Lífið, heimurinn og allt saman

miðvikudagur, desember 31, 2003


Síðasta bloggið á þessu ári 2003... Merkilegt ár að mér finnst og í raun eitt merkasta ár í lífi mínu og það er bara seinni helmingurinn af árinu... Það eru fimm atburðir sem standa virkilega uppúr á þessu ári... Tveir þeirra sem ég minntist samt aldrei á hér á blogginu... Hér eru atburðinir í tímaröð, ekki eftir merkilegheitum...
Ég fór á Hróarskeldu sem var náttúrulega gífurleg snilld... (Lesið um það hér)...
Þriggja og hálfs árs samband endaði... (talaði aldrei um það)
Annað drauma samband byrjaði og endaði (fjarlægðinni til Kanada er að kenna (synd))... (talaði aldrei um það, gaf það pínu í skyn)
Ég fór loksins í kvikmyndaskóla og það í Kanada... (ég er held ég alveg viss að ég minntist eitthvað á það)
Ég komst úr öllum skuldum mínum sem var búið að taka mig meira en 18 mánuði (þvílíkur léttir)... (fór aðeins út í það)
Núna er bara að sjá hvað 2004 ber í skauti mér... Merkilegt að 2003 hafi verið svona gott ár því ég hata (HATA) töluna "3"... Talan "4" er hinsvegar uppáhalds talan mín og er því við engu öðru að búast en geðveiku ári...!!!
Fyrst við (ég) erum að tala um hvernig tíminn er að líða þá vill ég enda þetta bloggár með því að sýna ykkur mynd sem sýnir mjög hvernig tíminn líður... Ég er með mynd af mér sem er samsett úr passamyndum á mismunandi æviskeiðum mínum... Að vísu er mynd 1 ekki passamynd og sú síðasta er nýleg mynd frá því í sumar til þess að setja endi á þetta... Ég er á þessum myndum (ég giska) 3, 7, 10, 15, 18, 22, 24 og 25...
Tíminn líður hratt á gervihnattaöld...
Gleðilegt ár...! Takk kærlega fyrir það liðna...! Sjáumst hress og kát á því nýja...!
...to be continued... Ævintýri Ragnars Eyþórssonar halda áfram 2004...


Alltaf færri og færri dagar eftir hér heima... Dagskráin hljómar sem svo...
Í dag... Áramót... Djammað með fjölskyldunni til yfir miðnætti og svo partý... Hvaða partý ég vel er eftir að koma í ljós...
Á morgun... Ég hef ekkert að gera... ekki baun... Er ekki líka vanalega djamm þann 1. jan fyrir utan nýjársböll...?
Föstudagur... Árlegt fjölskylduboð með systkinabörnum mömmu... Einn besti hópur af spilurum í landinu... Gífurleg stemmning... Hvort einhver nennir svo í bæinn með mér eftirá er spurning (allir konmir með börn!) en eflaust hitti ég þá bara einhvern eftir það...
Laugardagur... Ekkert plan...!
Sunnudagur... Flug til Boston... Verð að gista á einhverju hóteli yfir nóttina...
Mánudagur... Morgunflug til Toronto... Æði svo í næsta leigubíl og bruna í skólann til að ná fyrsta tímanum... Kjúklingavængir um kvöldið og allt ef komið í gamla (nýja gamla samt) farið...
Jamm... skrítið... Ég verð búinn að vera hér 25 daga en mér finnst það bara eins og vika... Time flies when you're having fun... og þessi tími leið svo hratt að ég hlýt að hafa rofið einhverjar eðlisfræðilegar reglur... Sorry Einstein...


Þá er ég búinn að smakka þetta sem ég talaði um í gær...
Það var alls ekkert skrítið bragð við þetta, heldur bara tilfinningin að maður var að éta þetta... Kjötið kom forsoðið í einhverjum pakka með maður þurfti að hita upp... Svo opnuðum við pakkan og settum innihaldið á disk... Þetta voru tveir sæmilega stórir bitar af bleik rauðu kjötu, veit ekki af hvaða part eða tegund... Ég og pabbi störðum á þetta í smá stund og ég spyr vandræðalega: "Á maður að nota einhverja sósu eða...?".... Eftir smá stund tók pabbi sig til að skar tvo bita, einn handa okkur báðum og maður setti hann mjög hægt uppí sig... Ég ætla ekki að nota frasan "It tastes like chicken" því það var fjarri lagi... Þetta var í rauninni eins og mjög mjúkt saltkjöt...
Eina ástæðan af hverju maður vildi borða þetta upprunalega var til þess eins að geta sagts hafa prófað það... Það verkaði mun sterkar en bara forvittnin... En svo þegar það var að eldast þá varð ég gífurlega spenntur... Svo horfði maður á þetta á disknum og varð ennþá spenntari... Svo kom fyrsti bitinn og ég get ekki sagt að ég hafi pælt mikið í bragðinu... maður var bara hugsandi "er ég virkilega að borða þetta"... Manni fannst að maður væri að gera eitthvað af sér... brjóta eitthvað taboo... Ég og pabbi sátum þarna í þögn, báðir tyggjandi og horfðum á hvorn annan... þegar við vorum báðir búnir að kyngja kom svona spennufall og við hlógum að þessu... Hann fékk sér að vísu bara einn enn lítinn bita áður en hann vildi ekki meira... Það var ekki bragðið sem fékk hann til að hætta bara tilhugsunin... Ég fékk mér að vísu nokkra fleiri bita en hver biti var erfiðari að koma niður en sá fyrri... Maður fékk alltaf meiri og meiri sektarkennd... Loks kom að því að ég gat ómögulega fengið mig til að borða annan bita...
Þetta var mjög mjög forvittnileg reynsla... Ef einhver hefði rétt mér þetta á disk og sagt að þetta væri bara saltkjöt hefði ég spænt þessu í mig... en þetta var ekki saltkjöt og það var mjög erfitt að ímynda sér neitt annað... Þið hugsið kannski að maður sé bara kelling að hafa einhverja samvisku yfir þessu því kjöt er bara kjöt... but don't knock it untill you've tried it... eins lítið og skemmturinn var hefði ég aldrei getað klárað af diskinum...
Á jákvæðum nótum... If you are what you eat, then now I'm mans best friend...!
P.S. (Gamall brandari) Hafðið heyrt um nýju kínverku kokkabókina...? 1001 ways to Wok your dog...


þriðjudagur, desember 30, 2003


AÐVÖRUN: Dýravinir ekki lesa eftirfarandi blogg... Að vísu hefði fólk sem er rosa rosa miklir kattavinir kanski gaman af þessu...
Ég er að fara næra mig aðeins eftir smá stund á svolitlu sem er ekki hefðbundið hér á landi... Þeir sem hneyksluðust á að ég át höfrung einu sinni er ekki eftir að líka vel við þetta... Allavega, þá er þetta vara sem við fengum gefins frá kínverskri starfskonu sem vinnur hjá pabba... Þetta á víst að vera algjört lostæti en ég mun ekki segja það orðrétt hvað þetta er... Ég mun bara gefa það í skyn með rosa lélegum og augljósum bröndörum... Vá, hvar skal byrja... það nefnilega hægt að gera marga alveg hund lélega brandara um þennan mat...
Segjum sem svo að ég er að fara fá mér bókstaflega Hot-Dog... Talandi um pulsur, þá fékk ég einu sinni með SS pylsupakka skemmtilega danska mynd sem hét eitthvað svipað og I Kine Spiser De um... I Kine Spiser De Ahhhh, hvað var það nú aftur, ég á að vita þetta... það vantar eitt orð í heiti myndarinnar...
Þið verðið kanski tíkarlegt af mér að bulla svona... ég gæti gert ykkur hund fúl... En ég vill endilega smakka þetta sem fyrst... ég vill ekki að góður biti fari í hunds kjaft...
Það er samt skrítið að éta þetta því margir í kringum mig vilja ekki einu sinni smakka þetta... En ég get huggað mig á því að ég er að hefna mín fyrir öll skipti sem ég hef verið bitinn af þessari skeppnu í gegnum ævina... It's a dog eat dog world... Life's a bitch, and then you eat...! Ég skal segja ykkur hvernig þetta smakkaðist á morgun...


