Posted
5:27 e.h.
by Unknown
Jæja, lokablogg ársins... Þvílíkt æðislegt ár... Það eru fáir atburðir sem standa uppúr en í heildina þá var nær aldrei leiðinleg stund... Um vor og haust var ég að brillera í Kanada og skemmta mér þar... og svo var þetta líka drauma sumar, eitt besta sem ég hef nokkru sinnum átt, með brúðkaupum, steggjunum, ferðalögum og fleira...
Var ekki með nein sérstök áramótaheit sem ég stóð við, nema það eitt að skrifa handrit og það gerði ég...! Sko mig...
Nú er bara að sjá hvort næsta ár verður enn betra... Þar er erfitt að toppa þetta en nokkrir atburðir gætu reddað því... Náttúrulega er skólinn ennþá skólinn og verð ég að halda áfram að standa mig... Svo er sumarið heima alltaf æðislegt og reyni að hafa það enn betra... en svo ofan á það er Hróarskelda sem gæti lyft 2005 yfir 2004... og svo... og svo... það sem ég stefni á... ... ... Ég vona... NEI... Ég ÆTLA (!)... að selja handrit mitt...! Það er fínnt að "vona" eitthvað, en mér finnst betra að "ætla" gera eitthvað... Einnig segi ég aldrei: "EF ég sel handritið þá..." heldur: "ÞEGAR ég sel handritið þá..."
... Þá yrði 2005 ár áranna... í bíli... Ég meina það er alltaf hægt að fara lengra...
Takk kærlega kærlega kærlega fyrir síðasta ár og hlakka eindregið til að sjá ykkur á því næsta...
Gleðilegt ár...!
... og náttúrulega... SKÁL...!!!
Posted
4:37 e.h.
by Unknown
Búinn að taka nokkur svaka spila"kvöld" í vikunni... Segi spila"kvöld" því í raun var urðu þetta spila"nótt" og jafnvel spila"morgun"...
Á þriðjudag vorum við til sex um morgun að spila, sama gildir um miðvikudag og loks í gær tókum við það rólega og spiluðum aðeins til fjögur um nótt...
Fyrir vikið hef ég algjölega snúið við sólarhringinum og ætti að vera minnsta mál að geta endst all svakalega vel og lengi í nótt, gamlaársnótt og alveg fram undan morgun (ekki að spila)...!
Hinsvegar er ég alveg dauð þreyttur núna og spurning hvort ég leggi mig ekki fram að Skaupinu...
þriðjudagur, desember 28, 2004
Posted
2:12 e.h.
by Unknown
Í gær var hringt í mig frá Fréttablaðinu og tekið stutt símaviðtal við mig sökum þess ég vann Hróarskeldusögusamkeppnina (langt orð)... Náttúrulega sendu þeir svo ljósmyndara til þess að festa glott mitt á filmu til að fylgja greininni...
Þá er það náttúrulega bara týpískt... Tímasetningin er auðvita einmitt þegar maður er sjúskaður og þynnkulegur eftir fínnt bæjardjamm kvöldið áður... en það sleppur í þetta sinn, því ætli það sé ekki bara viðeigandi fyrst maður var þannig allan tímann á Hróaskeldu hvort sem er...
Posted
1:17 e.h.
by Unknown
Hlakka mikið til í kvöld... Er að fara spila með frændsistkynum... Árlegur viðburður síðan ég man eftir mér... Hef á tilfinningunni að ég fæddist með tening í kjaftinum...
Sem betur fer er nýtt spil komið í hópinn... Þarna er nefnilega lið, sem eftir að ég kláraði Pictionary í tveimur tilraunum með frænda mínum, tókst að vinna uppkastið fyrir nýjan leik, byrja og klára í aðeins einni tilraun án þess að nokkur fékk að gera... Leikurinn er "Pop Trivia DVD Trivial Pursuit"... Flokkarnir eru Music, T.V., Movies, Fads, Buzz og Sports/Games... Svipar til venjulegs Tvivial Pursuit nema allar kubbaspurningarnar eru spilaðar af DVD og eru t.d. myndir, myndbrot, tónlist o.s.frv... Afskaplega nett... eða allavega vona ég þetta sé nett... Hef ekki prófað þetta og er ekki í stuði fyrir spælingu, þá sérstaklega ekki 50 dollara spælingu sem bókstaflega fyllti aðra töskuna mína á leiðinni hingað... Ef þetta er vonbrigði þá prófa ég kanski "Pop Trivia DVD Frisbee af svölunum"... Það ætti allavega að virka...
mánudagur, desember 27, 2004
Posted
3:14 e.h.
by Unknown
Þvíhíhííílík hamingja...! Fékk í gær tölvupóst þar sem tekið var fram að ég hafi unnið Hróarskeldusögu samkeppni með bestu söguna...! Sjáið fréttina hér... Svo birta þeir söguna í allri heild sinni á heimsíðunni...!
Góður vinningur og náttúrulega fullkominn fyrir fátækan námsmann sem mig sem komst ekki í ár sökum fjármagnsleysis... Ég hef oft sagt að bjór sé góður en frír bjór sé betri... Þá að sama skapi er Hróarskeluferð æðisleg, en ókeypis Hróarskeldufreð örugglega æðislegri...
Vill ég nú þakka öllum þeim sem voru með mér á Hróarskeldu 2003 og gerðu þessa ferð eins eftirminnilega og ógleymanlega og hún var... Þakkir í stafrófsröð því ég vill ekki gera upp á milli þessa yndislegra manneskja...
Aggi, Anna, Gauti, Geir, Gummi, Haukur, Hjalti, Hlynur, Hrefna, Indy, Ingi, Kata, Luise, Raggaló, Runi, Sanne, Þói, Þrándur... Vona þið verðið þar 2005...
...og þá verður bókað ný saga...!
SKÁL...!
Posted
3:08 e.h.
by Unknown
Finnst ykkur nokkuð óviðeigandi að hafa gefið stóra bróður sínum og frú "rólu" í jólagjöf... Þetta var bara svona smá "róla"... passlega fyrir tvö... í raun sérstaklega hannað fyrir tvö og í raun ekkert skemmtileg ef notuð einsamall/sömul, ef það er nú hægt...
Var ekkert smá vesen að koma henni til landsins... níðþung, úr viði með keðjum og svoleiðis... örugglega þyngsti pakkinn á leiðinni...
