Posted
1:18 e.h.
by Unknown
Spurning hversu mikið maður getur bloggað fyrir áramót... bara láta ykkur vita að það verður allt í lagi með mig þó svo að það líði smá stund milli blogga...
Posted
1:12 e.h.
by Unknown
Ég bjó til drykkjuleik núna á laugardaginn til þess að breyta til og verð ég að viðurkenna að eftir fyrsta rennsli var leikurinn mjög góður... það þarf engar viðbætur eða breytingar... Við notuðum gamlan og góðan leik en endurbættum hann með bjór og sterku áfengi...
DRYKKJU SCRABBLE Efni: 1stk Scrabble spil, létt áfengi til að súpa mikið af sbr. bjór eða léttvín, sterkt áfengi til að staupa (má sleppa ef aukaregla notuð fyrir byrjendur) Spilað er venjulegt Scrabble með hefðbundnum reglum. Stigin eru hinsvegar ekki talinn af bókstöfum heldur hversu marga sopa þið látið aðra drekka. Því hærri stiga orð sem þið látið frá ykkur, því fleiri sopa látiði aðra drekka... Reglur við sopagjöf: Fyrst leggjið þið saman stigin fyrir orðið sem þið lögðu niður (með tvö/þreföldu stafa og orðgildi ef á við). Fjöldi sopa sem þið látið einhvern drekka fer eftir tuginum í stigafjöldanum sbr. 0-9 stig = 0 sopar, 10-19 stig = 1 sopi, 20-29 stig = 2 sopar o.s.frv. Þið megið deila sopunum eins og þið viljið. 45 stiga orð getur látið einn drekka 4 sopa, tvo drekka 2, einn 3 og svo einn 1 eða fjórir fá einn sopa hver. Bónus-sopar: Bætið við einum auka sopa ef orðið sem þið settuð niður er tengt áfengisdrykkju eða kynlífi. Mjög góð og klúr orð má gefa tvo sopa ef aðrir samþykkja. Mjög sveigjanlegt er hvaða orð teljast tilheyra drykkju eða kynlífi og má leyta samþykktar hjá nágranna um hvort orð tilheyrir gráu svæði sem gefur samt drykk... Góð orð: Bjór, vín, vodka, Tuborg, drekka, súpa (sögn), glas, kanna, typpi, kunnta (2 sopar), dildo, leður, ríða, maður, kona o.s.frv. Grátt svæði: Malt, gos, djús (notað í blandi náttúrulega), bolli, banani, kind, hönd, á (samnefni yfir kind), tjald, hlýða, skipa (sögn) o.s.frv. Ef þið klárið alla stafina ykkar í einu (7 stafir) þá fáið þið 50 stig (þ.a.l. dreyfa 5 sopa) en einnig látiði þið einhvern drekka eitt staup. Aukareytir hjálpa til við að auka stigafjölda á orði og þar af leiðandi líka drykkjafjölda en þeir hafa meiri bónus eiginleika: Tvöfalt stafgildi: Ef orð lendir á þessum reit verður að segja "Scrabble+(áfengið sem drukkið er)" áður en það er drukkið t.d. Scrabblebjór, Scrabblevín, Scrabblebland, Scrabblestaup (öll staup eru sama). Ef þetta gleymist verður að drekka aftur sopana. Þrefalt stafgildi: Láta drekka eitt staup til viðbótar við hina sopana. Sá sem tekur staupið þarf ekki að vera sá sem tekur sopana. Tvofallt orðgildi: Fjöldi drykkja tvöfaldast. Ef þú færð orð sem er 36 stig læturu frá þér "3 sopa sem verða tvöfaldir" en ekki "6 sopa hvert sem er". Staup verður tvöfallt staup og verður sami maðurinn að drekka bæði. Þrefalt orðgildi: Búa til eða taka frá reglu t.d. bannað að drekka með hægri, bannað að blóta, banka skal í borð byrir drykkju, orð tengd kynlífi gefa auka staup en ekki auka sopa o.s.frv. Vanir drykkjuleikjaspilarar þekkja fullt af reglum. Spilað er þangað til að eitt lið klárar stafina sína. Þá telja hin liðin stigin sem eru eftir á stöfunum hjá sér og drekka jafn marga sopa (14 stig = 1 sopi). Liðið sem er eftir með flest stigin á hendi tekur líka staup. Sigurvegarinn í spilinu er sá sem gaf frá sér flesta sopana eða eina manneskjani sem gat labbað frá spilaborðinu. Það sem skal hafa í huga við að telja stigin (sopana):Telja skal bara sopa sem stafinir gefa frá sér samkvæmt stigum. 22 stiga orð gefur 2 sopa og tvö stig. ATH. 18 stiga orð á tvöföldu orðgildi gefur 36 stig og þ.a.l. 3 sopa (3 stig) sem hver verður tvöfaldur. Þú færð 3 stig fyrir þetta, ekki 6 þó svo að sopanir voru tvöfaldaðir, stígin voru búinn að tvöfaldast fyrir. Staup koma á reit sem gefa mörg stig, og teljast staupin því líka bara sem eitt stig. Þú færð ekki stig ef einhver er að drekka vegna þín en klúðrar reglu þannig hann verður að drekka aftur. Það eru hans mistök og refsingin eru að hann drekki aftur en ekki að þú græðir auka stig. Auka byrjenda regla: Margir þola ekki mörg staup og má skipta út staupi fyrir 5 góða sopa. Hægt er að grípa í þessa reglu ef þú veist að þú munnt ekki komast í gegnum næsta hring sitjandi uppréttur...
Ég vona að þessi leikur veiti ykkur mikla gleði. Reglunar eru einfaldar að muna en ef þið drekkið úr ykkur minnið þá getitið alltaf flétt uppá reglunum á blogginu mínu aftur eða hringt í Drykkju-Scrabble Hotline (+354) 862-4878 og spurt um Ragga... Endilega látið mig vita hvernig spilamennskan gékk og hvort ykkur fannst þeta skemmtilegt spil... Lifið heil...!
Posted
11:41 f.h.
by Unknown
Vanalega hef ég eftir djömm verið að nota ÞYNNKUBANA DAUÐANS sem ég bloggaði um hér... en svo hef ég fundið eitt sem er ennþá betra... Jólaskapið... no jóke... í alvöru.. þetta virkar... Sökum þess að félagar mínir komu heim frá Damörku yfir hátíðinar hefur verið farið mjög oft út í desember... einmitt þegar ég kláraði allt hráefnið í þynnkubanan... Maður hefur tæmt ógrynni af flöskum og dósum vegna danskra drykkjuleikja, sofið lítið sem ekki neitt en samt verið sprækur sem lækur... alla daga aftir djamm, undantekningalaust... Þetta er meira en tilviljun held ég... Andi Jólanna brýtur niður vínanda jóladjammsins...
Posted
11:26 f.h.
by Unknown
Haldiði að ég hafi ekki brætt úr nýja blenderinum á öðrum degi... Á degi eitt notaði ég hann til að gera rosa góða kokteila með muldum ís... svo átti að endurtaka leikinn á degi tvö en fyrst ákvað ég að gera þetta laxapaté... Var ekki nema hálfnaður með laxinn sem ég notaði og þá bara kom reykur og svo hætti blenderinn að virka... spurning hvort það sé því að kenna að ég var með reyktan lax...