Ég kenni veðrinu um að ég náði ekki að blogga aftur í gær... Í raun hafi ég ekkert annað að blogga um í gær og hefði eflaust bloggað bara um veðrið... En núna hef ég eitthvað að segja...
Í gær fór ég með Inga félaga mínum og Guðnýu (glænýju (eða svona frekar nýju)) kærustu hans uppí bústað til Ásgeirs félaga míns og Ingigerðar kærustu hans... Þetta átti bara að vera stutt heimsókn en vegna færðarinnar þá festum við einn jeppan og það tók okkur meira en klukkustund að losa hann... Við lögðum því ekki í að keyra tilbaka þannig við eyddum kvöldinu og svo nóttinni þarna...
Svo heppilega vildi til að Ásgeir var ný kominn úr tollinum þannig okkur þyrsti ekki neitt... til að byrja með allavega... Því þegar þú ert með mig, og svo Inga og Ásgeir frá Lúxemborg þá rennur hratt á byrgðirnar... þannig í morgun urðum við að reyna að komast í bæinn því maður var ekki á því að eyða öllum áramótunum þarna...
Ég ætla samt að taka það rólega í kvöld og safna kröftum (eins og ég þarnast þess (HAHA!)) fyrir morgundaginn... Ó ljúfa líf...


mánudagur, desember 29, 2003


Eins og margir vita, þá ef ég blogga ekkert yfir heila helgi, þá þýðir það að hún var mjög góð...
Föstudagurinn var samt frekar rólegur, en hann endaði á því að ég var dreginn í karíókí á Ölver (er nokkur annar staður sem það er hægt?) mep Inga félaga mínum, kærustu hans og vinkonu hennar... Þar sem Ingi gæti ekki einu sinni sungið afmælissönginn án þess að fá nokkrar tilraunir (og hafa textan á blaði fyrir framan sig) þá varð ég að taka fleiri lög og syngja síðan dúett með stelpunum (bara annari í einu (annars hefði það verið tríó (duh!)))... Ég fékk að vísu ekki að velja nein lög nema það fyrsta en ég söng American Pie (eftir Don McClean), One (eftir U2) og svo dúett yfir Time OF My Life (úr Dirty Dancing) og Endless Love (með Lionel Ritchie og einhverri (Chandler og Phoebie tók það saman í Friends einu sinni (aaahh, nú munið þið)))...
Á laugardeginum hinsvegar var stór glæsileg veisla sökum þrítugs afmælis Hauks í Danmörku (hann var náttúrulega ekki í Danmörku um helgina (hann var á Íslandi að halda afmælisveislu (sem ég fór í)))... Þar hitti ég fleiri gott fólk svo sem Geir, Gauta og Önnu og Rögguló úr Stálfélaginu
... Þetta er allt fólk sem lifði af síðustu Hróarskeldu með mér þannig maður var í góðra manna hópi...
Sunnudagurinn hefði náttúrulega átt að fara í slökun en ég æddi út rétt fyrir fjögur með bróður mínum og mági á Players þar sem við drukkum slatta af bjór, nærðumst, spiluðum pool og pílur og fórum svo á Lord Of The Rings: Return Of The Hilmir... Svo var farið aftur á Players í smá öl til að vinda af okkur... Við undum nattúrulega svo vel af okkur að við þurftum leigubíl heim... Leigubíllinn var óvenju lengi á leiðinni og þegar við hringdum og athuguðum, þá var gaurinn bíðandi fyrir framan Goldfinger (segir okkur að hann hafi ruglast (einmitt))...
Allavega, þá var þetta aldeilis fín helgi... og ég haf bara einn séns eftir til þess að ná að slá henni við áður en ég fer til Kanada... Hver vill hjálpa mér að reyna...?


föstudagur, desember 26, 2003


Ég held ég mun fagna verulega þessa helgi... Who's with me...?!? Ég er nefnilega kominn með einkannir mínar...
Intro to Media Writing: B+ (Handritsgerð)
Intro Computer & Multi Media: A+ (Tölvufræði)
TV Studio Production: B+ (TV stúdíó (duh))
Audio Production Concepts: A+ (Hljóðvinnsla)
Intro to Language of Movies: A (Kvikmyndasaga)
Introduction Media Technology: A (Tæknifræði)
Image Production: C (Ljósmyndun)
Ég hef aldrei á ævinni fengið svona háar einkannir... ALDREI...!!! Síðasta sinn sem ég fékk 10 í einhverju fagi var í ensku í grunnskóla... Það er greinilegt að ég á heima í þessu námi en ekki verkfræði eins og ég fór fyrst í fyrir nokkrum árum...
Ég er samt ekki sáttur við þessa "C" einkunn... Ef ég fékk "C", þá fékk enginn annar í bekknum meira en "C" heldur... Tala við kennarann um leið og ég kem aftur... Vá, heyra í mér... Ég hef aldrei á ævinni heldur talað við kennara út af einkunn og kvartað... Ég hef fengið fimmur og sexur (ekki oft samt) í menntaskóla, sætt mig við það og hugsað það skiptir ekki máli því ég kláraði fagið og þetta var eina sem þurfti... En núna... "C"... "C"!?! Ég "C" rautt...! Urrr... (Afsakið lélega brandarann í lokinn... Ég "C" að mér)


Var að setja á netið mynd af jólatréinu okkar...
Mamma vann eitt sinn í skógræktinni fyrir löngu (áður en ég fæddist) og eignaðist þar nokkra vini... Núna er einn þeirra skógarvörður fyrir norðann og velur alltaf tré handa okkur og sendir það suður... Við nefnilega erum í minnihluta landsmanna með tegundaval á jólatrjám því við erum furufólk... Það er létt að fá stórt og fallegt rauðgreni (=grænt gólf í nálum)... Einnig er alltaf til góður Norðmannsþinur (sem aldrei hrynur)... en að fá jafna og góða furu er eins og að leyta af furunál í rauðgreni heystakk... Þess vegna allt árið hefur skógarvörðurinn augun opin fyrir tré handa okkur sem hann loks heggur niður og sendir okkur...
Eini gallinn er að tréin eru svo rosalega fersk að norðan að harpixið er gífurlegt... Maður þarf ekki að hengja upp skrautið heldur hendir maður því á og það festist... Í raun gætum við fest tréið sjálf bara við loftið með harpix límingunni, en þá væri svo erfit að dansa í kringum það (við dönsum samt ekki kringum það niðri á gólfi heldur)... að vísu með tréið límt við loftið væri meiri pláss fyrir pakka... verð að umhugsa þetta aðeins...
Allavega, þá er hér mynd af trénu okkar... Mamma mín stendur við það og er að skreyta það (ég festi að vísu allt sem er þarna fyrir (*monnt*))... og nei, hún er ekki dvergur, þetta er bara hátt tré... maður notar stjörnukíkir til að sjá stjörnuna á toppnum...


Jæja, stærsti hluti jólanna búinn og það gékk áfallalaust (eins og alltaf)...
Nærðumst við á hinu árlega combó af afspassúpu, rjúpu og Tobleron ís (nei, hann er ekki þríhyrndur)... Svo var notast við vörulyftu til þess að keyra fólkið inní stofuna...
Ég fór ekki í jólaköttinn né jólabókaorminn... Fékk tvennar peysur og skó fyrir kuldann í Kanada... Fékk nýja bók eftir Terry Pratchet, kvikmyndabókina 1001 Movies You Must See Before You Die (var búinn að sjá 220 af þeim en það er nú komið uppí 221 sögum góðrar dagskrár í sjónvarpinu í gær) og bókina Python On Python, svakalega þykk og stór bók um ævi og störf Monty Python fólksins skrifað af þeim sjálfum...
Framundan er góð helgi og svo áramótin... Gerum eins og "the artist formerly know as the artist formaly known as Prince" og Let's Party Like It's 1999 (Við vorum nefnilega svo miklu yngri og hraustari þá (ég er bara að hugsa um ykkur, ég er ennþá algjör nagli (ekki einu sinni ryðgaður)))...


miðvikudagur, desember 24, 2003


Kæru lesendur (já, þið eruð öll mér mjög mjög kær)...
Gleðileg jól...!


Næstum allt búið fyrir jólin... Búinn að kaupa allar gjafir, skreyta massa jólatré massa vel, byrjað að undirbúa matinn... Það eina sem er eftir er að skrúbba sig, klæða sig (í þeirri röð) og stjast niður til þess ða borða...
Að vísu er eitt sem ég klikkaði pínu á... Ég gleymdi jólagjöfinni til systur minnar í bílnum hjá mömmu ópakkaðri í engum poka (gjöfin er ópökkuð og ekki í poka, ekki mamma (jú að vísu er mamma líka ópökkuð og ekki í poka en ég gleymdi henni ekki í bílnum))... og systir mín er búin að vera keyra bílinn í allan dag að fara með jólagjafir til annara...
Nú þarf ég bara að vona að hún er svo upptekin við aksturinn að hún sér ekki það sem situr í farþegasætinu við hliðina á henni...
Talandi um jólakraftaverk...