... en það var svo sannarlega þess virði til þess eins að sjá svipinn á hjónunum, sérstaklega að opna "rólu" pakkann í fjölskyldu hóp með aragrúa af forvitnum börnum í kringum sig... og "rólan" er náttúrulega ekki fyrir börn...
Er ég ekki góður bróðir...?
Posted
2:54 e.h.
by Unknown
Frábær jól... og uhuhuuuuunaðslegur matur... en sökum friðunarregla þá var maturinn aðeins frábrugðinn í ár... Vanalega eru fjall af íslenskum rjúpum en núna voru aðeins tvær íslenskar sem við gátum reddað eftir að þær voru skotnar af slysni af einhverjum í misgripum fyrir hreindýr...
Urðum við að sætta okkur við skoskar rjúpur (þið þekkið þær á pilsunum) sem voru fínar, en í samanburði við þær íslensku þá voru þær næstu því eins og kjúklingur á bragðið... Svo bættum við við þetta íslenskar endur sem voru skotnar endur fyrir löngu og svo líka var svo bragðgóð gæs að maður fær samnefnda húð bara að hugsa um það... og meðlætið er eitthvað til að vera með læti yfir... Mmmmmm...
Á dögunum sem fylgdu var hamborgarhryggur (hamborgarahryggur?) og hangikjöt yndisleg viðbót...
Í kvöld er svo annnað matarboð þar sem ónefnt dýr verður matbúið snilldarlega og þvingað í sömu gröf og hin vel tuggið og skolað niður með jólaöli...
Samt... eftir svona þvílíka átfest, þá held ég að ég hefði ég ekkert á móti góðu salati bara næstu daga...
Posted
2:15 e.h.
by Unknown
Algjör Jólaráðgáta...!?!
Í gær fékk ég pakka sendann í pósti... Það var ekkert nafn á umslaginu þannig ég opnaði það og inní því var ekkert nafn heldur... Það eina sem var þar, var lítill kassi með nýjum nærbuxum í...
Er ég alveg gáttaður... Hver er að senda mér nærbuxur í ábyrgðarpósti...? Ég flétti upp sendingarnúmerinu á netinu og sá að þetta var póstlagt 22.des í póstsvæði 102... en 102 er ekki til sem svæðisnúmer...! The mystery thickens...!
Verð ég því að púsla saman hver gæti hafa sent þetta út frá öðrum atriðum... Þetta eru Danskar Jóla Tuborg boxer nærbuxur póstlagðar heima... Það fyrst sem ég gerði var að hringja í alla sem voru að koma heim frá Danmörk sem ég þekki, en engin þeirra segist hafa sent þetta...! Þá spurði ég Gauta félaga minn hvort hann gerði þetta eftir allt nærbuxnabrasið í kringum hann en svo var ekki... Varð ég nú alveg hugmyndarlaus... Hver í ósköpunum gæti hafa sent þetta...!
Það er eitt sem ég held... Sá sem sendi þessar nærbuxur hlýtur að lesa bloggið mitt... og frekar reglulega... Ég held það því að ég hef talað um nærbuxur undanfarið sökum brasið með nærjunar hans Gauta... auk þess er búin að vera nærbuxnakönnun á blogginu næstum frá upphafi... Í þokkabót eru teikningar á nærbuxunum eins og ég held mikið uppá... og loks eru þetta bjór nærbuxur sem ég held lang mest uppá...
Vill ég því biðja þennan dulafulla sendanda að gefa sig fram við mig, hvort sem er hér á blogginu, með símtali (862-4878), með tölvupósti (raggiey@yahoo.com) eða SMS, því ég er svo svakalega forvitinn... Ef ekki, þá vill ég formlega þakka kærlega fyrir mig... Þetta eru æðislegar nærbuxur...! og ég lofa því að ég mun ganga í þeim nú stax eftir jólasturtuna og yfir jólin...
Í þokkabót reddaðir þú mér að ég færi ekki í jólaköttinn... Þetta eru einu nýju jólafötin mín...
Takk kærlega aftur og gleðileg jól, þú kæri nærbuxna jólasveinn/jólasveinka...
Posted
2:08 e.h.
by Unknown
Fór niður í bæ eins og vanalega á Þorláksmessu... Hef ekki misst af Laugarvegs rölti á þeim degi síðan 1991 þegar við vorum í Flórída...
Ólíkt Flórída, þá var algjöl nístandi kuldi í þetta sinn... Ég fór niður í bæ með gamla 16mm Bolex kvikmyndatökuvél og vakti það forvitni margra... Sökum upptöku minnar þá gat ég ekki verið í hönskum við að meðhöndla vélina og voru því hendur mínar klakaboltar sökum þess að vélin er eitt þykkt málmstykki... Mikið var ég ánægður að ég var ekki að reka tunguna í vélina eins og vanalega... (is he joking?)...
Kaldhæðnislegt (líka kaldhæðnislegt að eitthvað sé "kald"hæðnislegt í þessu veðri) að það fyrsta sem ég geri þegar ég kem inn úr kuldanum er að pannta mér bjór í freðnu glasi... Hefði náttúrulega bara getið stungið einum putta ofaní til að kæla hann, en það hefði í raun bara gert hann að klaka... og þótt það hljómar vel, þá er bjór íspinni ekkert svo spes...
fimmtudagur, desember 23, 2004
Posted
2:21 f.h.
by Unknown
Vissara að taka það framm fyrst ég er kominn á landið... Er með nýtt símanúmer... en tæknilega séð gamalt, því þetta er fyrsta númerið sem ég fékk frá upphafi (1998) og var með sem lengst (til 2003)...
Þannið þið sem hafið ekkert fylgst með mér af viti síðan ég fór til Kanada, þá eruð þið ennþá með þetta númer, og eflaust ekki einu sinni að lesa þessa málsgrein...
Fyrir ykkur hin, þá er númerið mitt 862-4878... Eða eins og ég segi: "Demantur + Fæðingarárið" (skoðið lyklaborðið við innstimplun (einfallt sko))...
Látið nú kveðjunar og símtölin flæða...
862-4878...
Posted
2:05 f.h.
by Unknown
Það sem ég er búinn að gera íslenskt síðan ég kom...
1. Éta brauðtertu... Mmmmm (lenti út útskriftarveislu)...
2. Éta súkkulaði og marensköku... Mmmmm (lenti í barnaafmæli)...
3. Éta almennilega þunna pízzu... Mmmmm (Kanada á ekkert í þær)...
4. Éta saltkjöt... Mmmmm (Fékk legg og góða hálsa)...
5. Éta hangikjöt... Mmmmm (Hrátt (MMMMM!))...
