Posted
12:14 e.h.
by Unknown
Jæja góðir gestir... Þetta verður síðasta bloggið mitt fyrir ferðina... Það er svo rosa rosa mikið sem ég verð að gera að ég kemst ekki í að blogga aftur... Ég kveð því ykkur og hveð fyrir ykkur núna, þangað til ég sest aftur við einhverja tölvu, líklegast fimmtudaginn 3. júlí eflaust emð einhverjar skemmtilegar sögur... Fyrir ykkur sem verðið á Hróarskeldu þá þekkiði mig á fánanum...
Kanski áttu á því von að ekki er allt með feldu. En elsku Ragnar Eyþórsson er á Hróarskeldu!
Lifið heil, góða helgi, viku, aðra helgi og hluta úr viku... Bless bless...
Posted
11:07 f.h.
by Unknown
Ég var að fá nýjann/gamlann ísskáp í gær (eða gamlann/nýjann)... Þið munið kanski eftir því í síðasta mánuði þegar ég sagði frá því að ég var að hjálpa bróðir mínum með ísskáp... og um vesenið sem við lentum í... allavega þá var það í síðasta mánuði... eiginlega akkúrat 30 dögum síðan... Í gær fékk ég ísskápinn hans gamla heim til mín... 30 dögum eftir hann tók hann úr sambandi... Það er margt sem getur gerst á 30 dögum... Það gerðist að vísu bara eitt í ísskápnum á þessum tíma en mikið af því... Það var eins og að horfa inní mosagróinn helli að opna ísskápshurðina... Ísskápurinn var myglaðari en gráðostur eftir fimm ára sólbað... Eftir að hafa hleypt af nokkrum skotum af haglabyssu inní ísskápinn til að vera viss um að lífið þarna var dautt, hjakkaðist ég á öllu með steikarahníf (maður getur aldrei verið of viss með svona óþekktar lífverur)... Svo loksins hófst ég handa við að þrífa hann... Það var heljarinnar verk og mjög langdregið... en eftir langan tíma, mikið búl og eftir að slaghamarinn bræddi úr sér og logsuðutækið bráðnaði af eigin hita þá var ísskápurinn tandur hreinn og tilbúinn að taka við matnum mínum... sem var náttúrulega næstum enginn... nema þú telum með hálf fata af dijon sinnepi, leifar af gömlum osti (gæti verið gráðostur núna) og svo botnfylli af flötu kóki sem einhver félagi minn skildi eftir sautjánhundruð og súrkál... Engin bjór til að kæla eða neitt... Af hverju var ég þá að þessu...?
Posted
10:51 f.h.
by Unknown
Hvaða rugl og vitleysa er í gangi með tölvuskjáinn minn... Ég var í tölvunni í gær að váfra um netið þegar skyndilega allt verður gullt.. Allir skjárinn sko... Ég náttúrulega með mína margra ára reynslu af tölvuviðgerðum reyni að laga skjáinn eins og maður á að gera... ég sem sagt dúndra hnefanum í hliðina á honum... Það virkaði náttúrulega eins og við mátti búast... stuttu seinna hinsvegar erður allt gullt aftur... og alveg sama hversu mikið ég reyni að laga skjáinn (lem í hann) þá kemur aldrei eðlileg mynd... Það er gul slikja yfir öllu eins og einhver hefur mígið bak við glerið á skjánum... Allt er gullt... ömurlegt að skoða skoða netið þar sem allir líta út eins og bráðatilfelli af lifraveiki... Einu síðunar sem litu eðlilega út voru frá sítrónu og banana framleiðendum í Kína og Japan...
fimmtudagur, júní 19, 2003
Posted
9:54 f.h.
by Unknown
Svei, framförum... Ég spilaði fyrir einhverjum mánuðum doldið mikið af Couronne á netinu, sem er nákvæmnlga það sama og bobb leikurinn sem maður spilaði í félagsmiðstöðvum og sumarbúðum... Leikurinn hvarf hinsvegar um tíma því það var verið að búa til Couronne Deluxe, en í staðinn fyrir að leyfa gamla að vera ennþá í gangi þar til sá nýji kæmi þá var honum kippt út... Svo liðu vikurnar og mánuðir og alltaf beið ég eftil Couronne Deluxe... Loksins í dag var hann virkjaður... Þá skil ég afhverju þeim gamla var tekið út á meðan og látinn líða svona langur tími... Þetta er NÁKVÆMNLEGA sami leikurinn...! Það eina sem er öðruvísi er einhver pínulítilsháttar grafíkbreyting þar sem maður velur andstæðing (basicly þeir settu þykka gula rönd uppi og niðri, that's it)... Stóra "deluxe" breytingin var að núna þarf að borga til að spila leikinn eins og maður vill... Ef maður velur "demo" þá fær maður 15 mínútur til þess að spila... Ég tók einn leik og átti þá eftir 11 mín, lokaði heimasíðunni og kom aftur aðeins seinna... þá var eftir 2 mín...! Hvaða hálfvitaskapur er þetta... Þetta er stóra framförin í hönnuninni á leiknum... núna er hann Deluxe en samt alveg eins nema það er rukkað... það er engin sérstök auka grafík, spilamáti eða valmöguleikar í gangi... bara borga pening fyrir það sem er alveg eins... Svei... Ég þarf að finna þessa leikjahönnuði og langann og sverann bobb-kjuða... Þið megið ímynda ykkur hvað ég geri þegar ég finn þá... (og það er ekki að slá þá með kjuðanum)...
Posted
9:34 f.h.
by Unknown
Einn merkilegur fýr á afmæli í dag, 19. júní og er hann 25 ára... Það er teiknimyndakötturinn Grettir eða Garfield eins og hann heytir á frummálinu... mælið eindregið með að þið kíkjið á drenginn... Grettir er þá bara nokkrum mánuðum eldri en ég... Að vísu er meðganga katta mun styttri en okkar þannig við gætum hafa komið undir á sama tíma...