þriðjudagur, desember 23, 2003


Föt sem ég mæli ekki með að klæðast ef þú ætlar að versla í friði í Hagkaup:
Svört flíspeysa og jólasveinahúfa...
Ég var að versla inn í ávaxtadeildinni ýmsa ávexti fyrir jólinn og skoðaði þá gaumgæfilega því ég vanda alltaf sérlega valið... Ég skoða útlitið, stærðina og mýktina... Suma ávexti á maður að taka harða en aðra mjúka... Ég tel mig vera mikinn fagmann í að velja ávexti (you might just think I'm fruity)...
Ég er að handfjatla nokkrar melónur (ekki dónalega (þið voruð samt að hugsa um það er það ekki)) þegar einhver gaur kemur og spyr mig hvar spergilkálið sé... Ég segi ég veit það ekki því ég vinn ekki í Hagkaup... Ég held áfram að handfjatla melónurnar (já, ég handfjatlaði þær lengi, ég er fagmannlegur) þegar einhver kona spyr mig eitthvað um vínber (konur hafa áður spurt mig um vín, berar (en það var ekki þannig núna)) og ég svaraði henni frá vitneskju minni en bætti við að ég ynni ekki þarna... Ennþá er ég að þukla á melónunum (sömu og áðan, ekkert tengt neinni konu hvort sem hún var ber eða ekki (þið getið ekki hætt að hugsa dónalega er það nokkuð (ég var að banka í melónurnar for crying out loud))) þegar eldri kona spyr mig hvort ég ynni þarna... Ég sagði nei en hef mjög góða þekkingu á áxöxtum... Þá spurði hún mig hvort hún væri að velja góða ananasávexti... Ég skoða tvo ananasa (segir maður "ananasa"?) og leist ekki á annan þeirra þannig ég tók hann úr körfunni hennar... Hún þakkaði mér kærlega bað mig um að velja fyrir sig eina melónu... Ég var á þeirri stund kominn með þrjár góðar melónur sem mér leist vel á en þurfti bara tvær (þurfa allir karlmenn ekki bara tvær melónur?) þannig ég lét hana fá þá þriðju og hún var afar þakklát...
Ég er kominn í sítrónurnar og sé að fólk er að fylgjast með mér... Ég skoða hverja sítrónuna á fætur annarar og vel loksins þær fjórar bestu... Ég rétt stíg frá og þá æða tvær konur að og taka sítrónurnar sem ég var greinilega búinn að samþykkja í fimmta til áttunda sæti... Ég sný mér við og þá er gamla konan kominn aftur... Hún spyr hvort ég get valið fyrir sig mangó... Ég skoða mangóin vel, læt hana fá tvö bestu og leyfi hinum konunum að komast að til að taka magnóin sem ég var búinn að dæma í þriðja sæti til sjötta sæti...
Gamla konan þakkar mér aftur og spyr í gríni hvort það sé leið að ná í mig næst þegar hún fer að versla inn (hún meinti það samt alveg örugglega)...
Jamm, svona gerist þegar maður klæðist svartri flíspeysu og jólasveinahúfu í Hagkaup... Þetta var samt frekar gaman... Ég vissi ekki að það væri til fleiri en ein leið til að skemmta sér eftir að hafa þuklað á melónum (núna megið þið túlka þetta eins og þið viljið)...
P.S. Hefði ég átt að minnast eitthvað á banana í þessari sögu...?


mánudagur, desember 22, 2003


Var að koma úr jólaklippingunni... Var ekki búinn að klippa mig síðan á síðasta vetri... Var sem sagt með frekar sítt hár (gat sett í tagl (gerði það samt aldrei (nema einu sinni til að gá hvort ég gæti sett í tagl (sem ég gat (og gerði það ekki aftur)))))...
Er núna búinn að jafna hárið aðeins út en það eru því ver og miður ennþá draugar af sveipunum sem voru í fyrri hárgreiðslunni... Verð ég því eflaust að setja slatta af hárgeli í þykkasta flokki (þak-tjara) til þess að ég get mótað hárið í þá mynd sem ég kysi frekar...
Samt, er búinn að ganga með jólasveina húfu daglega síðustu daga og vill ekki hætta því þannig spurning er hvenær heimurinn fær að sjá afraksturinn... get it... af-raksturinn... ahaha haha hummmm...


Mjög góð helgi... Ingi félagi minn sem hefur um of langa stund haldið sér í Lúxemborg var kominn til landsins og skemmtum við okkur konunglega til sjö á föstudags nótt (eða sjö um laugardagsmorgin, hvort sem var lengra)... Maður sofnar um 7:30 en er rifinn upp stuttu seinna (11:00) til þess að fara í barnaafmæli...!
Sem betur fer var næringin á boðstólum þar þess virði að skriða frammúr (ef það er til sögn sem er enn ýktari en "skríða frammúr" þá gerði ég það (t.d. lak frammúr))... Egg, beikon, pulsur, amerískar pönnukökur, allskonar ostar og álegg... Fékk ég síðan vel þegin jólabjór(a) og dagurinn byrjaði að líta enn betur út... Ég vissi samt að ég yrði að taka smá lúr (2-3 tímar) ef ég ætlaði að halda út laugardagsnóttina...
Lúrnum varð hinsvegar að fresta því eftir þetta fór ég að horfa á LOTR:TTT-XSE (Lord Of The Rings: The Two Towers-Extended Special Edition) með öðrum félögum því við erum þegar komnir með miða á LOTR:ROTK fyrir næsta laugardag þannig maður vill vera búinn að sjá allt sem tengist söguþræðinum... Þetta var fjagra tíma mynd (!) þannig ég var ekki kominn heim fyrr en rétt yfir 18:00...
Þá var komið að lúrinu... Með löngu tilhlaupi þá stökk ég uppí rúm í í miðju lofti var hóað í mig til þess að skutla ma og pa í veislu þannig ég frestaði lúrnum... Þegar ég kem heim stekk ég aftur uppí rúm en í loftinu þá hringir síminn... Það var bróðir minn að biðja um smá tölvuhjálp með jólakort... Ég talaði við hann um stund og rétt áður en ég lenti þá spurði hann hvort það væri ekki bara best að drífa í þessu strax sem ég samþykkti þannig aftur frestaðist lúrinn...
Needless to say þá fékk ég engan lúr þennan dag því rétt eftir þetta kemur Steini félagi minn og Ingó og við fórum í eitthvað bjórkvöld með Verkfræði þeirra... Bjórkvöldið varð að bjórnótt sem síðan varð að bjórmorgun og komst ég loks heim um sjöleitið aftur...
Ég slökkti á ljósum og símum, setti slagbrand fyrir dyrnar og einangraði mig frá umheiminum undir þykkri sæng... Það var komið að langþráða lúrnum mínum og eftir litla leit fann ég hann... hrotur galore...!


föstudagur, desember 19, 2003


Í tilvefni af því að glæsilegi þríleikurinn um Lord Of The Rings er loksins að klárast þá vill ég benda fólki á tvær litlar síður (sem eru að vísu skyldar innbyrðis)... Gæti verið að þið hafið séð þetta áður í kringum fyrri tvær myndirnar...
The Hobbit Name Generator
The Elvish Name Generator
Úrkomur mínar voru:
Álfanafnið mitt er "Ecthelion Elanessë"... frekar ömurlegt nafn sem ég mun aldrei nenna að bera rétt fram (þó ég gæti það (ef einhver segir mér hvernig "e" með tveimur punktum (eins og "ö" er með) hljómar (held að kommurnar séu bara uppá skraut)))... Það er heldur ekki hægt að stytta það án þess að það hljómar verr... Hey, call me Ecthy...
Hobbitta nafnið mitt er hinsvegar "Wilcomb Hardbottle" (call me Wilco (eða Will (eða Willy)))... Mjög gott nafn... Það myndi passa betur ef það væri "Will Comb Hard Bottle" því ég mun gera það alla þessa helgi (á flösku af Captein Morgan)...
Skál fyrir því og sjáumst vonandi einhverstaðar því það er nær öruggt að allir eru að fara út þessa helgi... Vúhú...


Mikið verður margmennt heima núna um jólin...
Þegar fólk er búið að vera með maka um einhvern tíma þá róterar það alltaf á hverju ári hjá hvorri fjölskyldunni það á að vera yfir jólin... Það vill svo frábærlega til að öll systkini mín (þrjú) verða hjá foreldrum mínum í ár ásamt börnum (tvö plús þrjú plús núll) og mökum (þrjú)...
Ég verð hinsvegar sá eini þarna sem er makalaus því ég á engan maka... En hvort sem ég er vanalega makalaus eða ekki, er ég samt sem áður ekki alveg makalaus...?
(Kannski verður þessi súkkulaðikaka á staðnum sem ég var með um daginn)


Var að skoða Lifandi V'isindi... Æðislegt blað... Er búinn að liggja yfir nokkrum svoleiðis síðan ég kom heim því ég er nokkrum tölublöðum á eftir...
Sá þar ljósmynd um hvernig BBC sjónvarpsstöðin dulbýr myndavélar sínar þegar hún er að mynda fíla í Afríku... BBC dulbýr þær sem hrúgur af fílaskít...
Málið er að þessi hrúga af skít lítur nákvæmnlega út eins og hrúga af steinum... og gott að ég er ekki í Afríku því ég veit alveg á hvernig "steinahrúgu" ég myndi setjast vanalega á til að hvíla mig aðeins...