6. Drekka Jóla Víking... Mjög fínn bara...
7. Djamma lengur en til 02:00... (Þá loka allir barir í Kanada)...
8. Þamba 87 lítra af vatni... Ohhhhhh...
9. Sofa af mér dagsbirtuna...
Næsta á dagskrá er meiri neysla á íslenskum vörum... Það er lifrapylsa í ískápnum sem mun ekki endast fram að hádegi...
Hvað fleira vantar samt á þennan lista...?
Posted
1:56 f.h.
by Unknown
Lenti í barnaafmæli á mánudag hjá syni systur minnar... Var þar sérlegur aðstoðarmaður þar á ýmsum sviðum... Eitt af því var að panta pízzur (pítsur (pítzur?)) og sækja...
Ég græja 8 pí... um, flatbökur og æði út að sækja þær á nýja bíl (sjálfrennireið?) systur (and-bróðir?) minni...
Ég smelli 8 sjóðheitum bökum í bílinn og legg af stað heim... Lendi þá í því sem allir lenda í með heitar bökur... Móða byrjar að fylla alla glugga... Ekkert mál... bara skrúfa niður... um... skrúfa... um... eða kanski... um...?
Ég get ómögulega fundið hvernig skal opna rúðurnar í þessum nýja bíl... Það er svo mikil móða að ég sé ekki út, verð að stoppa bílinn og opna hurðinar á miðju Hringbraut því ég veit ekkert hvar ég er...
Ennþá get ég ekki fundið hvernig skal opna gluggana, ekki einu sinni afturí, þannig ég keyri aftur af stað og rembist við að keyra tilbaka... Rétt næ að keyra í hlað áður en sentimeters þykk móða hefur lagt bílinn undir sig...
Legg bílnum og losa beltið... Þarf ég nokkuð að taka fram hvaða takka ég rak mig í þá og uppgötvaði þannig...?
þriðjudagur, desember 21, 2004
Posted
1:44 f.h.
by Unknown
Jæja... Kominn heim tæknilega séð heill og höldnu... Þá er náttúrulega fyrst ferðasaga... Löng saga því þetta var löng ferð... Ef ég gat komist í gegnum þetta, þá getið þið alveg lesið þetta... Mæli með því...
En hvar skal nú byrja...?
Ég byrja á fimmtudagskvöld að pakka í töskurnar... Byrja á gjöfunum frá mér (37 stk) og svo frá bróður mínum (49,5 stk)... Til þess að lenda ekki í yfirvikt, þá setti ég allra þyngstu hlutina í handfarangur... Lítill bakpoki blés þannig út sem strandbolti...
Af einhverjum ástæðum sjá leikfangaframleiðendum sér ekki fært að hanna umbúður lengur sem einfaldan kassa... Gjafirnar sem ég keypti voru bara í "kassa" að nafninu til, en í alvöru þá var ekkert horn jafn stórt og engin hlið jafn löng... Flóknara en nokkuð púsluspil að raða þessu í töskurnar... Svo voru umbúðirnar vanalega 73 sinnum stærri en það sem var inní þeim, þannig það sem ég var að koma með til landsins var í raun 95% loft... Það skiptir ekki máli, því leikföngin eru greinielga úr blýi því taskan var ekkert léttari...
Eftir að allar gjafirnar eru búnar að fylla töskurnar þá verð ég að taka til fötin... Það eina sem ég gat gert (No Joke) var að rúlla fötunum þétt upp og troða í þær þröngu rifur sem ég fann á milli pakkanna... Bolur hér, nærbuxur þar, skór fylltir af sokkum o.s.frv....
Þegar allt var stútfullt í aðaltöskunum var ennþá nóg eftir... Varð ég að bæta því meira í handfarangurinn sem nú var á stærð við Michellin Man á sterum... og enn var nóg eftir... Þá tók ég svefnpoka minn (sem á ekki að koma með), tæmdi hann úr svefnpokapokanum og fyllti svo svefnpokapokann með meiri fötum og að ógleymdum nærfötunum hans Gauta (mér finnst þau allavega ógleymanleg (brenna í minningunni (og martröðunum (hvernig gat hann eiginlega gleymt þeim?))))... Tróð ég hlutum og fötum svo fast í töskurnar að á sumum stöðum mynduðust demantar af þrýsting, en á öðrum mynduðust svarthol, því auðvita eru þau miklu þyngri... Festi ég loks svefnpokapokan utan á risa týpíska ferðalingabakpokann minn og var þá búinn að pakka...
Ég vakna daginn eftir klukkan 8:00 og legg af stað klukkan 16:00 að heimann... en ekki fyrr en ég fann tvær bækur sem ég vildi taka með (what was I thinking!?!) sem ég setti í handfarangur fyrir kraftaverk (páfinn á línu 2!)...
Jon fyrrverandi herbergisfélagi minn skutlar mér á flugvöllinn bara sem ókeypis greiða, þó svo ég mun eflaust þurfa að borga fyrri nýja dempara eftir hvað farangurinn níddist svo á þeim...
Ég kem út á flugvöll og bóka mig inn... Sem betur fer er engin yfirvikt á flugi frá N-Ameríku til Evrópu, en ég hef á tilfinningunni að eftir mig þá munu þeir breyta því (þeir héldu að ég væri að smygla annari flugvél inní flugvélina)... Töskurnar eru sem betur fer bókaðar alla leið í gegnum París og til London og þarf ég ekki að hafa áhyggjur af þeim þangað til... Ég tek upp þá hinar níðþungu handfarangurstöskur og rölti af stað...
Eftir að hafa flassað vegabréfinu og farmiðunum óþarflega oft kem ég að málmleitunar tækinu... Ekkert mál... Ég hef aldrei fyrr né síðar fengið *píp* á mig og æddi öruggur í gegn... Annað mál gilti um handfarangurinn... "Can you step this way, sir?" segir gaurinn óþarflega alvarlega vegna fyrra handfarangurs míns... ég stíg aðeins til hliðar og þá kemur "Can you step all the way behind this, sir?" segir hann enn alvarlega eftir seinni taskan fer í gegn... Málið er að í fyrri töskunni gæti verið að ég hafi komið fyrir stórum málmkassa sem erfitt er að sjá í gegn... Varð ég því að tæma töksuna og sýna þeim að þetta var ekki sprengja (nógu stórt til að vera sprengju verksmiðja)... Í seinni töskunni var svo kvikmyndavélinn, sem er einn stór málmhnullingur nema með rofum og tökkum, mun líkari sprengju og varð ég því að fara frá almenningi til þess að sýna það...Eftir þetta bras varð ég að troða öllu aftur í töskurnar meðan öryggisverðir biðu óþolinmóðir eftir að fá að áreyta næsta mann... Þegar ég kem að hliðinu er því tími til þess að fara í vélina...
