Ég ætla að samt að fara aftur á þriðjudag (án myndvélar) að versla því ég átti engan pening í dag en fæ náttúrulega námslánin á mánudag... Jólagjafainnkaupinn verða auðveld í ár... Spurning hvort ég þarf stærri ferðatösku hinsvegar...
föstudagur, nóvember 28, 2003
Posted
5:00 e.h.
by Unknown
Var að klippa saman útvarpsauglýsinguna mína til klukkan fjögur í nótt og byrjaði þá að leiðrétta handritin mín...
Ég fékk í gær nokkra félaga mína í bekknum til að leika persónur og tókst að taka upp allt talið... Hinsvegar voru upptökunar frekar slæmar þannig ég varð að gera þær aftur, en svo vill til að það var engin með mér um miðja nótt þannig ég varð að leika allar persónurnar sjálfur...
Þetta voru átta persónur og mér tókst að láta þær hljóma nógu mismunandi þannig maður gæti haldið að það væru átta leikarar... Það vill hinsvegar til að allir leikaranir eru jafn lélegir...
Held svo áfram á laugardagsnótt klukkan tvö til eins lengi og ég get og svo enn aftur á miðnætti á sunnudegi fram að morgni ef engin stoppar mig, því ég vill tryggja að allt sé fullkomið...
Ég er alveg á því að ég mun geta sofnað í flugvélinni á leiðinni heim...
Posted
4:17 f.h.
by Unknown
Eftir kvikmyndina dreyf ég mig strax tilbaka því ég er með hljóðverið frá miðnætti... Ég kom ekki á góðum tíma á lestarstöðina því ein lest var ný farinn og það var 50 mínútur í þá næstu... Þegar ég sat þarna í 50 mínútur tók ég hinsvegar eftir sérstöku mynstri í hegðun fólks í kringum mig... Það fór eftir því hversu stutt var í næstu lest... Mynstrið er svona:
Labb labb labb
Labblabblabb
Skokk skokk skokk
Skokkskokkskokk
Hlaup hlaup hlaup
Hlauphlauphlaup
Sprett sprett sprett
Sprettsprettsprett
ZOOOOOOOOM...!
ZOOO-Skrans-F*CK
Labb labb labb
Posted
4:01 f.h.
by Unknown
Ég horfði á kvikmyndina "Hafið" í fyrsta sinn áðan... Hún vra vel gerð og eflaust góð mynd... mér fannst hún bara svo svakalega leiðinleg... Ég sá leikritið fyrir nokkrum árum og fannst það leiðinlegt en kvikmyndin sló því við... The people take the "fun" from "dysfunctional family"...
Hún fékk á sínum tíma fullt af Beddu verðlaunum og tilnefningum fyrir leik, þannig fólk getur sagt að hún var "of vel leikinn"... mér fannst hún hinsvegar "vel ofleikinn"...
Eina manneskjan sem manni líkaði við var gamla konan, en svo virðist sem að íslenskt kvikmyndagerða fólk verður að henda inn einni sérviskri eða ruglaðri ömmu í allar kvikmyndir...
Eitt sem mér fannst hinsvegar mjög skrítið... Það var liðið slatta á myndina þegar ég skyndilega áttaði mig á því að ég var búinn að lesa enska textann allan tíman og ekkert að hlusta á innihald talsins... Eins gott að ég er alveg að come home...
Posted
3:58 f.h.
by Unknown
Það var grenjandi rigning í dag og ég var hlaupandi til þess að ná lestinni til Toronto... Þegar ég kom á pallinum var hún þar og alveg að leggja af stað... Ég hendi mér uppí lestina og tókst að setja ólympiúmet í Limbó því ég rann með lappirnar á undan alla leið inn á meðan restin af mér sveigðist aftur á bak... ég hefði geta rennt mér undir gólfmottu...
fimmtudagur, nóvember 27, 2003
Posted
6:12 e.h.
by Unknown
Kláraði útvarpshandritið í nótt um fimmleytið... Þetta eru sjö blaðsíður sem ætti að gefa mér um fimm mínútna þátt... Sagan er að vísu ekki búinn, erfitt að klára góða hugmynd á svona stuttum tíma. Geri bara svona "To be continued"...
Búinn að taka upp flestar raddirnar nema mig. Ég mun leika sögumannin, gamla konu og japanskan kokk...
Á miðnætti fæ ég loks aðgang að hljóðverinu til þess að vinna þetta... Ég fæ hljóðverið svo aftur klukkan tvö aðfaranótt sunnudags framm eftir morgni...
Að öllum líkindum verð ég að læra að herma eftir mörgæs ef þetta á að koma vel út...
Á öðrum nótum fékk ég hinsvegar "A" fyrir 80's Cartoon Theme auglýsinguna mína... Thundercats, HOOOO!!!
Posted
9:34 f.h.
by Unknown
YYYYEEEESSSS!!!!... ÉG FANN ALL YOU CAN EAT SUSHI STAÐ...!!!
Við vorum labbandi um Toronto á leið í sjóvarpstökurnar og ég rambaði á skilti að sem stóð á "All You Can Eat Sushi Buffet, 18.95$"... Það var löng slóð af slefi frá veitingarstaðnum að sjónvarpsverinu og svo pollur af slefi undir mér... Mmmm, Sushi...
18.95$...!!! Það er rétt um 1.000 krónur...!!!
Fer í næstu viku...
Oh, they're in trouble now...!!!
Posted
4:21 f.h.
by Unknown
Þetta var ágætur spjallþáttur sem ég sá tekinn upp... Gestir kvöldsins voru leikarinn Pete Postelwate (veit ómögulega hvernig skal stafa nafnið hans) einhver leikkona sem leikur í þættinum 24 og svo einhver söngkona... Þáttastjórnandin var ágætlega fyndinn en það var gaman að sjá hvernig þetta var gert... Við urðum samt að sýna mikla klapp leikni og svo náttúrulega hlægja að öllu þótt það var ekki fyndiið... Ég get sagt ykkur að það er mjög erfitt að gera upp hlátur í klukkutíma...