Posted
9:00 f.h.
by Unknown
Magnað hvað íbúðin mín er eitthvað í rúst... Of mikið djamm og of lítil þrif... Oftast er ég mjög snyrtilegur en inná milli lendi ég í einhverju svaka tiltektar lægð og þá safnast allt upp þannig ég vill síður takast á við stóra verkefnið að þrífa... Stundum pæli ég í því hvenig ég get lifað eins og svín... en þá hugsa ég: ,,Hey! Af hverju þarf ég að hafa hærri standard og gera eitthvað... það eru svíninn sem eiga lækka standardinn sinn..." ... Lazy pigs...
miðvikudagur, júní 18, 2003
Posted
12:59 e.h.
by Unknown
Hér er kominn fáninn fyrir Hróarskeldu hátíðina... Drengirnir voru víst með einhvern flottan fána í fyrra þannig ég varð að bæta ennþá betur... Maður spilar náttúrulega út tveimur trompum í einu... konum og bjór... Hefði ég fundið fleiri góðar myndir af bjór hefði ég notað þær í staðnin fyrir konurnar... það er bara svo erfitt að finna myndir af bjór á netinu... það eina sem ég fann á netinu voru allsberar konur (var rosa hissa að finna allsberar konur á netinu)... ég var að renna út á tíma þannig ég lét þær duga í staðinn...
Posted
11:06 f.h.
by Unknown
Ég var að græða auka dag í Danmörku... YYYyyyeeessss...! Í rauninni var ég ekki beint að "græða" dag en mér líður þannig... Málið er að ég fer á laugardaginn og kem aftur á þar næsta þriðjudegi... Eftir að hafa samstill flugið mitt með Runa félaga mínum þá var ég samt rosa ruglaður í dagsetningum... Hann sagðist ætla að koma heim þriðjudaginn 2. júlí þannig ég pannta flug út miðað við það... Málið er að ég var alveg 100% viss að ég kæmi heim á þessum ákveðna þriðjudegi en sé þá að þriðjudagurinn er 1. júlí... Þá hélt ég í lengri tíma að ég væri að koma heim 1. júlí því það var öruggt ég kæmi heim á þriðjudegi... Hinsvegar eftir að hafa talað við Runa þá segir hann mér að hann kemur 2. júlí og er hann því degi lengur... Þetta er mikið svekkelsi fyrir mig að missa af einum degi í viðbót og ég reyni að fá að breyta dagsetningunni á miðanum... Eftir langa leit finn ég pönntunina mína og þar stendur skýrt... Kemur 2. júlí... á miðvikudeginum...! Voohoo... Ég var að græða dag... Ég bókaði pönntunina með því að koma heim á þriðjudegi en hef eitthvað ruglast og lesið vitlaust af dagatalinu... Ég var því að græða auka dag... eiginlega... bara út af rugli, mislestri, röngum skilaboðum og fleira... margir mínusar gerðu þarna einn plús... Því miður bitnar þetta á blogglesurum mínum því það þýðir einn enn blogglaus dagur... Ekkert blogg frá laugardeginum til og með miðvikudeginum þar næsta... (haldiði að ég get virkilega bloggað samdægurs eftir lendinguna á Íslandi...?)
Posted
9:49 f.h.
by Unknown
Það virðist sem flestir bloggaranir á listanum mínum eru eitthvað að trassast í skrifum sínum... Sumarið er greinilega ekki blogggóður tími... Cool, ég bjó til orð með þremur "g"... Á sumrin er meira djamm og mér finnst alltaf blogggæðin (þrjú "g" aftur) best þegar það eru djammsögur... Þar ríkir svo mikil blogggleði (hvað eru mörg "g" í því)... Þrátt fyrir meira blogggjörðir (jamm, aftur) þá myndast blogggat (góður) hjá þeim... Sem blogggestur (3 "g") sé ég að eitthvað af þessu er námsfólk sem kemst ekki eins oft í tölvur og í skólanum... Þá verða þau blogggeld (önnur þrjú "g")... og blogggírafar geta ekki lifað á blogggrasi því þeir eru bloggg... um, bloggg... ah, svei, þetta var bara komið í rugl...
mánudagur, júní 16, 2003
Posted
9:20 f.h.
by Unknown
Jæja, þetta var nú fínnt ættarmót... Við vorum á Kirkjubæjarklaustri frá föstudeginum fjarri alli siðmenningu... Ég saknaði að vera ekki með netið... ekki internetið heldur flugnanetið, mýið böggaðu mann frekar mikið í logninu... Á tjaldsvæðinu við ghliðina á okkru var svo risa RISA stór húsbíll... húsbíll er í rauninni ekki orðið, Hótelbíll væri frekar iðeigandi... Bíllinn var eins og 3/4 úr lengd strætó en miklu hærri og breiðari... ég veit ekkert hvernig hann komst yfir þessar einbreiðu brýr á leiðinni... Svo þegar bíllinn leggur þá skjótast út einhverjar einingar úr hliðunum til að stækka hann en frekar... Mér sýndist að stærsta svefnherbergið í honum vera á þriðju hæð til vinstri við hliðina á íþróttasalnum og sánunni... fljótlegast að taka lyftuna... Svo komu tveir krakkar úr ferlíkinú á hlaupahjólum (sem voru þá annaðhvort í hjólageymslunni eða bílskúrnum) nema þetta voru mótordrifin hlaupahjól þannig tæknilega séð er skal fjarlægja orðið "hlaup" úr fyrri setningu... Á ættarmótinu voru nokkrir Canadabúar sem eru skyld mér í gegnum langa-langa-afa, þar á meðal tvö hjón sem eru singer/songwriter/city-planner/accountant combo... Þau tróðu upp með tvö lög, fyrst voru þaau með frumsamið lag sem hét Íslendingardagurinn (þau tala ekki íslensku en kunna eitt og eitt orð eins og "harðfiskur") sem var allt sungið á ensku fyrir utan örfá orð... Voða hresst lag sem var meira catchy en klamedía á smokklausu hóruhúsi... Svo sungu þau "Komdu og skoðaðu í kistuna mína" á íslensku og ensku... Svo var farið að vaðreldi sem var orðið að eldi... og þar var setið í kring í brekkunni, sungið og drukkið... svona voða typical fyrirbæri á íslandi, varðeldur drykkja og söngur... en fyrir Canada fólkið var þetta ógleymanlegt fyrirbæri sem þau voru alveg dolfallin og hugfangin yfir... Eftir að allir höfðu verið syngjandi og tekið vel undir báðu Canadafólkið um eitt óskalag... og það var Íslenski þjóðsöngurinn... ... ... ... Íslenski þjóðsöngurinn, segiru