Posted
9:10 e.h.
by Unknown
Talandi um gólfdúk... Vitiði hvað er erfitt að segja gólfdúkur á ensku (Linoleum) þegar maður er fullur, og ekki einu sinni mjög fullur, bara rétt í glasi...
Maður hefur tilhneygingu til að segja eitt af eftirfarandi: Linoneum, Liloneum, Liloleum, Ninoleum, Niloneum eða Niloleum...
Maður færi samt aldrei að segja Ninoneum... það væri bara stupid...
Posted
8:39 e.h.
by Unknown
Gékk mjög vel að setja saman útvarpsleikritið mitt í nótt... Var frá 1:00 til 7:30... Var að setja undir hljóð brellur og tónlist... Í nótt veð ég svo að setja "filtera" á talið og hljóðin til að bæta þau, staðsetja allar raddir og hljóð í steríó (hægri eða vinstri) og laga hæð hljóðrásanna...
Þvílíkur gagnagrunnur af hljóðum sem þeir eru með á tölvunni...! Ég var að hafa áhyggjur af því að finna ekki mörgæsarhljóð þannig ég yrði að herma eftir einni sjálfur... en ég fann fimm mismunandi mörgæsa hljóð... Keisara mörgæs, önnur tegund af mörgæs (veit ekki hvað, ég er ekki fuglafræðingur, ég er í kvikmyndagerð ef þið munið það ekki), bæði karlkyns og kvennkyns mörgæs af sitthvorri tegundinni og svo hópur af mörgæsum...
Ég var svo að leita að fótataki... Váháháááá.... Fyrst var það eftir hvernig gólfið var: Parket, marmari, gólfdúkur, gras, sandur, möl og fleira... Svo var eftir hvernig göngulagið var: Hægt, venjulegt, hratt, hlaup, draga lappirnar, haltur, valhoppandi og fleira... Svo var eftir skó tegundum: Strigaskór, stígvél, sandalar, mokkasíur, spari skór, berfætt, háhælar og fleira... og loks var eftir kyni: Karl eða kona...
Það var ekki til mörgæsalapp en ég beitti smá pælingum um hvað myndi líkjast því mest... Svarið var berfætt kona labbandi hratt á gólfdúk... *slabb**slabb**slab*... No offence ladies...
Posted
3:10 f.h.
by Unknown
Jamm, synd að föstudagshefðin er hætt... Vonandi eru þið drengirnir heima að viðra ykkur samt ennþá eitthvað um helgar...
Posted
3:02 f.h.
by Unknown
Ég var að heyra einn fyndnasta brandara í langann tíma...! Ég veit ekki hvernig smekkur ykkar er á brandörum en mér finnst þessi algjört gull...
Við vorum eitthvað að tala saman ég og félagi minn Chris um ég man ekki hvað... Ég set upp ímyndað dæmi... fyrsta setningin er uppspuni en restin var í samræðunum:
Ég: I had trouble getting enough light for the picture.
Chris: Well, you should have used a buttfor...
Ég: What's a buttfor?
Chris: Pooping...
Finnst ykkur þetta ekki snilld...!!! What's a buttfor... pooping...! HAHAHAHA...
Posted
2:45 f.h.
by Unknown
Fór í dag að framkalla myndir fyrir verkefni sem ég skila á mánudag... Varð að fara í næsta bæ því það er eini staðurinn sem getur framkallað "slides" myndir á einni klukkustund og var opinn á laugardegi... Fyrir góða tilviljun þá var staðurinn við hliðina á stærstu verslunarmiðstöð fylkisins (held ég) þannig ég hafði nóg að skoða meðan ég beið í þessa klukkustund... Það var létt að komast þangað... bara tveir strætó... Einn þeirra reyndi að vísu að höggva af mér hausinn með því að loka á mig þegar ég var að labba út... Hurðirnar skelltust saman á met hraða, ég labba á þær, hrasa og er nærru því búinn að hengja mig því myndavélin mín var um hálsinn á mér en hún sveiflaðist út og var klemmd fyrir utan strætóinn...
Ég ætla að samt að fara aftur á þriðjudag (án myndvélar) að versla því ég átti engan pening í dag en fæ náttúrulega námslánin á mánudag... Jólagjafainnkaupinn verða auðveld í ár... Spurning hvort ég þarf stærri ferðatösku hinsvegar...
föstudagur, nóvember 28, 2003
Posted
5:00 e.h.
by Unknown
Var að klippa saman útvarpsauglýsinguna mína til klukkan fjögur í nótt og byrjaði þá að leiðrétta handritin mín...
Ég fékk í gær nokkra félaga mína í bekknum til að leika persónur og tókst að taka upp allt talið... Hinsvegar voru upptökunar frekar slæmar þannig ég varð að gera þær aftur, en svo vill til að það var engin með mér um miðja nótt þannig ég varð að leika allar persónurnar sjálfur...
Þetta voru átta persónur og mér tókst að láta þær hljóma nógu mismunandi þannig maður gæti haldið að það væru átta leikarar... Það vill hinsvegar til að allir leikaranir eru jafn lélegir...
Held svo áfram á laugardagsnótt klukkan tvö til eins lengi og ég get og svo enn aftur á miðnætti á sunnudegi fram að morgni ef engin stoppar mig, því ég vill tryggja að allt sé fullkomið...
Ég er alveg á því að ég mun geta sofnað í flugvélinni á leiðinni heim...
Posted
4:17 f.h.
by Unknown
Eftir kvikmyndina dreyf ég mig strax tilbaka því ég er með hljóðverið frá miðnætti... Ég kom ekki á góðum tíma á lestarstöðina því ein lest var ný farinn og það var 50 mínútur í þá næstu... Þegar ég sat þarna í 50 mínútur tók ég hinsvegar eftir sérstöku mynstri í hegðun fólks í kringum mig... Það fór eftir því hversu stutt var í næstu lest... Mynstrið er svona:
Labb labb labb
Labblabblabb
Skokk skokk skokk
Skokkskokkskokk
Hlaup hlaup hlaup
Hlauphlauphlaup
Sprett sprett sprett
Sprettsprettsprett
ZOOOOOOOOM...!
ZOOO-Skrans-F*CK
Labb labb labb
Posted
4:01 f.h.
by Unknown
Ég horfði á kvikmyndina "Hafið" í fyrsta sinn áðan... Hún vra vel gerð og eflaust góð mynd... mér fannst hún bara svo svakalega leiðinleg... Ég sá leikritið fyrir nokkrum árum og fannst það leiðinlegt en kvikmyndin sló því við... The people take the "fun" from "dysfunctional family"...
Hún fékk á sínum tíma fullt af Beddu verðlaunum og tilnefningum fyrir leik, þannig fólk getur sagt að hún var "of vel leikinn"... mér fannst hún hinsvegar "vel ofleikinn"...
Eina manneskjan sem manni líkaði við var gamla konan, en svo virðist sem að íslenskt kvikmyndagerða fólk verður að henda inn einni sérviskri eða ruglaðri ömmu í allar kvikmyndir...
Eitt sem mér fannst hinsvegar mjög skrítið... Það var liðið slatta á myndina þegar ég skyndilega áttaði mig á því að ég var búinn að lesa enska textann allan tíman og ekkert að hlusta á innihald talsins... Eins gott að ég er alveg að come home...
Posted
3:58 f.h.
by Unknown
Það var grenjandi rigning í dag og ég var hlaupandi til þess að ná lestinni til Toronto... Þegar ég kom á pallinum var hún þar og alveg að leggja af stað... Ég hendi mér uppí lestina og tókst að setja ólympiúmet í Limbó því ég rann með lappirnar á undan alla leið inn á meðan restin af mér sveigðist aftur á bak... ég hefði geta rennt mér undir gólfmottu...
fimmtudagur, nóvember 27, 2003
Posted
6:12 e.h.
by Unknown
Kláraði útvarpshandritið í nótt um fimmleytið... Þetta eru sjö blaðsíður sem ætti að gefa mér um fimm mínútna þátt... Sagan er að vísu ekki búinn, erfitt að klára góða hugmynd á svona stuttum tíma. Geri bara svona "To be continued"...
Búinn að taka upp flestar raddirnar nema mig. Ég mun leika sögumannin, gamla konu og japanskan kokk...
Á miðnætti fæ ég loks aðgang að hljóðverinu til þess að vinna þetta... Ég fæ hljóðverið svo aftur klukkan tvö aðfaranótt sunnudags framm eftir morgni...