Posted
11:07 f.h.
by Unknown
Var duglegur um helgina að skemmta mér með félögum mínum... Víða komið við og margt gert... Við byrjuðum föstudagskvöldið á einföldum drykkjuleik... leikurinn sem fékk Runa félaga minn til að fá blackout fyrir skömmu, mig til að fá blackout nokkrum dögum seinna... einnig hefur þessi leikur losað mig við margrar árar gamlar áfengisflöskur sem hafa setið inní skáp hjá mér og safnað ryki... allar dregnar fram til að staupa með... og allar tæmst... Afreksturinn á síðasta spili kom leikmanni til þess að kasta upp um 23:00... eftir tveggja tíma spilamennsku... samt voru tveir tímar eftir... Engin nöfn nefnd en þetta var samt ekki ég... Ákveðið var þá að breyta um leik fyrir næsta kvöld og bjó ég til mjög skemmtilegan leik á mettíma... reglunar í öðru bloggi...
Posted
10:56 f.h.
by Unknown
Eins dags kvíld á hátíðarmatnum og svo meira át á morgun... Hreindýr og andabringur... Ég hélt að allt jólaátið væri búið með veislunni á annan í jólum en þá fékk ég gefins hamborgarhrygg og eldaði hann á föstudaginn, át afganga á laugardaginn og fékk svo aftur hamborgarhrygg hjá foreldrunum á gær...Maður gæti búist við því að fá samviskubit yfir hve mörgum skepnum er slátrað á manns kostnað en sú tilfinning er drekkt með sósu og meðlæti... Húrra...!
Posted
10:49 f.h.
by Unknown
Afsakið bloggleysið yfir hátíðinar... búinn að vera busy gaur... Ég var kominn í góðan blogg fíling fyrir helgi en skyndilega hætti Internetið að virka heima hjá mér... Þá var einhver vitlaus verktaki að vinna í einhverjum húsum lengra í burtu og hann sagaði í gegnum einhverja svaka símalínu og tók út allt sambandið við nokkur hús þ.á.m. mitt... Lukkulega var þetta á föstudegi því sambandið komst ekki aftur á fyrr en síðdegis á laugardeginum... Eins vitlaus og þessi verktaki var þá var hann allavega nógu tillitssamur til þess að gera þetta á föstudegi því þá hefur maður annað að gera en að blogga... svo sefur maður út á laugardeginum...
föstudagur, desember 27, 2002
Posted
1:31 e.h.
by Unknown
Ætla að vígja nýja blenderinn í dag... Fékk hann í jólagjöf... ætla að búa til laxapaté og svo tonn af kokteilum í kvöld... vissara að skola hann samt inná milli...
Posted
1:30 e.h.
by Unknown
Er að reyna að komast í bókaskiptingar í hádeginu... Ætla að skipta út Sögu Heimspekinar (a íslensku) fyrir Sögu Goðsagna (á ensku), taka allt fyrir, frá Ásum í Valhöll, til rómverska guða og hetja, Kelta ævintýra, indverskir, kínverskir, egyptskir guðir o.m.m.fl.... Síðan skipti ég bók um Björgvin Halldórsson sem ég fékk frá fyrirtækinu (ásamt geðveikri og stórri kokkabók sem ég skipti ekki) og svo gallaðri bók... hún prenntaði aftur sömu síðunar aftar í bókinni í staðin fyrir þær réttu þannig að maður fékk svaka Deja-Vu þegar maður var að renna í gegnum bókin... Þeim ætla ég að skipta fyrir Night Watch, nýjustu Terry Pratchet bókina...
Posted
12:00 e.h.
by Unknown
Kominn aftur í blogggírinn eftir góð Jól (svakalega eru mörg "g" í blogggírinn)... Maður fékk samt aldrei þá hvíld sem maður villdi því maður var alveg á milljón fram á aðfangadgskvöld... svo var bara matarboð eftir matarboð eftir matarboð... maður rétt náði að leggja sig til hádegis og æddi maður út og fór í næsta boð... sem betur fer enduðu jólinn á öðru en kjöti í gær... ég náttúrulega elska kjöt, en eftir 3 daga stanslaust í allar maltíðir var gott a komast í sushi veislu hjá frænku minni... hrár fiskur og hrísgrjón... æðislegt... þetta var svo ferskt að maturinn var ennþá spriklandi í maganum á manni... þannig ég gerði það eina sem hægt var og fyllti matinn í maganum með því að drekka nóg af áfengi...
Posted
1:01 e.h.
by Unknown
Var með Indy félaga mínum og Hjalta í gær... Þeir voru búnir að kenna mér Rokkstig... basicly þá er það frá Hróarskeldu komið að ef þú gerir eitthvað flippað á djamminu þá færðu Rokkstig... Ég fékk sígarettu frá stelpu og reykti hana með nefinu... svo tók ég stóra rúllu af klósett pappír og rúllaði henni niður allt bankastræti... og svo var einhver ofur hálfviti að dansa í gær ber að ofan... ég meina hver gerir svona lagað í siðmenntuðuð heim... hann hélt að hann væri svo cool... þannig ég ákvað að apa eftir honum og dansa alveg hræðilega þannig að við litum báðir alveg hræðilega út... nema ég var sá sem dillaði bossanum betur... ég er ennþá eftir að fá niðurstöður talningunar á stigunum...
Posted
12:55 e.h.
by Unknown
Þið verðið að afsaka að engin visa kom í gær... var svo ofsa ofsa upptekinn að ég komst ekki í það...Fór snemma í barnaafmæli hjá syni systur minnar með 3ö öskrandi börn... gerði ekki góða hluti fyrir þynnkuna... hinsvegar er ég ofur hress núan eftir næturbröltið og gef ég mér smá tími til að bloggas aðeinst... svo geri ég ommilettu dauðans...
föstudagur, desember 20, 2002
Posted
10:03 f.h.
by Unknown
Var að klippa saman í gær Jólakveðju fyrir fyrirtækið hans pabba, E.Ólafsson ehf... Þið getið séð hana hér...
Posted
9:58 f.h.
by Unknown
Oh, það er svo gaman... Var á djamminu í alla nótt og er ekki þunnur núna í vinnunni því það er ekki runnið af mér... Frábært að enda síðasta vinnudaginn fyrir Jól svona... Að vísu þegar ég vaknaði í morgun þá sýndist mér að fjármálastjórinn í fyrirtækinu stæði yfir kommóðunni hjá mér... Það lá skyrta og buxur saman og myndaði persónu... ég veit ekkert hvað myndaði aflitaða hárið en það var þarna líka.. mikið brá mér... og núna er ég að vinna og búinn að drekka tonn af kaffi... ég er orðinn frekar skjálfhehehehehehehentur...