já... hmmmm... já, um.... Hver kann hann hérna...? ... ... já, um, svona rosa rosa fáir... ... um... ... Hver getur svo sungið hann...? ... ... ah, þrír... OK... hmmm.... Þið hin bara "hummið" með...Svo hófst söngurinn "Ó guð vors lands"... gékk vel fyrstu tvær setnignurnar en fór svo versnandi... þrír kvennmenn voru fremst að rembast við að ná öllum nótunum þannig á tímabili voru þær komnar uppá tær til að teygja raddböndin enn hærra, svo varu alveg við jörðina tila ð ná djúpt niður... Candafólkið heldur eflaust að þetta var einskonar þjóðar-jójó-dans með þjóðsöngnum þar sem fólk er sífellt að skjótast upp og niðru í stíl við lagið... Þegar brennan var búinn og flestir farnir fékk ég að láta gamlan draum rætast... Það var býrjað að slökkva eldin og var notað vatn ú pínulitlum læk (það er meira vatn úr krananum heima) þarna við hliðna á... Ég lagði þá mitt af mörkum og meig á eldinn... af einhverjum óskýranlegum ástæðum hef ég alltaf viljað míga á brennu til að slökkva hana... Örugglega svona macho thing í gangi... innri eðli mannsins sem segir "My penis can put out fires, make babies and write my name in the snow"... Miðað við magn vökvans sem ég hafði innbyrt þennan dag þá var þetta glæsileg buna og hjálpaði mikið til... hinsvegar miðað við tegund vökvans sem ég hafði innbyrt allan þennan dag var ég heppin að það kom ekki sprenging út af alkahólinu... greinilegt að líkami minn er góð sígja og tryggir að ekkert áfengi sleppur úr líkamanum aðra leið en það kom (sem sagt með uppkasti (en það gerðist ekki þessa helgi))... Bunan slökkti hvern loga á fætur öðrum, fór úr öskunni í eldin eins og gylltur foss af himni sem slökkvir í vítislogum (falleg myndlíking)... Svo var drukkið langt frammá nótt og bara skemmt sér af öllum kröftum... Á laugardaginn var pínu hvasst og kom þá upp sú hugmynd að búa til flugdreka úr risa stórri fallhlíf sem systir mín notar stundum í leiki fyrir börn... VIð burndum reipi í hornin hlupum eftir túninu... fólk horfði á okkur bræðurnar eins og við vorum galnir en ég leit á okkur eins og "Wrighte bræður" af fá eitthvað til að fljúgja... Fólk sagði að þetta væri ekki hægt en við sýndum þeim... Ó já, við sýndum þeim...!... Muhahahaha... Eftir tveggja tíma hlaup framm og aftur sýndum við þeim... að þetta var ekki hægt... Þessi flugdreki varð í rauninni alltaf skriðdreki hjá okkur... Ég er samt mjög ánægður með helgina, góð lítil útileiga sem upphitun fyrir næstu stóru (man ekki hvað hún heytir í augnablikinu, er einhver í Danmörku held ég)... Vonandi verða þeir með brennu... Spurning svo um að fara læra þjóðsöngin og jójó-dansinn...
föstudagur, júní 13, 2003
Posted
12:19 e.h.
by Unknown
Verð á ættarmóti alla helgina þannig þetta er síðasta bloggið mitt fram á mánudag... Þó það sé gaman að fara á ættarmót þá missi ég af góðu partý í Reykjavík í staðinn... Einnig á maður ekki eftir að komast á netið alla helgina (sem er í rauninni ekkert það slæmt)... Maður verður lengst uppí sveit þannig eina netið sem ég sé er hárnetið á eldabuskunni... Ekki nema maður tæki með laptop og reynir að tengja hana í gegnum rafmagnsgirðingu... Hey, þá væri það annað not sem ég hef uppgötvað fyrir rafmagnsgirðingu fyrir utan að míga á þær... Góða helgi...
Posted
9:38 f.h.
by Unknown
Fékk bréf í gær frá Sheridan háskólanum úti í Canada... Ég var dreginn út í "lottóinu" þeirra þannig ég fékk herbergi á heimavistinni... Skólinn byrjar 2. september og maður fær afhennt herbergið þann 1. september... Hinsvegar ef maður vill mæta fyrr þá kostar það auka, allt í 150 Canada dollara (um 8.000kr) fyrir að koma 26. ágúst... bara viku fyrr... Málið er að þann 26. og 28. ágúst eru partý og samkomur fyrir nýnema þannig þeir blandast betur... Þannig ná þeir meiri pening frá manni... Síðan fékk ég svona lista af spurningum til að svara til að finna herbergisfélaga sem passar... t.d. reyki ég (nei) get ég búið með reykingarmanni (nei) djamma ég (oft) hlustaru á tónlist (oft) ferðu að sofa (seint) vaknar (snemma) og svoleiðis... Svo var tónlist skipt niður í 8 flokkar og maður átti að haka við það sem maður hlustaði á... Ég gat ekki séð neinn flokk sem ég vildi haka við... Ekki Top 40, Heavy Metal, Rapp/R&B, Danse/Techno, New Age, Country, Classical, Polka (eða eitthvað annað, man ekki alveg)... Ég gæti búið með Topp 40 manneskju en ekki hinu fólkinu ef maður miðar við steríótýpur... Hver vill búa með þungarokkara, kúreka og technohaus... Ég mun setja Typp-Ex yfir alla reitina og skrifa í stórum skírum stöfum, Rock 'n Roll + Pop 1965-1998... Svo var listi yfir hluti sem er ekki í íbúðinni og þarf að redda sér eins og ristavél, klósetpappír, hnífapör og ég veit ekki hvað... það var eiginlega ekkert þarna nema rúm, vaskur og klósett... Svo tóku þeir fram í línu fyrir baðherbergisvörur að hafa meðal annars drullusokk, síðan tóku þeir aftur fram seinna á listanum í sér línu feitletrað að koma með drullusokk... Þarf að vera með tvo? Einn svona "emergiency backup unit" vegna hægða stífla í klósetinu... svo kemur herbergisfélaginn með tvo líka... Það er greinilega eitthvað heavy duty doody vegna Canadísk mataræðis... Allavega, fyrst ég er kominn með dagsetninguna á afhendingu íbúðar get ég planað brottförina út... Líklegast flýg ég yfir Atlantshafið til London með Iceland Express og þaðan beint til Toronto aftur yfir Atlantshafið þökk sé Flug-(það eru engar)leiðir (að hafa lág verð til U.S.A.)...