Að öllum líkindum verð ég að læra að herma eftir mörgæs ef þetta á að koma vel út...
Á öðrum nótum fékk ég hinsvegar "A" fyrir 80's Cartoon Theme auglýsinguna mína... Thundercats, HOOOO!!!
Posted
9:34 f.h.
by Unknown
YYYYEEEESSSS!!!!... ÉG FANN ALL YOU CAN EAT SUSHI STAÐ...!!!
Við vorum labbandi um Toronto á leið í sjóvarpstökurnar og ég rambaði á skilti að sem stóð á "All You Can Eat Sushi Buffet, 18.95$"... Það var löng slóð af slefi frá veitingarstaðnum að sjónvarpsverinu og svo pollur af slefi undir mér... Mmmm, Sushi...
18.95$...!!! Það er rétt um 1.000 krónur...!!!
Fer í næstu viku...
Oh, they're in trouble now...!!!
Posted
4:21 f.h.
by Unknown
Þetta var ágætur spjallþáttur sem ég sá tekinn upp... Gestir kvöldsins voru leikarinn Pete Postelwate (veit ómögulega hvernig skal stafa nafnið hans) einhver leikkona sem leikur í þættinum 24 og svo einhver söngkona... Þáttastjórnandin var ágætlega fyndinn en það var gaman að sjá hvernig þetta var gert... Við urðum samt að sýna mikla klapp leikni og svo náttúrulega hlægja að öllu þótt það var ekki fyndiið... Ég get sagt ykkur að það er mjög erfitt að gera upp hlátur í klukkutíma...
Eftir tökurnar á þættinum var tekið upp einhver "Special" kynning... Það var basicly heill þáttur nema aðeins á þremur mínútum... kom mjög fyndið út... Við vorum beðin þá um að hlægja mikið en ekki lengi eftir hverjum brandara... Þátturinn byrjaði og hann kom út til að gera "the opening monolauge"... Við vorum beðin um að hlægja extra mikið að þeim brandara... "Don't worry, it's really funny" var sagt við okkur...
Mike: "So, today's Thanksgiving. According to a recent survey, apparently more Americans would rather eat dinner with George Bush then Hillary Clinton..."
Þögn (ég hugsandi "þetta var ekkert fyndið")
Við: AHAHA, AHAHAHA! (VERSTI GERVIHLÁTUR EVER!!!)
Mike: Well, the joke wasn't finnished but we don't have time for that now...
Og þátturinn hélt áfram...
Það var að vísu gerð einhver mistök og þátturinn var tekinn aftur upp (tvisvar í viðbót)... Þannig við fengum að heyra restina af brandaranum og (gervi)hlógum á réttum tíma... Hann var ekkert fyndin...
The punch-line fyrir ykkur forvitnu: "... and that includes Bill Clinton"... *Badum**tshh!*...
miðvikudagur, nóvember 26, 2003
Posted
7:12 e.h.
by Unknown
Er að fara í dag og morgun til Toronto...
Í dag er öllum á fyrsta ári í fagi mínu boðið í upptöku á kanadískum spjallþætti... The Mike Bullard Show... Svo fáum við kannski kynningarferð um sjónvarpsverið...
Á morgun er verið að sýna kvikmyndina Hafið og ég var beðin um að kynna hana fyrir Íslendingafélagið hér... Ég ætla að reyna draga fleiri úr bekknum mínum á þá sýningu og kynna þeim fyrir íslenskri kvikmyndagerð... Líka bara ég nenni ekki að hanga einn í lestinni...
Posted
12:05 f.h.
by Unknown
Skrítið... Alltaf þá daga eftir að ég vaka alla nóttina, þá er akkúrat aldrei tími til þess að leggja sig yfir allan daginn...
Ég sofnaði nefnilega aðeins yfir sjónvarpinu í gærkvöldi fyrir miðnætti og var vakandi til 6 um morguninn (sem er að vísu ekki óvenjulegt síðustu vikur)... Svo var tími klukkan 8 í morgun en ég gat ómögulega sofnað frá 6 þannig ég var byltandi mér í eirðarleysi (hvað er eirð? (friður?)) í einn og hálfan tíma... og svo eins og hálfviti gerði ég samt nokkur "snooze" í hálftíma í viðbót því ég var greinilega ekki búinn að bylta mér nóg...
Tíminn var bara upphitun fyrir tökurnar í næstu viku og pínu hamagangur var í gangi... en það gerir það bara betra að leggja sig eftir það...
Hinsvegar eftir tímann var ég dregin af félögum mínum til að taka fleiri ljósmyndir fyrir verkefnin okkar... Við vorum í kringum heimavistina þannig það var stutt í rúmið...
En... Svo var ég dreginn í hljóðverið fyrir auglýsingu hjá öðrum félaga mínum því ég virðist vera með góða útvarpsrödd... Hjálpaði honum svo að klára verkefnið hans áður en ég fór uppí herbergi til að leggja mig...
En um leið og ég leit rúmið augum hringdi síminn og annar félagi minn bað mig um að koma með sér á lítið jólaboð sem heimavistin var með... basicly pízza og smákökur...
Er núna kominn aftur uppá herbergi til að leggja mig... en nokkrir bekkjarfélagar hringdu fyrir stuttu því þeir eru að klára ljósmyndaverkefni sem er degi of seint og vantar mig sem viðfangsefni... Ég á víst að vera John Travolta... Er því að far aút eftir smá stund...
Eftir það setjumst við eflaust í einn bjór til að vinda af okkur...
Þegar ég kem til baka ætla ég að skrifa handrit fyrir útvarpsleikritið mitt... Ég var hugmyndasnauður svo lengi en loksins fékk ég glæsilega hugmynd í draumi... Ég skrifaði um drauminn fyrir mjög stuttu... en... stóra spurningin er... Hvað er plottið...??? Dunn dunn dunnnn...
No worries... þetta fer allt á netið von bráðar...
En fyrst ætla ég að leggja mig... í vikunni einhvern tímann...
þriðjudagur, nóvember 25, 2003
Posted
10:43 e.h.
by Unknown
Ég veit ekki hvort amerísk heimska smitar út frá sér... en svo gæti verið...
Herbergisfélagi minn, Bretinn, sem ég áleit alltaf vera við meðal greind, og þar af leiðandi yfir meðalgreind hér, kom mér á óvart með ummælum sínum... Hann var að leyta að upplýsingum um strætóferðir og gat gert það með að hringja í eitthvað númer... segjum 555-5BUS... Hann bað mig um að gera það fyrir sig því hann kunni ekki að slá inn "BUS" hlutan af númerinu... Eftir miklar pælingar gerði hann 555-522887777... Eftir langar útskýringar gat hann ennþá ekki gert þetta sjálfur...
Að vísu sparar hann stórfé því hann getur ekkert hringt í svona 1-900-HOT-GIRL númer...
Posted
9:06 f.h.
by Unknown
Mikið eru kennarar mínir sniðugir...
Til þess að minka álagið á okkur þá færðu sumir kennarar lokaprófin eða lokaverkefnin fram um eina viku til þess að þau væru ekki öll á sama tíma... Það vill svo til að "sumir = allir" þannig allt varð í sömu vikunni... og viku fyrr en fyrst var ætlað...
Fólk sá samt brátt að þetta var ekki sniðugt þannig núna er búið að færa sum verkefni og próf aftur... en ekki öll...
Það sem ég verð að gera næstu tvær vikur fyrir frí byrjandi í næstu viku:
Mánudagur: Skila inn 10 slides myndum um hvernig það er fyrir mig að vera í skóla.
Þriðjudagur: Upptaka á fyrri hluta jólaþáttarins.
Fimmtudagur: Photoshop próf, bóklegt og verklegt. Skila inn 6 mínútna útvarpsleikriti.
Mánudagur: Bóklegt próf um ljósmyndun. Bóklegt próf í kvikmyndafræði. Skila inn 2 mínútna myndbandi sem tekið er upp í hóp af fólki.
Þriðjudagur: Upptaka á seinni hluta jólaþáttarins.
Miðvikudagur: Bóklegt próf í stúdíótækni.
Fimmtudagur: Skila inn mynd fyrir DVD hulstur í Photoshop.
Þetta er sem sagt 4 próf, 4 skilaverkefni og svo upptökur... Sé fyrir mér vökunætur í próflestri og svo uppsetningu á stúdeó fyrir jólaþáttinn... Eflaust líka vökunótt yfir útvarpsleikriti því þegar er búið að bóka hljóðstúdeóið á öllum tímum nema næturnar...