Níu tíma flug til Parísar og ég lendi fastur við gluggann við hliðina á eld gamalli kanadískri kellingu með stóra fjölskyldu sem ég varð að heyra allt um (ekki sjálfviljugur) á meðan í kringum mig var aragrúi (no joke) af vingjarnlegum og gullfallegum dömum á leið í Evrópureisu...
Eftir að gamla kellingin hafði talað sjálfan sig í svefninn (6.3 klst seinna) fékk ég loks smá frið til þess að vera andvaka því ég get aldrei sofnað í flugvélum... of óþægilegt...
Ég lendi í París um morguninn og hef sæmilegan tíma til þess að koma mér á milli hliða... Engar stórar töskur þannig ekkert mál... Fyrir utan náttúrulega handfarangurinn... Taska eitt "Pouvez vous faire un pas de cette façon, monsieur?" segir hann alvarlegur... Taska tvö "Pouvez vous faire un pas toute la manière derrière ceci, monsieur?" Alvarlegri... og enn og aftur varð ég að tæma handfarangurinn til þess að sýna þeim að ég var ekki með "Le bomb" í töskunni (í raun nógu "grand" til þess að vera "L'usine de bomb)...
Eftir þetta bras varð ég að troða öllu aftur í töskurnar meðan "garde de sécurité" biðu óþolinmóðir eftir að fá að áreyta "la prochaine personne"... Þegar ég kem að "La porte" er því tími til þess að fara í "l'autobus"...
Klukkutíma flug til London og ég lendi fastur við gluggann við hliðina á drepleiðinlegum Breta að koma frá Kongo sem ég varð að heyra allt um (ekki sjálfviljugur) á meðan í kringum mig var aragrúi (no joke) af vingjarnlegum og gullfallegum (japönskum) dömum á leið í Evrópureisu...
Lendi ég loks í London og æði að tösku móttökunni... Eftir langa bið koma loks töskurnar og ég treð þeim á kerru sem er alveg að bugast (líka andlega)... Nokkur skref áfram og það stekkur hundur á þær allar... ALLAR og þefar í óralangan tíma að einverju grunnsamlegu (þjálfaður í að leita að svartholum (sjá fyrri brandara))... Þegar ég kem frá honum fer ég í gegnum tolla eftirlitið... Er ég stoppaður og tekin til hliðar... Það fyrsta náttúrulega sem ég geri... er að tæma handfarangurinn, ekki einu sinni kominn inní landið... Þið þekkið restina... sprengja, verksmiðja, pakka, óþolinmóðir, áreita næsta mann...
Ég keyri þessar töskur út og byrja að leita að brottför aftur... Sem einhvern skemmtilegan jólaleik, þá hefur Icelandair falið sig undir öðru nafni, og eftir (no joke) að hafa keyrt kerruna með tösku fjallið (nema þyngra) alla leið til hægri enda terminalsins og svo til vinstri í þessari brjálæðislegu háanna jóla traffík og troðning, þá finn ég lok Icelandair undir nafni "Air France" (sniðugir prakkarar) alveg lengst til hægri aftur...
Ég smelli fyrstu töskunni á viktina sem blótar í 15 tungumálum... Konan horfir á mig og segir hámarkið er 18kg ég verði að borga yfirvikt... Svo sér hún næstu tösku og segir mér að yfirviktin er 10 pund fyrir hvert kíló, þannig ég get annað hvort borgað það eða sparað helming með því að kaupa bara allt flugfélagið... Þá byrja ég að "sweet talk"a dömuna... Fyrir einskærri tilviljun þá fór ég frá Toronto-París-London einmitt með Air France og tekst mér að sannfæra hana að ég er ennþá á sama miðanum *hóst*lýgi*hóst*, nema gaurinn á Toronto bókaði töskurnar ekki alla leið því hann kunni það ekki *hóst*meirilýgi*hóst*... Þá sagði hún að ég þyrfti þá ekki að borga yfirvikt... Gaurinn bak við mig þurftu hinsvegar að borga mikið (hann er orðin nú orðin hluthafi fyrir vikið)...
Mér tókst að koma fjallinu því frítt heim... Er gæfan loks að brosa við mér...? "Can you step this way, sir?"... Greinilega ekki... Blah blah blah (insert joke here)...
Fer ég loks í síðustu vélina... Glaðnar yfir mér að vera kominn síðasta spölinn í faðmi forkunfagra íslenskra meyja að færa mér veitingar... Skyndiega kemur sólmyrkvi yfir bjartsýni mína... Það er náttúrulega einn staður sem er verri en að vera fastur út í horni... og það er að lenda í miðjunni... Stór (STÓR) kani, í allar áttir, bóndi non the less, lendir við hliðina á mér og er byrjaður á samtal áður henn er einu sinni sestur, sem hann loks gerir svo ég þvingast að glugganum... Eina truflunin á einstefnu samtalinu var þegar öfurölvi, gamall og feitur, íslenskur businessmaður, staulast angani af víni og sígarettum inn á milli okkar og treður sér í gluggasætið, ennþá í frakka þykkari en margar hvalategundir... Hann plammar sér í sætið og flæðir yfir helminginn af mínum... Svo byrjar að umla eitthvað og er hálf rænulaus alla leiðina nema þegar hann notar sjötta skilningarvitið til þess að skynja flugfreyju nálægt sem hann biður þá um drykk... Er ég þarna alla leiðina, pikk fastur, ekki búinn að sofa í sólarhring og á framundan eina fjóra vestu tíma avinnar...
Lendum við loks á Íslandi og ég skríð úr vélinni... Vélin lagði að hliðinu sem er eins langt í burtu og hægt er (Reykjavík) frá móttökustað tasknanna... Ég skríð gegnum allan flugvöllin með þungu töskunar tvær og kemst loks að töskumótökunni... Ég tek upp kerru og bíð eftir minni... og bíð... og bíð...