Eftir tökurnar á þættinum var tekið upp einhver "Special" kynning... Það var basicly heill þáttur nema aðeins á þremur mínútum... kom mjög fyndið út... Við vorum beðin þá um að hlægja mikið en ekki lengi eftir hverjum brandara... Þátturinn byrjaði og hann kom út til að gera "the opening monolauge"... Við vorum beðin um að hlægja extra mikið að þeim brandara... "Don't worry, it's really funny" var sagt við okkur...
Mike: "So, today's Thanksgiving. According to a recent survey, apparently more Americans would rather eat dinner with George Bush then Hillary Clinton..."
Þögn (ég hugsandi "þetta var ekkert fyndið")
Við: AHAHA, AHAHAHA! (VERSTI GERVIHLÁTUR EVER!!!)
Mike: Well, the joke wasn't finnished but we don't have time for that now...
Og þátturinn hélt áfram...
Það var að vísu gerð einhver mistök og þátturinn var tekinn aftur upp (tvisvar í viðbót)... Þannig við fengum að heyra restina af brandaranum og (gervi)hlógum á réttum tíma... Hann var ekkert fyndin...
The punch-line fyrir ykkur forvitnu: "... and that includes Bill Clinton"... *Badum**tshh!*...
miðvikudagur, nóvember 26, 2003
Posted
7:12 e.h.
by Unknown
Er að fara í dag og morgun til Toronto...
Í dag er öllum á fyrsta ári í fagi mínu boðið í upptöku á kanadískum spjallþætti... The Mike Bullard Show... Svo fáum við kannski kynningarferð um sjónvarpsverið...
Á morgun er verið að sýna kvikmyndina Hafið og ég var beðin um að kynna hana fyrir Íslendingafélagið hér... Ég ætla að reyna draga fleiri úr bekknum mínum á þá sýningu og kynna þeim fyrir íslenskri kvikmyndagerð... Líka bara ég nenni ekki að hanga einn í lestinni...
Posted
12:05 f.h.
by Unknown
Skrítið... Alltaf þá daga eftir að ég vaka alla nóttina, þá er akkúrat aldrei tími til þess að leggja sig yfir allan daginn...
Ég sofnaði nefnilega aðeins yfir sjónvarpinu í gærkvöldi fyrir miðnætti og var vakandi til 6 um morguninn (sem er að vísu ekki óvenjulegt síðustu vikur)... Svo var tími klukkan 8 í morgun en ég gat ómögulega sofnað frá 6 þannig ég var byltandi mér í eirðarleysi (hvað er eirð? (friður?)) í einn og hálfan tíma... og svo eins og hálfviti gerði ég samt nokkur "snooze" í hálftíma í viðbót því ég var greinilega ekki búinn að bylta mér nóg...
Tíminn var bara upphitun fyrir tökurnar í næstu viku og pínu hamagangur var í gangi... en það gerir það bara betra að leggja sig eftir það...
Hinsvegar eftir tímann var ég dregin af félögum mínum til að taka fleiri ljósmyndir fyrir verkefnin okkar... Við vorum í kringum heimavistina þannig það var stutt í rúmið...
En... Svo var ég dreginn í hljóðverið fyrir auglýsingu hjá öðrum félaga mínum því ég virðist vera með góða útvarpsrödd... Hjálpaði honum svo að klára verkefnið hans áður en ég fór uppí herbergi til að leggja mig...
En um leið og ég leit rúmið augum hringdi síminn og annar félagi minn bað mig um að koma með sér á lítið jólaboð sem heimavistin var með... basicly pízza og smákökur...
Er núna kominn aftur uppá herbergi til að leggja mig... en nokkrir bekkjarfélagar hringdu fyrir stuttu því þeir eru að klára ljósmyndaverkefni sem er degi of seint og vantar mig sem viðfangsefni... Ég á víst að vera John Travolta... Er því að far aút eftir smá stund...
Eftir það setjumst við eflaust í einn bjór til að vinda af okkur...
Þegar ég kem til baka ætla ég að skrifa handrit fyrir útvarpsleikritið mitt... Ég var hugmyndasnauður svo lengi en loksins fékk ég glæsilega hugmynd í draumi... Ég skrifaði um drauminn fyrir mjög stuttu... en... stóra spurningin er... Hvað er plottið...??? Dunn dunn dunnnn...
No worries... þetta fer allt á netið von bráðar...
En fyrst ætla ég að leggja mig... í vikunni einhvern tímann...
þriðjudagur, nóvember 25, 2003
Posted
10:43 e.h.
by Unknown
Ég veit ekki hvort amerísk heimska smitar út frá sér... en svo gæti verið...
Herbergisfélagi minn, Bretinn, sem ég áleit alltaf vera við meðal greind, og þar af leiðandi yfir meðalgreind hér, kom mér á óvart með ummælum sínum... Hann var að leyta að upplýsingum um strætóferðir og gat gert það með að hringja í eitthvað númer... segjum 555-5BUS... Hann bað mig um að gera það fyrir sig því hann kunni ekki að slá inn "BUS" hlutan af númerinu... Eftir miklar pælingar gerði hann 555-522887777... Eftir langar útskýringar gat hann ennþá ekki gert þetta sjálfur...
Að vísu sparar hann stórfé því hann getur ekkert hringt í svona 1-900-HOT-GIRL númer...
Posted
9:06 f.h.
by Unknown
Mikið eru kennarar mínir sniðugir...
Til þess að minka álagið á okkur þá færðu sumir kennarar lokaprófin eða lokaverkefnin fram um eina viku til þess að þau væru ekki öll á sama tíma... Það vill svo til að "sumir = allir" þannig allt varð í sömu vikunni... og viku fyrr en fyrst var ætlað...