Það var stjörnu prýtt kvöld í gær á Snoker Sport Bar á Hverfisgötunni...
Á staðnum voru meðal annars plötusnúðar, gaurar úr Quarashi og Sigurrós (gaurar úr Sigurrós, ekki einhver stelpa sem heytir Sigurrós) í billjarð, kvikmyndagerðamaður sem kallar sig Friðrik Þór (eða eitthvað svoleiðis) í snókar er og svo náttúrulega okkar ástkæri rithöfundur og kvikmyndagerðarmaður Ragnar Eyþórsson...
En þökk sé leyndum ferða okkar voru engir papparazzí ljósmyndarar að ónáða okkur...


fimmtudagur, desember 18, 2003


Ég hringdi í Blóðbankann í dag og spurði hvenær ég máttí leggja mitt af mörkum og tappa af mér... Málið var þegar ég fór út að þá sögðu þau að ég yrði að bíða í þrjár vikur eftir að ég kæmi heim frá Toronto vegna SARS veikinnar...
Hinsvegar var SARS alveg horfin þegar ég kom (þorði greinielga ekki að mæta mér) þannig það varð engin bið fyrir að gefa blóð...
Núna hinsvegar sögðu þau að það var einhver sérstakur sjúkdómur í Kanada á ferli sem dreyfir sér með mosquito flugum þannig ég má ekki gefa blóð fyrr en eftir mánuð að ég kem heim, sem sagt þegar ég er farinn aftur... Ég má hinsvegar gefa blóð strax og ég lendi aftur á Íslandi í apríl (nema það sé kominn einhver ný veiki sem dreyfist með... um... bifukollum?)
Ég vill því biðja ykkur kæra fólk sem er með A+ blóðflokk um að vinsamlegast ekki slasa ykkur fyrr en allaveg eftir mið-apríl því þá koma ferskar byrgðir af mér á spítalanna... Þið hin slasið ykkur af vild... knock yourselves out (bókstaflega)...


Áááiiii... Eyrun á mér...
Ég var að hjálpa systur minn með afmælisboð handa syni hennar sem var að verða 10 ára... 30 stykki jafnaldrar hans skapa meiri hávaða en farþegaflugvél tengda við magnara... Í þokkabót var verið að spila jólalög á hæsta stigi á græjum sem hafa eflaust verið fengnar að láni hjá Spinal Tap ("these go to 11", græjunar frá Rammstein voru ekki nógu háværar til að yfirgnæfa krakkanna)...
Núna sit ég með suð í eyrunum, dauðuppgefinn...
Ég fékk samt að hefna mín... Á leiðinni heim varð ég að skutla fjórum gaurum þannig ég blastaði bara mitt klassíska rokk sem ég fann á Radíó Reykjavík 104,5 meðan þeir nöldruðu og kvörtuðu og sögðu að þetta gamla rokk væri ömurlegt miðað við þeirra rapp...! Hve glöð er vor æska ég bara spyr...
Ég las þá yfir þeim rokk pistilinn frá "AC-DC" til "Zepplin"... Ég held að þeir eru allir á leið núna í gítarnám... Rock On!


Hvað er búið að koma fyrir dagblöðin í landinu...? Ég rétt bregð mér frá í örfáa mánuði til Kanada of þegar ég kem aftur þá er búið að fjarlægja aðal menninguna úr þeim...!
Jamm, Morgunblaðið, Fréttablaðið og D.V. eru ekki lengur með teiknimyndasíðu...!!!
Morgunlaðið er að vísu með einhverjar framhaldssögur en hver nennir að lesa svoleiðis... Maður vill fá alla söguna á þremur til fjórum kössum (nema það sé sunnudagur og þá má það vera nokkrar línur) en ekki dreyft yfir marga daga.. Hversu mikla athygglisgáfu heldur fjölmiðlarnir að við séum með... Í þokkabot er Moggin líka með HRÆÐILEGA risaeðlu teiknimynd sem jafnast á við þann ömurlega ófyndnileika (ef þetta orð er ekki til, þá er það til núna) Tomma og Jenna teiknimyndanna og Lubba hunds sem þeir birtu líka (ekki samt Tomma og Jenna í sjónvarpinu, það er gull)...
Teiknimyndasögur er örugglega það menningarlegasta sem til er í heiminum... Slær úr bókmenntir, vísur og leikrit... Hvað haldiði að frummennirnir voru að skapa í hellum sínum fyrir tugþúsundum ára... Ekki voru það ferskeytlur eða smásögur... Nei, þeir máluðu teiknimyndasögur yfir alla veggi... Heimildir herma að Grettir (Garfield) var upprunalega sverðtígur með svakalega matarlyst á ítölskum frumbyggjum (það var ekki búið að finna upp lasagne ennþá)...
Eins gott að ég er með hlekkina á almennilegar teiknimyndarsögur fyrir ykkur hér til hliðar... Góða skemmtun...
Calvin and Hobbes
Dilbert
Grettir
Herman
Sherman's Lagoon
User Friendly


miðvikudagur, desember 17, 2003


Var að átta mig á því að enn og aftur er ég að kalla hlutum vitlausu nafni... hélt t.d. lengi að "að bíta á jaxlinn" þýddi að bíta sig í öxlinna (don´t know why)... fyrir freaky tilviljun þá hélt bróðir minn þetta líka og við komumst að réttu merkingunni á sama tíma þegar við bitum báðir í öxlina...
Allavega, þá varð mér ljóst í dag að Lord Of The Rings á íslensku er ekki Hringa Drottningar Saga... heldur Hringa Dróttins Saga...
Þetta útskýrir af hverju ég sá engar drottningar í sögunum... Að vísu er orðið drottning á ensku (queen) notað yfir samkynhneygða karlmenn og samkvæmt mörgum spekulentum (t.d. The Secret Diaries) þá gæti titillinn sem ég hélt að væri yfir bókunum verið réttari eftir allt saman...


Verð að benda áhugafólki um L.O.T.R. á þennan hlekk (ef þú veist ekki hvað L.O.T.R. er skammsöfun fyrir, þá ertu eflaust ekki áhugamanneskja)... The Secret Diaries...
Það er verið að gera grín (náttúrulega) af L.O.T.R. (ef þú villt vita hvað L.O.T.R. stendur fyrir fléttu því upp á netinu) persónunum... Basicly, þá eru allir sjálfumglaðir hommar í sögunni (ekkert samansem merki samt á milli þess að vera sjálfumglaður og að vera hommi (ég er sjálfumglaður (en ekki hommi (en er orðinn mjög hrifin af þessari súkkulaðiköku sem ég fékk í gær *söknuður*))))...
Þið verðið að lesa dagbækurnar í röð, frá efst til hægri svo efst til vinstri og þannig alla leiðinna niður því húmorinn byggist uppá í hverri dagbók læriru meira um hlutina í fyrri... Snögg lesning og algjör snilld...!
The Secret Diaries...


Úff...
Í raun ætti ég að segja "úff" með tveimur úum, fjórum effum og upphrópunarmerki (Úúffff!)... Í gær bakaði Sassa systir mín köku... í raun er "bakaði köku" eru ekki rétti orðin... Systir mín "skapaði fullkomnun í fati"... Þvílík og önnur eins gómsæti hafa ekki farið fyrir innan varir mínar hvorki fyrr né síðar... Í þokkabót fékk ég að næra mig á "kökunni" (ef hún má teljast undir þeim flokki) meðan hún var ennþá heit og skolaði henni niður með mjólk sem var svo köld að það voru litlir ískristallar í henni...
Ég vona að aðrir kvennmenn komast ekki að þessari uppskrift því þá væru við karlannir óþarfa gleðigjafar í lífi þeirra... og eftir að ég át þetta í gær þá sorrý stelpur, það er ekki svo mikið til ykkar komið eftir allt saman (prove me wrong)...
Ég er samt ekki orðin piesexual...