Ekkert var að gerast... færibandið var ekki einu sinni í gangi í heilann hálftíma... Ef það væri snúandi þá gæti maður allavega vonað að taskan væri alveg að koma, en á meðan ekkert snérist þá algjörlega eyðir það allri von manns um að maður mun nokkurn tíman klára þessa ferð... Loksins byrjar færibandið að snúast og töskur æða í hringi... Eftir meiri bið þá loksins fæ ég mínar tvær sem ég kýs að kalla Keklu og Kötlu (stórir og þungir hlutir sem gætu sprungið bráðum)... Ég hendi þeim á kerruna ásamt öllu öðru, og með síðustu lífs og sálarkröftum ýti ég þessi í gegnum tolla eftirlitið, algjörlega bugaður... og... og... ekkert... EKKERT...?
Tolla eftirlitsmennirnir hafa kanski í samúð sinni séð að ég hef þjáðst nóg á leiðinni... ... en í raun þá var þetta allt skipulagt í upphafi frá því ég lagði af stað í Kanada... Þegar ég labba út þá heyri ég bak við mig: "Þetta kennir þeim að reyna koma svona yfirvikt milli landa."... Svo var "High-five" á tollara línuna... og ég gat loks kallað enda á mína ferð...
föstudagur, desember 17, 2004
Posted
8:35 e.h.
by Unknown
Jæja... Farinn af stað... Sjáumst á Íslandi...
Posted
5:40 f.h.
by Unknown
Eins og ég hef tekið fram, þá fer ég Toronto-París-London-Keflavík... Úfff... Það versta er, að á leið minni til París, þá bókstaflega flýgur vélin yfir Ísland og svo England... Ég er að fara sömu leiðina tvisvar...!
Spurning um að gera eitthvað til þess að fá vélina til þess að lenda á Íslandi á leiðinni... Kanski minniháttar skemmdarverk gæti fengið hana til að lenda vegna bilanna en það er frekar áhættusamt... Kanski geri ég mér upp veikindi á leiðinni og heimta að ég verði settur á næsta sjúkrahús ásamt öllum farangri mínum... Flott...! Nei, þá verður mér ætt í gegnum Fríhöfnina áður en ég kaupi tollinn...
O.K. Nýtt plan... Kanski er bara best að koma einhverjum öðrum í spítala og ég fæ að hoppa út fyrst ég er nú á svæðinu... Erfitt að eitra fyrir einhverjum því það má ekki fara með svoleiðis í vélina... ... ... AHA...!!! Ef ég vissi hvaða skvísa væri að ferðast með mér heim þá gæti ég barnað hana og hún myndi eignast það á leiðinni... SNILLD því það er svo auðvelt að koma fóstri í gegnum málmleitunartækin... Vá... Ofsa góð leið... en kanski aðeins of seint... um svona níu mánuði... Er samt ekki að segja það væri ekki skemmtileg leið *blikk*...
Posted
5:09 f.h.
by Unknown
Þvííííhííííhílík verslunarferð í dag... Kláraði algjörlega alla í fjölskyldu minni og börn þeirra í einni bunu... drekk hlaðinn gjöfum...!
Ekki nóg með það... Ég verslaði líka inn fyrir bróðir minn gjafir hana krökkum sem hann þarf að gefa... Verslaði sem sagt "bróður"partinn af gjöfum hans (get it! (bróðir (ahaha!)))...
Samtals eru þetta 374 gjafir eða 8.293 kíló sem ég þarf að troða í aðeins tvær ferðatöskur og drösla til Toronto-París-London og svo heim... Í þokkabót tek ég þunga kvikmyndatökuvél með heim frá skólanum sem er úr sama efni og skriðdrekar nema höggheldari...
Spurning hvort það verður pláss fyrir nærfötin hans Gauta...
Posted
7:44 f.h.
by Unknown
Í gegnum bloggferil minn, þá hef ég alltaf veitt athygli yfir hvaða gestur er góð rúnuð tala í heimsóknum mínum og beðið þann gest um að tilkynna sig... Þetta byrjaði í 5.000, svo 10.000, 15.000, 20.00, 25.00 og loks 30.000 gesturinn... En ég get ekki gert þetta endalaust...
Þetta er eins og þegar maður er í sambandi... Maður heldur aðeins uppá fyrsta mánuðinn saman, svo næsta mánuðunn og næsta, alveg þangað til að maður er búinn að vera saman í hálft ár... Eftir það þá gerir maður ekkert fyrr en eftir heils árs samband...
Mér finnst því ekkert spes hver verður gestur númer 35.000 því þetta er komið í sama far og hálfs árs samband... Ég mun kanski forvitnast hver verður númer 40.000 og þokkalega númer 50.000... En kæri komandi gestur 35.000, láttu bara fara vel um þig og hafðu bara hljótt um þig...
P.S. Gæti verið það séu einhverjar líkur á að ég er að reyna öfuga sálfræði fyrst gestur 30.000 tilkynnti sig ekki á sínum tíma...
Posted
7:34 f.h.
by Unknown
Mér er alveg að takast þetta...! Handritið er á síðustu blaðsíðunum að fæðast... Hélt það myndi verða aðeins 90-100bls um daginn, en sökum gífurlegra ritstrauma þá er ég komin á bls. 117 og á bara eftir að setja nokkra blaðsíðna endi... og það verður klárað í kvöld... LOFORÐ...! Mikið hlakkar mér til...
Er að sama skaði orðin gífurlega paranoid...! Þetta er nefnilega handrit sem er búið að gerjast í svo langan tíma, og nú þegar það er loksins að klárast þá býst ég við hinu versta... Murphy's Law: "Anything That Can Go Wrong, Will Go Wrong!"... Held á hverri mínútu að einhver steli hugmyndinni, eða talvan hrynur og eyðir öllu eða ég fæ höfuðhögg og þjáist af minnisleysi... Er ég því að eyða meiri tíma undanfarið í að gera alls konar afrit frekan en að skrifa...
Ég verð ekki rórri (róri? (róari)) fyrr en síðasta blaðsíðan er til, þrjátíu og sjö afrit viðsvegar um tölvuna og í pósthólfum og loks nokkur eintök á skjanna hvítum pappír...
Þetta er samt bara fyrsta uppkastið... Ímyndið geðveiki mína þegar ég verð að hreinskrifa og endurbæta... úfff... Vona að gaddavír fæst í magnafslætti...
þriðjudagur, desember 14, 2004
Posted
4:51 f.h.
by Unknown
Þarf að gera eitt frekar óreglulegt áður en ég fer heim... Það er að þvo auka sett af nærbuxum... Það vill nefnilega svo "skemmtilega" til að Gauti félagi minn, sem heimsótti mig fyrr í haust, gleymdi poka af óhreinum nærfötum og sokkum hjá mér þegar hann fór... og það er eitthvað við hrúgu af notuðum nærfötum sem fær mann til að slá á frest að kljást við vandann...