Síðasta vökunóttin er þegar ég flýg frá Boston um 20:30 til Íslands 6:30... Ég á af einhverjum ástæðum erfitt að sofna í flugi... Skil ekki af hverju... Með svona svakalega þægileg sæti... Ég vona að ég lendi í miðjunni... það er gaman... (ahem, yeah right (varð að bæta inn svigunum, hélt þið mynduð ekki öll sjá kaldhæðnina))...
mánudagur, nóvember 24, 2003
Posted
5:46 f.h.
by Unknown
Dreymdi í nótt að það réðst hópur af dvergvöxnum mörgæsum á mig... Það var ekki góður draumur... Þetta voru litlar skeppnur (afsakið að ég tala núna ílla um morgæsir, lofa að gera það aldrei aftur) sem voru með beittar tennur og svo klær á löppnum... Mörgæsinar rétt náðu mér að hnánum en þeim tókst að læsa sig um leggina á mér og ríg halda þar á meðan ég sprikaði um að reyna hrista þær af... Fólk horfðii á mig og fannst þetta fyndið, þar á meðal vinkona mín Kata (mörgæsar-fan númer 1)...
Ætli svona draumur tákni eitthvað...? "Ekki fara á stefnumót í Sædýrasafnið" eflaust...
Á öðrum nótum... Þegar þið hugsið um mörgæsir (það gerist er það ekki?)... þá hugsiði alltaf um þær sem karlkyns er það ekki...? Hafiði ekki pælt í því...?
Posted
5:45 f.h.
by Unknown
Flott... Herbergisfélagi minn var að koma inn með frosið elgs kjöt... Það fraus ekki úti, frændi hans veiddi það og setti í frystinn hjá sér... Veit ekki hvort maður kæmist af hérna ef elgir væri byrjaði að frjósa úti...
Allavega, þá get ég bráðum bætt elg inná lista af dýrum sem ég hef étið... ATH. "Hryggdýr"... ég ætla ekki að fara út í "hryggleysinga" umræðuna enn aftur... (og ekki minnast á sveppi heldur)... Það sem ég held mest uppá á listanum er háhyrningur, höfrungur, gíraffi (aðeins þurrkaður því miður) og kengúra (aðeins þurrkuð þannig líka því miður)...
Ég veit hinsvegar ekki hvernig skal elda elginn... Gæti náttúrulega eldað hann á þessu grill dæmi... Safinn rennur af í lítinn bakka og ég get gert sósu úr því... Svo sem meðlæti hef ég kartöflu-moose (þið vissuð að ég myndi enda bloggið á þessum brandara (annað var óhugsandi))...
Posted
4:14 f.h.
by Unknown
Var að klára að setja saman aðra útvarpsauglýsinu... Þetta var út af ímynduðum safndiski úr hvaða lögum sem er (eins og ég bloggaði um fyrir einhverjum dögum)...
Þetta var náttúrulega Best Of 80's Cartoon Themes:
Lögin sem enduðu á þessum 30 sekúndum voru:
Inspector Gadget
Alvin And The Chipmunks
Thundercats
My Little Pony
She-Ra
GI-Joe
He-Man
Fyrir glögga 80's unnender þá sjáiði að það vantar eitt mikilvægasta lag áratugarins þarna... Jamm, Transformers... Ég gat virkilega ekki fundið það í nógu góðum gæðum...
Að gera Best Of 80's Cartoon Themes án Transformers væri eins og að mála regnboga án þess að nota gulan, rauðan og bláan...
laugardagur, nóvember 22, 2003
Posted
9:17 e.h.
by Unknown
Fékk að sofa vel út í dag... eitthvað sem ég hef ekki gert í langan tíma... ég vaknaði klukkan hálf fjögur...! Klukkan tvö byrjaði herbergisfélagi minn að skrifa sögu sem heitir "Is he dead?"...
Posted
9:02 e.h.
by Unknown
Þetta tók ekki langan tíma... Það er strax búið að sýna eitthvað sem ég gerði í kanadísku sjónvarpi...
Jamm, það sem ég tók upp með félaga mínum á snyrtistofunni fyrir tveimur vikum var sýnt klukkan ellefu í gærkvöldi í einhverjum snyrti þætti... Þetta voru þrjár kellingar... afsakið að ég kalla þær kellingar, en ef þið hefðuð séð þær áður en þær fengu þetta "make-over" þá mynduð þið líka kalla þær kellingar... Allavega, það var einnar mínútu kynning á "make-over" fyrir hverja kellingu... sem sagt þrjár mínútur (you do the math)...
Við máttum hinsvegar ekki taka neina þóknum fyrir störf okkar (skólareglur sem varðar við brottrekstur) því við erum að nota rándýr tæki skólans endurgjaldslaust og þau eru ekki tryggð utan skólaverkefna... Við getum nefnilega undirboðið alla með því venjulega er leiga á svona tækjum dýr...
En fyrst maður er með aðgang að þessu þá verður maður að notfæra (eða misnotfæra) sér það...
Posted
8:30 e.h.
by Unknown
Var að fá fleiri einkunnir fyrir verkefni... Fékk "A" fyrir útvarpsauglýsinguna... Það var hópverkefni en ég var alveg við stjórnina því ég lennti akkúrat með þremur (af fjórum) mestu vitleysingunum í bekknum (nei, ég er ekki einn þeirra)... Þannig þeir fengu sína fyrstu "A" einkunn í ár (eru ekki tvö "n" í einkunn? Einkunn, miskunn, forkunn og vorkunn (veit ekki einu sinni hvað forkunn er))...
Kaldhæðnislegt að lægstu einkunnirnar sem ég hef fengið er einmitt í því sem ég er bestur í... Handritsskriftir... Ég hef fengið "C" og "C-"... en það er vegna stafsetningavillna (verð að prófarkalesa betur (mikið finnst mér "prófarkalesa" skemmtilegt orð... segi stundum prófar-karl-esa)) og svo líka uppsetningavillna því prentarinn færir spássíunar um sentimeter... Hinsvegar gefur kennarinn okkur tækifæri til þess að leiðrétta handritin og skila þeim aftur inn viku seinna til að fá betri einkunn... þannig no overies baby...
Það gæti líka verið að ég er að fá lélegar einkannir í handritsgerð því ég er slæmur og óskemmtilegur penni... Hvað finnst ykkur...?
föstudagur, nóvember 21, 2003
Posted
5:19 e.h.
by Unknown
Ég nota stundum dagbókina á síma mínum til þess að minna mig á ýmis verkefni og svo aðra hluti sem ég verð að gera... Vanalega á síminn að pípa um 10-20 mínútur fyrir atburðin en síminn minn hafði tilhneygingu til þess að pípa sólarhring á undan... Það tók mig tvo og hálfan mánuð að fatta það að síminn var stilltur degi á undan...
Skrítið að ég fattaði það ekki fyrr... Vanalega pípir síminn og ég kíkji á hann: "Aha, taka með stækkunargler og slides skoðara í tímann... um sem er á morgun eftir korter"... eða "Aha, ná í tæki sem ég var búinn að panta til að ná í... á morgun eftir tíu mínútur"... eða "Aha, best að drífa sig í hljóðverið sem ég var búinn að panta... á morgun eftir korter"...
Alltaf hugsaði ég: "Hmmm, sniðugt að síminn minn minnir mig líka á atburðin degi fyrr..." en svo minnti hann mig aldrei aftur á atburðinn þannig ég var sífelt að gleyma öllu...
Ég ætlaði að blogga um þetta í gær...
Posted
4:50 e.h.
by Unknown
Helgi komin... Föstudagshefðin er að fara á skólabarinn eftir skóla og sjá þá einhverja mynd á stóru tjaldi og slaka á yfir einum bjór... Ég veit ekki hvaða mynd er núna í dag en síðast var "Bad Boys 2", mynd sem gefur nýja merkingu á orðinu "Unbelivable" (basicly maður segir "that could never happen" á milli sopa (eða "That´s just stupid"))... Helgin á undan var "Terminator 3", og þar á undan "2 Fast And 2 Furious"...
Í dag er þá eflaust "2 Moronic Hollywood Tripe That Makes Shure Everything Blows Up 4 ever part 3"...
fimmtudagur, nóvember 20, 2003
Posted
2:50 e.h.
by Unknown
Mikið er fólk sniðugt í netheiminum... Alltaf að búa til ný orð og skammstafanir...