þriðjudagur, desember 16, 2003


Fyrir þá sem muna það ekki, þá samdi ég vísur í fyrra sem hétu Jólasveinar 2002 og var þetta gert í stíl við jólasveinavísurnar frá Jóhannesi úr Kötlum nema ég uppfærði Jólasveinanna í nútímalegri gaura... ég meina hversu oft kemst greyið Askasleikir í ask (ég veit ekki heldur hversu oft hann kemst í sleik (jóladónó))...
Núna er kominn upp íslenskur jólavefur og hefur þar verið sett inn vísurnar mínar (með leyfi náttúrulega) og teikningarnar sem Ingi félagi minn gerði fyrir mig... Sett mjög vel upp... Endilega kíkjið á þessar vísur ef þið hafið ekki séð þær áður... eða náttúrulega ef þið viljið bara rifja þær upp...


Ég var að keyra framhjá ofvirka jólaskreytingarheimilinu á Bústaðarveginum í gær... Eins og vanalega er húsið upplýstari en alþjóða flugvöllur í þoku... Ég er mjög mjög mikið jólabarn en eins og vanalega verð ég að segja um þetta að öllu má nú ofgera...
En skyndilega (á hraða ljóssins (það gerist varla meira skyndilegra en það)) þá slökknaði á helmingnum af seríunum á trjánum hans... Ætli það hafi sprungið ein pera...? Ég verð að viðurkenna að ég hefði lúmst gaman að vita af honum athugandi peru eftir peru í leit að þeirri sem er biluð... Maður er pínu jóla púki :)


Ég held ég á ekki eftir að geta horft á nýlegri Coca-Cola jólaauglýsinguna í ár án þess að fyllast skelfingu...
Ég er að tala um auglýsinguna þar sem fullt af upplýstum Coca-Cola trukkum keyra um einhvern jólabæ á meðan raulað er í bakgrunninum "Hollidays are comming, hollidays are comming..."
Ég var nefnilega keyrandi í gærkvöldi út á landi í grenjandi rigningu, brjáluðu roki og kolnaðar myrkri... Maður er keyrandi um á sleipum vegi á jeppa og er frekar pirraður yfir færinu... Skyndilega sé ég svakaleg ljós fyrir framan mig og þaun stefna í áttina að mér... Ég sé að þetta er upplýstur Coca-Cola bíll, alveg eins og í auglýsingunni... Ég byrja að raula "Hollidays are comming, hollidays are comming..." Trukkurinn nálgast og nálgast og ég léttist í skapi og raula áfram hærra "Hollidays are comming, hollidays are comming..." Svo keyrir bíllinn frammhjá mér og ég raula í góðu jólaskapi "Hollidays are comming, holli*WOOOSHHH**SPLASH*AAAAAhhh*SKRANS**SKRANS*AAAAAAhhh*BREMS**SKRANS*AAAAhhhhh!!!!!!"...
Ekki nóg með að bíllin skvetti fimm baðkerum af vatni yfir hverja rúðu (40 baðker samtals) heldur voru ljósinn svo björt að maður bæði blindaðist af ofbirtu og svo lýsti það upp allar rúðurnar þannig ekkert sást þar heldur... Í þokkabót kom svo mikill vindgustur frá hraða bílnum og hann feykti mér til lengst hliðar þannig ég var að missa stjórn á bílnum...
Mikið fékk ég stórt sjokk... Ég ætla að sniðganga þennan drykk núna í langan tíma... Neyðist til að blanda í staðinn bara Captein Morgan og Jólaöl á næsta djammi...


mánudagur, desember 15, 2003


Fékk mér Bæjarins bestu í hádeginu...
Pulsurnar (pylsurnar) hér eru svo miklu betri en úti... þetta er í raun eins og að segja að ávextirnir hérna eru miklu betri en plastávextirnir í Ikea...
Mér finnst líka frábært að vera í landi þar sem maður biður um "Eina með öllu" og manneskjan veit að maður er að tala um pulsu (pylsu)... Ég bað um "One with everything" í Canada og gaurinn hélt ég væri Búdda í hugleiðslu...


Ég er að verða vitlaus (í raun vitlausari, er oftast vitlaus (nema þegar ég geri eitthvað heimskulegt (því það er snilld))) því ég get ekki sofið almennilega... Laugardagsnótt var sofið frá fjögur til sex og svo bara legið þarna í pælingum og sjálfsvorkun til átta (yfir því af hverju ég gat ekki sofið)... Ég varð að rembast við að sofa svo ekkert á sunnudeginum því þá ætti ég séns í að snúa sólahringinum við en það mistókst því ég sofnaði klukkan tíu og vaknaði klukkan fjögur í morgun... Reyndi að sofa og lesa til skiptis (ekki í einu, það er frekar vonlaust) og endaði á því að fara frammúr klukkan 5:30 til að elda mér gráðostaommilettu með kjúkling (hvað annað er hægt að gera svona snemma)...
Ég er hér með búinn að gefast upp á því að sofna á eðlilegum tíma og muna sofna hvar og hvenær sem mér dettur í hug... eins gott ég er ekki mikið bakvið stýrið...


Hjúkkit... Við verðum með íslenska rjúpu í ár...
Það vildi nefnilega svo vel til að í fyrra þá keypti pabbi tvöfaldan skammt og helmingurinn er í góðu lagi núna inní frysti... Jól án rjúpu er eins og páskar án magaverkjar vegna súkkulaði ofáts... Plús, ef ég væri ekki altlaf að mölva tennur mínar á högglunum þá myndi ég aldrei hitta tannlækni minn...


laugardagur, desember 13, 2003


Kominn með nýtt númer meðan ég er heima á Íslandi yfir jólin...
6996124...
Látíð nú símtölin flæða...


Klukkan í mér (ekki á mér) er alveg kolrugluð (ég hef samt aldrei séð rugluð kol)... Hún var nógu slæm úti þegar ég svaf vanalega milli 5:00-10:00 á morgnanna (var á Tokyo time) og lagði mig oftast milli 20:00-22:00... en svo kem ég heim, sef fyrst 9:00-17:30... svo sofna ég 00:00 og vakna glaðvakandi um 6:00 sem er 1:00 um nóttina í Kanada... Í gær var ég uppgefinn og dauðþreyttur um 16:00 (11:00 í Kanada), djammaði samt til XX:XX (I don´t know (það táknar gott djamm (XX-5:XX-5 í Kanada)))... Í dag vaknaði ég hinsvegar um 12:00 (sem er 7:00 í Kanada) og þetta eru fyrstu merki um að klukkan er eitthvað smá normal... Þetta gæti hinsvegar verið bara vanalegi miðdegis (kvöld) lúrinn minn og ég á eftir að steinrotast seinna í dag... Only time will tell (not my time though)...


Mjög góður föstudagur...!
Ég vaknaði að vísu full snemma (6:10)... Nærði mig í morgunmat á ommilettu dauðans () og slakaði á með DVD glápi... Um hádegið fékk ég símtal um að mér var boðið á jólahlaðborð með gömlu vinnunni minni hjá Óðinsvé (Sigga Hall veitingarstaðnum)... Þar var svo svakalega góður matur... góð leið til að byrja hátíðina... Síld, reyktur og grafinn lax (í sitthvoru lagi, ekki bæði á sama laxinum), hangikjöt, súrsað svínakjöt, reyktur lundi, nautatunga, hreindýra paté, hamborgarahryggur, purusteik, hreindýr, kalkúnn og svo sætir eftirréttir að það varð að hafa tannlækni á staðnum...
Svo var ógrynni af snöfsum skellt í síg ásamt meira ógrynni af jólabjór... Við vorum þarna í langan tíma, fórum svo á "Snoker Sport Bar" (Poker Snort Bar (Haha)) til að spila smá "ballskák" (billjarð (pool (púl))) og drukkum meiri bjór og skot...
Svo var smá viðkoma á Viktor til að drekka bjór áður en ég varð að fara til þess að koma öllum félögunum á óvart...
Ég var nefnilega búinn að fá Jón félaga minn til þess að smala öllum "Durgunum" sem voru á landinu á Vegamót þar sem þeir voru að næra sig og jafnvel plana eithvað surprize partý fyrir mig á laugardeginum... Enginn vissi neitt nema Jón... Ég æði inn og sest á borð þeirra þar sem allir líta á mig og hver hugsar um sig "hvaða gaur er þetta sem sest við borðið okkar"... Skyndilega áttuðu þeir sig á því að þetta var ég (það tók mikla sannfæringu) og við áttum góða stund þarna... Svo var náttúrulega pöbarölt út nóttina og enn betri stund... Nú tekur laugardagurinn við... HVER VILL BJÓÐA MÉR Í PARTÝ...?