En nú er tíminn kominn og ég get ekki flúið það lengur... Verð að skila þessum nærfötum til rétts eiganda... Gaman fyrir hann að eiga nærföt sem eru víðförlari en hann, því þessi í raun fara líka til Parísar og London á meðan hann fór beint heim...
Á morgun þá munu þessi nærföt því verða þvegin... ég dreg samt mörkin við að strauja þau...!
Posted
4:08 f.h.
by Unknown
Erfiðasti dagur ársins...! Síðasta föstudag var ég að vinna í atriði sem við vorum að skila inn... Vanalega leikstýri ég og gef blóð svita og tár í verkefnin, en núna áhvað ég að taka það rólega og vera fyrir framan myndavélina að leika... og fyrir vikið gaf ég mun meira af blóð, svita og tár í verkefnið...
Svitinn kom frá að sitja undir steikjandi ljósum allan tímann... Blóðið var "corn syrup" (korn síróp (duh!)) og rauður matarlitur... og tárin voru sökum uppgufun af gerviblóði undir heitum ljósum...
Mér hefur nær aldrei á ævinni liðið svona ílla... Það er ekki dans á rósum að vera leikari... nema kanski ef sá dans er berfættur á þyrnirósum...
Eitt af hlutum sem er mitt svaka pirrelsi er að vera klístraður... Algjör snyrtipinni og þríf mig alltaf strax ef ég snerti eitthvað klístrað... Korn sýróp er klístraðastaefni sem finnst í náttúrunni... Fyrst er það blautt sem það kemst í hverja rifu og skoru, svo harðnar það í límkent hlaup sem rífur í þig við óþarfa hreyfingar, svo sem að blikka augunum eða láta hjartað slá...
Í átta tíma sat ég í gerfiblóð baði... Til þess að vera viss um að ég þjáðist örugglega nóg, þá var einnig límt á mig plastslöngur sem spúðu meira blóði, þ.á.m. í hárið mitt... Náttúrulega var slanga bókstaflega límd í hárið því það hafa allir gaman af geiflunumn mínum þegar ég reyni að rífa hana úr þjáningarlaust... Klístraðar hendur í kistraða slöngu í klístruðu hári að viðbættu sterku límbandi er uppskrift að einhverju sem ætti að vera efst á lista allra mannréttindasamtaka yfir píndingar og mannréttindabrota...
Þrátt fyrir allt, þá lifði ég af í gegnum þetta... Brotinn og bugaður (You Don't Know Because You Weren't There!) skreið ég í sturtu og hreinsaði af mér allt ógéðið... Óklístraður steig ég endurfæddur úr buninni og sá... að ég var ennþá bleikur...! Bleikur fer mér svo sem ágætlega en ég er nú algjörlega kominn með nóg af honum... sérstaklega eftir nokkra daga fyrst ég er ennþá bleikur á sumum stöðum... sem eiga ekki að vera bleikir sko...!
Ég held ég mun halda mér fyrir aftan myndavélina næstu skiptin... Þó svo að það leit ofsa vel út myndefnið og ég skilaði af mér Óskarsverðleuna leiklist yfir dramatísku hlutverki... þá trúið mér... ég var ekki að leika...!
mánudagur, desember 13, 2004
Posted
3:34 f.h.
by Unknown
Endurbætti aðeins hlekkina til vinstri... Bætti inn hlekki fyrir myndbönd sem ég hef gert og einnig setti inn hlekk fyrir myndasíðu...
Veit hinsvegar ekkert hvenær ég ætla að losa mig við þessa nærbuxna könnun... Þetta er samt ekkert "fetish" sko...
Posted
3:14 f.h.
by Unknown
Ég sagði í síðasta mánuði frá brölti mínu yfir bjóra stíflu sem endaði með dýfu í læk... Jæja, hérna er sem sagt lítið myndband sem sýnir atburðinn...
Myndband sem ég kýs að kalla: That Damn Dam...! Gjöriði svo vel...
fimmtudagur, desember 09, 2004
Posted
9:09 f.h.
by Unknown
Gengur svona afskaplega vel með handrit mitt... Vanalega eru handrit um 90-120 bls því að meðaltali 1bls = 1min í bíó... Sjálfur er ég kominn á bls. 75 eftir aðeins nokkra viku skrif...! Eftir er náttúrulega erfiðasti hlutinn að binda enda á allt saman og ganga frá lausum hnútum...
Þetta er sama handrit og ég var að reyna að koma frá mér í sumar en klikkaði vegna ritstíflu... Ég veit ég lofaði að skrifa heilt handrit í sumar og stóð ekki við það, en nú lofa ég að ég mun klára þetta handrit fyrir jólin...! og það áður en ég fer heim til Íslands... Hef því aðeins til fram að föstudeginum 17. des (9 dagar)...!
Hver trúir að ég geri það, geti það eða klikki...? Endilega veðjið á milli ykkar til þess að gera þetta meira spennandi... Vitið samt bara, að þið sem haldið með mér eru mér ofsa kær...
Posted
6:34 f.h.
by Unknown
Sumar heimasíður eru svooooo pirrandi... Sérstaklega þær sem maður panntar eitthvað af... Þoli ekki síður þar sem maður verður að fylla inní alla reiti til þess að komast áfram og enn meira þær sem maður getur ekki skrifað í reitinn heldur verður að velja af lista... Vitiði hversu oft ég er frá landinu "Other" því Ísland er oft ekki valmöguleiki...? Ja, eflaust þekkiði þetta fyrst þið eruð Íslendingar að lesa þetta (nema þið séuð útlendingar sem finnst gaman að forvitnast yfir bókstöfunum "Ð, Þ, Æ og Ö")... Og oft er "Other" ekki einu sinni valmöguleiki...
Nú síðast lenti ég í heimskri villumeldingu þegar ég var að pannta flug frá Air Canada... og þetta er villa sem ég hef lent oft í... Ég fyllti inní alla reiti og valdi svo upprunaland... Nei sko, þeir voru með Ísland (Vei)... Ég vel "next" og lendi aftur á sömu síðu... Þá voru þeir að kvarta undan því að ég hafi ekki valið "fylki" sem ég bjó í... Þeir voru með lista yfir hundrað lönd, en náttúrulega aðeins U.S.A. og Canada fylki... Þar var náttúrulega ekkert "Other" eða "none"...
