| Lífið, heimurinn og allt saman |
|
Front page
Já... hver nennir að einbeita sér að einhverju einu þegar úr svo mörgu er að velja...
Hlekkir eftir mig
Jólasveinar 2002 |
mánudagur, nóvember 30, 2009
Posted
8:02 f.h.
by Unknown
Fórum nefnilega í jólahlaðborð uppí bústað... Þurftum ekkert að pæla í neinu fyrir ferðina... Bara taka með sundskýlu (sem var það eina sem gleymdist (jólaboxernærbuxur björguðu þessu)), stutt stopp í ÁVR (kýs að hunsa T) og svo bara brunað í bústaðin... Þar kemur svo jólamaturinn heimsendur ("heim sendur" (ekki "heims endur"))... Þá var bara étið á sig gat, svo sötrað og spilað frameftir morgni... Loks beið okkur allir afgangarnir plús auka morgunmatur sem var innifalinn og það var engin frágangur... Allt innifalið... Ljúfa líf, ljúfa líf...
fimmtudagur, nóvember 26, 2009
Posted
11:11 f.h.
by Unknown
Það er "Chipotle" afbrigði af tabasco sósu... Fyrir þá sem vita það ekki, þá er Chipotle reykt afbrigði af sterkum pipar og er fan****ing amazing... Ég komst á bragðið af Chipotle í síðustu Ameríkuferð en fæ ekkert svona hér á landi... Allt í einu birtist Chipotle tabasco á Serrano stöðunum hér heima og ég varð húkked...! En nú er hún horfin þaðan og ég sé fyrir mér bragðlausa daga í framtíðinni nema eitthvað verður gert... Fór ég því á tabasco heimasíðuna og sá að þeir eru með gjafaverslun... Þvílík snilld... Þar er Chiptole Gift Basket... Oh, það myndi setja smá hita í kaldan norðan veturinn... Það er líka til "Chipotle" sósa í gallon flösku á sömu síðu... Vá... Það sem ég gæti notað gallon af Chipotle sósu með... Mmmm... Muna að velja Chipotle bragðið... Svo fyrir fólk sem eru að hugsa um gjafir fyrir aðra matgæðinga í leiðinni þá er hægt að benda á Tub Of Flavor gjafakörfuna... Bland í poka af því besta sem Tabasco hefur að bjóða... Kíkið bara á tabascó síðuna og skoðið ykkur um... Spice up your life... UPDATE: Var ekki fyrr búinn að pósta þessu fyrr en félagi minn benti mér á aðrar sósur... Þetta er líka forvitnilegt... Chipotle hot sause set... Greinilega til nokkrar tegundir af Chipotle... UPDATE 2: Fékk faglega ráðlegginu um að þetta væri bestu sósurnar... Það er samt eitthvað við gallon flöskuna... Skítt með jólaköttinn... Hann étur engan sem er mareneraður í svona...
þriðjudagur, nóvember 24, 2009
Posted
10:16 f.h.
by Unknown
Í fyrsta lagi langar mig ekki að nafn banka míns minnir mig á þvottaefni (Ariel)... Á að fara hvítþvo eitthvað...? Í öðru lagi, þá talandu um að "hvít" þvo... Arion hljómar óþarflega líkt "aryan" í mörgum hreimum og finnst mér þetta stimpla bankan sem banka hvíta auðvaldsins... Í þriðja lagi, þá segja þeir nafnið er dregið af grískum rótum... Er þetta ekki íslenskur banki...? Erum við hrædd að fólk fatti það... Það er tonn af töff, hörðum íslenskum nöfnum en þeir velja eitthvað grískt... Og ekkert smá lélegt grískt... Af öllum þeim hetjum sem þeir hafa undir höndunum, sem leyst hafa ofurmannlegar þrautir og sigrað skrímsli og guðina sjálfa, þá völdu þeir nafn á hetju sem er frægust fyrir að sleppa frá sjóræningjum með því að syngja lag sem heillaði höfrunga sem björguðu honum þegar hann stökk ofan í sjóinn... Hver einasta önnur grísk hetja hefði bara lamið sjóræningjana með höfrungnum... Í ofurhetjusamanburði þá er þetta verra en Aquaman við hlið Superman og þeirra... Áttu þeir ekki efni á að fá nafn á betri hetju... Svo er þegar til íslenskt fyrirtæki sem heitir Arion... Eitthvað verðbréfavörsludæmi... Spyr svo sá sem ekki veit... Er þetta eitthvað tengt (eins og maður treysti nú banka til að varsla verðréf)...? Eða er bara nóg að skella orðinu "banki" aftaná annað fyrirtækjanafn til þess að það sé nýtt nafn... Af hverju þá ekki bara Björnsbakarí Banki... Það er nýtt nafn... Það er kannski bara yfirborðskennd vitleysa en mér bara langar mjög mikið að vera ekki í þessum banka út af nafninu... Þetta er eitthvað svo phoney... En ég bara nenni ekki að standa í að færa mig...
mánudagur, nóvember 23, 2009
Posted
1:49 e.h.