Síðustu dagar mínir úti...
Eftir svefnlausan mánudag og tökur á þriðjudegi þá fór ég að læra fyrir síðasta prófið... Ég ákvað að taka svona "all nighter" þó svo að það var ekki mikið lesefni... Eg nefnilega var að fara heim eftir prófið á miðvikudeginum og fannast sniðugt að vaka nóttina á undan líka því þá var pottþétt að ég myndi sofa í fluginu alla leiðina heim...
Miðvikudagsmorgun tók ég prófið, gékk mjög vel... Svo fer ég út á flugvöll og tek fyrsta flugið til Boston frá Toronto...
Mental Note... EKKI drekka bjór áður en þú ferð í gegnum vegabréfa eftirlitið á leið til U.S.A.. Manneskja með minni samkvæmis blöðru en ég væri löngu búinn að pissa á sig á biðinni sem öll skriffinskan (ekkert skylt finnsku) tók... Svo kemst maður ekki á salernið þegar maður er með allar þessar töskur því þú kemur þeim ekki á kamarinn og ef þú skilur þær eftir þá halda allir að þetta séu sprengjur...
Svo fer maður í gegnum öryggishliðið þar sem allir uðri að taka af sér beltin, skónna og fleira... Ég setti hinsvegar upp minn besta "There Is No Bomb In My Shoe" look-ið og þurfti ekki að gera neitt svoleiðis...
Ég bíð í tvo tíma eftir að fara í vélina og er alveg að sofna við flughliðið (búinn að vaka 48 stundir)... Ég sofna samt ekki því annar myndi ég missa af vélinni... Ver og í vélina og "DING" ég er glaðvakandi alla leiðina (var samt bara 90 mínútna flug)...
Fyrir framan mig var mjög skrítinn maður sem ég tel vera annaðhvort flugnaveiðara að halda sér í æfingu, Nasista með flashback eða manneskja með Turrete syndrom... Málið er að á tveggja mínútna fresti (ekki nákvæmnlega (ég var samt ekki að taka tímann)) þá skaut hann hægri hendinni í loftið eins og hann var að grípa flugur eða vinka Hitler (Síg Hæl!)...
Ég kem út í Boston, redda mér á annað "terminal" sem Icelandair er og verð að setja aftur upp "There Is No Bomb In My Shoe" look-ið á leið í gegnum öryggiseftirlitið...
Ég bíð í þrjá tíma eftir vélinni og er alveg að sofna allan tímann þannig ég labba um... Kemst loksins í vélina og "DING"... sef ekkert alla leiðina heim...
Ég var kominn á fimmtudagsmorgni heim... Húrra fyrir því... Lagði mig hinsvegar til hálf sex um kvöldið og missti af öllum deginum... skiptir ekki máli því það var föstudagurinn sem ég beið eftir með pompi og prakti (hvað er prakt?)...


Af hverju var ég ekki búinn að blogga í tvo daga...? og það á virkum degi... Það er ekki líkt mér... Ástæðan var einföld... Ég laumaði mér til Íslands tveimur dögum fyrr og engin vissi af því... SURPRIZE!
Jamm, ég nefnilega er mjög á móti því að ljúga í bloggi mínu (hvað þá annars staðar) þannig ég vildi ekki segja að ég væri ekki á Íslandi... Ég sagði bara að það væri helgi á Íslandi... en það virkaði eins og ég kæmi á laugardegi... og gat komið öllum á óvart heima... Aha... Clever bugger...
P.S. Hvernig segir maður "SURPRIZE!" á íslensku...?


miðvikudagur, desember 10, 2003


Úff... Ég verð að ganga frá svo miklu áður en ég fer héðan... Ég verð að taka til í herbergi mínu... það er verk sem er ekki heyglum hæft... Svo verð ég að hreinsa ísskápinn... Það er eitthvað sem er ekki hetjum hæft því það verk gæti reynst ógeranlegt eftir Kool-Aid/Soya-sósu sprenginguna sem litaði allan ísskápinn þessum fallega tón...
Síðan verð ég að pakka... Ég stút fylli eflaust tvær töskur því ég verslaði vel inn fyrir systkinabörnin mín...
Svo verð ég að skilja við íbúðina á einhvern sérstakann máta, taka allt úr sambandi, setja hitt og þetta hingsð og þangað...
Loks eru svo ýmisleg smáatriði í kringum skólann... vera viss um að ég hef skila öllu inn fyrir föstudaginn...
En... það er þess virði að geta eitt laugardegi á Íslandi...
Jibbí, laugardagur a Íslandi... Loksins... Ég vona það sé eitthvað gott í sjónvarpinu þá...


Vegna þess að við vorum vinnandi næstum í alla nótt þá bjóðum við sem búum á heimavistinni fólki sem býr lengra í burtu að gista í herbergjum okkar á gólfinu... Það vildi samt til að enginn svaf neitt í nótt þannig það skipti ekki máli hver var á gólfinu. Hinsvegar kom þessi ágæta samræða þegar tveir bekkjarfélaga minna þegar þeir voru að ákveða hvernig svefnfyrirkomulagið yrði í herbergi hjá einni stelpunni:
Radek: Let´s just spoon...
Tyler: I call the inside spooning...
Janie: Isn't that sex...?
Raggi: No... Sex is forking...


þriðjudagur, desember 09, 2003


Ég er svo sybbinn...
Kláraði seinna prófið og gékk bara frekar vel... Svo vorum við að setja upp sviðsmynd og lýsingu í næstum alla nótt og fyrst að tökur á jólaverkefninu byrjuðu klukkan 7 um morguninn, þá sváfum við ekkert...
Ég var núna að koma uppá herbergi til að taka smá sturtu og svo verð ég að fara aftur út að leika enskan leikstjóra fyrir annað jólaverkefni...
Eftir það er lestur fyrir próf sem ég tek á morgun... Eftir það eru bara verið að fara yfir verkefni okkar og gefa okkur einkannir út vikuna...
Svo er það bara "Iceland, here I come..."
Tæknilega séð hefði ég geta lagt mig aðeins í staðinn fyrir að blogga... en ég er bara ekki það klár...


mánudagur, desember 08, 2003


Er að fara í próf eftir smá stund í kvikmyndafræði en var að klára eitt í ljósmyndafræði (17/20 stig, fínnt) í morgun... Sem undirbúningur fyrir prófin þá (náttúruelga) lærði ég heima en síðan gerði það sem ég hef alltaf gert fyrir próf... Ég svaf með skólabækurnar undir koddanum...
Ég kalla þetta ekki hjátrú... þetta er meira hefð... Ég er ekki hjátrúarfullur en mér finnst mikið af hjátrú hafa orðið að hefðum þannig ég fylgi því mér til gamans hvort sem það er að sofa með bækur undir koddanum, kasta salti yfir öxlina eða sveifla dauðum ketti rangsælis yfir yfir hausnum á sér á fullu tungli...
Hinsvegar voru bækurnar full þykkkar þannig koddi minn (sem þegar er mjög þykkur og brotinn saman í tvennt til að þykkja hann enn meira) var ofur þykkur... Ég rann einu sinni af honum með hausinn og ég hélt að ég myndi aldrei lenda...


sunnudagur, desember 07, 2003


"Tarmigan"...
Það er orðið sem ég er búinn að vera leita að... "Tarmigan" er enska orðið yfir "rjúpa" sem hefur verið náttúrulega jólamaturinn minn næstum, ef ekki öll mín ár...
Gæta verður á að rugla orðinu ekki við "Toboggian" því það er sleði og bragðast ekki nærru því eins vel í villiberjasósu...


Hlutur sem hljómar vel á blaði en ekki í bragði...:
Chicken Bacon
Jamm, sá svoleiðis þegar ég var að kaupa mér að éta í kjörbúðinni og hugsaði með mér hvað væri nú gott að byrja daginn með því að fá sér egg og bacon í morgunmat fyrir próflesturinn... nema náttúrulega að beikon er óhollt þannig ég villt eitthvað sem er ekki eins slæmt... Svarið var kjúklinga beikon
Úff... og stórt bjakk...! Það var ekkert kjúklingabragð af þessu... Samt stóð á pakkanum "no pork meat"... Ég varð að leita hvort það stóð ekki líka "no chicken meat" en sá í staðinn orðin "now with extra added chicken fat"...!!! Þá er þetta unnið kjúklingakjöt og svo bæta þeir enn meiri fitu í sneiðarnar til að það líkist meira beikon...! Hafiði einhvern tíman heyrt einhvern segja...:"Hmmm, mér finnst vanta meiri kjúklingafitu í þetta..." Only in America...
Ég hennti náttúrulega restinni beint í ruslið...! En ætli það sé til þá "Pork eggs"... Forvitinn að smakka það eins og hið fyrrnefnda... en ég ætla að sniðganga það samt... "Curiosity killed the cat... It gave it a heart attack..."