Fólk sá samt brátt að þetta var ekki sniðugt þannig núna er búið að færa sum verkefni og próf aftur... en ekki öll...
Það sem ég verð að gera næstu tvær vikur fyrir frí byrjandi í næstu viku:
Mánudagur: Skila inn 10 slides myndum um hvernig það er fyrir mig að vera í skóla.
Þriðjudagur: Upptaka á fyrri hluta jólaþáttarins.
Fimmtudagur: Photoshop próf, bóklegt og verklegt. Skila inn 6 mínútna útvarpsleikriti.
Mánudagur: Bóklegt próf um ljósmyndun. Bóklegt próf í kvikmyndafræði. Skila inn 2 mínútna myndbandi sem tekið er upp í hóp af fólki.
Þriðjudagur: Upptaka á seinni hluta jólaþáttarins.
Miðvikudagur: Bóklegt próf í stúdíótækni.
Fimmtudagur: Skila inn mynd fyrir DVD hulstur í Photoshop.
Þetta er sem sagt 4 próf, 4 skilaverkefni og svo upptökur... Sé fyrir mér vökunætur í próflestri og svo uppsetningu á stúdeó fyrir jólaþáttinn... Eflaust líka vökunótt yfir útvarpsleikriti því þegar er búið að bóka hljóðstúdeóið á öllum tímum nema næturnar...
Síðasta vökunóttin er þegar ég flýg frá Boston um 20:30 til Íslands 6:30... Ég á af einhverjum ástæðum erfitt að sofna í flugi... Skil ekki af hverju... Með svona svakalega þægileg sæti... Ég vona að ég lendi í miðjunni... það er gaman... (ahem, yeah right (varð að bæta inn svigunum, hélt þið mynduð ekki öll sjá kaldhæðnina))...
mánudagur, nóvember 24, 2003
Posted
5:46 f.h.
by Unknown
Dreymdi í nótt að það réðst hópur af dvergvöxnum mörgæsum á mig... Það var ekki góður draumur... Þetta voru litlar skeppnur (afsakið að ég tala núna ílla um morgæsir, lofa að gera það aldrei aftur) sem voru með beittar tennur og svo klær á löppnum... Mörgæsinar rétt náðu mér að hnánum en þeim tókst að læsa sig um leggina á mér og ríg halda þar á meðan ég sprikaði um að reyna hrista þær af... Fólk horfðii á mig og fannst þetta fyndið, þar á meðal vinkona mín Kata (mörgæsar-fan númer 1)...
Ætli svona draumur tákni eitthvað...? "Ekki fara á stefnumót í Sædýrasafnið" eflaust...
Á öðrum nótum... Þegar þið hugsið um mörgæsir (það gerist er það ekki?)... þá hugsiði alltaf um þær sem karlkyns er það ekki...? Hafiði ekki pælt í því...?
Posted
5:45 f.h.
by Unknown
Flott... Herbergisfélagi minn var að koma inn með frosið elgs kjöt... Það fraus ekki úti, frændi hans veiddi það og setti í frystinn hjá sér... Veit ekki hvort maður kæmist af hérna ef elgir væri byrjaði að frjósa úti...
Allavega, þá get ég bráðum bætt elg inná lista af dýrum sem ég hef étið... ATH. "Hryggdýr"... ég ætla ekki að fara út í "hryggleysinga" umræðuna enn aftur... (og ekki minnast á sveppi heldur)... Það sem ég held mest uppá á listanum er háhyrningur, höfrungur, gíraffi (aðeins þurrkaður því miður) og kengúra (aðeins þurrkuð þannig líka því miður)...
Ég veit hinsvegar ekki hvernig skal elda elginn... Gæti náttúrulega eldað hann á þessu grill dæmi... Safinn rennur af í lítinn bakka og ég get gert sósu úr því... Svo sem meðlæti hef ég kartöflu-moose (þið vissuð að ég myndi enda bloggið á þessum brandara (annað var óhugsandi))...
Posted
4:14 f.h.
by Unknown
Var að klára að setja saman aðra útvarpsauglýsinu... Þetta var út af ímynduðum safndiski úr hvaða lögum sem er (eins og ég bloggaði um fyrir einhverjum dögum)...
Þetta var náttúrulega Best Of 80's Cartoon Themes:
Lögin sem enduðu á þessum 30 sekúndum voru:
Inspector Gadget
Alvin And The Chipmunks
Thundercats
My Little Pony
She-Ra
GI-Joe
He-Man
Fyrir glögga 80's unnender þá sjáiði að það vantar eitt mikilvægasta lag áratugarins þarna... Jamm, Transformers... Ég gat virkilega ekki fundið það í nógu góðum gæðum...
Að gera Best Of 80's Cartoon Themes án Transformers væri eins og að mála regnboga án þess að nota gulan, rauðan og bláan...
laugardagur, nóvember 22, 2003
Posted
9:17 e.h.
by Unknown
Fékk að sofa vel út í dag... eitthvað sem ég hef ekki gert í langan tíma... ég vaknaði klukkan hálf fjögur...! Klukkan tvö byrjaði herbergisfélagi minn að skrifa sögu sem heitir "Is he dead?"...
Posted
9:02 e.h.
by Unknown
Þetta tók ekki langan tíma... Það er strax búið að sýna eitthvað sem ég gerði í kanadísku sjónvarpi...
Jamm, það sem ég tók upp með félaga mínum á snyrtistofunni fyrir tveimur vikum var sýnt klukkan ellefu í gærkvöldi í einhverjum snyrti þætti... Þetta voru þrjár kellingar... afsakið að ég kalla þær kellingar, en ef þið hefðuð séð þær áður en þær fengu þetta "make-over" þá mynduð þið líka kalla þær kellingar... Allavega, það var einnar mínútu kynning á "make-over" fyrir hverja kellingu... sem sagt þrjár mínútur (you do the math)...