by Unknown
Var maður því frekar tuskulegur þegar við hófum leik í Íslandsmeistaramótinu í bandí á sunnudaginn, en það hvarf strax... Ég hélt að ég myndi spila sem hálfur maður, en í staðinn þá leið mann betur með hverju skrefi og fór hamförum sem allir aðrir... Áttum við stór leik og röðuðum inn markahrinu gegn andstæðingunum... Þetta er besta samvinna okkar sem ég hef séð og var sífelld ógn af okkar hálfu... Synd að við töpuðum leiknum, en við fengum samt mikið úr honum sem félag... Það er enginn einstaklingur í BR, heldur er þetta núna eitt lið... Og glæsilegt lið það... Því ver og miður er keppnispása fram yfir áramót, og verðum við bara að halda áfram góðri siglingu yfir hátíðirnar og missa ekki niður dampinn... Áfram BR...!
föstudagur, nóvember 20, 2009
Posted
8:34 f.h.
by Unknown
Byrjum fyrst að tæta í gegnum vinnudaginn... Mættur 8:00 og fer ekki fyrr en tökum á Loga lýkur 22:30... Bíður mín þá stórafmæli hjá æsku æsku æsku vini mínum Óla Stein... Það framfleytir mér inní laugardaginn sem byrjar með vinnu... Svo kemur frábær fögnuður í formi Wipeout veislu... Hópur 1, 2 & 3 ætla að hittast í einhverjum fimleikasal, þar sem sett hefur verið upp okkar eigin íslenska Wipeout braut... Þreytum við þrautina á móti hvort öðru og svo skrall í kjölfarið... Loks er sunnudagur sveittur, með vinnu um morgun, en svo síðasta bandí leikinn fyrir áramót... Mánudagur virðist vera svoooo langt í burtu...
fimmtudagur, nóvember 19, 2009
Posted
9:36 f.h.
by Unknown
Er búinn að vera í upptökum á Marteini, svo vinna fyrir Loga og í hverri eyðu er ég að klippa Wipeout... Núna er ég að vinna í úrslættinum í þætti 2... Er að hljóðskreyta keppendur í þeirra skrautlegri för... Erfitt val um hvort skal nota *boing*, *doing* eða *boooing* og líka *blúpps*, *blobs* eða *splass*... Decisions, decisions...
mánudagur, nóvember 16, 2009
Posted
8:17 f.h.
by Unknown
Það er vegna þess að ég fór að vinna snemma laugardags og sunnudags... Ég hefði samt viljað vinna miklu meira á laugardag... ekki atvinnulega, heldur bandílega... Það var nefnilega frekar miður niðurstaða í lokin... Þetta var hinsvegar allt tekið upp á spólu sem við munum horfa á í vikunni og sjá hvað fór úrskeiðis... Svo verður spólan étin... Náði samt í vinnutörninni að létta aðeins lundinn með góðu Durga partý... Hópsöngur með helíum klikkar ekki... Núna er svo rugl vinnuvika... Upptaka á Martein langt fram á kvöld í dag... Svo vinn ég þrið/miðv. í efnisöflun fyrir Loga, fimmt. /föst. í klippingu á Loga og svo útsending langt fram á kvöld... Þarf samt að skila 40 klst í Wipeout líka þannig... já... held ég ætla ekki að hafa þetta blogg mikið lengra í dag...
fimmtudagur, nóvember 12, 2009
Posted
4:22 e.h.
by Unknown
Þar sem ég er skuldbundinn til að skila 40 tímum á viku í Wipeout, þá klippi ég hitt á kvöldin, nema þegar það þarf að gerast á daginn og þá fer Wipeout á kvöldin til að bæta upp vinnutapið, nema eitthver upptaka er um kvöldið og þá fer allt um helgina, en þá er ég að keppa í bandí þannig það fer í vikuna á eftir, en þá eru upptökur og verð ég því vinna öll kvöld vikunnar á eftir, en þá þarf að klára ritgerð og bla bla bla... Og þið ætlist til ég bloggi...? Finn smá stund meðan talvan er að "rendera"... Mér tókst samt á einhvern undraverðann hátt að finna smá tíma til að skrifa ferðasöguna um Argentínu... Kannski því ég var að því til 4:30 í nótt... Rúmmlega hálfnaður og að nálgast 4.000 orð... Ég mun samt ekki birta hana fyrr en Wipeout þátturinn með mér er kominn í loftið, og miðað við núverandi áætlun og doðrantinn sem kominn er, reikna ég með að þetta verði jólabókin í ár... En aftur að vinnu... Render búið og ég má ekki við töfinni...
þriðjudagur, nóvember 10, 2009
Posted
8:40 f.h.
by Unknown
mánudagur, nóvember 09, 2009
Posted
8:57 f.h.
by Unknown
föstudagur, nóvember 06, 2009
Posted
1:21 e.h.
by Unknown
Helgin ekkert skárri... Hef ekkert af viti að segja, þannig ég kem með smá hugleiðingu... Mikið finnst mer óþægilegt að vera mál á klósetið þegar maður er að reyna hringja í fólk sem maður verður að ná í... Ef það svar ekki símanum, þá get ég ekki farið á salernið fyrr en það hringir tilbaka svo ég sé örugglega ekki á kamrinum þegar það hringir... Hef þurft að halda í mér í nokkra daga út af þessu... Góða helgi...
miðvikudagur, nóvember 04, 2009
Posted
9:22 f.h.
by Unknown
þriðjudagur, nóvember 03, 2009
Posted
8:26 f.h.
by Unknown
|