Ég var að tala við félaga (Josh) bekkjarfélaga míns (Richard) um herbergisfélaga þanns fyrr nefnda. Hann er í hjólastól en er víst svaka sterkur... á að keppa á Ólympíuleikum fatlaðra næst í hjólastólakappi... Þeir voru eitthvað að glíma á gólfinu um daginn og gaurinn í hjólastólnum vann auðveldlega... Ég varð að spurja Josh aðeins um þetta og svona var samtalið (orð fyrir orð)...:
Raggi: So, why were you wrestling on the floor...?
Josh: Because I kicked him from behind and he flew into the table...
Raggi: You kicked a guy in a wheelchair into a table...!?!
Josh: No, he was standing out of it and trying to walk...
Raggi: ... ... ... ... umm... *hóst* ... ... ...?
Canada menn eru skrítnir...


laugardagur, desember 06, 2003


Er búinn að eyða allt of miklum tíma í dag að gera annað en að læra... er það ekki bara eins og annað fólk gerir... Maður finnur alltaf eitthvað annað sem tekur athygglina frá námsefninu...
Ég er búinn að hlaða niður (skrítið ég notaði ekki orðið "downloada", vanalega sletti ég mikið í blogginu) fullt af 80's auglýsingum frá æsku minni í U.S.A.... Ég vill ekki nefna síðuna því hún getur dreyft athyggli annara í prófum...
Best fannst mér náttúrulega Coca-Cola jólalagið (sem er að vísu frá 1971)... Jólin eru ekki jól fyrr en ég heyri það...
Allir saman nú:
I'd like to buy the world a home
And furnish it with love
Grow apple trees and honey bees
And snow white turtle doves.
I'd like to teach the world to sing
In perfect harmony
I'd like to buy the world a Coke
And keep it company
That's the real thing.
*snökkt**snökkt* Oh, þetta er bara svo sentimental...
Hinsvegar ef þetta væri samið í dag væri endirinn: "I'd like to buy the world a Diet Caffein-Free Vanilla Coca-Cola Classic... and keep it company"...


Lestur, lestur, lestur... 2 próf á mánudag og eitt á miðvikudag... Kvikmyndafræði, ljósmyndun og tækni... Svo þarf ég bara að taka upp fyrir mánudag eitt tveggja mínútna myndband einhverstaðar þar sem eru 6 eða fleiri manneskjur og prennta svo út handritið mitt að jólaþættinum fyrir föstudag... Þá er ég búinn...! Iceland here I come...!
Mig vantar hinsvegar einhvern góðan kvöldmat til þess að virkja heila sellurnar... Í augnablikinu líður mér eins og ég hafi étið bara Noodle Soup yfir ævina... Er einhver gáfaður matur til...? Í raun ef maturinn væri gáfaður þá væri hann ekki matur í augnablikinu... sjáðu til dæmis Bugs Bunny... aldrei var hann eldaður...
Spurning um að finna góða svínasteik, langt síðan ég hef fengið svoleiðis... svín eru sæmilega gáfuð, þau bara velta sér í forinni til þess að leyna því...
Skyndilega vaknar smá forvitni í mér... Ég hef séð Andres Önd borða kalkún og kjúkling en sáuði einhvern tímann Porky Pig borða skinku?


föstudagur, desember 05, 2003


Fékk mér sushi í gær... og nóg af því... Fór til Toronto með Richard bekkjarfélaga...
Ég hélt að staðurinn sem við vorum að fara á væri ekkert spes því ann væri að bjóða uppá "All You Can Eat" sushi... Hinsvegar var þetta mjög góður staður og maturinn frábær...
Síðast þegar ég fór á "All You Can Eat" sushi stað þá var okkur sparkað út fyrir ofneyslu (no joke)... Þessi staður hefur greinilega heyrt af þessu því þau voru búinn að gera ráðstafanir... Á matseðlinum stóð að maður fengi bara tvo tíma til þess að éta eins mikið og maður gat... So much sushi, so little time...
En tímamörkin vr eitthvað sem við þurftum að hafa áhyggjur af... Þjónnin kom að okkur og tók við pönntunum um hvað við vildum... Það var kominn góður listi og við biðum spenntir eftir réttunum... Eftir smá stund kom þjónninn með tvo drekkhlaðna diska og glott í framan því hann var svo viss um að við myndum ekki klára þetta... Reglan var sú að ef maður klárar ekki það sem maður panntar þá verðum maður að borga fyrir það...
En... skömmu síðar var náttúrulega ekkert eftir nema brosið á okkur... Þjónnin kom að okkur og hakann hans datt í gólfið... hann starði á okkur agndofa og trúði ekki sínum eigin eyrum þegar við pönntuðum aðeins meira... Við fengum aðeins meira og rétt náðum að klára það... Ég varð samt að biðja um tvo enn bita af lax því hann var bara svo rosalega góður... Þetta var 18,95$ + smá skattur + þjórfé og endaði því máltíðin í 25$ sem er um 1.300 krónur (nenni ekki að reikna nákvæmnlega, er bara að giska)...
Svo ultum við út og skriðum á næsta bar því við vorum jú komnir til Toronto og vitleysa að fara strax heim... Við fengum okkur bara einn bjór og ég gat ekki klárað hann því það var svo mikill fiskur í maganum á mér... Svo rosa mikill fiskur...
Í morgun vaknaði ég og var kominn tálkn á hálsinum... Núna verð ég að fara læra tálknmál...


Fann græjurnar sem ég vann í gær á netinu... Þær eru nú ekkert sérlega dýrar... Þær duga mér samt fullkomnlega meðan ég er hér... Þetta eru græjurnar... Eru þær ekki litlar og sætar...


fimmtudagur, desember 04, 2003


Svakalega er ég búinn að nota rödd mína mikið í verkefnunum...
Ég lék sjö hlutverk á útvarpsleikriti mínu (í raun 8 en hafði ekki tíma til að setja eitt atriði enn inn).
Ég lék íslenskan hnefaleika dómara hjá Rey bekkjarbróðir.
Ég lék Captain Jack blómasala og aðstoðamanninn hans Cristopher fyrir Rich bekkjarbróðir.
Ég lék ónefndan mann á krá, glyðru á krá og hræðilega lélegan trúbador fyrir Trish bekkjarsystur.
Ég er orðin frekar sleiður raddleikar núna... Ég lékk náttúrulega lélegast í byrjun og það er í útvarpsleikriti mínu...
Á morgun á ég að leika leikstjóra í jólaþætti fyrir annan bekk... Ég kann ekki að leika fyrir framan myndavél hinsvegar þannig spurning er hvort ég má fela mig bakvið borð eða eitthvað og nota bara röddina...
Ef þið viljið heyra útvarpsleikritið mitt þá endilega reynið að bjalla á mig á MSN og ég skal senda ykkur það...


Það var Toga (tó-ga) kvöld í gær á skólakránni... Fyrir fólk sem veit það ekki, þá er Toga það sem grikkirnir klæddust til fórna... sem er basicly lak af rúmmi vafið einu sinni um mann...
Þetta er eitt af vinsælustu vinsælustu atburðunum í háskólum og í fyrsta sinn sem, svona er haldið hér... Tímasetningin var ekki góð samt.... Hvaða snillingur datt í hug að hafa Toga partý í næst síðustu viku skólans í desember þegar það er frost og snjór... Ekki hjýjasti búningur í heimi... Það bætti ekki dæmið að vera líka berfættur í sandölum...
Ef maður mætti í Toga fyrir klukkan 11 þá fékk maður frítt inn og sparaði sér 3 dollara... Hinsvegar verður maður að eyða meira á barnum þannig það var eiginlega vitleysa af mér að drífa mig út... Hinsvegar græddi ég aðeins því þegar maður kom inn þá fékk maður happdrættismiða og svo vildi til að ég var dreginn út... Jáhá... Ég vann Animal House kvikmyndina á DVD... Myndin sem gerð Toga partý svona vinsæl... Snilldar mynd... Hefði ég ekki mætt svona snemma hefði ég fengið þennan miða og ergó ekki unnið DVD myndina...
Æj já... með myndinni fylgdi DVD spilari og heimabíókerfi með 5 hátölurum og bassaboxi...