fimmtudagur, júní 12, 2003
Posted
5:39 e.h.
by Unknown
Litli frændi minn var að koma í heimsókn því ég ætla að passa hann aðeins í dag.. hann heldur á langri lakkrísreim og er alveg að fara að bíta í hana... Þá til að stríða honum hrifsa ég í hana og læst rek hluta hennar uppí mig... Hann brosir bara yfir þessu... ég færi lakkrísinn nær munninum og spyr hvort ég á að bíta... hann segir já og brosir áfram... ég segi "stórann bita?"... hann segir rosa stórann og brosir meira... Ég náttúrulega set eins mikið af lakkrísinum eins og ég gat í einu uppí mig og bít niður með munnfylli... þá er þetta ekki lakkrís... þetta er langur, mjór gúmmílisti... Hann brosir rosa mikið og segir "Ég fann þetta á götunni"... Bjakk... BJAKK BJAKK BJAKK...!!!... Ég var nærri búinn að drekkja mér þegar ég var að skola allan munnin á mér vel og lengi... Jamm, lúmskir krakkir... Börn eru aldrei saklaus... það er bara ekki hægt...
Posted
5:25 e.h.
by Unknown
Magnað hvernig sameiginlegt samheyti yfir iðjuleysi er í nokkrum tungumálum... Íslenska: Ég gerði ekki rassgat Danska: Jeg gjörde ekki skidt (held ég allavega) Enska: I didn't go jack shit...! Einn rass og tveir skítar í þessum setningum... Tæknilega séð finnst mér ef maður gerir rassgat þá ætti það að þýða ég sat á rassinum í allan dag, ergó ég gerði ekki neitt... Ef maður gerði EKKI rassgat, þá ætti maður ekki hafa setist niður í allan dag... Sama með hittt... Ef maður gerði ekki skít þá var maður svo upptekinn að maður hafði ekki einu sinni tíma til þess að fara á klósetið... Þannig ef maður gerir skít yfir daginn ætti maður að hafa haft það rólegt... Þannig merkingin er öfug... neme... fyrir fólk sem vinnur við tölvu allan daginn og við skrifborð, þá hinsvegar passar vel að hafa gert rassgat (setið allan daginn) og ef það hefur ekki gert rassgat allan daginn þá hefur það greinilega verið hangandi yfir kaffivélinni eða labbandi á milli og truflandi aðra sem eru að gera rassgat... Ég geri rassgat í vinnunni en það er bara á meðan ég blogga...
Posted
9:36 f.h.
by Unknown
Er að fara á ættarmót hjá pabba ætt alla helgina... Verður örugglega fínnt... samt er ættin hennar mömmu mun hressari... Að vísu er boðið í þetta ættarmót lengra aftur í ættina en vanalega, allir niðjar langa langa afa voru boðnir og þekki ég því ekki um 90% af liðinu þarna... Ég þurfti að setja saman ættartrá (niðjatal í rauninni) sem varð einn meter sinnum hálfur á stærð... Var ekki alveg að ganga að prenntast út á prentaranum heima... Átti ekki svo stóran pappír þannig ég tók handklæði og tróð því í prentarann en það kom bara illa út því handklæðið var svo loðið... Þetta ættartré var orðið að ættarhnoðra... Fer því með þetta á prenntstofu á eftir til að ganga frá þessu á þykkan pappír og svo láta "laminera" þetta (sem sagt plasta þetta, ekki setja lamir á þetta, þetta verður ekki hurð (ekki nema lítil hurð (kanski á eldhússkáp (en þetta verður samt ekki hurð))))... Svei, þetta voru mikið af svigum... örugglega meira af svigum í þessari málgrein heldur en var í öllum hlíðum Bláfjallar í vetur... Allavega, ég er kominn út fyrir efnið... sem var um... ah, eh... um... litlar hurðir... Væri hægt að búa til litla hurð sem aðeins hundar geta opnað en ekki kettir...?
Posted
9:01 f.h.
by Unknown
Varað fá úr TOEFL prófinu mínu... Fékk í hlustun 68 af 68 stig, Málnotkun 61 af 68, lesinn texti 61 af 68 og svo ritgerð 5 af 6... Samanlagt er þetta 633 stig af 660 og er ég því í top 7% eða hærra í heiminum... Varla fer skólinn úti að kvarta yfir svona árangri... Þá er ég orðinn 99% kominn inn í skólann. Þegar skólin fær einkunnirnar o segir OK, þá fyrst segi ég 100%... Hinsvegar er ég ennþá eftir að fá svar frá heimavistinni hvort ég fái gistingu... Ég náttúruelga einn bjartsýnasti maður í heimi (Bjartsýnasti maður í heimi er Cyclops úr X-Men, með svo bjarta sjón að hann skýtur lazer með augunum) þannig ég reikna með plássi... Annars verð ég að beita ýmsum brögðum við að redda mér íbúð hvort sem það verður með einhverjum öðrum nemendum sem ekki fá gistingu eða bara sér á báti... Mér hefur alltaf fundist betra að vera sér á báti heldur en með Cher á báti...
miðvikudagur, júní 11, 2003
Posted
1:34 e.h.
by Unknown
Hmmmmm... Maður er búinn að vera skrifa full mikið um drykkju og djamm hér og þótt sögurnar hafi verið svo sem fín afþreyjing þá virðist það láta mann líta út eins og algjöran vitleysing í glasi (sem raunin oft er) og er rétt húsum hæfur um helgar... Ég verð því að dreyfa athygglinni ykkar með einhverju öðruvísi bloggi til að þið gleymið drykkjusögunum um stund... sérstaklega því þær verða eflaust ófáar eftir Danmerkurferðina... Maður má ekki vera með stanslausar djamm sögur því þá geta þær orðið leiðingjarnar... Hér er því "Herman" teiknimynd sem birtist í dag sem mér fannst alveg æðisleg...