Við máttum hinsvegar ekki taka neina þóknum fyrir störf okkar (skólareglur sem varðar við brottrekstur) því við erum að nota rándýr tæki skólans endurgjaldslaust og þau eru ekki tryggð utan skólaverkefna... Við getum nefnilega undirboðið alla með því venjulega er leiga á svona tækjum dýr...
En fyrst maður er með aðgang að þessu þá verður maður að notfæra (eða misnotfæra) sér það...
Posted
8:30 e.h.
by Unknown
Var að fá fleiri einkunnir fyrir verkefni... Fékk "A" fyrir útvarpsauglýsinguna... Það var hópverkefni en ég var alveg við stjórnina því ég lennti akkúrat með þremur (af fjórum) mestu vitleysingunum í bekknum (nei, ég er ekki einn þeirra)... Þannig þeir fengu sína fyrstu "A" einkunn í ár (eru ekki tvö "n" í einkunn? Einkunn, miskunn, forkunn og vorkunn (veit ekki einu sinni hvað forkunn er))...
Kaldhæðnislegt að lægstu einkunnirnar sem ég hef fengið er einmitt í því sem ég er bestur í... Handritsskriftir... Ég hef fengið "C" og "C-"... en það er vegna stafsetningavillna (verð að prófarkalesa betur (mikið finnst mér "prófarkalesa" skemmtilegt orð... segi stundum prófar-karl-esa)) og svo líka uppsetningavillna því prentarinn færir spássíunar um sentimeter... Hinsvegar gefur kennarinn okkur tækifæri til þess að leiðrétta handritin og skila þeim aftur inn viku seinna til að fá betri einkunn... þannig no overies baby...
Það gæti líka verið að ég er að fá lélegar einkannir í handritsgerð því ég er slæmur og óskemmtilegur penni... Hvað finnst ykkur...?
föstudagur, nóvember 21, 2003
Posted
5:19 e.h.
by Unknown
Ég nota stundum dagbókina á síma mínum til þess að minna mig á ýmis verkefni og svo aðra hluti sem ég verð að gera... Vanalega á síminn að pípa um 10-20 mínútur fyrir atburðin en síminn minn hafði tilhneygingu til þess að pípa sólarhring á undan... Það tók mig tvo og hálfan mánuð að fatta það að síminn var stilltur degi á undan...
Skrítið að ég fattaði það ekki fyrr... Vanalega pípir síminn og ég kíkji á hann: "Aha, taka með stækkunargler og slides skoðara í tímann... um sem er á morgun eftir korter"... eða "Aha, ná í tæki sem ég var búinn að panta til að ná í... á morgun eftir tíu mínútur"... eða "Aha, best að drífa sig í hljóðverið sem ég var búinn að panta... á morgun eftir korter"...
Alltaf hugsaði ég: "Hmmm, sniðugt að síminn minn minnir mig líka á atburðin degi fyrr..." en svo minnti hann mig aldrei aftur á atburðinn þannig ég var sífelt að gleyma öllu...
Ég ætlaði að blogga um þetta í gær...
Posted
4:50 e.h.
by Unknown
Helgi komin... Föstudagshefðin er að fara á skólabarinn eftir skóla og sjá þá einhverja mynd á stóru tjaldi og slaka á yfir einum bjór... Ég veit ekki hvaða mynd er núna í dag en síðast var "Bad Boys 2", mynd sem gefur nýja merkingu á orðinu "Unbelivable" (basicly maður segir "that could never happen" á milli sopa (eða "That´s just stupid"))... Helgin á undan var "Terminator 3", og þar á undan "2 Fast And 2 Furious"...
Í dag er þá eflaust "2 Moronic Hollywood Tripe That Makes Shure Everything Blows Up 4 ever part 3"...
fimmtudagur, nóvember 20, 2003
Posted
2:50 e.h.
by Unknown
Mikið er fólk sniðugt í netheiminum... Alltaf að búa til ný orð og skammstafanir...
Ég var á MSN að tala við gamlan vinnufélaga... Í lok samtals segir maður vanalega "Sjáumst" eða "Heyrumst" því oft passar það að maður sér eða heyrir í manneskjunni næst... En fyrst að ég er í Kanada þá segir hann "Skjáumst"...!
Finnst engum þetta sniðugt... eða er fólk löngu byrjað að nota þetta...? Kanski er þetta ekki nýtt fyrir ykkur...
Ég mun samt aldrei nota "lol"... "haha" dugar mér... nema eitthvað sé mjög fyndið og þá segi ég "hahaha"... eða "HAHA"...!
Skjáumst...
Posted
2:10 e.h.
by Unknown
Alltaf bætast við fleiri skemmtileg verkefni... Fyrir hljóðfræði þá á ég að gera auglýsingu um einhvern safndisk, hvort sem það er ein hljómsveit (t.d. Best Of The Beatles) eða eitthvað tímabil (Best Of The 80's)... Ég náttúrulega vill gera auglýsingu um sígilda tónlist... Best of 80's Cartoon Themes...!
Jamm, karlmannleg lög eins og He-Man, Transformers, Thundercats, GI-Joe of fleiri snilldar þemar... Svo fyrir dömurnar er Care Bears, She-Ra, My Little Pony náttúrulega Rainbow Bright (o.m.m.fl.)...
Allt á einni plötu...! Hver myndi ekki kaupa hana...
Spurning um að gera svo Best of 80's tölvuleikjatónlist... Hver getur ekki raulað upprunalega Pac-Man lagið...?