miðvikudagur, desember 03, 2003


Það á ekki að hleypa mér í leikfangabúðir því það er svo erfitt að ná mér út... Ég er vonlaus í að kaupa gjafir nema þegar kemur að krökkum... Ég er náttúrulega ungur í hjarta (sumir kalla mig jafnvel barnalegan)...
Sumar búðirnar voru virkilega með sömu leikföngin og voru í gangi þegar ég var krakki... Það var ekki mikið af mínu dóti þarna en ég sá hluti sem systir mín lék sér með... Man núna til dæmis þegar ég sá það að Goog Luck Bear var uppáhalds Care Bears banginn minn *AHEM* þó svo ég lék mér ekki með þá... það er hugsunin bak við hann sem skiptir máli...
Allavega...
Svo sá ég nýju Transformers leikföngin, einhver allt önnur kynslóð... Úff, var ekki alveg að lítast á blikuna... En einhvert afl togaði í mig og lét mig skoða þau vel og bera saman í huganum við upprunalegu... Skyndilega langaði mig að gefa einhverjum frænda mínum svona leikfang til þess eins að geta notað það sjálfur... Það hefði náttúrulega verið rangt... Ég fer ekkert að gefa NÝJU Transformers... Þá væri ég að svíkja þá gömlu og fara þvert á öll mín gildi um 80's frábærleika...
Ég henti þessum pakka sem reyndi að tæla mig með flottum myndum og skræpóttum litum og flúði úr búðinni án þess að líta um öxl...
Ég rambaði þá inní aðrabúð sem kallaði sig safnarabúð... Þar var fullt af bókum, myndsögum, blöðum, upprunalegir Transformers, DVD myndum frá Japan, safnko-WHAT!!! UPPRUNALEGIR TRANSFORMERS...!!! Ég trúði ekki mínum eigin augum... Þeir stóðu þarna undir glerinu á afgreiðsluborðinu ásamt fullt af öðru dóti sem ég lék mér með þegar ég bjó í U.S.A.... Það er eins og þessir gaurar hafa fundið öll mín leikföng sem ég hef nokkurn tímann tínt (eða var þeim stolið... Dunn dunn dunnnnn)...
Ég veit að þessir gaurar í eru ekkert í raun að selja þessi leikföng... Þeir eru bara með þau þarna til þess að atast í mér... Þeir vita, að ég veit, að um leið og búðin lokar, þá taka þeir fram leikföngin og leika sér með þau langt fram á nótt án þess að deila þeim með neinum... og þeir skemmta sér rosalega vel við það... kvikyndin...!


Í verslunarmiðstöðinni kom einhver kona að mér og spurði hvort ég vildi taka þátt í áfengis könnun... ég svaraði náttúrulega játandi því ég tel mig hafa góða þekkingu á þeim málum... Ég svaraði spurningum um hversu oft ég drykki, hvað mikið í hvert skipti, hvað mikið í viku, hvaða tegundir og svo framvegis... Í lokinn spurði hún mig hvort ég væri búinn að búa á sama stað síðustu fimm árin og ég sagðist vera ný fluttur frá Íslandi... Þá varpaði hún öndinni léttar og sagðist ekki mega nota niðutstöður frá útlendingum... Hún sagði að ég myndi eflaust hækka meðaltalið hjá Kanadamönnum og koma slæmu orði á þá...
Ég veit ekki hvort ég á að vera stoltur eða móðgaður...


Úff... Ég var að sjá sætasta af sætasta af sætasta ever... Mér er íllt í tönnunum...
Það var ein hver búð í verslunarmiðstöðinni sem hét eitthvað eins og "Create Your Bear" eða "Make A Bear" eða svoleiðis... Ég varð að skoða hvað var í gangi... Svona er ferlið við að búa þá til...:
Basicly, við innganginn geturu valið um fimmtíu og eitthvað mismunandi banga (brúnir, gráir, svartir, hvítir, kóala, panda), hunda (margir möguleikar), hesta (jafnvel einhyrninga) og önnur dýr (skjaldbökur, uglur)... Til að einfalda málið þá kalla ég þetta allt einu nafni "bangsa"...
ATH. Sweetness alert 1: Svo veluru hvernig hljóð kemur frá bangsanum... Segir hann eitthvað (I love you") eða spilar hann lag...
ATH. Sweetness alert 2: Svo ferðu með bangann að tæki þar sem þú fyllir bangan af bómul eða eitthvað svipuðu... ÞÚ FYLLIR BANGANN SJÁLF/-UR...! Þú ræður þannig hversu mjúkur og knúsulegur hann er...
ATH. Sweetness alert 3: Svo læturu loka honum og velur hvaða föt hann fer í... nóg úrval þar skal ég þér segja... Venjuleg föt, regnföt, búningar (kúreki, engill o.fl.)...
ATH. Sweetness alert 4: Svo veluru aukahluti sem fylgja bangsanum (regnhlíf og svoleiðis)
ATH. Sweetness alert 5: Svo læturu nefna bangsann og það er skráð í gagnagrunn ásamt öllum upplýsingunum...
ATH. Consumer alert: Svo verðuru að hætta í skóla til að borga bangsann því öll námslánin þín næstu þrjú árin gætu dugað til að borga fyrir hann því þú valdir allt hið sætasta og besta...


Var að koma inn úr verslunarferð í stóru verslunarmiðstöðinni "Square One"...
Ég fann strax snilldar gjafir hana syskinabörnum mínum í sömu búðinni... 5 stk, plús afmælisgjöf... Ég varð svo að labba um drekkhlaðinn pökkum í leit að öðrum gjöfum í marga tíma... Gjafirnar voru svo fyrirferða miklar að ég rak þær óvart í í flottri verslun og lét heila hillu hrynja niður af dýrum vörum... ég meinti vörum með dýrum... Þetta var fullt af leikfangaböngsum...
Ég varð svo rammvilltur þegar ég var að versla... Mér fannst ég vera að labba í hringi en í raun var mynstrið sem ég gékk í "Æ"... og ég gékk það mynstur aftur og aftur (Æ, æ, æ)... Þegar ég loksins var að ná áttum og allavega búinn að komast að því hvernig ég gæti sloppið úr völundarhúsinu þá gerði ég þau regin mistök að kíkja á neðri hæðina... Neðri hæðin var nefnilega í allt öðru mynnstri en sú efri og ég gékk um í villu og svima þar líka... Svo þegar ég fór aftur á efri hæðina til að reyna ná áttum þá vissi ég ekkert hvar ég var þar lengur og varð að labba um allt þar aftur...
Ég tókst að kaupa eina gjöf í viðbót en ákvað að klára ekki öll innkaupinn því ég vill náttúrulega vera í allri jólastemmningunni (ösinni) heima á Íslandi líka... Ég á bara eftir litlu systur og foreldra mína þannig no worries there...
Það er hinsvegar greinilegt að ég kemst ekki upp með að fara bara með eina ferðatösku til baka... segir Mr. Obvious...


þriðjudagur, desember 02, 2003


Um daginn voru allir að gera svona lista... 100 atriði um sjálfan sig... Ég hugsaði að þetta var pínu sniðugt en allir voru að þessu þannig ég nennti ekki að standa í þessu þá því fólk var eflaust með leið á þeim...
Hinsvegar er núna nokkur tími síðan ég hef séð svona lista þannig ég gerði einn um mig...
Vegna þess að margir eru samt ennþá kanski með leið á svona listum þá set ég hann ekki á þetta blogg heldur set bara hlekk á hann hér...
Listann má finna hér.
Mér fannst ég samt sleppa miklu úr... Þið bara spyrjið mig bara ef það er eitthvað meira sem þið viljið vita um mig...
P.S. Er eitthvað á þessum lista sem kom ykkur á óvart eða er skrítið...?


Ég var að kaupa Lucky Charms morgunmat fyrir leikmuni í upptökunum á morgun... Við þurfum bara tómar umbúðir þannig ég tók innihaldið og er að nasla á því sem nætursnarl eftir að við kláruðum að setja allt upp...
Ég byrja mjög vel að éta Lucky Charms en enda alltaf mjög hægt... Ég VERÐ nefnilega að hafa alltaf minnst einn sykurpúða í hverri skeið sem ég set uppí mig... Ég byrja samt alltaf á því að reyna fá sem flesta í skeiðina þegar skálin er full, en svo þegar það eru bara fáir bitar eftir, þá eru kanski bara 4 sykurpúðar á móti 50 hinsegin og ég er að reyna að veiða sem flesta saman með einn sykurpúða í skeiðinni... Það getur tekið óra tíma skal ég segja ykkur...
Ætli það sé hægt að fá lítið net til að veiða morgunmat...?


mánudagur, desember 01, 2003


Búinn með útvarpsleikritið, kláraði það í nótt, meira en hálfnaður með DVD hulstur hönnunina og bara eitt tveggja mínútna (óklippt) myndband eftir... Þá eru verkefnin búinn...
Í kvöld (nótt) verðum við hins vegar að setja upp sviðsmynd okkar og lýsingu fyrir tökur í fyrramálið... Ég fæ sem betur fer pínu tíma til þess að fá kjúklingavængi *hóst*bjór*hóst* í kvöld til að fá orku til að vinna enn aðra nótt...


Home