Ég var á MSN að tala við gamlan vinnufélaga... Í lok samtals segir maður vanalega "Sjáumst" eða "Heyrumst" því oft passar það að maður sér eða heyrir í manneskjunni næst... En fyrst að ég er í Kanada þá segir hann "Skjáumst"...!
Finnst engum þetta sniðugt... eða er fólk löngu byrjað að nota þetta...? Kanski er þetta ekki nýtt fyrir ykkur...
Ég mun samt aldrei nota "lol"... "haha" dugar mér... nema eitthvað sé mjög fyndið og þá segi ég "hahaha"... eða "HAHA"...!
Skjáumst...
Posted
2:10 e.h.
by Unknown
Alltaf bætast við fleiri skemmtileg verkefni... Fyrir hljóðfræði þá á ég að gera auglýsingu um einhvern safndisk, hvort sem það er ein hljómsveit (t.d. Best Of The Beatles) eða eitthvað tímabil (Best Of The 80's)... Ég náttúrulega vill gera auglýsingu um sígilda tónlist... Best of 80's Cartoon Themes...!
Jamm, karlmannleg lög eins og He-Man, Transformers, Thundercats, GI-Joe of fleiri snilldar þemar... Svo fyrir dömurnar er Care Bears, She-Ra, My Little Pony náttúrulega Rainbow Bright (o.m.m.fl.)...
Allt á einni plötu...! Hver myndi ekki kaupa hana...
Spurning um að gera svo Best of 80's tölvuleikjatónlist... Hver getur ekki raulað upprunalega Pac-Man lagið...?
Posted
2:04 e.h.
by Unknown
Eftir að hafa gengið aðeins einu sinni á "screen door" síðan ég kom hingað, þá hef ég haft varan á þegar ég stíg út um sumar hurðir... Hinsvegar vill ég veita vænt höfuðhögg (eins og ég fékk), manninum sem datt í hug að setja TVÆR glerhurðir plús "screen door" við inn/útganginn... Opna screendoor, opna glerhurð, *bonk*, opna glerhurð, nudda enni, skrifa blogg...
miðvikudagur, nóvember 19, 2003
Posted
3:20 f.h.
by Unknown
Ég sá á einu bloggi að mennskjan var að nota orðið "mexikóskt" í staðin fyrir "mexikanskt"... Það kann að vera að þetta sé rétt íslenska, en það er bara vegna þess að það var virkilega gerð frekar nýleg breyting á orðinu... og af einhverjum ástæðum fór sú breyting verulega í mig því ég ólst upp á einu ásamt restin af þjóðinni, en síðan fer einhver að breyta hvernig ég tala... Þetta er skerðing á málfrelsi... Ég trúi ennþá ekki að þeir breyttu orðinu "mexikanskt" í "mexikóskt"... hvað þá að fólk hlýddi og tók upp þessa fáranlegu breytingu... Það var við lok síðustu aldar sem þetta var gert og þeir gerðu það sama við eitthvað annað land, man ekki hvað það var... Það er hinsvegar ekki séns að ég breyti málnotkun minni...!
Segir maður örugglega ekki ennþá "Mexikani"... eða segir maður *hrollur* "Mexikói"...?
Ekki eru núna "Eistar" kallaðir "Eistverjar"... Það hljómar eins og snyrtilegt nafn á "pungbindi"... eða segir maður "pungverja"...
Posted
2:46 f.h.
by Unknown
Ég heyði að Ísland væri ögrum skorið... Hvað eru agrir...? Er til ein ögr...?
Posted
2:45 f.h.
by Unknown
Varúð... Það er langt og ruglingslegt blogg hér fyrir neðan, aðallega með mikið af staðreyndum og fyrir vikið með lítilli kímni... Þið þurfið ekki að lesa það... Ég skrifaði það bara upp til þess að reyna að skilja það betur sjálfur og sjá hvað er best... og jafnvel til þess að einhverjir snillingar geta sagst hafa skilið það líka og jafnvel komið með lausn...
Posted
1:41 f.h.
by Unknown
Úff... meira ruglið með flugið mitt heim... og ruglingur... Hlutirnir sem flækja þetta er:
1. Ég fór með flugi til New York en svo lest til Toronto þá á ég bara flugmiða tilbaka frá New York (í raun samt Boston)...
2. Af einhverjum fáranlegum ástæðum er ódýra að kaupa flug báðar leiðir en eina þannig ég kem næstum alltaf til með að henda annari leiðinni nema ég finn leið til að nota hana...
3. Það er ódýrara fyrir mig að fara í gegnum London næst...
4. Ég er ekki alveg 100% viss með dagsetningar...
5. Það er ekki alltaf til laust flug þegar ég vill, hvað þá tvö á sama degi því ég verð að skipta um vél...
6. Tímamismunurinn á milli staða og einnig lengd fluganna er erfitt að para líka saman á góðan hátt...
7. Það er ódýrara að fara "fram og tilbaka" London-Toronto heldur en "fram og tilbaka" Toronto-London...
8. Nettilboð breytast á hverjum degi...
9. Ég þarf líka að pæla hvernig þetta passar þegar ég kem aftur í apríl...
10. Því fyrr sem ég kaupi miðana því ódýrari eru þeir þannig ég er líka eiginlega að plana apríl ferðina heim...
11. Ef dagsetningar passa ekki þarf ég kanski að gista í einhverri borg og þá eru aukakostnaðir sem gera skyndilega annan valkost ódýrari...
Þannig að... Einfaldast er...:
A. Ég get keypt "fram og tilbaka" frá Toronto til Boston og notað þá miðan sem ég á Boston-Keflavík heim. Svo kaupi ég "fram og tilbaka" Keflavík-London og "fram og tilbaka" London-Toronto. En ég verð að henda þá Boston-Toronto miðanum sem ég á en kemst klakklaust heim í apríl (hvað er klakk?)...
B. Ég get keypt "fram og tilbaka" frá Toronto til Boston og notað þá miðan sem ég á heim. Fer svo með "fram og tilbaka" miða frá Keflavík til Boston aftur og nota þá Boston-Toronto miðan sem ég á, en þá er ég í nákvæmnlega sömu sporum aftur næst þegar ég fer heim um sumarið. Einnig er MJÖG erfitt að para saman öll 4 flugin...
C. Ég geymi Boston-Keflavík miðann og kaupi "fram og tilbaka" Toronto-London og svo "fram og tilbaka" London-Keflavík svo á leið í skólann aftur fer Keflavík-London, London-Toronto, en að finna flug sem passar þannig er MJÖG erfitt.
D. Ég geymi Boston-Keflavík miðann og kaupi "fram og tilbaka" Toronto-London og fer svo eina leið London-Keflavík og hendi London-Toronto, því það er mun ódýrara að kaupa NÝJAN miða sem er "fram og tilbaka" London-Toronto heldur en að nota þann í valkost B og þannig fer ég svo Toronto-London og London-Keflavík heim.
Leið A er lang lang einföldust, virkar best og skila mér fljótlegast heim... Leið D er að ég held aðeins ódýrari (ekki munar samt miklu)... Í báðum tilfellum verð ég að helda helmingi af "fram og tilbaka" miða og ætli maður verði ekki bara að sætta sig við það... Um sumarið þegar ég fer aftur fer ég hvort sem er "fram og tilbaka" Keflavík-London-Toronto og eins heim um jólin því ég er alveg viss um að það er ekki lest frá London til Toronto...
The End... Ég vona að ef þið nenntuð að lesa þetta að þið séuð núna eins rugluð og ég... Nema þið vitið betri lausn... Einkaflug einhver...?
þriðjudagur, nóvember 18, 2003
Posted
11:00 e.h.
by Unknown
Er kominn á mjög tight budget... Mikið af framköllun og filmukaup er að skerða á næringu mína... Þarf að finna svona Bónus búð nálægt hér sem heytir No Frills sem á að vera svaka ódýr... Samt, á því sem fólk segir hér, þá virðist Bónus vera eins og lúxus kjörbúð miðað við No Frills...
Fólkið á kvikmyndatökunni um helgina notaði No Frills til þess að næra tökuliðið... Það er hægt að fá náttúrulega niðusuðuvörur (aldrei hægt að borða of mikið af túnfiski)... en þau keyptu svo nokkur bréf af samlokukjöti fyrir okkur og það er eitthvað sem ég ætla að sniðganga í þessari búð...
Kjúklingaskinkan smakkaðist eins og kjúklinga Meatloaf kjötið.