Posted
2:04 e.h.
by Unknown
Eftir að hafa gengið aðeins einu sinni á "screen door" síðan ég kom hingað, þá hef ég haft varan á þegar ég stíg út um sumar hurðir... Hinsvegar vill ég veita vænt höfuðhögg (eins og ég fékk), manninum sem datt í hug að setja TVÆR glerhurðir plús "screen door" við inn/útganginn... Opna screendoor, opna glerhurð, *bonk*, opna glerhurð, nudda enni, skrifa blogg...
miðvikudagur, nóvember 19, 2003
Posted
3:20 f.h.
by Unknown
Ég sá á einu bloggi að mennskjan var að nota orðið "mexikóskt" í staðin fyrir "mexikanskt"... Það kann að vera að þetta sé rétt íslenska, en það er bara vegna þess að það var virkilega gerð frekar nýleg breyting á orðinu... og af einhverjum ástæðum fór sú breyting verulega í mig því ég ólst upp á einu ásamt restin af þjóðinni, en síðan fer einhver að breyta hvernig ég tala... Þetta er skerðing á málfrelsi... Ég trúi ennþá ekki að þeir breyttu orðinu "mexikanskt" í "mexikóskt"... hvað þá að fólk hlýddi og tók upp þessa fáranlegu breytingu... Það var við lok síðustu aldar sem þetta var gert og þeir gerðu það sama við eitthvað annað land, man ekki hvað það var... Það er hinsvegar ekki séns að ég breyti málnotkun minni...!
Segir maður örugglega ekki ennþá "Mexikani"... eða segir maður *hrollur* "Mexikói"...?
Ekki eru núna "Eistar" kallaðir "Eistverjar"... Það hljómar eins og snyrtilegt nafn á "pungbindi"... eða segir maður "pungverja"...
Posted
2:46 f.h.
by Unknown
Ég heyði að Ísland væri ögrum skorið... Hvað eru agrir...? Er til ein ögr...?
Posted
2:45 f.h.
by Unknown
Varúð... Það er langt og ruglingslegt blogg hér fyrir neðan, aðallega með mikið af staðreyndum og fyrir vikið með lítilli kímni... Þið þurfið ekki að lesa það... Ég skrifaði það bara upp til þess að reyna að skilja það betur sjálfur og sjá hvað er best... og jafnvel til þess að einhverjir snillingar geta sagst hafa skilið það líka og jafnvel komið með lausn...
Posted
1:41 f.h.
by Unknown
Úff... meira ruglið með flugið mitt heim... og ruglingur... Hlutirnir sem flækja þetta er:
1. Ég fór með flugi til New York en svo lest til Toronto þá á ég bara flugmiða tilbaka frá New York (í raun samt Boston)...
2. Af einhverjum fáranlegum ástæðum er ódýra að kaupa flug báðar leiðir en eina þannig ég kem næstum alltaf til með að henda annari leiðinni nema ég finn leið til að nota hana...
3. Það er ódýrara fyrir mig að fara í gegnum London næst...
4. Ég er ekki alveg 100% viss með dagsetningar...
5. Það er ekki alltaf til laust flug þegar ég vill, hvað þá tvö á sama degi því ég verð að skipta um vél...
6. Tímamismunurinn á milli staða og einnig lengd fluganna er erfitt að para líka saman á góðan hátt...
7. Það er ódýrara að fara "fram og tilbaka" London-Toronto heldur en "fram og tilbaka" Toronto-London...
8. Nettilboð breytast á hverjum degi...
9. Ég þarf líka að pæla hvernig þetta passar þegar ég kem aftur í apríl...
10. Því fyrr sem ég kaupi miðana því ódýrari eru þeir þannig ég er líka eiginlega að plana apríl ferðina heim...
11. Ef dagsetningar passa ekki þarf ég kanski að gista í einhverri borg og þá eru aukakostnaðir sem gera skyndilega annan valkost ódýrari...
Þannig að... Einfaldast er...:
A. Ég get keypt "fram og tilbaka" frá Toronto til Boston og notað þá miðan sem ég á Boston-Keflavík heim. Svo kaupi ég "fram og tilbaka" Keflavík-London og "fram og tilbaka" London-Toronto. En ég verð að henda þá Boston-Toronto miðanum sem ég á en kemst klakklaust heim í apríl (hvað er klakk?)...
B. Ég get keypt "fram og tilbaka" frá Toronto til Boston og notað þá miðan sem ég á heim. Fer svo með "fram og tilbaka" miða frá Keflavík til Boston aftur og nota þá Boston-Toronto miðan sem ég á, en þá er ég í nákvæmnlega sömu sporum aftur næst þegar ég fer heim um sumarið. Einnig er MJÖG erfitt að para saman öll 4 flugin...
C. Ég geymi Boston-Keflavík miðann og kaupi "fram og tilbaka" Toronto-London og svo "fram og tilbaka" London-Keflavík svo á leið í skólann aftur fer Keflavík-London, London-Toronto, en að finna flug sem passar þannig er MJÖG erfitt.
D. Ég geymi Boston-Keflavík miðann og kaupi "fram og tilbaka" Toronto-London og fer svo eina leið London-Keflavík og hendi London-Toronto, því það er mun ódýrara að kaupa NÝJAN miða sem er "fram og tilbaka" London-Toronto heldur en að nota þann í valkost B og þannig fer ég svo Toronto-London og London-Keflavík heim.
Leið A er lang lang einföldust, virkar best og skila mér fljótlegast heim... Leið D er að ég held aðeins ódýrari (ekki munar samt miklu)... Í báðum tilfellum verð ég að helda helmingi af "fram og tilbaka" miða og ætli maður verði ekki bara að sætta sig við það... Um sumarið þegar ég fer aftur fer ég hvort sem er "fram og tilbaka" Keflavík-London-Toronto og eins heim um jólin því ég er alveg viss um að það er ekki lest frá London til Toronto...
The End... Ég vona að ef þið nenntuð að lesa þetta að þið séuð núna eins rugluð og ég... Nema þið vitið betri lausn... Einkaflug einhver...?