Posted
9:53 f.h.
by Unknown
Mikið er pirrandi einhver gaur út í heimi... Það er verið að faxa uppá skrifstofuna okkar, nema það er alltaf sent í venjulegu símana og það greinilega sjálfvirk vél að gera þetta því hún sendi aftur og aftur á 2 mín millibili... óvaknað eyra vill ekki heyra Bbbbííííírrrrrr, ba bír bír bír, bíííírrrrr, bap ba bííírrrrrrrrrrrrr, hgxhgxgxgxxx.... Fyrir þá sem skildu ekki síðustu setninguna þá er ég að skrifa hvað faxtækið segir... mig vantar að vísu fleiri stafi á lyklaborðið til að geta fullkomnað hljóðin alveg...
Posted
9:45 f.h.
by Unknown
Hey... Það er einhver búinn að graffa á veggin við inngangin heimahjá mér... er tilviljun að það gerðist rétt eftir að Fréttablaðið birti vísuna um Veggjaníði...?
miðvikudagur, desember 18, 2002
Posted
10:09 f.h.
by Unknown
Fólk heldur vegna vísnanna að ég sé eitthvað bókmenntalegur... Ég kann ekki rass í íslensku fræði... Þekki eiginlega ekkert skáld eða höfund... Komst að því fyrst í síðustu viku að gaurinn sem samdi upprunalegu jólasveinavísunar, Jóhannes, væri frá Kötlum en ekki Kötlu...
Posted
10:04 f.h.
by Unknown
Var að taka eftir því að Fréttablaðið breytir aðeins sumum vísunum til að leiðrétta orðafar og fallbeygingar... eins og í dag... fyrir vikið tapast stuðalarnir og höfuðstafinir... svei... Ég tek mér skáldlegt leyfi til að mismæla mig... ég meina notaði Laxness nokkuð ng/nk regluna... þetta ángrar mig... ég er orðin svángur...
Posted
9:53 f.h.
by Unknown
Af hverju finnst manni bara vísur samdar af gömlum köllum... mér líður þannig allavega núna þannig ég má til að koma með þessa... Er ég alveg ónýtur, ekkert get ég unnið. Eftir gærdags ölæði, er ekki af mér runnið...
Posted
9:45 f.h.
by Unknown
Það er allt of langt síðan ég hef djammað svona svakalega á virkum degi... fyrir vikið er í dag óvirkur dagur... Hvar var þynnkubani minn núna... verð að fara kaupa hráefni í hann... Var með Indy félaga mínum (sem var að koma til landsins) og Runa í drykkjuleikjum stanslaust frá klukkan 19:00. Tæmdum allar flöskur sem við fundum í vínskápnum... Það er fínnt því sumar hef ég ekkert notað... Losaði mig við líters flösku af Martini Vermúta... við staupuðum hana allltaf sem refsingu... Keypti hana þegar síðasta Bond mynd kom út en eftir einn Vodka Martini, hristan en ekki hrærðan, hefur hún bara safnað ryki þar til í gær... þá var hún eiginlega aldrei lögð niður... Vegna vitleysu seinna um kvöldið get ég ekki notað á mér hægri hendina núna... alveg lömuð... ég varð að slökkva á vekjaraklukkunni með andlitinu... ég notaði þá vinstri til að stoppa herbergið í því að snúast...
Posted
9:33 f.h.
by Unknown
Hey... viðtalið við mig er í Fréttablaðinu í dag... Alveg hræðileg mynd hinsvegar... Sem betur fer var myndin ekki tekin af mér í dag því ég er þynnri en pappírinn sem Fréttablaðið er prenntað á...
þriðjudagur, desember 17, 2002
Posted
1:53 e.h.
by Unknown
Mikið var ég lengi að komast í salatbarinn í 10-11... Það var kona á undan mér að gera salat fyrir sig og líka fyrir einhvern í símanum, þannig hún byrjaði á byrjun og taldi upp allt sem var í borðinu og útskýrði hvað það var á meðan hún gékk hægt í kringum borðið... Svo var húnn að spyrja mig hvað sumir hlutinir væru... Ég sagði nautagúllas og gæsalifur... en hún fattaði að ég var ekki að segja allan sannleikann... þá brosti ég bar mínu blíðasta og spýtti í dressinguna hjá henni... nei... ég gat það ekki... ég var orðin svo þurr í hálsinum eftir biðina...
Posted
12:52 e.h.
by Unknown
Það var tekið viðtal við mig í hádeginu fyrir Fréttablaðið og nú er ljósmyndari á leiðinni til þess að taka mynd af mér... Magnað að þegar viðtöl eru búinn þá hefuru 1000 sinnum fleiri hluti sem þú vildir að þú hafir sagt frekar... Ég sagði að ég væri svona jólabarn því vanalega fékk maður þá frí í skólanum... how stupid... Svo varð ég að æða í sturtu til að raka mig áður en að ljósmyndarinn kæmi, en í flýti mínu og spegilsleysi rakaði ég á mér nefið og núna verður myndin eflaust í prófíl (á hlið)...
Posted
12:00 e.h.
by Unknown
Sjö dagar til Jóla og ég er að jólast í öllu nema fyrir mig... Búinn að búa til Jólakort handa nokkrum aðilum, er að taka upp jólakveðjur, gera jólaskilaboð, éta jólakökur, smíða jólastól, sauma jólakjól, pumpa í jólahjól, klifra á jólahól, öskra jólagól, nota jólatól, horfa á jólasól, fara á jólapól og jólaról... Ég þarf bara að gefa mér smá tíma fyrir mig því eina sem ég vill er Jólasnjór og Jólabjór og þá eru Jólajól kominn...
Posted
10:19 f.h.
by Unknown
Úfff... kaffein shock... Kaffið í vélina var búið þannig ég tók svona instant kaffi þar sem maður setur eina teskeið út í bolla og svo sjóðandi vatn... En innra barnið í mér lét mig gera eins og ég geri alltaf með kakómalt og það er að setja auka skeiðar.. og alveg kúfullar... fékk alveg sótsvart kaffi... svo reyndi að bæta bragðið með sykri en innra barnið í mér fékk mig til að setja of margar skeiðar af því líka... núna er ég að éta kaffið með hnífapörum...
Posted
10:03 f.h.
by Unknown
Síðasta vinnuvika fyrir Jól... Maður fær frí næsta mánudag á Þorláksmessu og svo líka föstudaginn eftir Jól... Ég verð samt eflaust mjög upptekinn... ég þarf að skemmta félögum mínum sem koma heim til Íslands stanslaust til þess að þeir sannfærast að það sé skemmtilegra að búa á Íslandi... Mjög erfitt...
Posted
12:07 e.h.
by Unknown
Sá nýjasta Bondarann í gærkveldi... Mér finnst hall alltaf verða minni og minni njósnari og meiri og meiri eins manns demolition sveit... Hann fer ekki inni í byggingu eða farartæki sem hann sprengir ekki upp... Svo er ferkar skrítið hvað bílanir eru mis viðkvæmir... suma má varla rispa á þeim lakkið til þess að þeir springi en aðra mátti henda út úr flugvél og þeir lentu óskaddaðir... En náttúrulega tilgangur er Bond að skemmta og leiddist mér ekki... ég vildi samt þeir hefðu varað við því að það væri ekki hlé... vanalega kýs ég að hafa ekki hlé en þegar ég drekk nokkra bjóra út á kaffihúsi fyrir 138 mínútna mynd þá sýna nýrun á mér myndinni ekki alla althygli...