Posted
9:14 f.h.
by Unknown
Mér tókst í gær að losa stífluna úr baðherbergisvaskinum... Komst að því í ótrúlegri röð tilviljanna tókst einhverjum að stífla vaskinn á föstudagsnóttina... Málið er að einhver hafði misst plast tappa sem passaði akkúrat í niðurfallið sem snéri svo akkúrar á hvolfi ofaní vaskinum akkúrat rétt eftir að einhver tók vatnastopparann (aðal vask tappann) uppúr vaskinum þegar hann var að þrífa hann, akkúrar rétt eftir því að einhver hafði kastað uppí hann (þegar klósetið var aðeins 20 sentimetra lengra til hægri) akkúrat rétt eftir því að engin man eftir föstudagskvöldinu, akkúrrat eftir mikla innbirðingu á áfengi... Það eru þrír grunaðir hér að verki... Runi, Sæi og... um... ég... En engin man neitt það vel þannig það gæti hafi verið einhverjum öðrum að kenna (yeah, right)... Að öllu líkindum hefur sama mannskjan verið hér að verki... Sæi sagði mér um morguninn að "einhver" hefði ælt í vaskinn um nóttina... Þetta hefði geta verið Runi áður en við fórum út (ekki líklegt), Sæi á meðan við Runi vorum úti (líklegra, en hann var samt ennþá sofandi í sama stólnum og við skildum við hann) eða ég þegar ég kom heim (Frekar líkl...um, ah... hmm... líklega Runi eða Sæi þá)... Síðan hefur einhver verið að skola vaskinn og tekið stopparann út (mjög líklega ég) og svo rekist í hilluna fyrir ofan vaskinn (þegar hann var að sofna) og skotið þannig tappanum ofaní á þess að taka eftir því því hann lá örugglega aðeins á gólfinu á þessum tíma (um, þetta hlýtur að vera Runi og/eða Sæi)... Vaskurinn var svo allavega ennþá eitthvað óhreinn um morguninn þegar Sæi vaknaði um nóttina og sá mig dauðann á lyklaborðinu... hmmm... Eftir að hafa skoðað þessar vísbendingar vel og vandlega sé ég að þetta hlýtur að hafa verið "The One Armed Man"...! Hver annar myndi þrífa vaskinn heima hjá sér, um, eh hjá öðrum sko.. svona illa... einhentur maður... Einhentur því ég var með, um hann var með bjór í hinni...!
Posted
8:42 f.h.
by Unknown
Ég tók til all svakalega heima há mér á föstudagin ef ske kynni að vinnudjammið færðist heim til mín sem (hluti af því gerði)... Ég hafði bara ekki mikinn tíma því ég var að skrifa og hanna "fréttabréf" fyrirtækisins fyrir kvöldið... Ég hrúgaði flestu bara inní svefnherbergið og fyllti rúmmið af hreinum þvotti sem lá annars víða (já, hreinum... ég sóða ekki út meðóhreinum þvotti)... Svo vaskaði ég rétt upp en tók svo stærsta pottinn minn sem er svo rosa skítugur að ég nennti ekki að þvo hann og faldi hann fyrir almennum augum... Þessi stóri svarti bökunar pottur er skítugur frá því ég eldaði síðast svínarif, ég held það var í mars eða febrúar... Ég er ekki svona svakalegur sóði, allt annað er tandurhreint á heimilinu... Svo er búið að liggja í pottinum vatn til að losa um fituna og sósuna nema ég gleymdi að losa það aftur og þá myndaðist meira líf í pottinum heldur en nokkurn tímann í fiskabúrinu mínu... Ég lagði því ekki í að vaska hann upp eftir nokkrar vikur, hvað þá einvherja mánuði... Á meðan hefur stöðugt aukist lífið í pottinum á meðan lífið í fiskabúrinu murkaðist út... Í gær eldaði ég mér fiskrétt í ofninum en af því að ég var svo upptekinn í tölvunni að gera stórt ættartré (hálfur fermeter) þá um leið og ég kom úr vinnunni græjaði ég matinn fyrst, kveiki svo á ofninum í botn og leyfi honum að hita sig vel (í yfir hálftíma örugglega) áður en ég set matinn yfir því annars hefði ég étið allt of snemma... Á meðan vann ég bara áfram í tölvunni... Það var hálf sérkennileg lykt hinsvegar í eldhúsinu sem tók við mér þegar ég gékk þangað aftur... Þá skyndilega man ég hvar skítugi potturinn var falinn... Þá er ég búinn að baka í rúman hálftíma myglu dauðans í margramánaðar sápuvatnlegi... Ég þorði alls ekki að lyfta lokinu í þetta skiptið, það var nógu slæmt þegar það var ekki sjóðandi á honum... Nú er spurning hvort þetta hafi drepið eitthvað eða örfað lífríkið og þróunina... Það var allavega einhver/hvað búinn/ið að lesa allt dagblaðið í morgun og skilja það eftir á eldhúsgólfinu...