þriðjudagur, nóvember 18, 2003
Posted
11:00 e.h.
by Unknown
Er kominn á mjög tight budget... Mikið af framköllun og filmukaup er að skerða á næringu mína... Þarf að finna svona Bónus búð nálægt hér sem heytir No Frills sem á að vera svaka ódýr... Samt, á því sem fólk segir hér, þá virðist Bónus vera eins og lúxus kjörbúð miðað við No Frills...
Fólkið á kvikmyndatökunni um helgina notaði No Frills til þess að næra tökuliðið... Það er hægt að fá náttúrulega niðusuðuvörur (aldrei hægt að borða of mikið af túnfiski)... en þau keyptu svo nokkur bréf af samlokukjöti fyrir okkur og það er eitthvað sem ég ætla að sniðganga í þessari búð...
Kjúklingaskinkan smakkaðist eins og kjúklinga Meatloaf kjötið.
Kjúklinga Meatloaf kjötið bragðaðist eins og svínaskínkan.
Svínaskinkan smakkaðist eins og spægipylsan.
Spægipylsan smakkaðist eins og Play-Doh leir...
Ætli sé ekki bara jafnvel enn ódýrara að kaupa bara Play-Doh leir... Það er fyrir löngu búið að gera hann ætilegan ef börn skyldu "óvart" éta hann... svo get ég mótað hann eins og samlokan þannig ekkert umfram flæðir útfyrir brauðið, sem mér finnst einmitt eyðsla á kjöti...
Posted
6:30 f.h.
by Unknown
Bætti inn tveimur bloggurum núna... og tók út einn... "Hjalti DK" hlekkurinn er farinn því Hjalti er í Sviss og félagar hans sem voru líka að blogga þar eru komnir til Íslands og eru þar með sitthvort bloggið... Þetta er sem sagt Gauti og Geir, verkfræðingar með meiru... Menn sem ég hef ósjaldan súpt öl með en það er samt sjaldnar en maður hefði óskað (meikar þessi setning einhvern sence)...
En ég var allt í einu að átta mig á því að ég veit ekki hvernig verkfræðingar þeir eru (véla, iðnaðar, rafmagns, tölvu, umhverfis, byggingar, matreiðslu, hjólbarða, (the list goes on)?)... Kannski vilja þeir ekki fá þennan stimpil á sig..
mánudagur, nóvember 17, 2003
Posted
10:39 e.h.
by Unknown
Sko mig... Var að leika mér í Photoshop fyrir helgi, fyrir keppni á Worth1000 heimasíðunni... Maður átti að taka einhvern mat og stækka hann verulega á mynd... Ég teiknaði bara drauminn minn og var næst hæstur í keppninni... Að vísu lagði ég ekkert undir þannig ég fékk engin verðlaun, bara stjörnu (eins og í grunnskóla þá)...
Þið getið séð myndina hér... Ef þið þekkið mig eitthvað pínu þá vitiði strax hver er myndin mín...
Posted
7:34 e.h.
by Unknown
Góð helgi í Toronto... mikið unnið... Var kominn á hádegi á tökustaðinn á kvikmyndinni "No Rest For The Wicked"... það var hinsvegar "Much Rest For The Crew" því mér fannst fólk ekki vinna sérlega hratt... Þetta voru hinsvegar skemmtilegar tökur og gott andrúmsloft, þó svo það þykknaði oft í því sökum "take-out" mat frá Íran... Segjum bara sem svo að ef Íran tæmir einhvern tíman olíubyrgðir sínar þá er alltaf framtíð fyrir þeim í að framleiða gas með þessum síður en svo ágæta baunarétti...
Við vorum að taka upp alla helgina slagsmála atriði milli aðalhetjunar sem heitir Hero og aðal vonda höfuðpaursins sem heytir Boss (original ehe?)... Hetjan var leikin af frönskum áhættuleikara en Boss var leikinn af stórum Wrestling/Kung-Fu gaur... Stóri gaurinn var með meiri vöðva í litla putta en í öllum heila hans... Basicly, þetta er í eina skiptið sem ég leiðrétti ekki manneskju sem segir: "Iceland? Isn't that inside Amerika?"
Ég vissi hinsvegar ekki að áhættuleikar "vældu" svona mikið um hvort eitthvað myndi meiða þá... Stóri jakinn var meira segja lofthræddur og hristist og skalf þegar hann var kominn í þriðju tröppu í stiga... Þeir brutu að vísu flösku á hausnum á einum, stól á bakinu á öðrum og svo skelltu svo þeim fyrsta á bakið í gegnum borð... Stóri keyrði síðan þann litla að vísu hálfa leiðina í gegnum vegg en það varð óvænt viðbót við framleiðslukostnaðinn framleiðandandum til mikillar skelfingar...
Við tókum upp í marga tíma á laugardeginum, gistum á tökustað og tókum svo aftur upp frá morgni fram eftir miðnætti... Mjög gaman og maður lærði mikið... Hápunkturinn fannst mér hinsvegar þegar ég fékk að skjóta Kínverja þvert yfir herbergið með því að rífa í reipi sem var fest í loftið og svo í bakið á honum... Það kom ekki bara kvellur þegar þessi Kínverju sprakk heldur hljómaði hann líka sem íla...
Posted
11:47 f.h.
by Unknown
Var að koma loksins heim klukkan 6:30 eftir langa kvikmyndatöku alla helgina í Toronto... Ég segi meira frá þessu seinna... Núna sit ég í miklum vandræðum með að ákveða mig... Hvort á ég að fara í sturtu fyrst og svo leggja mig, eða leggja mig og fara í sturtu þegar ég vakna... Báðir kostirnir eru mjög góðir og ég er spenntur að framkvæma þá...
Af hverju sit ég þá hérna eins og hálfviti og er að blogga...
föstudagur, nóvember 14, 2003
Posted
7:39 e.h.
by Unknown
Dagskrá helgarinnar... Fer aðeins út í kvöld en ekki lengi... verð nefnilega að koma mér snemma í fyrramálið til Toronto til að aðstoða við kvikmyndatöku hjá annars árs nemum... Þeir eru að gera svona slagsmálamynd þar sem fólki er kyppt upp í snúrum og svoleiðis... Þetta verða langar tökur og við gistum eflaust á tökustað... Svo er haldið áfram á sunnudeginum og komið heim um kvöldið... Þetta verður því síðasta bloggið fyrir helgi...