Posted
3:56 e.h.
by Unknown
Var rifinn upp á ókristilegum tíma í morgun með tonn af símtölum... Innri dagatal mitt er eitthvað ruglað því ala vikuna hef ég haldið að það væri fimmtudagur, nema í gær þegar mér fannst það vera þriðjudagur... svo þegar ég vakna við síman í morgun stekk ég framúr því ég hélt það væri miðvikudagur og ég hefði sofið yfir mig... hmmm... Man ekkert eftir að hafa skrifað þessar síðustu vísur í nótt...
Posted
3:52 f.h.
by Unknown
Synd að skríða snemma í ból, í svefn mun drauminn tjúlla Því gellur gera betri Jól og gott með gestum lúlla...
Posted
3:42 f.h.
by Unknown
Af hverju we alltaf svona á karlaklósetinu... Je minn eini Jesú minn, Ég á ekki orð. Kastað upp í klósetið klístrað jólahlaðborð...
föstudagur, desember 13, 2002
Posted
10:44 f.h.
by Unknown
Jæja... ég setti inn vísunar frá því í gær í Fréttablaðinu því Íslendingar erlandis hafa líka rétt... ég meina þeir fá ekki einu sinni rjúpu á jólunum þar...
Posted
9:34 f.h.
by Unknown
LOTR:TTT er þriggja tíma löng mynd... Í gær var ekkert hlé til þess að trufla myndina... af hverju var ég þá að drekka þessa bjóra fyrir sýninguna... Ég fór með mági mínum og bróður út að borða fyrst þar sem við fengum okkur allir sterka kjúklingavængi og nokkra bjóra... Ég pissaði tvisvar fyrir myndina til að vera alveg viss um að mér yrði ekki mál... svo var maður kominn í salinn og var alltaf að pæla hvort manni aðeins mál og ætti að fara aftur á klósetið áður en myndin byrjaði... svo í vitleysu drekkur maður líka gos á meðan maður horfir á myndina... og viti menn... því meira sem maður pældi í hvort manni væri mál, því meira varð manni mál... og þá pældi maður meira í því hvað manni væri mál og manni varð meira mál... sem betur fer vissi ég að fólkið í salnum myndi skilja mig ef ég pissaði bara í tómt kókglasið á meðan myndin væri enn í gangi... en þess þurfti samt ekki... hjá mér allavega... það voru skuggalega mikið af hálf fullum glösum af "fanta" eftir myndina...
Posted
9:22 f.h.
by Unknown
Myndin í gær var æðisleg... algjörg AAAaaarrghandi SNIlld með stóru SNI... Hún hafði þó einn mjög stóran galla... hún endaði... Aldrei hefur mig langað svona lítið að mynd endaði... en hún gerði það samt... Þessir 3 tímar flugu hjá á mettíma... Hún var svo meistaralega vel gerð og svo góð saga... alveg fullkominn... Hún var einnig með flottasta bardaga atriði í ever... ég er ekkert stríðs aðdáendi... en í þessari mynd þar sem hópur af mönnum er að verja sig gegna stórum her í lengri tíma... Þetta atriðið lætur lokabardagan í Attack Of The Clones líta út eins og slagsmál á pöbb... Það atriði leit líka út eins og í teiknimynd, allt tölvuteiknað með framtíðargræjum... Í Lord Of The Rings var þetta miklu raunverulegra, skítugra og erfiðara... Ég held að það verður mjög mjög mjög langt í að einvher skilar frá sér mynd sem er eftir að geta jafnast á við Lord Of The Rings þríleikinn hvað varðar sögu og gæði... og á svona stórkostlegan hátt... en hvað veit ég svosem... ég er eftir að klára að fara í kvikmyndanámið mitt...
Posted
9:08 f.h.
by Unknown
Ég rís á fætur, stekk úr rúminu og klæði mig... Svo gríp ég minn trausta tannbursta og ræðsta á alla tanngerlana af tannveggnum... Eftir að hafa stoppað þá áras nota ég alla mína leikni og tækni til þess að hitta í klósettið standandi... skola svo hendurnar í svalandi fjallavatni úr krananum og nærist svo á guðaveigum frá Kellogs áður en ég fer í fjarsjóðsleit... samkvæmt ævifornum skjölum mun ég finna eitthvað bak við glugga þrettán... en hvar er hann staðsettur... ein mistök og ég kæmi að engum fjarsóð... eða enn verra... ég gæti lent á fjarsjóð framtíðarinnar sem aðeins maður með fleiri daga ævireynslu ætti að tækla við... svo labba ég 10 metra í fimbulkulda norðursins, óvarinn gegn náttúruöflunum á leið minni í vinnuna... þar sem ég gallvaskur sest niður og byrja að blogga um ævintýri mín fyrir komandi kynslóðir... hmmm... Neibb... þetta jafnast ekki á við Lord Of The Rings...
fimmtudagur, desember 12, 2002
Posted
11:14 f.h.
by Unknown
Mágur minn, sem þakkir fyrir að standa í röð í 4 tíma til að fá miða á Lord Of The Rings: The Two Towers, ætlar að bjóða mér út á Ruby Tuesday að éta fyrir myndina... Þá byrjuðu tveir gaurar að rífast um í vinnunni hvort kom á undan, veitingastaðurinn Ruby Tuesday eða lagið Ruby Tuesday með Bítlunum og báðu þeir mig að skera úr um það því ég er svo rosa rosa mikill Bítla aðdáendi... Þá náttúrulega benti ég þeim á Ruby Tuesday væri eftir Rolling Stones... spurning hvort að Rolling Stones væru nokkur að semja lag um veitingastað... ólíkt U2 sem sömdu Subway bloody Subway...
Posted
10:38 f.h.
by Unknown
Skrítnar setningar hér fyrir neðan... Stefnt á á næsta ári... og... ekki borið út út á landi... þetta virðist vera villur en eru samt ekki... held ég... Ef ég ætla að prófa jeppa í vatni segi ég þá ég stefni á á á næsta ári... eða ef ég ætla að keyra á kind (sem ég mun ekki gera) þá ætla ég að keyra á á á næsta ár... ef kindin verður að vaða á vatni segi ég að ég ætla að keyra á á í á á næsta ári... hmmmm...
Posted
10:32 f.h.
by Unknown
Hey cool... Ísland í Bítið var að lesa upp vísunar í morgunsjónvarpinu á Stöð-2 í dag... en enn og aftur þá næst Stöð-2 ekki út fyrir landsteinana... Stefnt á á næsta ári að senda Newsweek á CNN svo þeir geta lesið þetta upp fyrir fólk í útlöndum... Gaurinn var ánægður með vísunar í þættinum er kellingin sagði að þær væru ekkert sérlega barnavænar... hehe... Málið er, fyrir þá sem hefa ekki lesið þetta ennþá, að þetta er skopstæling á Jólasveinavísum Jóhannesar úr Kötlum... Ég bjó til 13 nýja og nútímalega jólasveina sem eiga að leysa af hina gömlu... Þess vegna birtast tvær vísur á dag fyrir hvern Jólasvein fram að jólum... Jólaveininn í dag heytir Gékk-á-staur og er alltaf fullur... spurning hvort maður segi hann sé fullur af "the Christmas Spirit"...