þriðjudagur, júní 10, 2003
Posted
1:45 e.h.
by Unknown
Eitt sem var svo rosa gott að gera í millibilsþynnkunni um helgina var að fara í ljós... Ég hef ekki farið í ljós í nokkur ár né verið í annari sól en þessari norðurheimskautapeði hér síðan Portugal 2001... ég er því bara með eðilegan pólfara lit... En áður en maður fer á festivel eins og Hróarskeldu þá ákvað ég að reyna fá mér smá lit... helst þá dekkri í brúnleytari tónum, ekki rautt (hvað þá gullt eða grænt)... Ég fór því í ljós á laugardeginum, all slappur og steinlá um leið og ég lagðist í bekkinn... Ég fékk mér tvöfaldan tíma (40 mín) því ég hef alltaf þolað það og stein svaf værum draumalausum blundi þannig ég hálfpartinn blikkaði augunum og var varpað 40 fram í tíman allur sveittur og heitur... Þetta var samt í fullu samræmi við afstæðiskenningu Einsteins þannig ég hafði engar áhyggjur... Hann sagði að sá sem ferðast á hraða ljóssins finnur tíman líða mun hægar eða jafnvel ekki neitt á meðan tíminn líður í kringum hann... Ég var í ljósum í það sem mér fannst vera hálf sekunda en í raun var það 40 mínútur fyrir umhverfið... Allavega kom ég fínn og brúnari (eða segir maður brúnni) út með smá rauðum blæ hingað og þangað... Daginn eftir var þessi roði hinsvegar að pirra mig meðan ég var að heimsækja foreldranna þannig ég fór í baðskápinn og fann svona "After Sun" krem til að milda húðina... Stundum er ekki nóg að lesa bara "After Sun" á umbúðunum... Ég vildi að ég hafi tekið eftir "Lots of sparkly thing in the cream that make you shine like a latino drag queen" textanum... Ég bar þetta á andlit og bringu þannig mér leið strax betur en ég glansaði óþarflega mikið... Fínnt ef það væri vetur og ég myndi vilja nota kinnarnar sem endurskínsmerki en það var ekki tilfellið núna... Ég varð því að kaupa mér nýtt "Aftur Sun" sem er grænt og óglansandi sem ég bar á mig áður en ég fór að sofa... Var hinsvegar fyrir pínulitlum vonbrigðum að ég leit ekki út eins og The Hulk eftir að ég setti þetta krem á... til hvers var ég þá að kaupa grænt krem...?
Posted
10:45 f.h.
by Unknown
Magnað, ég er með segul í vasanum og (það er ekki magnað að ég sé með segul í vasanum)... já, og ég er einnig með klink (pínu magnað að ég er með pening á mér svona langt inní mánuðinum)... allavega, já, segul og klink í vasanum (pínu lítinn segul (ekki svo fólk segir "Hey, ertu með segul í vasanum eða ertu bara svona glaður að sjá mig" og þá segi ég "Já, ég er með segul í vasanum")) og ég var að taka eftir að (hey, magnað að orðið "magnað" er svipað og "magnet" sem er enska orðið yfir "segul" (var að taka eftir því en það var ekki það sem ég var fyrst að tala um að ég hafi tekið eftir))... já, um... ah, taka eftir því að (þessir svigar og útursnúningar eru doldið að rugla mig sko)... að tíkallar frá árinu 1996 festast við segulinn en ekki tíkallanir frá 1984... ekki heldur neinir fimmtíukallar né hundrað kallar... bara nýlegri tíkallar... magnað er það ekki...? Í rauninni ekki finnst mér lengur, tók eftir þessu á föstudaginn og var fyrst núna að nenna minnast á þetta... Magnað...
mánudagur, júní 09, 2003
Posted
1:11 e.h.
by Unknown
Niðurtalningin til Hróarskeldu heldur áfram... Ég er samt að byrja að hafa áhyggjur af djamm úthaldi mínu... Núna var þriggja daga helgi, ég dammaði vel föstudag og laugardag en var svo uppgefinn á sunnudaginum að ég lagði mig frá 16:00-18:30 og svo frá 20:30 til 10:13 um morguninn... Fór sem sagt ekki út í gær... Hvernig verður þetta á á Hróarskeldu sjálfri... Ég man í Eyjum '99 þá var ég djammandi og vakandi heila eiífð... Kem á fimmtudegi, djamma frá 17:00 til 05:00, vakna 9:00 til að komast í ríkið, svo vorum við að alla nóttina og eftir þetta svaf ég frá fyrsta lagi 11:00 til síðasta lagi 12:00 alla daganna... Það eina sem hélt mér gangandi var nokkrir kassar af bjór, vodka og Malibu... Nú er tíðin önnur, maður er eldri og rétt kemst af í gegnum tvo daga... Það breytist kanski þegar maður er kominn út... Stemningin sem myndast er allt önnur og það er sífellt eitthvað að gerast... Ég var að fara gugna á djammáætlun minni fyrir flugið á leiðinni út en ég er hættur við að hætta við... Planið er, vegna þess að flugið er um 07:15 á laugardegi verður maður að vera mættur 06:15 og því leggja af stað um 05:15 frá Reykjavík... Ég verð því búinn að pakka á föstudeginum, get djammað með félögunum í bænum til 05:00 (hætti því aðeins fyrr en vanalega, verð að sætta mig við það) svo fer til Keflavíkur, fæ mér "Nightcap"þar... Svo sef ég í gegnum allt flugið því það eru engar veitingar í boði (hvorki matur né drykkur) hjá Iceland Express... Vakna á hádegi í Kaupmannahöfn þar sem Indy tekur á móti okkur og dregur okkur á eina geðveika hamborgarabúllu þar sem morgun/hádegismaturinn bíður... Ef þetta er bara ekki hið fullkomna plan þá veit ég ekki hvað...
