| Lífið, heimurinn og allt saman |
|
Front page
Já... hver nennir að einbeita sér að einhverju einu þegar úr svo mörgu er að velja...
Hlekkir eftir mig
Jólasveinar 2002 |
föstudagur, október 30, 2009
Posted
9:13 f.h.
by Unknown
Og "Bad Taste" er opið til túlkunar... Getur verið púkó, halló, lummó, sveitó, gamló, ömmó, ljóttó og svo frammó... Mikið hlakkar mér til... Já, og þar sem við vorum að leggja glæ nýtt kork gólf í eldhúsið, þá ef einhver mætir á pinnahælum sem gata allt, þá eru líkur á að þeim verði slátrað á vingjarnlegan hátt... Annars bara gott rokk og skál í boðinu... Góða helgi...
miðvikudagur, október 28, 2009
Posted
8:20 f.h.
by Unknown
þriðjudagur, október 27, 2009
Posted
9:40 f.h.
by Unknown
Allavega, í gær þá reiknaði ég með 18 manns í mat og eldaði eins og ég elda... Við getum sagt það er pínu mikið af afgangi eftir í dag... Það var næg súpa til að fylla sundlaug... En ef það er eitthvað sem er betra en súpan í gær, þá er það súpan í gær í dag... og það eina sem gæti toppað það er súpan í gær á morgun...
mánudagur, október 26, 2009
Posted
9:57 f.h.
by Unknown
Í framhaldi af þessu var svo farið heim að undirbúa smá fjölskylduboð í kvöld... Það á nefnilega einhver afmæli, þannig okkur fannst það viðeigandi að vígja eldhúsið á sama tíma... Ofninn var vígður með tveimur kræsilegum kökum og hellunar verða vígðar með sjúklegri súpu... Fyrir vikið vorum við Anna að taka til til 03:30 í morgun... Úfff... Ekki góð leið til að byrja daginn (eða enda helgina), en mikið er maður ánægður núna...
föstudagur, október 23, 2009
Posted
3:53 e.h.
by Unknown
Svo á sunnudegi er stórleikur og ekkert smá challenge í gangi... Okkar ástkæra Bandífélag Reykjavíkur mætir drengjunum í Viktor í æsispennandi leik... Þetta eru núverandi bikarmeistarar en við erum samsettir af svo mörgum meisturum á öðrum sviðum að við skulum kreista út sigur í þetta sinn... Endilega mætið öll á sunnudaginn, 15:00 í Fífuna í Kópavogi og styðjið ykkar menn (s.s. okkar menn)... Verið annars stillt þangað til og leikið ykkur fallega... Góða helgi...
fimmtudagur, október 22, 2009
Posted
10:03 f.h.
by Unknown
Við lentum nefnilega í gær á einu svona fyrirtæki og fínnt að hafa frásögn sem jafnar út neikvæða dóminn hér á undan... Eins og fólk veit (eða veit ekki (eða man kannski pínu en var ekki að pæla í)) þá eru ég og Anna að klára að ganga frá eldhúsinu, með nýrri innréttingu til þess að leysa af fórnalamb sprengingarinnar... Við erum á síðustu metrunum og það eina sem var eftir í gær var borðplata og vaskur... Í gær náum við í borðplötuna uppá Höfða (götunum (ekki brennda Reagan/Gorbó draugahúsinu)) um 16:15 og þá er bara að redda einu gati á vaskinn til að setja blöndunartækin í... Þá erum við alveg búin... En mjög mikilvægt við náum því núna, því ástkæri tugþúsundþjalarinn okkar Óli bró er að koma um kvöldið til að klára allt... Þannig okkur vantar bara eitt svona lítið gat á þunnan blikkvask, örugglega ekkert mál enda eru tonn af blikk og málsmiðjum þarna uppá Höfða... Við byrjum að flakka á milli þeirra... Já, finnst ykkur ekki skrítið að ég segi "flakka á milli"... Maður hefði nú haldið að eitt stopp væri nóg, en nei, svo var ekki... Á fyrstu blikksmiðjunni vorum við greinilega að trufla einhvern billjarð leik (no joke (heyrðum í spilamennskunni))... Gaur kemur að okkur, skoðar vaskinn og segir að þetta taki svo langan tíma, meira en hálftíma, þannig við gætum skilið vaskinn eftir og fengið þetta aftur einhverntíman á morgun... Við trúum þessu ekki og förum annað... Þar er sama sagan... Þetta á að taka svo langan tíma og klukkan að skríða í hálf þannig þeir ná þessu ekki fyrir lokun... Alltaf eigum við að pannta tíma og ná í næsta dag... Fenguð við semsagt einhver ofur titanium vask úr IKEA sem er bara ógerlegt að gata...? Ein blikksmiðjan segir okkur að koma eftir ár (ATH. NO JOKE!) því það er svo mikið að gera (þó svo í augnablikinu sátu allir á rassgatinu að bíða eftir að klukkan slægi 17:00)... Við erum búin að gefast upp og ætlum að fara með vaskinn næsta dag eftir að við pönntum tíma og álíka... Þá sjáum við síðasta fyrirtækið uppá Höfða... Ísloft blikk og stálsmiðja... Klukkan er nú orðin 17:00, þeir fara nú varla að gera eitthvað... en prófum... Við komum inn þegar allir eru á leið út og spyrjum hvort þeir geta gert gat á vaskinn... Þeir segjast vera búnir að loka en biðja samt um