Kjúklinga Meatloaf kjötið bragðaðist eins og svínaskínkan.
Svínaskinkan smakkaðist eins og spægipylsan.
Spægipylsan smakkaðist eins og Play-Doh leir...
Ætli sé ekki bara jafnvel enn ódýrara að kaupa bara Play-Doh leir... Það er fyrir löngu búið að gera hann ætilegan ef börn skyldu "óvart" éta hann... svo get ég mótað hann eins og samlokan þannig ekkert umfram flæðir útfyrir brauðið, sem mér finnst einmitt eyðsla á kjöti...
Posted
6:30 f.h.
by Unknown
Bætti inn tveimur bloggurum núna... og tók út einn... "Hjalti DK" hlekkurinn er farinn því Hjalti er í Sviss og félagar hans sem voru líka að blogga þar eru komnir til Íslands og eru þar með sitthvort bloggið... Þetta er sem sagt Gauti og Geir, verkfræðingar með meiru... Menn sem ég hef ósjaldan súpt öl með en það er samt sjaldnar en maður hefði óskað (meikar þessi setning einhvern sence)...
En ég var allt í einu að átta mig á því að ég veit ekki hvernig verkfræðingar þeir eru (véla, iðnaðar, rafmagns, tölvu, umhverfis, byggingar, matreiðslu, hjólbarða, (the list goes on)?)... Kannski vilja þeir ekki fá þennan stimpil á sig..
mánudagur, nóvember 17, 2003
Posted
10:39 e.h.
by Unknown
Sko mig... Var að leika mér í Photoshop fyrir helgi, fyrir keppni á Worth1000 heimasíðunni... Maður átti að taka einhvern mat og stækka hann verulega á mynd... Ég teiknaði bara drauminn minn og var næst hæstur í keppninni... Að vísu lagði ég ekkert undir þannig ég fékk engin verðlaun, bara stjörnu (eins og í grunnskóla þá)...
Þið getið séð myndina hér... Ef þið þekkið mig eitthvað pínu þá vitiði strax hver er myndin mín...
Posted
7:34 e.h.
by Unknown
Góð helgi í Toronto... mikið unnið... Var kominn á hádegi á tökustaðinn á kvikmyndinni "No Rest For The Wicked"... það var hinsvegar "Much Rest For The Crew" því mér fannst fólk ekki vinna sérlega hratt... Þetta voru hinsvegar skemmtilegar tökur og gott andrúmsloft, þó svo það þykknaði oft í því sökum "take-out" mat frá Íran... Segjum bara sem svo að ef Íran tæmir einhvern tíman olíubyrgðir sínar þá er alltaf framtíð fyrir þeim í að framleiða gas með þessum síður en svo ágæta baunarétti...
Við vorum að taka upp alla helgina slagsmála atriði milli aðalhetjunar sem heitir Hero og aðal vonda höfuðpaursins sem heytir Boss (original ehe?)... Hetjan var leikin af frönskum áhættuleikara en Boss var leikinn af stórum Wrestling/Kung-Fu gaur... Stóri gaurinn var með meiri vöðva í litla putta en í öllum heila hans... Basicly, þetta er í eina skiptið sem ég leiðrétti ekki manneskju sem segir: "Iceland? Isn't that inside Amerika?"
Ég vissi hinsvegar ekki að áhættuleikar "vældu" svona mikið um hvort eitthvað myndi meiða þá... Stóri jakinn var meira segja lofthræddur og hristist og skalf þegar hann var kominn í þriðju tröppu í stiga... Þeir brutu að vísu flösku á hausnum á einum, stól á bakinu á öðrum og svo skelltu svo þeim fyrsta á bakið í gegnum borð... Stóri keyrði síðan þann litla að vísu hálfa leiðina í gegnum vegg en það varð óvænt viðbót við framleiðslukostnaðinn framleiðandandum til mikillar skelfingar...
Við tókum upp í marga tíma á laugardeginum, gistum á tökustað og tókum svo aftur upp frá morgni fram eftir miðnætti... Mjög gaman og maður lærði mikið... Hápunkturinn fannst mér hinsvegar þegar ég fékk að skjóta Kínverja þvert yfir herbergið með því að rífa í reipi sem var fest í loftið og svo í bakið á honum... Það kom ekki bara kvellur þegar þessi Kínverju sprakk heldur hljómaði hann líka sem íla...
Posted
11:47 f.h.
by Unknown
Var að koma loksins heim klukkan 6:30 eftir langa kvikmyndatöku alla helgina í Toronto... Ég segi meira frá þessu seinna... Núna sit ég í miklum vandræðum með að ákveða mig... Hvort á ég að fara í sturtu fyrst og svo leggja mig, eða leggja mig og fara í sturtu þegar ég vakna... Báðir kostirnir eru mjög góðir og ég er spenntur að framkvæma þá...
Af hverju sit ég þá hérna eins og hálfviti og er að blogga...
föstudagur, nóvember 14, 2003
Posted
7:39 e.h.
by Unknown
Dagskrá helgarinnar... Fer aðeins út í kvöld en ekki lengi... verð nefnilega að koma mér snemma í fyrramálið til Toronto til að aðstoða við kvikmyndatöku hjá annars árs nemum... Þeir eru að gera svona slagsmálamynd þar sem fólki er kyppt upp í snúrum og svoleiðis... Þetta verða langar tökur og við gistum eflaust á tökustað... Svo er haldið áfram á sunnudeginum og komið heim um kvöldið... Þetta verður því síðasta bloggið fyrir helgi...
... nema náttúrulega ég sest niður í nótt og steypi eitthvað undir áhrifum skáldamjöðsins...
Góða helgi og lifið heil...
Posted
6:57 e.h.
by Unknown
Damn... ég var með hugmynd að svo sniðugu bloggi en er núna búinn að gleyma henni því ég komst ekki strax í tölvuna... Segið bara "Hahaha, þetta hefði verið sniðugt..."
Posted
1:12 f.h.
by Unknown
Var að horfa á nýjustu seríuna af Friends... Síðasta sería byrjaði mjög vel en dalaði í endann... Þessi sería var döluð (ef það orð er ekki til, þá er það til núna) þegar hún byrjaði og er ennþá á leiðinni niður...
Fólk sem ég vill skjóta: Monica og Rachel...! Mér hefur langað að skjóta Monicu MJÖG lengi og þá sérstaklega eftir að hún giftist Chandler, því hún er bara verið leiðinleg tík (vægt til orða tekið) og ég vorkenni Chandler með allt sem hann þarf að þola. Rachel hef ég líkað ílla við síðan "We were on a break" dæminu en eftir að hún eignaðist barnið þá er hún alveg hræðileg... Hún er sívælandi, ofverndandi tík...
Fólk sem hefur staðið í stað er Ross og Pheobe... Það er eins og það sé búið að skrifa alla brandara þeirra áður og það er ekkert nýtt...
Fólk sem maður hlær minna af er Chandler því hann er kúgaður...
en... Guð blessi Joey...! Hann blómstrar í hverjum þætti og er alltaf hápunkturinn... Ef einhver á skilið "spin-off" þátt þá er það hann... Go Joe!
fimmtudagur, nóvember 13, 2003
Posted
4:22 e.h.
by Unknown
Ég er búinn að eiga erfitt með að sofa á næturnar síðustu daga þrátt fyrir þreytu... Þegar þetta byggist up þá er skammt í svefngalsan... ef þetta heldur áfram mikið lengur þá er næst stutt í geðveiki...
Hér er tölvupóstur sem ég skrifaði öllum í bekknum mínum í nótt út af fundi, sem sýnidæmi um svefngalsa (...þetta gæti líka verið mark um geðveiki)
To: Mixed Studio Class
Subject: Meeting for Christmas show...
Fala lala la lala la la
OK good people of the mixed (up) studio class... We (me and you (plural)) will have a meeting Thursday November something or other (can't be bothered with numbers) at 18:00 (= 6:00 PM for those who can't tell a 24 hour clock) at the caffiteria...
We will be discussing (or arguing (hopefully not though)) about ideas for the upcoming Christmas show... The main thing is we're going to deside on a format, be it two 7 minute segments or one 14 minute segments... we could do 14 one minute segments, but that would be ridiculus... When the format is ready we'll deside one or two ideas for the show BUT (I said butt, hehe) they must be in some way connectable.
You can skip the meeting if you want, if you totally belive in the creative talents of the people who drag their ass (I said drag, hehe... no wait, ass hehe) to these meetings.