Posted
12:57 e.h.
by Unknown
Þetta var aldeilis fín helgi... Fínar svona þriggja daga helgar... Var í vinnupartý á föstudagskvöldinu, þá fórum við út að borða hjá Hótel Óðinsvé þar sem Siggi Hall sá um að elda ofaní okkur fullt af réttum, og þetta voru engir smá réttir þótt þetta voru "smá" réttir... Það var nefnilega borið á borðið 8 mismunandi réttir, hver á eftir öðrum og alltaf á nýjum disk þannig ég hálf vorkenndi uppvöskurunum... og þetta voru alltaf risa stórir diskar þó svo það voru kanski bara einn eða tveir bitar af mat á hverjum... Það var t.d. erfitt að skilgreina hvort einn rétturinn var Hörpudiskur eða Tómur-diskur... Svo tóku þeir alltaf hnífapörin líka og létu mann fá ný með hverjum rétti... hef á tilfinningunni að þau fóru bara með gömlu hnífapörinn í eldhúsið og sleiktu sósuna af þeim til að flýta fyrir og létu mann svo fá sömu aftur... engin er svona fljótur að vaska upp... All joking aside þá var þetta var samt alveg æðislega frábær máltíð og ég hef ekkert út á hana að setja... Þá var röllt heim til mín þar sem fólk fékk sér nokkra öllara áður en fólkið fór heim til sín... Þá komu félagar mínir Runi og Sæi i heimsókn og við héldum áfram drykkju saman langt undir morgun... Ég man ekki sérlega mikið eftir kvöldinu (nóttinni) eftir það, ég veit við fórum á pöbbaröllt, ég hélt við vorum allir þrír saman en við gleymdum Sæa heima, klikkuðum greinilega eitthvað á talningunni á leiðinni út... Svo kem ég seint heim, þá fattaði ég að Sæi hafi ekki verið með okkur þegar ég sé hann sofandi í stól með lappirnar hvílandi á rúmgaflinum (datt greinilega ekki hug að sofa í rúminu sjálfu)... Ég vakna svo alveg handónýtur um hádegisbilið og sé Sæa nývaknaðan í tölvunni... Ég leyfi honum aðeins að leika sér meðan ég fæ mér einn ískaldann afréttara. Svo förum við til nágrannans (Grillhúsið Tryggvagötu) að fá okkur hamborgara sem var algjör þynnkubani, sérstaklega því þetta var hamborgari með gráðosti sem er enn meiri þynnkubani... um, sérstaklega því þetta var hamborgari með gráðosti og bjór sem var ENN meiri þynnkubani... Þá sagði Sæi að hann rétt man eftir að sofna þegar við vorum heima, svo vaknar hann um miðja nótt við eitthvað píp í tölvunni... þá er ég þar dauður á lyklaborðinu að athuga tölvupóstinn minn en ég held niður flestum tökkunum með andlitinu þanig talvan er á stanslausu pípi... hann hló að þessu í hálftíma, kíkt aftur á þetta og hló í annan hálftíma... þetta hefði kannski ekki verið svona fyndið hefði ég ekki verið nýbúinn að hátta mig á leiðinni í rúmmið og sat þarna bara á nærbrókinni með Daffy Duck á... Fínn byrjun á helginni...
föstudagur, júní 06, 2003
Posted
9:51 f.h.
by Unknown
Mikið hata ég vírusa... Ég held að ég hafi sagt þetta áður... Ég var að aðstoða pabba minn í tölvunni hans því hún var eitthvað að stríða honum... Mér datt í hug að hann hefði verið með vírus þannig ég skoðaði póstinn hjá honum og þar sá ég bréf með vírus viðhengi... Ég endurræsi tölvuna og hreinsa vírusinn í burtu.... stuttu seinna kalla hann og segist vera í veseni með að opna eitthvað viðhengi (ég trúi ekki að ég er byrjaður að nota orðið "viðhengi" í staðin fyrir "attachment")... Náttúrulega er viðhengið vírus sem er ekki hægt að opna en virkjast þegar þú reynir það... Ég endurræsi tölvuna og hreinsa hana af öllum vírusum aftur... Seinna um daginn lætur hann mig vita að hann var að fá annað e-mail með viðhengi sem hann gat ekki opnað... Þetta var náttúrulega vírus þannig ég endurræsti vélina og hreinsaði í þriðja sinn á sama deginum...! Í morgun kíkti ég á vélina hans á undan honum, þá voru 4 bréf í "Inbox" hjá honum með vírus viðhengi...! Eins gott að hann komst ekki í þau því hann hefði eflaust reint að opna öll... Á svona stundum vill ég taka burtu tölvuna og láta hann fá ritvél... Svo er sumt fólk sem ég þekki sem ég myndi ekki einu sinni láta meðhöndla ritvél... þau fá blýjant og stórt strokleður... og blýjanturinn má ekki vera beittur...
Posted
9:33 f.h.
by Unknown
Varð að setja inn eftirfarandi teiknimyndasöguþráð... Ég sagði fyrir tveimur vikum að þið hefðuð geta fylgst með henni á Calvin and Hobbes heimasíðunni en ég þora veðja flestir hafi gleymt því... Þess vegna setti ég þetta upp hér á síðunni svo allir geta notið... Þetta er nefnilega einn uppáhalds söguþráðurinn minn og er algjörleg snilld í frumleika... Endilega kíkið á...
Posted
12:49 e.h.
by Unknown
Týpískt...! Það stendur skýrt á svörtu og hvítu að maður á inni 22.948 krónur hjá skattinum en svo þegar maður fer að sækja peninginn stuttu seinna þá er það allt öðruvísi... Í mínu tilfelli átti ég inni 24.120 þannig ég veit ekki af hverju ég er að kvarta...1.172 króna mismunur... Heill kassi af bjór í Danmörku í viðbót... Þetta sumar ætlar greinielga að byrja vel...