að fá að kíkja á hann... Hmmmm... Labbið hérna aðeins inn... Og hvar á gatið að vera... Já, OK... Svo borar hann lítið gat... Æj, hann braut borinn... Skiptir þá víst engu... Nýr bor og það er komið pínu gat... Svo stærri bor og stærri gat... Svo enn stærri bor og stærra gat... Loks eitthvað tjakkandi gatgerðargræja... Tjakk, tjakk, tjakk *klink*... Gullfallegt gat (himnesk hola)... Ekki fimm mínútur... Þakka ykkur kæralega... Hvað kostar þetta...? "Bah, þetta var ekkert" segja þeir... Ha...! Ekkert...?!? Hvað finnst ykkur um svona...? Sko Ísloft blikk og stálsmiðju... Fóru umfram hefðbundna þjónustu óumbeðnir með bros á vör... Við sem vorum byrjuð að halda þetta væri ofur vandamál að gera... Og gratís í þokkabót...! Gerðist það á svona tímum... Þá vitiði það... Ef þið þurfið eitthvað blikk eða stál smíðað, þá kíkið uppá Höfða á Ísloft blikk og stálsmiðju... Ég vill ekki vera nafngreina þá staði sem voru óliðlegir (afsakið við trufluðum billjarðleik ykkar og sorrý við getum ekki beðið í ár), en bókstaflega (já bókstaflega) allar blikk og stálsmiðjur uppí Höfða fyrir utan Ísloft blikk og stálsmiðju (munið þið ekki núna nafnið?) vildu ekkert gera, nema við skildum eftir vaskinn og mættum næsta dag... Léttara eflaust að rukka fleiri tíma á svoleiðis verk... Þannig takk kærlega Ísloft blikk og stálsmiðja... Þið berið höfuð (uppá Höfða) og herðar yfir aðrar blikk og stálsmiðjur (ef smiðjur mætti kalla)... Ég veit þetta virkar pínu sillý að gera mál úr einhverju litlu gati, en ég bara gat ekki trúað viðmótinu sem við fengum allstaðar annarstaðar, þó svo við sögðumst vera í blússandi neyð... Er nú til einhver andhverf kvörtunarþjónusta, svona lofunarþjónusta sem ég get notað til að lofa fyrirtækinu...
þriðjudagur, október 20, 2009
Posted
9:13 f.h.
by Unknown
föstudagur, október 16, 2009
Posted
8:03 f.h.
by Unknown
fimmtudagur, október 15, 2009
Posted
2:17 e.h.
by Unknown
miðvikudagur, október 14, 2009
Posted
3:41 e.h.
by Unknown
En það styttist í að hlutirnir batna... Það er að sjá fyrir biluninni á heimilistölvunni þannig ég fæ hana brátt í fangið... Annað gildir um lapptoppinn þar sem ég er að kljást við EJS um ábyrgðarskilmála... Sem betur fer eru Neytendasamtökin mér við hlið (gáfulegasta fjárfesting ever (bjargað mér nokkru sinnum í ár)) þannig vonandi fer það að leysast... Svo er Óli bró búinn að standa meistaralega undir nafni sem húsasmíðameistari og umtörna spítnabraki og bútum í stórglæsilega innréttingu... Bara smá handtök eftir, svo sem ljósakappar og svo heimatilbúinn vínrekki (úlala) sem hann mun hanna nú (og hana nú)... Þá er svo borðplatan eftir en bara plata kostar milljón (jók, bara plata)... Með eldhúsið uppsett og tölvuna tilbúna verð ég heill á ný... Googla góða uppskrift og prufukeyra herlegheitin... Það verður ekki snæddur skyndibiti fram að áramótum...
þriðjudagur, október 13, 2009
Posted
9:18 f.h.
by Unknown
mánudagur, október 12, 2009
Posted
9:57 f.h.
by Unknown
föstudagur, október 09, 2009
Posted
9:35 f.h.
by Unknown
Síðustu helgi tóku hetjunar á móti Hrunamönnnum og sigruðu þá glæsilega 8-8, þrátt fyrir að það vantað ófáa menn, þar á meðal 8-una sem var 8villt í Argentínu (snortinn af 8-8 stigatölu tribute-inu)... Núna er komið að kljást við BK (Bandífélag Kópavogs (frumlegt nafn eða hittó)) sem er talið eitt af sterkara liðum keppninnar... En endurkoma fjarverandi fýra styrkir annars ofursterk liðs, og vill ég benda andstæðingum að átta sig á að ekki verður átt á áttuna né aðrar tölur tel ég teljanlegt... Mætið stundvíslega á leikinn sem byrjar 15:00 í Fífunni í Kópavogi... Alltaf pláss fyrir klappstýrur og fagnstjórum... Hverjir eru Svalastir... BR...! BRrrrr...! Andstæðingum okkar rennur kallt blóð milli skins og hörunda... BRrrrr...! You're not putting me to the cooler... BRrrrr...! O.s.frv.... Áfram BR...! fimmtudagur, október 08, 2009
Posted
11:00 f.h.
by Unknown
Frá svo miklu að segja frá... En vá, hvernig á ég að fara að því...? Helmingurinn af efninu er ég samningsbundinn að halda leyndu fram í febrúar, og hitt verður þá það sundurslitið að það næst varla samhengi...
Ég er að pæla bara í að skrifa eina góða ferðasögu með því sem má og má ekki meðan allt er í fersku minni, en halda henni frá almenningi uns fyrsti þátturinn af Wipeout fer í loftið... Já, ég var nefnilega í Argentínu til að keppa í Wipeout... Surprize, surprize...!
|