So I hope to see you tomorrow, or um technically later since I'm writing this at 4:00 (or 4:00 AM for those who can't tell a 24 hour clock) (unless you're also awake now and check your e-mail a few minutes after I sent this mail and then go to sleep like me) and you probably won't get this mail until a few hours before the meeting (only 14 hours til we start from now (not now you reading, now me writing))...
Best regards,
Raggy (or just "Iceland" for those bad with names (or "Cold isolated island by the artic circle" for those bad with countries (or "Foreigner" for the really stupid ones bad with geography also (not to be confused with the 80's music band Foreigner who did some exelent songs like I Want To Know What Love Is, Waiting For A Girl Like You and Cold As Ice (Iceland?))))
P.S. You're probably wondering why I am writing this e-mail at 4 in the morning (Hey! It's 4:30 now!), well... don't wonder... I'm the one who should actually be wondering why I am still up and I'll do so as soon as I send this e-mail.
P.P.S. Please excuse the ammount of the "what'cha'ma'call'it" thingies I use in this letter (<-like these->)... Aren't they called colons (or isn't that part of the digestive trackt?)? I keep confusing them with "parenthesis"... This e-mail is rated P.G. (Parenthal Guidance needed)...
P.P.S. Good night/morning...
Posted
4:12 e.h.
by Unknown
Ég er orðin háður "snooze" á vekjaraklukkunni (sem sagt símanum mínum)... Ég snooza samfleytt í 50 mínútur á hverjum morgni... Ég var hinsvegar að finna frábæra leið til að rífa mig upp strax... Ég bjó til skemmtilegan leik sem ég vill kenna ykkur... Ég ætla að ústkýra hann núna...
Da dada da da da Dahhhhh...
The Wake Up Game Reglur: You snooze, you lose...
miðvikudagur, nóvember 12, 2003
Posted
8:04 e.h.
by Unknown
Sökum andúð minnar á Macintosh þá vill ég skrifa hér gamlan brandara sem ég er ekki viss hvort ég hef skrifað hér áður. Macintosh er nefnilega skammstöfun eins og B.M.W. (Big Money Waste)...
M.A.C.I.N.T.O.S.H. =
Machine
Always
Crashes,
If
Not
The
Operating
System
Hangs
Posted
8:03 e.h.
by Unknown
Ef það er eitthvað meira pirrandi en að vinna á Macintosh þá er það hvernig Macintiosh og PC vinna ílla saman... Einfaldir hlutir fara til fj*ndans þegar maður yfirfærir eitthvað... Ég var að skrifa tveggja blaðsíðna handrit á Macca mínum... og með handrit þarf allt að vera 100% varðandi spássíur og staðsetningu á mismunandi liðum, hvort sem texti um aðgerð, tal, nafn manneskju eða staðsetningu er að ræða... Ég set allt fullkomnlega upp á vélinni minn... svo sendi ég skjalið í tölvupósti til sjálfs míns og opna það á PC vél sem er staðsett hjá prentara... Ég prenta allt út og allt virðist í góðu... Hinsvegar þegar ég athuga betur, þá er PC vélin búinn að henda spássíunum til og frá og einnig af einhverjum fáranlegum ástæðum búinn að taka út allar úrfellingarkommurnar í samtengdum orðum... I dont belive it! Theyre stupid machines...
Posted
7:50 e.h.
by Unknown
Var í allan morgun að taka ljósmyndir fyrir "Hvernig það er fyrir MIG að vera í háskóla"... Mikið af myndunum tengist að vera "the odd one out"... eitthvað eitt sem stendur út í hóp af mörgu... Ég fór t.d. í barnaskóbúð og raðaði fullt af litlum barnaskóm saman en setti svo minn strigaskó í hópinn... Sniðugast fannst mér að vísu þegar ég raðaði heilum kassa af FAXI bjór á gólfið þannig allir snéru eins, nema einn bjórinn var FAXI Extra Strong 10% (sem er algjör viðbjóður að vísu á bragðið)... Gott að ég hendi aldrei út tómum bjórdósum... Spurning um að fara búa til einhverjar mublur úr þessu næst...
Posted
7:41 e.h.
by Unknown
Nýr bloggari á listanum... Kalli frændi... Hann er systkinabarn Orra frænda og Orri og ég erum systkinasynir... Þetta skiptir kanski ekki miklu máli, en Íslendingar eru svo obsessed af ættfræðinni þannig ég skrifaði þetta fyrir komandi kynslóðir sem grafa upp bloggið mitt eftir hundruðir ára og eru að reyna að setja saman ættartré...
Bloggið skrifaði Ragnar úr Gróf, sonur Eyþórs, sonur Ólafs, sonur Ólafs...
Posted
2:02 f.h.
by Unknown
Lindy frændi var að hringja og biðja mig að taka upp fyrir sig til gamans myndband við eitt nýtt lag sem hann er að gefa út... Ég á að gera myndband við auka útgáfu á rosa góðu lagi sem hann er núna búinn að láta útsetja með strengjakvartett... Það vilja ALLIR í kringum mig leikstýra tónlistarmyndbandi þannig ég hef nóg af aðstoðafólki... Þetta á að vera í hálf dularfullum stíl og mun ég skjóta stóran hluta þess heima á Íslandi um jólin... svo tek ég hann upp hérna í Kanada í snjónum til að láta líta út eins og hann er á Íslandi...
Nú er bara að vona að það sé einhver snjór á Íslandi þessi jól... Síðasti vetur var svo svakalega mildur, að ef hann væri ostur, þá væri hann Kotasæla... Fínnt að fá svona Camenbert styrkleika í ár... Vill ómögulega lenda í gráðosti eins og vetur 2000...
Posted
2:02 f.h.
by Unknown
Þurfti að láta skólann skrifa undir eitthvað skjal sem ég fékk sen frá L.Í.N. vegna skólagöngu minnar... Mikið er erfitt að láta skrifa undir eitt lítið bréf... Fyrst fer ég á skrifstofuna og þau skrifa undir eitthvað smá en segja svo að ég verð að fara annað fyrir upplýsingar sem vantaði... ég fer þangað og fæ þá að vita að ég á að fara á annan stað til að ná í upplýsingarnar... svo fæ ég upplýsingarnar og er beðin um að fara á annan stað fyrir síðasta liðinn en það var á sama stað og ég byrjaði... ég fer þangað og læt fylla inní einhverja reiti en verð svo að fara annað til að setja undirskrift og stimpla...
Ég fer að slíta skónum mínum bráðum...
Posted
1:41 f.h.
by Unknown
Var í allan dag eftir skóla að taka upp smá myndband með félaga mínum Chris (sá sem kann ekki á 24 tíma klukkuna)... Hann tók að sér að taka upp "make-over" fyrir einhverja litla snyrtistofu og vantaði mig sem aðstoðamann til að þetta kæmi fagmannlega út... Þegar komið var á tökustað breyttust hlutverkin og ég sá um að stjórna öllu því ég hef gert svona margsinnis áður (fyrirtækjakynningar, ekki make-over)... Myndbandið verður bara mínúta en maður getur fengið aukapunkta í skólanum fyrir að gera svona hluti... Ég græddi þannig aukapunkta og Chris fékk meiri reynslu... Bráðum samt verð ég að leyfa honum að fara af spenanum og standa sig á eigin fótum... sama gildir um hina kálfana hér... *snökkt* Þau vaxa svo hratt úr grasi...
Posted
9:59 e.h.
by Unknown
Svei... Pirrandi að vera svangur en samt alveg lystalaus... Það er eins og að vilja hnerra en geta ekki blásið frá sér...
Posted
8:27 e.h.
by Unknown
Við vorum að horfa á eldgamla heimildarmynd frá 1922 í svart/hvítu (náttúrulega) án tals (náttúrulega x2) sem heytir Nanook Of The North... Þetta er heimildarmynd um inúíta og er sögð vera fyrsta mannfræðilega heimildarmyndin í fullri lengd...
Myndin byrjar á því að Nanook kemur á kanó úr selskinni... Ég sem brandarakall segi náttúrulega: "Hey, just like home... I used to go like that to school..."
Viðbrögðin finnst mér fyndari en brandarinn því ég heyrðu suma spyrja "Really?" eða "Seriously?"...
Ég verð að fara spila Trivial Pursuit við þetta fólk... I really need a good laugh these days...