Posted
9:44 f.h.
by Unknown
Talandi um góðar hugmyndir... Hvernig skal koma frið á jörð yfir jólin... Samkvæmt jólareglum (regla 327.viðauki b) á fólk að kyssast sem er undir mistilteini... Ég ætla láta koma fyrir stórri hrúgu af mistilteinum á tunglinu því þá þurfa allir að kyssast jólakossi á nætunar meðan tunglið fer yfir himininn... málið leyst... hvað er símanúmerið hjá Sameinuðu Þjóðunum...
Posted
9:38 f.h.
by Unknown
Er Fréttablaðið ekki borið út út á landi...? Það er allavega samkv. heimildum í "comment" á bloggi hér fyrir neðan... svei mér þá... þá verð ég að miða hærra næst... Hvað kemur út í USA og Evrópu, Norðurlönd og meginland... og kemur út daglega... allavega vikulega... hmmm... Newsweek...? Þá er það ákveðið... að ári skal ég gera eitthvað á ensku og koma því í Newsweek... nema fólk hafi betri hugmyndir...
miðvikudagur, desember 11, 2002
Posted
11:35 f.h.
by Unknown
Af hverju er ég alltaf að lenda í þessu með 118... Ég spyr um númer... þær segja mér númerið... ég endurtek númerið... þær spyrja hvort ég vilji fá beina tengingu... ég segi nei takk, gleymi þá númerinu og skelli á... svo hringi ég alltaf aftur og lendi á sömu konunni... þá verð ég að spyrja um annað númer svo hún haldi ekki að ég sé hálfviti... eða ég lendi á nýrri... þetta gerist aftur og ég hringi einu sinni enn í 118... Svo eru þær alltaf hissa hvað margir eru að biðja um sama númerið þegar það er bara ég...
Posted
11:01 f.h.
by Unknown
Skrítið... ég er með blogg-stíflu... ég virðist ekkert geta skrifað af viti... um...ok... ég skrifa kannski aldrei neitt af viti... en... ég á við að gera eitthvað sem vert er að lesa... er skyndielga allt dautt í kringum mig... ekkert eftirtektavert... um... Með bloggi ég steypi stundum og stóra hópa hrífi En sniðugt nú ekkert segi Ég sit með blogg harðlífi...
Posted
9:37 f.h.
by Unknown
Yess... var að fá sjóðheitar í póstinum, myndir frá Inga félaga mínum í Lúxemborg sem myndskreytti í fyrra barnabókina... Núna er hann að setja teikningar við vísunar og ætti þetta að birtast á morgun eða hinn...
þriðjudagur, desember 10, 2002
Posted
8:53 e.h.
by Unknown
Ég hef góðar og slæmar fréttir... Ég samdi 37 vísur í síðustu viku sem ég ætlaði að blogga á þessari síðu fram að jólum... Slæmu fréttinar eru þær að ég ætla ekki að birta þær fyrr en á Jóladag... Góðu fréttinar eru þær að þið getið lesið þær í Fréttablaðinu, frá fimmtudegi eða föstudegi og alveg fram að jólum... nema þið búið í útlöndum... ah... nema þið "dowloadið" blaðinu á heimasíðu þeirra...
Posted
5:16 e.h.
by Unknown
Awesome...! Var að funda í dag fyrir Bíó Reykjavík... Við vorum að ræða um staðsetningu fyrir næsta Stanley Cubrick Maraþon...! Góða (besta) fólkið hjá Loftkastalanum ætlar að aðstoða okkur og fáum við að halda maraþonið þar aðra helgina í janúar 2003... fylgist vel með og segið flestum fra...
Outside in the cold winter showers, I stood in a line, many hours. So a movie I’ll see, from a trilogy: Lord of the Rings: The Two Towers...
P.S. Ég skrifaði þetta ekki meðan ég beið... annars hefði vísan verið miklu lengri...
mánudagur, desember 09, 2002
Posted
10:52 f.h.
by Unknown
Ritarinn okkar sagðist ætla hlaupa til augnlænisins... spurning hvort maður á á annað borð að hlaupa í umferðinni ef maður þarf að fara til augnlæknis...
Posted
10:20 f.h.
by Unknown
Ég stóð lengur í biðröð í gær eftir miðunum (það sem hitinn var við frostmark) heldur en lengdina á bíómyndinni... Það var samt miklu auðveldara en 3 tíma biðröðin í Universal Studios í Florida í 35 stiga hita... Miðasalan hófst klukkan 17:00 en sumir höfðu mætt klukkan 02:00 um nóttina og komið sér fyrir... Þeir verða eflaust veikir á forsýningunni...
Posted
10:11 f.h.
by Unknown
Var að heyra frá gaur í gær að Lord Of The Rings væri mynd sem að Bítlunum langaði að gera og leika í... Paul McCartney átti að vera hobbittinn Frodo og John Lennon vildi leika skeppnuna Gullom... veit ekki hvað Ringo og George myndu hafa leikið en ég sæi Ringo sem dverg (með þetta risa nef kallinn) og George sem álf (hann er svo penn)... Sú útgáfa yrði elfaust ekki betri en þessi en tónlistin yrði skemmtilegri...
Posted
9:58 f.h.
by Unknown
Eins þið tókuð eftir þá bloggaði ég ekkert í gær... var doldið busy þennan sunnudag... en... mér tókst að redda mér miða á Lord Of The Rings: The Two Towers á fimmtudaginn 12... 6 dögum fyrir heimsfrumsýningu... voohoo... Það þurfa að verða verðir og eftirlitsmenn til að tryggja að engin taki hana upp á videocameru og leki henni út á netið fyrir frumsýningu... en ég bara spyr... hver nennir að sjá stærstu mynd ársins á ömurlegum gæðum á tölvunni...? Sem betur fer er ég í betri sæti en í fyrra þegar ég sat alveg fremst og gat ekki séð allan myndflötinn í einu... Þessar forsýningar eru bestar því engin er að bryðja popp, engin skrjáfar í nammipokum, engin að tala og engin er með gemsan í gangi... Svo er engin texti og ekkert hlé... fullkomið...! Ég er ekki að segja að það sé bannað að vera með popp eða nammi... fólkið í salnum er ber bara meiri virðingu fyrir myndinni og borðar varlega... shssss...!
Posted
9:13 f.h.
by Unknown
Var lengur að koma mér í vinnuna í morgunn... ætlaði aldrei að finna glugga 9 á jóladagatalinu...
laugardagur, desember 07, 2002
Posted
7:30 e.h.
by Unknown
Var að leyta að einhverju að matreiða í Hagkaup... skyndilega sá ég skylti sem stóð Bayonne skinka á tilboði... Áður en ég vissi var hún kominn ofan í körfuna mína, í gegnum búðarkassan og ofaní innkaupapokann... Þá mundi ég hvað svona "subliminal advertising" er öflug... auglýsing í undirmeðvitund... Bayonne skinka = Buy one skinka...!