Hversu mikill hálfviti þarft þú að vera til þess að hanna þetta án þess að sjá neitt athugavert við þetta...? Þetta er eins og að biðja fisk um að skrá niður skóstærð sína... Moðhausar...
þriðjudagur, desember 07, 2004
Posted
5:54 f.h.
by Unknown
Gleði fréttir fyrir mig í morgun sem lyfti upp skapi mínu... Að vísu var skapið mitt í algjörri rjómalagaðri sælu eftir góða helgi þannig þetta var svona kirsuberið á toppnum...
Vinkona mín sagði mér að sumir raunveruleika sjónvarpsþættir eru í raun unnir eftir handriti... YES...! Ég fannst alltaf þetta ómerkilegustu og lágkúrulegustu þættirnir í sjónvarpinu og fyrirleit þá af öllum lífs og sálar kröftum, og nú er enn meira ástæða til þess að líta niður á því því þeir eru ekki einu sinni "raunveruleikinn"...
Eftir góða gleðistund hinsvegar runnu á mig tvær grímur (hef lengi viljað nota þetta orða tiltæki)... Ein af aðal ástæðunum fyrir að ég hata þessa þætti (fyrir utan alla hálfvitanna og mannleysunar sem eru í þeim) er vegna þess að þeir taka vinnu frá handritshöfunum eins og mér (eða eins og ég mun verða)... En nú fyrst þeir eru unnir eftir handriti, og handriti svo "subtle" (vantar svooo íslenskt orð fyrir "subtle) að engin tekur eftir því, þá er það í raun frekar markvert...
Svei...! Var ég virkilega að hrósa raunveruleika þáttum (þótt smátt hrós var)...? Nú er ég ekki eins glaður... Mér leit betur þegar ég fyrirleit öll svið þáttanna... Greinilegt að "Ignorance is bliss"...
Posted
5:26 f.h.
by Unknown
Er að hljóðblanda lítið hljóðverkefni... Eigum að setja saman tveggja mínútna atriði sem byggist bara á hljóðum sem á að sýna staðsetningu... Við gerðum gaur að leggja bíl, labba um göturnar, lendir í rigningu og flýr inn á tónleika þar sem hann er laminn...
Til þess að gera þetta notum við bæði tilbúin hljóð og svo hljóð sem við tókum upp í "Foley" herbergi...
Foley herbergi er herbergi með alls konar tólum og tækjum sem framkalla hljóð og einnig margar mismunandi gerðir af gólfi til að labba á... Snjór, lauf, malbik, sandur og bla bla bla... ofsa gaman... Ég var settur þar inn til þess að leika í gegn allt atriðið frá byrjun til enda... Ég meðhöndlaði lykla og klink, gékk um göturnar, hljóp í rigningu, opnaði hurðir og loks lamdi ég mig til óbóta áður en ég grýtti sjálfum mér í gólfið... og náttúrulega marmara gólfið til þess að hljóma sem raunverulegast... No pain no gain...
P.S. þetta er hljóðfræði orðaleikur því "gain" er notað um styrk hljóðs... Ahahaha ahaha... *hóst*... ... Það hló engin að þessu hér heldur...
mánudagur, desember 06, 2004
Posted
2:31 e.h.
by Unknown
Haldiði ekki að það hafi gengið svona svakalega vel með tökurnar um helgina... Mættum á svæðið klukkan fimm, settum upp, tókum upp, kláruðum allt og pökkuðum saman tólf tímum seinna...
Vorum á þessum þvílíka spretti til að keyra allt í gegn á einu kvöldi... sem okkur tókst þökk sé skotheldri skipulagningu... Næst á dagskrá er klipping, hljóðblöndun og önnur eftirvinnsla... Það þarf ekki að skila þessu fyrr en fyrstu vikunni í febrúar þannig við erum í góðum gír... Það verður þá búið á sama tíma og eldhúsið mitt verður almennilega hreint... Það var nefnilega þessi þvílíka pasta sprenging á föstudaginn þegar ég eldaði nokkur kíló af Spagetti Bolognese fyrir liðið í allt of litlum pottum... Veggir. gólf, loft, gluggar, eldavél, ískápur, þvottavél, þurrkari o.fl. (no joke)...
Ég veit að vanalega mála ég bæjinn rauðann um helgar, but this is ridiculus...
föstudagur, desember 03, 2004
Posted
4:00 e.h.
by Unknown
Aðal tökurnar um helgina... Lokaverkefnið... Verðum að framundir morgun... Ég fæ að leikstýra herskara af um tuttugu manns... ofsa ofsa gaman...
Til þess að næra þetta lið þá tók ég mig til og fór í annað hlutverk sem kokkur... Ætla ég að malla pasta handa þessu liði sem á að koma okkur í gegnum nóttina... Það og náttúrulega óbilandi bjartsýni mín og jákvæðni...
Ég kveð því í bili og kem aftur eftir helgi með bardagasögurnar... Lifið heil og leikið ykkur fallega...
Posted
3:34 e.h.
by Unknown
Var í Toronto sveltandi eftir langan dag, alveg að missa af lestinni... Ég rétt hafði tími til þess að grípa mér Kanadískt góðgæti sem kallast "Poutin"...
Poutin er franskar með bráðnuðum osti og brúnni sósu, ofsa gott... Ég tek á sprett í lestina og finn eitt laust sæti því það var háanna tími og allir á leiðinni heim... Ég smelli mér í sætið og fæ fyrstu hvíld og máltíð dagsins á sama tíma... Lærði þá að Poutin er ekki besti maturinn til þess að éga í pakkaðri lest...
Osturinn í Poutin er greinilega framleiddur í tyggjó/hjólbarða verksmiðju og er svooo teygjanlegur að það var ekki pláss til þess að athafna sig... Ég sting gaflinnum í dolluna og tek upp eina frönku (hver er "eintalan" franskar?)... Osturinn teygist á eftir henni... Ég reyni að slíta hann með því að færa gafalinn lengra frá en ennþá teygist hann... Vandræðanlega verð ég að nota hina hendina til þess að tosa í ostinn í hina áttina en ennþá teygist hann... Ég sting frönskunni í munninn, nota svo gafalinn til þess að komast að upptökum ostsins í dollunni... Ennþá slitnar ekki osturinn þannig ég er nú með net af osti frá munninnum, milli beggja handa og niðru í kjöltu... Það var eins og ég væri að leika mér með "fuglafit" teygju, nema þessi var öll út í brúnni sósu... og allir voru að stara á mig... og þetta var bara fyrsta franskann...