... nema náttúrulega ég sest niður í nótt og steypi eitthvað undir áhrifum skáldamjöðsins...
Góða helgi og lifið heil...
Posted
6:57 e.h.
by Unknown
Damn... ég var með hugmynd að svo sniðugu bloggi en er núna búinn að gleyma henni því ég komst ekki strax í tölvuna... Segið bara "Hahaha, þetta hefði verið sniðugt..."
Posted
1:12 f.h.
by Unknown
Var að horfa á nýjustu seríuna af Friends... Síðasta sería byrjaði mjög vel en dalaði í endann... Þessi sería var döluð (ef það orð er ekki til, þá er það til núna) þegar hún byrjaði og er ennþá á leiðinni niður...
Fólk sem ég vill skjóta: Monica og Rachel...! Mér hefur langað að skjóta Monicu MJÖG lengi og þá sérstaklega eftir að hún giftist Chandler, því hún er bara verið leiðinleg tík (vægt til orða tekið) og ég vorkenni Chandler með allt sem hann þarf að þola. Rachel hef ég líkað ílla við síðan "We were on a break" dæminu en eftir að hún eignaðist barnið þá er hún alveg hræðileg... Hún er sívælandi, ofverndandi tík...
Fólk sem hefur staðið í stað er Ross og Pheobe... Það er eins og það sé búið að skrifa alla brandara þeirra áður og það er ekkert nýtt...
Fólk sem maður hlær minna af er Chandler því hann er kúgaður...
en... Guð blessi Joey...! Hann blómstrar í hverjum þætti og er alltaf hápunkturinn... Ef einhver á skilið "spin-off" þátt þá er það hann... Go Joe!
fimmtudagur, nóvember 13, 2003
Posted
4:22 e.h.
by Unknown
Ég er búinn að eiga erfitt með að sofa á næturnar síðustu daga þrátt fyrir þreytu... Þegar þetta byggist up þá er skammt í svefngalsan... ef þetta heldur áfram mikið lengur þá er næst stutt í geðveiki...
Hér er tölvupóstur sem ég skrifaði öllum í bekknum mínum í nótt út af fundi, sem sýnidæmi um svefngalsa (...þetta gæti líka verið mark um geðveiki)
To: Mixed Studio Class
Subject: Meeting for Christmas show...
Fala lala la lala la la
OK good people of the mixed (up) studio class... We (me and you (plural)) will have a meeting Thursday November something or other (can't be bothered with numbers) at 18:00 (= 6:00 PM for those who can't tell a 24 hour clock) at the caffiteria...
We will be discussing (or arguing (hopefully not though)) about ideas for the upcoming Christmas show... The main thing is we're going to deside on a format, be it two 7 minute segments or one 14 minute segments... we could do 14 one minute segments, but that would be ridiculus... When the format is ready we'll deside one or two ideas for the show BUT (I said butt, hehe) they must be in some way connectable.
You can skip the meeting if you want, if you totally belive in the creative talents of the people who drag their ass (I said drag, hehe... no wait, ass hehe) to these meetings.
So I hope to see you tomorrow, or um technically later since I'm writing this at 4:00 (or 4:00 AM for those who can't tell a 24 hour clock) (unless you're also awake now and check your e-mail a few minutes after I sent this mail and then go to sleep like me) and you probably won't get this mail until a few hours before the meeting (only 14 hours til we start from now (not now you reading, now me writing))...
Best regards,
Raggy (or just "Iceland" for those bad with names (or "Cold isolated island by the artic circle" for those bad with countries (or "Foreigner" for the really stupid ones bad with geography also (not to be confused with the 80's music band Foreigner who did some exelent songs like I Want To Know What Love Is, Waiting For A Girl Like You and Cold As Ice (Iceland?))))
P.S. You're probably wondering why I am writing this e-mail at 4 in the morning (Hey! It's 4:30 now!), well... don't wonder... I'm the one who should actually be wondering why I am still up and I'll do so as soon as I send this e-mail.
P.P.S. Please excuse the ammount of the "what'cha'ma'call'it" thingies I use in this letter (<-like these->)... Aren't they called colons (or isn't that part of the digestive trackt?)? I keep confusing them with "parenthesis"... This e-mail is rated P.G. (Parenthal Guidance needed)...
P.P.S. Good night/morning...
Posted
4:12 e.h.
by Unknown
Ég er orðin háður "snooze" á vekjaraklukkunni (sem sagt símanum mínum)... Ég snooza samfleytt í 50 mínútur á hverjum morgni... Ég var hinsvegar að finna frábæra leið til að rífa mig upp strax... Ég bjó til skemmtilegan leik sem ég vill kenna ykkur... Ég ætla að ústkýra hann núna...
Da dada da da da Dahhhhh...
The Wake Up Game Reglur: You snooze, you lose...
miðvikudagur, nóvember 12, 2003
Posted
8:04 e.h.
by Unknown
Sökum andúð minnar á Macintosh þá vill ég skrifa hér gamlan brandara sem ég er ekki viss hvort ég hef skrifað hér áður. Macintosh er nefnilega skammstöfun eins og B.M.W. (Big Money Waste)...