Posted
7:27 e.h.
by Unknown
Alltaf skemmtilegir (je right) þessir leikir í Kringlunni þar sem maður á að telja kókflöskunar inní bíl... Ég ætlaði aldrei að komast að með mitt rétta svar því fyrir framan mig að gaur með eina pennan á svæðinu sem greinilega er fjölfaldur persónuleiki því hann svaraði mörgum sinnum alltaf undir mismunandi nafni, allar tölur frá 1 uppí 3787... þangað til að úlnliðurinn hans bræddi úr sér...
Posted
1:16 e.h.
by Unknown
Mikið er ég svangur... Morgunmaturinn í dag samanstóð af súkkulaði úr glugga 7 í jóladagatalinu mínu... það ætti að gefa mér orku til að komast á næsta matsölustað í Kringlunni... þar sem ég hef jólagjafainnkaupinn... Svo ætla ég að þræða Laugavegin og gá hvort ég finn eitthvað í þeim sáu fáu verslunum sem eru þar eftir... Laugavegurinn er orðinn götóttari en stórt oststykki... fullt af verlsunum dánar og horfnar... Draugavegurinn... blómar og kransar afþakkaðir... minningarathöfn verður haldin í Smáralind á tilboði...
föstudagur, desember 06, 2002
Posted
4:30 e.h.
by Unknown
What's wrong with this picture...? Ég er í stjórn Bíó Reykjavík og við erum með Opið Bíó kvöld þar sem við seljum veitingar. Við leygðum Posa frá VISA, skráðum hann á kennitölu félagsins, annar gaur var ábyrðarmaður og peninganir fara inná minn reikning... svo hafa þeir síðustu 3 mánaðarmót tekið peninga af mínum reikningi fyrir leygunni á posanum... en engin peningur farið inn... Við töluðum við VISA og þeir sögðu að þeir vilja ekki leggja pening inná reikninginn minn því annar gaur er skráður sem ábyrgðar maður... Samt meiga þeir taka pening út af honum...?
Posted
12:00 e.h.
by Unknown
Aarrgh... Ég þoli ekki bréfaklemmur sem klemma ekki... þetta er bara svona bréfasnerta...
Posted
11:31 f.h.
by Unknown
Awesome... var að horfa á tvö geðveik myndbönd... Do They Know It's Christmas frá des. 1984 og svo We Are The World frá 1985... Alveg stjörnupakkað... Ég sæi ekki fyrir mér að það væri hægt að gera svona í dag.
Jólalagið var eftir Bob Geldof og skartaði aðallega breskum böndum: Bananarama, Bob Geldof, Culture Club, David Bowie, Duran Duran, Eurythmics, Frankie Goes to Hollywood, Heaven 17, Human League, Kool and the Gang, Midge Urge, Paul McCartney, Paul Young, Phil Collins, Spandau Ballet, Status Quo, Sting, The Style Council, U2, Wham!
USA vildi gera betur og hóaði enn fleiri saman. We are the World var eftir Lionel Richie og Michael Jackson og skartaði: Dan Aykroyd, Harry Belafonte, Lindsey Buckingham, Kim Carnes, Ray Charles, Bob Dylan, Sheila E., Bob Geldof, Hall and Oates, James Ingram, Jackie Jackson, LaToya Jackson, Marlon Jackson, Michael Jackson, Randy Jackson, Tito Jackson, Al Jarreau, Waylon Jennings, Billy Joel, Cyndi Lauper, Huey Lewis and the News, Kenny Logins, Bette Midler, Willie Nelson, Jeffery Osborne, Steve Perry, The Pointer Sisters, Lionel Richie, Smokey Robinson, Kenny Rogers, Diana Ross, Paul Simon, Bruce Springsteen, Tina Turner, Dionne Warwick, Stevie Wonder, Quincy Jones (Producer).
Mér fannst Bretanir flottari þó svo að Bandaríkjamenn höfðu Dan Aykroyd (jamm leikarann) og alla Jackson 5 + LaToya systur þeirra... En hvernig væri það ef að þetta yrði gert í dag...? Væri það hægt...? Hverjir kæmu og hverjir ekki...?
Þessir vilja vera með: Britney Spears, Christine Aguilera, Ricky Martin, Celen Dion, LeAnn Rymes, Shania Twain, Adam Sandler, J.Lo, P.Diddy, N-Sync, Eddie Vedder... Þessir eru óvíst: Robbie Williams, Madonna, Fred Durst, Jack Black, Oasis... Þessir vilja ekki koma: Eminem, Marlin Manson, Korn...
Komið með fleiri nöfn... Ég er ekki að velja fólk sem ég held uppá... Maður bara veit að þau myndu æða beint í þetta...
Posted
10:20 f.h.
by Unknown
Pælið í því hvað hlýtur að vera erfitt fyrir geimfara að fá sér í nefið í lausu lofti... duftið fljúgandi um allt og geimfaranir á eftir því eins og tvínasa ryksugur...
Posted
10:07 f.h.
by Unknown
Vildi gera tilraunir... tók kakómalt duft og blandaði saman við Non-dairy Creamer "mjólkur"duft... um... Nú nær ímyndunaraflið ekki lengra... þurr kókómjólk...? Ég get kannski mulið niður mjólkurkex og sett við... hmmm... hvernig virkar þetta svo...? Ætli sé nóg að bæta bara smá vatni við...?
Posted
9:31 f.h.
by Unknown
Það kom Creditlisti eftir einn drauminn minn í gær þannig ég gat séð hver tók hann upp, klippti og sá um búninga o.s.frv. Eftir hann þá tók ég spólu úr tækinu og setti annan draum í tækið... Ég náði ekki að klára hann því ég vaknaði áður en hann var búinn, kannski því hann var svo spennandi og skemmtilegur... eitthvað tengt Spiderman... Ég hafði aldrei pælt í þessu áður... Maður getur sofnað yfir leiðinglegum kvikmyndum (ég geri það að vísu aldrei)... en svo virkar það alveg öfugt í svefni...
fimmtudagur, desember 05, 2002
Posted
10:31 e.h.
by Unknown
Hey...? Muniði eftir því þegar þið vorið yngri og voruð að gera tilraun í líffræði sem var þannig að þið tókuð kartöflu, rákuð í hana nokkra tannstöngla og létuð hana sitja hálfaleiðina ofan í vatnsglasi...? Svo átti hún að vera þarna í einhverja mánuði og svo kíktuð þið á hana og það var búinn að vaxa sprotar uppúr henni... Sprotanir hjá mér voru aldrei lengi en svo 1 cm... en núna í dag... ég kíkti í kartöflupokan sem ég keypti í Kolaportinu fyrir örfáum vikum... sprotanir eru gífurlegir... Þeir ná lengst... Þetta eru eins og dreadlocks... Kartöflur hafa alltaf verið með augu, en núna hár líka... Það er ein sem lítur út eins og Bob Marley... Ég gæti sett nokkrar saman og gert reggei hjómsveit... man... Af hverju gerðist þetta ekki þegar ég var krakki og átti að fá einkunn fyrir þetta...