Posted
12:29 e.h.
by Unknown
Þjáist enginn annar en ég af Postalphobia...? Hræðsla við að opna póst...? Maður hefur ekki fengið gott bréf í gegnum lúguna í svo mörg ár að maður þorir varla að opna umslög og skoða innihaldið... Ég hef bara fengið stanslausar slæmar fréttir svo sem bréf frá lögfræðingum, skattinum, lífeyrirsjóðum eða reikninga og þau eru alltaf að heimta peninga... Oft situr póstur óopnaður hjá mér í einhverjar vikur sem er doldið heimskulegt, sérstaklega ef að inní stendur að maður hefur 15 daga frest eða eitthvað svoleiðis... Ég hef því tekið mig á og opnað fullt af pósti sem var að safnast uppog inná milli tímasprengjanna voru saklaus bréf með færslum á reikningi mínum eða kvittunum yfir greiðlur til lögfræðinga og fyrirtækja. Svo náttúrulega bréf sem stendur innistæða reiknings míns... skil ekki af hverju bankinn er að eiða blek í það... þeir ætti bara senda mér autt blað í hverjum mánuði og ég myndi skilja hvað upphæðin er mikil... Í dag fékk ég þetta svakalega umslag frá Skattstjóranum í Reykjavík... Þeirra bréf er ég alltaf skíthræddur við því ég held að þeir séu að heimta meiri peninga eins og alltaf eða séu að setja út á einhverja skýrslu eða verra... Skálfandi hendi opna ég þykka umslagið og þar inni eru nokkrar blaðsíður... Á þeirri fyrstu stendur að vegna villna í ársuppgjöri í viðisaukaskattskýrslunni þarf ég að borga eftirfarandi upphæðir... Fyrsta blaðið segir að ég verð að borga 4.016 krónur... ömurlegt... næsta stendur 537 krónur... alltaf bætist við... næsta stendur -4.869... svei, ennþá bætist, Ha? Mínus...? Á næsta stendur -559 krónur... ha? aftur mínus, nehh...! Á síðasta bréfinu stendur að ég verð að borga -22.073 krónur... What!... Er ég virkilega að koma út í gróða...? Samhvæmt þessu þá er ég með 22.948 krónur inni hjá Skattstjóranum... Einmitt þegar ég var talandi um að leyta að auka gjaldeyri fyrir bjór...! Þokkalegt... Þetta er fyrsta góða bréfið sem ég hef fengið í gegnum lúguna síðan desember 2000 og það var eitt jólakort... Þetta er miklu betra... Núna æði ég út í Skattstjóra og næ í minn pening... Skelli honum svo í frysti svo ég nota hann ekki í eitthvað heimskulegt fyrir Danmerkur ferðina eins og að borga síma eða rafmagnreikning... Þessi peningur fer í bjór og skál fyrir því...!
miðvikudagur, júní 04, 2003
Posted
2:53 e.h.
by Unknown
Er að leita mér að leið til að safna upp pening í gjaldeyri fyrir Hróarskelduferðina... Eins og vanalega eru allir peningar mínir búnir á þriðja degi mánaðnis vegna skulda og reikninga... þó svo bjórkassinn er mjög ódýr í Danmörku verð ég að kaupa annað t.d. staka bjóra á hátíðinni, bjór á pöbbum eða bjór á veitingarstöðunum... Já, og spægipylsur... Synd að það er farið að refsa manni fyrir að smygla inn... ÁÐur fyrr vara bara tekið f manni all auka vín og spægi pylsa, nún aer maður líka sektaður... ef maður bruggar áfengi úr gömlum sektum, verður maður þá sektar-kenndur...?
Posted
2:16 e.h.
by Unknown
Fór með bíldrusluna í viðgerð aftur... Hún vill ekkert hlaða sig þannig á síðustu dögum hefur verið mikið af ýtingum... Ég fer alltaf með hana á sama verkstæðið, ég veit ekki af hverju... þið sem hafið lesið bloggið hjá mér muna að ég fæ vanalega tíkina aftur daginn eftir en fer svo aftur með hana á verkstæði á þriðja degi til að laga sama vesenið aftur... Það er ýmislegt sem þarf að laga í viðbót en ég sleppi því öllu því þessari bíldrusla mun verða fleygt þegar ég fer til Canada í haust nema ég get fundið einhvern sem ég hata og platað hann til að eiga bílinn...Nehh, ég get aldrei verið það saddískur...
þriðjudagur, júní 03, 2003
Posted
9:57 f.h.
by Unknown
Er ekki komin út ný símaskrá... Fléttir sér engin upp strax eins og ég til að sjá hvort manni var nokkuð gleymt og hvort maður er á góðum stað í bókinni... Ég kýs að vera a hægrí blaðsíðunni á opnunni og ég held að ég hef alltaf verið þar... Síðan vill ég vera mjög mjög ofarlega en ekki efst... kanski svona fjórði efstur... Loks vill ég vera í miðju dálkinum... Vinstri dálkurinn er of þéttur við opnu miðjuna og það er þröngt um mann, hægri dálkurinn er of utarlega og maður getur dottið út... Einu sinni var ég neðarlega í vinstri dálkinum og það var mjög innilokandi... Svo vill ég ekki að fólk sé að troða stærri númerum með myndum og auglýsingum mikið í kringum mig heldur því það dregur athygli frá nafninu mínu..... Call me crazy, en manni getur ekki verið sama um hvað sem er...
Posted
9:46 f.h.
by Unknown
Var aðeins að breyta til heima... Ég færði rúmmið mitt í svefnherberginu... Ég bý í kjallara í miðbænum og í svefnherbergi mínu er gamla höfnin... Jamm, það er langur hlaðinn steinveggur núna við höfuðgaflinn á rúminu þar sem fyrir meira en 100 árum síðan stóð sjórinn og menn þrömmuðu um í stígvélum ekki frá Nokia... Svo var náttúrulega landfylling og höfnin færð þar sem hún er í dag (um 50 metrum norðar) og svo hús byggð ofaná gömlu höfninni... Þar er ég núna og allt í fínu með það... Hinsvegar tók ég eftir því í gær að koddi minn var rennblautur við endann þar sem hann lá við hafnarvegginn... Það lekur gamla höfnin...! Er þetta kanski einhverskonar stífla frekar en höfn? Ég hef ekki ennþá smakkað vökvan til að sjá hvort hann er saltur en fyrir ekki mikið meira en 15 árum þá flæddi oft inn í kjallarann í gegnum gólfið þegar það var flóð (svona flóð/fjöru dæmi). Get ég búist við að hún bresti og það flæðir yfir mig sjór... eða vera... frárennsli frá Reykjavíkurtjörn...? Gefur nýja merkingu á "blautum draumi"... Rennblaut martröð...