M.A.C.I.N.T.O.S.H. =
Machine
Always
Crashes,
If
Not
The
Operating
System
Hangs
Posted
8:03 e.h.
by Unknown
Ef það er eitthvað meira pirrandi en að vinna á Macintosh þá er það hvernig Macintiosh og PC vinna ílla saman... Einfaldir hlutir fara til fj*ndans þegar maður yfirfærir eitthvað... Ég var að skrifa tveggja blaðsíðna handrit á Macca mínum... og með handrit þarf allt að vera 100% varðandi spássíur og staðsetningu á mismunandi liðum, hvort sem texti um aðgerð, tal, nafn manneskju eða staðsetningu er að ræða... Ég set allt fullkomnlega upp á vélinni minn... svo sendi ég skjalið í tölvupósti til sjálfs míns og opna það á PC vél sem er staðsett hjá prentara... Ég prenta allt út og allt virðist í góðu... Hinsvegar þegar ég athuga betur, þá er PC vélin búinn að henda spássíunum til og frá og einnig af einhverjum fáranlegum ástæðum búinn að taka út allar úrfellingarkommurnar í samtengdum orðum... I dont belive it! Theyre stupid machines...
Posted
7:50 e.h.
by Unknown
Var í allan morgun að taka ljósmyndir fyrir "Hvernig það er fyrir MIG að vera í háskóla"... Mikið af myndunum tengist að vera "the odd one out"... eitthvað eitt sem stendur út í hóp af mörgu... Ég fór t.d. í barnaskóbúð og raðaði fullt af litlum barnaskóm saman en setti svo minn strigaskó í hópinn... Sniðugast fannst mér að vísu þegar ég raðaði heilum kassa af FAXI bjór á gólfið þannig allir snéru eins, nema einn bjórinn var FAXI Extra Strong 10% (sem er algjör viðbjóður að vísu á bragðið)... Gott að ég hendi aldrei út tómum bjórdósum... Spurning um að fara búa til einhverjar mublur úr þessu næst...
Posted
7:41 e.h.
by Unknown
Nýr bloggari á listanum... Kalli frændi... Hann er systkinabarn Orra frænda og Orri og ég erum systkinasynir... Þetta skiptir kanski ekki miklu máli, en Íslendingar eru svo obsessed af ættfræðinni þannig ég skrifaði þetta fyrir komandi kynslóðir sem grafa upp bloggið mitt eftir hundruðir ára og eru að reyna að setja saman ættartré...
Bloggið skrifaði Ragnar úr Gróf, sonur Eyþórs, sonur Ólafs, sonur Ólafs...
Posted
2:02 f.h.
by Unknown
Lindy frændi var að hringja og biðja mig að taka upp fyrir sig til gamans myndband við eitt nýtt lag sem hann er að gefa út... Ég á að gera myndband við auka útgáfu á rosa góðu lagi sem hann er núna búinn að láta útsetja með strengjakvartett... Það vilja ALLIR í kringum mig leikstýra tónlistarmyndbandi þannig ég hef nóg af aðstoðafólki... Þetta á að vera í hálf dularfullum stíl og mun ég skjóta stóran hluta þess heima á Íslandi um jólin... svo tek ég hann upp hérna í Kanada í snjónum til að láta líta út eins og hann er á Íslandi...
Nú er bara að vona að það sé einhver snjór á Íslandi þessi jól... Síðasti vetur var svo svakalega mildur, að ef hann væri ostur, þá væri hann Kotasæla... Fínnt að fá svona Camenbert styrkleika í ár... Vill ómögulega lenda í gráðosti eins og vetur 2000...
Posted
2:02 f.h.
by Unknown
Þurfti að láta skólann skrifa undir eitthvað skjal sem ég fékk sen frá L.Í.N. vegna skólagöngu minnar... Mikið er erfitt að láta skrifa undir eitt lítið bréf... Fyrst fer ég á skrifstofuna og þau skrifa undir eitthvað smá en segja svo að ég verð að fara annað fyrir upplýsingar sem vantaði... ég fer þangað og fæ þá að vita að ég á að fara á annan stað til að ná í upplýsingarnar... svo fæ ég upplýsingarnar og er beðin um að fara á annan stað fyrir síðasta liðinn en það var á sama stað og ég byrjaði... ég fer þangað og læt fylla inní einhverja reiti en verð svo að fara annað til að setja undirskrift og stimpla...
Ég fer að slíta skónum mínum bráðum...
Posted
1:41 f.h.
by Unknown
Var í allan dag eftir skóla að taka upp smá myndband með félaga mínum Chris (sá sem kann ekki á 24 tíma klukkuna)... Hann tók að sér að taka upp "make-over" fyrir einhverja litla snyrtistofu og vantaði mig sem aðstoðamann til að þetta kæmi fagmannlega út... Þegar komið var á tökustað breyttust hlutverkin og ég sá um að stjórna öllu því ég hef gert svona margsinnis áður (fyrirtækjakynningar, ekki make-over)... Myndbandið verður bara mínúta en maður getur fengið aukapunkta í skólanum fyrir að gera svona hluti... Ég græddi þannig aukapunkta og Chris fékk meiri reynslu... Bráðum samt verð ég að leyfa honum að fara af spenanum og standa sig á eigin fótum... sama gildir um hina kálfana hér... *snökkt* Þau vaxa svo hratt úr grasi...
Posted
9:59 e.h.
by Unknown
Svei... Pirrandi að vera svangur en samt alveg lystalaus... Það er eins og að vilja hnerra en geta ekki blásið frá sér...
Posted
8:27 e.h.
by Unknown
Við vorum að horfa á eldgamla heimildarmynd frá 1922 í svart/hvítu (náttúrulega) án tals (náttúrulega x2) sem heytir Nanook Of The North... Þetta er heimildarmynd um inúíta og er sögð vera fyrsta mannfræðilega heimildarmyndin í fullri lengd...
Myndin byrjar á því að Nanook kemur á kanó úr selskinni... Ég sem brandarakall segi náttúrulega: "Hey, just like home... I used to go like that to school..."
Viðbrögðin finnst mér fyndari en brandarinn því ég heyrðu suma spyrja "Really?" eða "Seriously?"...
Ég verð að fara spila Trivial Pursuit við þetta fólk... I really need a good laugh these days...