Posted
10:23 e.h.
by Unknown
Ég átti erindi sem erfiði... ég byrjaði á einu erindi og endaði á 37... samt... það er auðveldara að semja vísu en að semja við VISA...
Posted
5:48 e.h.
by Unknown
Úfff.... var að koma aftur úr rigningunni... var að moka úr gluggunum meira... ég er rakari en ragur rakari...
Posted
2:04 e.h.
by Unknown
OK, nú er ég blautur... ekki svona gott blautur eins og um helgar... heldur svona gömul tuska í vaskinum blautur... Ég var nefnilega úti í lengri tíma að ausa uppúr öllum gluggum við húsið mitt því ég bý á kjallara og í svona veðri stíflast niðurföll og það getur flætt inn um gluggana... Tæknilega er það ekki veðrið sem stíflar niðurföllin, heldur nærsýnt fólk sem sér ekki muninn á ruslatunnu og gluggagryfju... Það er óþarfi að vera fúll við það fólk... ég kenni augnlæknunum um... og vitleysingum sem settu ekki kjallaran fyrir ofan jarðhæð...
Posted
1:42 e.h.
by Unknown
Wha...? Var að lesa í Fréttablaðinu að Doors væri að fara í tónleikaferðalag eftir 30 ára hlé... Það tafðist því trommuleikarinn handleggsbrotnaði... Þetta var samt ekki upprunalegi trommarinn því sá er orðinn heyrnalaus... OK... Trommuleikarinn er heyrnalaus og Jim Morrison er vant við látinn, en hinir fá sér staðgengla fyrir þá og kalla sig ennþá Doors... What's wrong with this picture (engin mynd, notið hugmyndarflugið)... Þetta væri eins og Paul McCartney og Ringo Starr færu á tónleikaferð saman og kölluðu sig áfram Bítlanna... Jim Morrison væri veltandi sér í gröfinni... ef hann væri ekki dauður...
Posted
1:23 e.h.
by Unknown
Finnst ykkur ekki rosa gaman að spyrja alla sem koma gegnblautir inn hvort það sé rigning úti...?
Posted
1:22 e.h.
by Unknown
Æji... Það lekur hjá mér þakið við skrifborðið... doldið kaldhæðnislegt (blauthæðnislegt) að ég var að skipta um staðsetningu inná skrifstofunni núna í morgun... Hlakka til þegar botninn á fötunni fyllist svo regn trommusólóið hættir.. bam de bam bam bam debam... hljómar eins og trommuleikari á valium...
Posted
11:22 f.h.
by Unknown
Brrrrr.... Úti er hvast og blautt... svipað og prumpið í bróður mínum... nema ekki eins hlýtt...
Posted
10:39 f.h.
by Unknown
Var að setja á netið lítið tilrauna myndband sem ég gerði á síðasta ári... Þið getið séð það hér... og svo verður hlekkur á það hér á vinstri hönd líka...
miðvikudagur, desember 04, 2002
Posted
11:38 f.h.
by Unknown
Gestir á þessa síðu virðast flestir koma frá engum hlekki... áður komu flestir frá hlekk á Tilverunni... En núna virðist fólk vera að koma inn frá ýmsum leitaroðum á Google... Það er fínnt en bara leytarorðin sem eru notuð finnst mér skrítin: girl iceland pics breast -cancer -biopsy -i Dolly Parton pornstar Ég er ekki alveg að skilja af hverju fólk sem leytar að þessu fær síðuna mína... ég skrifa fátt á ensku, lítið um brjóst og ekkert um Dolly Parton... fyrir utan núna...
Posted
10:00 f.h.
by Unknown
Smá jóla-moli... Í Canada eru öll svæðisnúmer sex stafir sem skiptist á bókstöfum og tölustöfum... t.d. B3-G2-K4... Það sem Canada gerði (doldið sniðugir) eru að raða svæðisnúmerunum þannig, að þegar þú ert kominn til norðasta hluta Canada, eiginlega Norður Pólinn, þá ertu í H-Núll svæðinu... og svo fær norður póllinn svæðisnúmerið H0-H0-H0... hmmm... hvað minnir þetta ykkur á...?
Posted
9:55 f.h.
by Unknown
Hey... var að fatta doldið skrítið... Þið hafið kanski lesið um það í blöðunum eða lifandi vísindum... en það er sagt að norðurpólinn sé að færast... Hann er smá saman að færast suður vegna bla bla bla... og er eflaust að víxlast við suðurpólinn... Ég fattaði þetta ekki sko... það var einhver annar gaur sem hefur greinilega ekkert annað að gera en að stara á compas... eflaust gamall skáti... Ég fattaði hinsvegar að þá verður jólasveinninn að flytja líka... annars verður hann að fara í gegnum vesen í póstþjónustu USA til að láta breyta heimilisfangi sínu og hann þarf eflaust að láta gera nýja bréfhausa... og ný nafnspöld handa ÖLLUM álfunum...
Posted
9:44 f.h.
by Unknown
Það eina góða við að ég gat ekki "publishað" bloggin mín í gær er það að ég fékk meiri comment í comment dæmið undir bloggunum og ætla ég að leggja mig fram að svara þeim öllum... Ég er ekki eins og þessi svokallaði Jólasveinn sem svaraði aldrei bréfunum mínum... Kannski vegna vitleysu í mér því ég sendi alltaf á Northor Pólinn meðan ég bjó í USA þegar öll heilvita börn vita þeir búa í Esjunni... um eða Vatnajökli... eða... hmmm... nú veit ég ekki... best að hringja í 118...
Posted
9:39 f.h.
by Unknown
Æj... ekki til mjólk í kaffið í morgun... Bara svona "Non-Dairy Creamer" sem mér finnst alltaf doldið spooky... Hvítt duft sem lætur mann "halda" að það sé mjólk í kaffinu... Næst koma þeir með "Non- Suger Suger"... hey... það er bara þetta Artificial Sweetener... Nutrasweet... svo er til Caffeen Free coffie...! Ég ætla fá mér Caffeen Free Coffee with Non-Dairy Creamer and Artificial Sweetener... í plastbolla... og þykjast drekka það...
Posted
2:26 f.h.
by Unknown
Woohooo... var fyrst að geta publishað bloggið núna... var að koma heim af Opnu Bíó 8 hjá Bíó Reykjavík... Segi frá því á morgun...
þriðjudagur, desember 03, 2002
Posted
1:05 e.h.
by Unknown
Bömmer mar... það er eitthvað að Publish kerfinu hjá Blogger... var búinn að pára fullt í hádeginu en engin les það strax...