Posted
7:46 e.h.
by Unknown
Er í tíma sem heytir The Language Of Movies... Við sitjum þar í týpískum fyrirlestrar sal sem hallar fram eins og í bíó og neðst er náttúrulega kennarinn og kvikmyndatjald... Við vorum með kennara sem leit eðlilega út þegar maður sat uppí salnum, en svo þegar maður kom niður til hans, þá var hann risa stór... "huge" væri rétt til orða tekið...
Við vorum hinsvegar að fá nýjan kennara til að taka við kennslunni því hin er upptekin það sem eftir er af árinu við einhverja kvikmyndagerð... Nýji kennarinn var lágvaxin fyrir... Þegar maður situr í salnum er hún dvergvaxinn... í raun minni en það... manni finnst hún vera týnd í regnskóginum sem við köllum gólfteppi...
Svo vill fólk kvarta yfir því að vera komin með nýjan kennara... ekki það að nýji kennarinn sé lélegur (sem hún er ekki), fólk bara segir það rugla sig eða það þarf að venjast nýjum kennara... persónulega held ég að þetta sé bara afsökun hjá fólki sem er ekki að standa sig vel... Hver getur ekki sætt sig við að einhver annar kennir fagið...?
Sem talsmaður bekkjarins á ég að sjá um að kvarta fyrir hönd kennarans... og ég er einn af þeim fáu (jafnvel sárafáu) sem hafa ekkert að kvarta yfir... Það er eins og að biðja grænmetisætu að kvarta yfir að nautakjötið sé doldið seigt...
sunnudagur, nóvember 09, 2003
Posted
2:46 f.h.
by Unknown
Svei...! Mikið er ég pirraður út í þessa mynd...! Ég fór að sjá The Matrix Revelution...! Bjakk!!! AAaargh! Ég skil ekki af hverju hún gerði mig svona pirraðann... Hún bara... uuuurgh! Hún var spennandi á tímabili... en... Mér langar að skrifa almennilega gagnrýni en vill ekki eyða vel völdum orðum í hana... ég kýs frekar að urra og ummla... UUUrgh!!!
The End!
laugardagur, nóvember 08, 2003
Posted
6:24 e.h.
by Unknown
VARÚÐ: Annað "monnt" blogg...
Í gær hitti ég einhverja gaura sem eru í öðrum bekk en ég í náminu mínu og ég hafði aldrei talað við þá áður. Þeir sögðu náttúrulega: "Hey aren't you that Icelanic guy"... Svo sögðu þeir að tölvukennarinn hafði verið að tala um mig og það sem ég hafði kennt honum. Síðan kenndi hann restina af bekkjunum mína tækni... cool ha...?
... end "monnt"!
Posted
6:24 e.h.
by Unknown
Ég skar mig á túnafiskdós... hefði þetta ekki verið skiljanlegra hefði þetta verið sverðfiskur...?
Posted
5:28 e.h.
by Unknown
Var að lesa þessa frábæru grein um krakka sem voru látin spila tölvuleiki sem við (ef þið eruð á mínum aldri) spiluðum og ólumst uppá... Þegar ég var krakki voru þessir leikir snilld... Úr stórum og fáum punktum sá maður virkilega persónur og hluti... Krakkar nú til dags eru með ótrúlega grafík, allt er raunverulegt og fjölbreytileikinn í einum tölvuleik er ótrúlegur... Leikirnir í "gamla daga" (að heyra í mér) voru bara endurtekningar á sama tilganginum aftur og aftur og aftur....
Að leggja þetta á krakkana að spila þessa gömlu leiki er svo fyndið... kíkið á þetta...
föstudagur, nóvember 07, 2003
Posted
7:25 e.h.
by Unknown
Í dag kom kona að þrífa herbergið... Hergbergið þarf samt að vera sæmilega hreint annars hreinsar hún það ekki (það er eins og það væri bannað að fara í bað nema þú værir þegar blautur)... Við tókum því allt af eldhúsborðinu og vöskuðum upp og svo hreinsuðum við til í baðherberginu... Konan kemur þá og skúrar vel herbergin og hreinsar innréttingarnar... Svefnherbergin þurfum við sjálfir hinsvegar að hreinsa...
Það er hinsvegar eitt sem mér finnst frekar merkilegt (og heimskulegt (margt sem er heimskulegt er merkilegt (merkilegt er það ekki?)))... Í hvert sinn sem hún hreinsar vaskinn, þá tekur hún alltaf matarleyfarnar sem sitja eftir í botninum og skoluðust ekki stax niður eftir uppvask (nokkrar pastaskúfur, flys af grænmeti, baunir, hrísgjós o.s.frv.) og setur þær á litla skál á eldhúsborðinu... Heldur hún að maður mun virkilega borða þetta... eða kanski hluta þess...? Erum við að marenera þetta í gamalli fitu og uppþvottalegi...? Ég verð bar aða skilja miða sem segir: "If you know someone who wants this, take it... be my guest..."
Posted
2:15 f.h.
by Unknown
Í dag var International Potluck dinner þar sem erlendir nemendur komu saman með mat, oftast frá heimalandi sínu... Ég var í tímum í allan dag og hafði ekki tíma til að elda neitt þannig ég kom bara með eftirlætismat flestra íslenskra barna og tölvunörda... sem sagt pízzu og vakti það mikla ánægju meðal matvondra... Svo var doldið kaldhæðnislegt að akkúrat daginn áður en ég heyrði af þessu þá kláraði ég bæði harðfiskinn og íslenska nammið sem hefði verið fullkomið þarna...
Þetta var frekar rólegt kvöld og fólk var ekki sérlega mikið að blanda fyrir utan heimsálfur sínar (fyrir utan mig því ég hafði hitt flesta áður)... Náttúrulega gáfulegri hugmynd hefði verið að láta fólk koma með áfengi úr heimalandi sínu... Sendið þessa hugmynd áfram til Sameinuðu Þjóðanna...
Posted
1:49 f.h.
by Unknown
Smá mont blogg (eins og svo mörg önnur)... Annar Photoshop tími í dag... Núna vorum við að vinna í að laga gamlar myndir... Svo kom einhver með eina útjaskaða mynd sem kennarinn var að sýna okkur hvernig átti að laga hana... Það var samt einhver svaka slykja sem hann var í veseni með og hann sagði: "Well, maybe I'll bring in a professional someday to show us how to do this"... Ég sagði: "I know a little trick..." þannig ég var látinn taka við kennslunni og kláraði myndina á mettíma...
Ég bara vona að fólk hafi lært eitthvað af mér... Ég heyrði bara í kringum mig: "So I right click what...?", "Do what where?", "Your mouse is a blur" og "I tried that but my comptuer exploded..."
fimmtudagur, nóvember 06, 2003
Posted
4:17 f.h.
by Unknown
Fékk 90% úr ljósmyndaverkefni sem ég gerði á sama tíma og annar félagi minn... hann fékk hinsvegar bara 50%... Þetta var æfing í birtumælingu og svo í "framing" sem kallast eflaust þá "römmun"... Við notuðum hvorn annan sem viðfangsefni en gerðum mjög ólíkar myndir...
Þá byrjaði hann að kvarta við mig...: "We took these pictures together at the same time but you get much more"... Þá svara ég spekingslega: "If we break wind together at the same time, does your's smell worse?"
Maður verður að úskýra allt á mannamáli...
miðvikudagur, nóvember 05, 2003
Posted
8:02 e.h.
by Unknown
Þokkalegt... Það er ein hópur af eldri (náttúrulega ekki eldri en ég) nemendum sem eru að gera eina svo rosa flotta mynd að það er biðröð um að fá að koma og aðstoða þá... Þeir eru að nota svona "ropework" eins og í slagsmálamyndunum... sem sagt þetta er slagsmálamynd... og allir vilja vera með... En í dag gékk höfuðpaurinn bak við myndina til mín og bauð mér að koma til aðstoðar yfir helgina þannig ég skaust fyrir framan fullt af öðru fólki og fæ að vera með... Fyrir utan skemmtanagildið bak við þetta fæ ég líka auka punkta í einkun í einum áfanga, læri mikið af tækninni og hvernig annað árið hér verður... Þetta er svona win-win-win-win situation... Það eru örugglega til einhverjar góðar hliðar við þetta...