Ég ákveð að hraði sé málið þannig ég byrja að skófla frönskum með teygjanlegum osti uppí mig... Mikið var þetta heitt...! Byrja ég því að framkalla hálfvitalegt "húh húh húh" hljóð, eins og allir gera með munnin fullan af einhverju heitu, til þess að vera viss um að enginn í lestinni missi af sýningunni...
Loksins eftir mikið bras klára ég úr dollunni... er allur í sósu á höndunnum vegna ostabras og svo í framan því osturinn eins og teygja smelltist oft í andlitið... Þá náttúrulega fann ég engar servéttur... eflaust stungu af ásamt virðingu minni...
Og hverjar haldiði svo að líkurnar voru að ég sæti á móti tveimur ofsa sætum gellum...? Týpískt...
fimmtudagur, desember 02, 2004
Posted
8:05 f.h.
by Unknown
Vitiði hvað er pirrandi...?
Einhver að fara í gegnum alla hringitóna sína á síma sínum...
Vitið hvað er meira pirrandi...?
Þegar manneksjan situr við hliðina á þér í þétt setinni lest á háanna tíma...
Vitið hvað er enn meira pirrandi...?
Þegar manneskjan er hálf fimmtug með rándýrann síma með innbigðum magnara og 5.1 hljóðkerfi og sama tónlista smekka og FM 95,7...
Þetta var lööööng leið heim...
Posted
8:05 f.h.
by Unknown
Fyrir nokkrum dögum var kosið um allt Kanada um hver væri "The Greatest Canadian"... Settur var svo saman listi yfir top 100... Efstur var kauði sem hét Tommy Douglas, einhver sem ég veit ekkert hver er, þannig ég varð ofsa forvitinn og ákvað að fræðast meira um þennan bestasta Kanadamann frá skólafélögum mínum...
Það er alveg ótrúlegt að hver einasta manneskja sem ég spurði vissi ekkert hver hann var, hvað hann gerði eða hvenær hann var uppi... Núll og nix upplýsingar... Ég varð að flétta honum upp sjálfur á netinu... Fínnt þá get ég frætt annað fólk í kringum mig ef þau hafa áhuga... Ég meina hann er með þennan titil...
Hvað eru líkurnar á því að ef nokkurn tíman yrði valin "Bestasti Íslendingurinn" að nokkur íslensk manneskja myndi ekki vita neitt um hann (eða "hana" (jafnrétti sko (but who are we kidding)))...?
Fyrir forvitna þér er hér listi yfir Top 10 Kanadamennina og svo 11-100...
P.S. Trúi ekki að Shania Twain (18. sæti) komst hærra en Mike Myers (20. sæti)...
Posted
7:27 f.h.
by Unknown
Brá mér til Toronto í mótmælaskyni... Kvikmyndagerðafólk og sjónvarpsfólk var að kvarta við þinghúsið vegna skattamála... Málið er að Ontario var fyrsti staðurinn í heimi til þess að detta í hug að veita skattaafslátt fyrir kvikmyndavinnu sem væri þar... Þetta leiddi til gífurlegar aukningar í framleiðslu þar... Seinna fylgdi fleiri fylki í kjölfarið og önnur lönd... Þannig kom samkeppni og aðrir staðir eru að bjóða meiri afslátt... Þetta ásamt lélegum U.S.A. dollara hefur leitt til færri framleiðslur hér...
Við fórum því og mótmæltum til þess að Ontario stjórn myndi allavega jafna skattaafslátt sem önnur fylki og lönd eru að bjóða svo við erum samkeppnishæf við restina af Kanada, Ástralíu, Austur-Evrópu og Ísland...
Fyrst þetta var samt kvikmyndagerða og sjónvarpsfólk, þá var varla manneskja þarna ekki með myndvél eða upptökuvél og get ég því haldið fram að þetta er eflaust einn mest og best skrásetti atburður í alheimssögunni... Þúsundir mismunandi manns að mynda á þúsundir vegu... Fyrir vikið fannst mér óþarfi að taka mína myndavél með... Ég hlýt að fá afrit einhverstaðar...
miðvikudagur, desember 01, 2004
Posted
3:33 f.h.
by Unknown
Hvenær ætlar fólk að læra... Það á ekki að endurgera 80's hluti... Það boðar bara ógæfu...
Það var að koma endurútgáfa á sígildu 80's jólalagi... Jólalagi jólalaganna í 80's... Jamm, Band Aid's Do They Know It's Christmas...!
Alveg finnst mér þetta frábært jólalag, ósköp klisjulegt, en það er hugsunin sem gildir... Þarna sjáum við Bono, Sting, George Michael, Phil Collins, Boy George, Simon Le Bon og fleiri góða Breta taka sig saman og gera jólalag til styrtar sveltandi heimi... Þið þekkið öll lagið og ég mæli eindregið að þið náið líka í myndbandið einhverstaðar á netinu...
Nú eru 20 ár síðan og í tilefni þess voru fengnir fleiri Bretar til þess að ljá hæfileika sína í nýja útgáfu... Hugmyndin virkar vel á blaði, sérstaklega þegar ég las hverjir voru þarna... Byrjað á Chris Martin úr Coldplay, svo Dido, Robbie Williams, kauði úr Travis, kauði úr Darkness, Paul McCartney (Yes!) á bassa og náttúrulega Bono aftur því hann virðist vera sá eini úr fyrri hópnum ennþá með atvinnu... Hann tekur meira að segja sömu línu og hann tók síðast...
Með þessum fríða hóp henda þeir inn einhverju pakka sem ég veit ekkert hver er, nema kanski Sugababes (bleeeh!), og mismunandi stílarnir eru allir troðnir inn þannig það er engin samfelld heild heldur er þetta klippt og skorið eins og einhver að flétta hratt í gegnum útvarpsstöðvar... Fyrir vikið liggur þetta ekki vel undir eyra sönglega séð þegar líða tekur á lagið... en svo er eitt sem er enn verra... Þeir eru að dæla inn svo mörgum tónlistarmönnum að spila á hljóðfæri á sama tíma að útkoman er niðursoðin hljóðfærasúpa sem fengi jólaandann til þess að rísa úr gröfinni og kippa græjunum úr samband...
Issss... Þetta kemst ekki með tærnar þar sem hitt var með sítt að aftan...!
P.S. Madonna kynnti svo myndbandið við fumflutning fyrir allan heiminn en hún gat ekki einu sinni munað smá texta þannig hún var alltaf að góna niður á eitthvað blað... Fagmennskan...