Posted
7:35 e.h.
by Unknown
Er að fara til Toronto i kvöld í skoðunarferð um T.V.O. (TV Ontario (Tele Vision Ontario)) með bekknum mínum... Þarf því að vera "lengur" í skólanum því ég tel lestarferðina þangað sem auka kennslustund... Það er að vísu bara hálftíma ferð en safnast þegar saman kemur... við ætlum einmitt að safnast saman þegar við saman komum nokkur í bekknum til að fara samferða... Eitt sem ég hef séð með þessar lestarferðir fram og tilbaka er að meira en stór helmingur (um, er eitthvað til sem heitir stór helmingur? Þá væri eflaust hin helmingurinn ekki líka stór og þar af leiðandi ekki helmingur (en látum þetta standa í bili)) af fólkinu í lestinni (nema lestarstjórinn (að vísu ég hef aldrei séð hann þannig ég veit það ekki)) sefur á leiðinni... og enginn virðist missa af réttu lestarstöð sinni... Fólk er búið að þróa hér innbygða lestarstoppistöð vekjaraklukku... Ég hef séð fólk koma í lestina, stein rotast á tveimur sekúndum eins og það hafi verið slegið í höfuðið eða horft á Nágranna og svo vaknað nokkrum stöðvum í burtu um leið og lestin stoppaði á réttum stað...
Ef ég myndi gera þetta myndi ég vakna á landamærunum... og eflaust bara vegna drunanna í Niagra Fossunum (eða er það eintala (Niagra Fossinum))...
Fólk gerir þetta meira segja í örstuttum ferðum í neðanjarðarlestunum... Spurning samt: "Ef neðanjarðarlestir eru ekki alltaf neðanjarðar, á að kalla þær bara lest?"... Á sömu nótum, á þá að kalla Subway bara Way?
Posted
7:30 e.h.
by Unknown
Bætti við einum bloggara á listann hjá mér... Það er Orri frændi (sem sagt frændi minn, fannst að ég þyrfti ekki að taka annað fram)... Hann er úr föðurætt þannig þið getið kíkið á hann og séð hvort vitleysan sem ég virðist láta frá mér hér sé arfgeng...
þriðjudagur, nóvember 04, 2003
Posted
8:49 e.h.
by Unknown
Vorum að æfa okkur í morgun í að taka upp fréttafluttning í sjónvarpsveri (hmmm, mun fljótlegra að sjónvarpsver frekar en sjónvarðsstúdíó, losna við að gera þessar kommur á alla sérhljóðana (úíó)). Við höfðum náttúruelga engar fréttir og var ég því beðinn um að skrifa eitthvað því ég er svo fljótur að semja. Off the top of my head kom þessi grein sem við fluttum.
In international news:
Chinese scientists, in an effort to save the pandas, have decided to mate them with penguins.
A spokesperson for the panda penguin project said that since the pandas are so lazy about mating with each other, adding some frisky flightless birds that dress similar might be a boost in the reproduction.
The main reason penguins are used is also to keep the same black and white colors on the animals.
When asked why they didn’t use zebras to keep the colour, the Chinese scientist quoted: “Well, using penguins is just so damn funny.”
Posted
8:35 e.h.
by Unknown
Lindy frændi gaf mér um helgina eitt glænýtt par af buxum og eina nýja skyrtu sem passaði ekki á hann... Hann notaði víst bara bæði fötin einu sinni en svo hljupu þau í þvotti... Þvílík tilviljun... Fötin pössuðu akkúrat á hann... svo hlupu þau í þvotti og pössuðu akkúrat (og ég meina AKKÚRAT, eins og sérsniðið) á mig... Þannig hlutfalslegur stærðarmunur á okkur er bara einn þvottur í burtu... Spurning um að skella Lindy sjálfum aðeins of lengi í þurrkara svo ég þarf ekki altlaf að góna svona uppí loftið...
Posted
5:07 f.h.
by Unknown
Góð leið til að byrja vikuna... Við fórum nokkrir strákar úr bekknum mínum eftir kennsludaginn á Monoghan's kránna hér á móti því það er Chicken Wing Night eins og ég hef minnst áður á... Svo var setið lengi og rabbað yfir smá bjór, fullt af vængjum og billjard... Þetta er í raun fyrsta skiptið sem næstum allir drengirnir í bekknum hanga saman eftir skóla því fólk býr svo langt í burtu... Nú er stefnt að því að gera þetta að föstum lið...
P.S. Brandarinn að lauma einum fáranlega sterkum væng inní hrúguna hjá þeim sem er með þá daufustu er mjög fyndinn...
Posted
4:35 f.h.
by Unknown
Mikið er ég hissa á lestrarhæfileikum á fólkinu í bekknum mínum... Fólk er stundum að lesa upp einhverjar greinar en svo koma einhver orð sem virðist alveg standa í fólki eins og í dag þegar fólk gat varla lesið orðin "Physiology", "Sociology", "Phychology" og "Affiliations" og skildu ekki heldur orðin... Þau eru jú sum 17-18 ára (fólkið, ekki orðin) en þegar ég var á þessum aldri þá... um... OK! Ég ætla að fara af þessari braut... ég trúi ekki að ég sé að nota setninguna: "Þegar ég var á þessum aldri"...
Posted
4:32 f.h.
by Unknown
Lærði í dag að ekki allar lyftuhurðir opnast aftur þó svo þú skutlar þér og rekur löppina inní... Hef líka lært að það er fljótlegra að bíða á sömu hæð eftir að skórinn þinn kemur aftur til þín frekar en að elta hann á milli hæða...
sunnudagur, nóvember 02, 2003
Posted
10:38 e.h.
by Unknown
Fór á laugardeginum í íslenskt boð og svo á tónleika... Meðalaldurinn á Íslendingunum virðist vera 85 ára... Margir eru Vestur-Íslendingar en aðrir hafa búið hér í 50 ár plús... Tungumálið sem var ríkjandi verð ég að kalla Ísl/ensku... mjög skrítið... Tónleikarnir voru svo mjög góðir... hef lært það að það er allt of mikið af góðum tónlistarmönnum hér að gera allt of góða hluti en samt virðast ekki ná að "meika" það... Hljómsveitin hér The Flints... ég mælti með að þeir yrðu upphitunarhljómsveit fyrir Rolling Stones... þá væri hægt að hafa The Flints/Stones tour... Góð lög sem þeir voru að spila... I'm An Idioy Savant hét eitt... I'm an idiot savant, if that's what you want. I'm an idiot savant, without the savant part... Er að vísu með hálsríg núna eftir að hafa skemmt mér með Lindy... Hann er 205 á hæð og félagi hann var að skemmta sér með okkur og hann er jafn hár... mér leið eins og dvergi (ég veit samt ekkert hvernig dvergum líður, er bara að ímynda mér það)... Ég varð að horfa uppí loftið allt kvöldið til að tala við þá... Á svona stundum vona ég að háir bítlaskór koma aftur í tísku...
Posted
10:37 e.h.
by Unknown
Ég vissi ekkert hvað ég ætlaði að vera á föstudaginn og ákvað að gera leit í stórborginni að búning... Ég var til í að vera næstum hvað sem er... NEMA... eitthvað með skegg...! Ég var John Lennon einu sinni með alskegg og varð að drekka bjórinn með röri... Svo var ég Super Mario með þykkt yfirvaraskegg sem fór alltaf í bjórinn líka... Á föstudaginn var ég hinsvegar.... THE HULK...!!! Ég keypti grænann farða sem ég málaði mig næstum allan... ég var náttúrulega með sundskýlufar... Svo var ég í rifnum og tættum buxum og skyrtu... Það leit út fyrir að það myndi rigna og ég var þá hræddur um að málninginn myndi hverfa og ég yrði bara röndóttur í rifnum fötum... en það voru óþarfa áhyggjur því að... ATH! MUNA VEL: Vatnsheldri málningu er fáranlega erfitt að ná af sér!!! Ég fór í sturtu þegar ég kom heim um nóttina en krumpaðist úr hlátri þegar ég leit í spegilinn um morguninn... ég var flekkóttur eins og grænn dalmatíuhundur... Tók aðra LANGA sturtu... með uppþvóttalög og uppþvottabursta... náði "mesta" litnum af... ég er samt ennþá grænn á sumum svæðum... jamm, ennþá...
Posted
9:42 e.h.
by Unknown
Gaman að sjá að gatnakerfi í Toronto hefur kímningáfu... Það eru á hraðbrautunum ljósa skilti sem skrifa alltaf mikilvæg skilaboð eins og "Highway 410 reduced to 2 lanes" eða "405 moving slowly"... Á föstudaginn á leiðinni í borgina fékk stóð á skiltunum "Watch out for Goblins, Witches and Demons on the road." Snilld...