Posted
1:04 e.h.
by Unknown
Þið vitið eflaut að bandarísku jólasveinninn var gerður af Coka Cola... Bara joke krakkar... jólasveinninn er til... hættið að lesa lengra og farið að skoða þetta... ah, ég meinti ÞETTA... OK, þið hin... Bæ Krakkar... um.. þið hin... Coka Cola = Jólasveinninn... Þess vegna er hann Rauður og Hvítur... En pælið í því ef jólasveinninn hefði verið gerður af Pepsi... þá væri hann blár og rauður...! En þá fatta ég...! Æðsti Strumpur er blár og rauður... og með skegg... og húfu svipað til jólasveinsins...! Tilviljun...? Held ekki... Ætli Pepsi Æðsti Strumpur sé ekki bara að bíða eftir að Coka Cola Sveinninn hrökkvi uppaf og stekkur þá í skarðið með her af Diet Pepsi strumpum sem sparka öllum álvunum hans Jóla Cola í burtu... þvílíkur heimur...
Posted
12:32 e.h.
by Unknown
En EKKERT jólalag stenst Snjókorn Falla með Ladda... vanalega er ég ekkert hrifin af þýðingum... en Snjókorn Falla á íslensku rokkar x50 sinnum meira en Snow Is Falling á ensku... Um leið og ég heyri í Ladda verður ekki snúið aftur í skapinu fyrr en 7. Janúar...
Posted
12:27 e.h.
by Unknown
Er kominn í rosa jóla skap... heyrði í útvarðinu jólalagið... um... Jóla???... æi þið vitið þar sem hann syngur alltaf... Jóla Sveinn, birtist mér. Jóla Gjöf, gaf hann mér, Jóla Fjör, Jóla Stuð, Jóla Steinn, Jóla Snjór, JólaTréskuðarbretti, Jóla Hurð, Jóla Ljós... þið vitið... syngur allt jóla eitthvað... nema Jólahjól... það er í öðru lagi... sem heytir Heims Um Ból...
Posted
12:20 e.h.
by Unknown
Spooky computer... Af einhverju ástæðum gerði talvan við sjálfa sig... Eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir gafst ég upp en núna mörgum vikum seinna er hún allt í góðu... Spurning er hvort það tengist því að ég slökkti á henni í fyrsta skiptið í 4 mánuði...
Posted
12:08 e.h.
by Unknown
Eins og alltaf er Opið Bíó hjá mér og félögum í Bíó Reykjavík fyrsta þriðjudag hvers mánaðar... Ókeypis aðgangur og veitingar á staðnum. Hér getið þið sýnt allt sem þið viljið sem er undir 30 min... hvort sem það er myndband, stuttmynd, tilraunaverkefni eða hvað sem er...! Síðasti séns til að taka þátt á árinu og eiga möguleika á "Best Of Opið Bíó" verðlaununum sem veitt verða í Janúar... Kíkið á heimasíðu Bíó Reykjavík fyrir frekari upplýsingar...
mánudagur, desember 02, 2002
Posted
4:58 e.h.
by Unknown
Af hverju gleymi ég þessu alltaf...? Ég labba framhjá einhverjum síma á skrifstofunni sem hringir, tek upp tólið og svara. Það heyrist ekkert í tólinu, á meðan ég er að gaula "Halló, Halló, er einhver þarna, Halló" eins og rispuð plata með "Best of Páfagaukar"... Svo fer ég að bulla eitthvað frekar og kalla í fólk að síminn þeirra er bilaður, en þá tek ég eftir að það er tengt höfuðtól í símann... Þannig þegar ég lifti upp tólinu, svarast síminn en míkrafónninn og heyrnatólið lá fyrir neðan mig. Fólkið á hinum endanum er orðið hást út af kalli því það heldur að ég heyri eitthvað í þeim... Svo set ég heyrnatólið á mig og fæ eitt loka öskur í eyrað áður en ég segi rólega "Góðan daginn"... Þetta kemur óþarflega oft fyrir... ég kenni bara hundunum um... Ég segi að þeir eru nógu gáfaðir til að svara en hafa ennþá ekki lært að setja höfuðtólið á sig...
Posted
3:58 e.h.
by Unknown
Vona að systir mín komi með einhvað þurrkað kjöt með sér. Pops kom með þurrkaða kenguru og emu þegar hann heimsókti hana í sumar/vetur. Alltaf gaman að bæta við sig dýrategundum sem maður hefur étið... Eitt það skrítnasta sem ég hef étið var þurrkaður gírafi... skildi eftir langt eftirbragð í hálsinum...
Posted
3:30 e.h.
by Unknown
Mikið búinn að vera upptekinn í vinnunni í dag og hef ekki komist í að blogga. En það er allavega að gerast núna er það að systir mín er að koma heim í sumarfrí frá skólanum í Ástralíu. Doldill bömmer að hún er veturinn í Ástralíu, og fer svo í sumarfríinu í veturinn á Íslandi... Sumt fólk skilur þetta ekki alveg og er alveg ruglað í þessu. Þegar systir mín hringdi í LÍN og sagðst ætla að byrja í skólanum á haustönn í Ástralla í Febrúar á þessu ári, þá spurði konan hvaða mánuður það væri í Ástralíu... Spurning hvort maður á að treysta þessu fólki fyrir námslánum sínum. Nema náttúrulega systir mín getur sagt að hún byrjaði á haustönn og kom í byrjun desember þannig það þetta hlýtur bara að vera nokkrir mánuðir og minni vextir...
sunnudagur, desember 01, 2002
Posted
10:04 e.h.
by Unknown
Eins og alltaf er ofvirki jólaskreytarinn búinn að dæla nokkrum tonnum af jólaskrauti í kringum húsið sitt á Bústaðarveginum. Magnið eykst með hverju ári... en þetta er líka ágætis hefð... þar sem ég keyri framhjá og dást að jóladýrðinni... og keyri svo lengst uppá kannt... Ég held að það sé ekki tilviljun að það sé slysamóttaka beint fyrir neðan húsið hans...
Posted
5:31 e.h.
by Unknown
Ástæðan fyrir því að ég svaf ekkert síðustu vikunar fyrir jólin í fyrra var vegna þess að ég var að vinna að barnabók með vini mínum. Ég skrifaði, hann teiknaði, svo vorum við allar nætur að ganga frá þessu inná tölvu, setja upp, prennta út, gera kápur og svo bundum við inn bækurnar sjálfir. Á aðfangadag klukkan 11:00 vorum við búnir með 20 bækur. Við seldum flestar til að ná upp kostnaði og gáfum hinar í jólagjöf. Við komum út alveg a sléttu eftir margra tuga tíma vinnu en glöddum fólk. Núna veit ég hvernig álfar jólasveinsins líðu... lágvaxnir og íllt í stóru eyrunum... við vorum hinsvegar bara þreyttir...
Posted
5:23 e.h.
by Unknown
Er að spekulera hvernig ég get jólast frekar... Manni finnst maður verður alltaf að vera gera eitthvað um jólatímann... Kaupa, skreyta, baka, vinna, kaupa meira, baka meira, skreyta meira, vinna meira og meira meira... maður er það upptekinn að maður verður að sleppa í staðin einu af grunn þörfum mannsins: Éta, Sofa, Kúka eða R*ða... Í fyrra kaus ég að sleppa því að sofa. Síðustu tvær vikunar fyrir jól í fyrra þá náði ég að meðaltali klukkutíma lúr á næturnar. Mig minnir að eftir ég sofnaði á aðfangadag vaknaði ég annan í jólum...
Posted
5:09 e.h.
by Unknown
Loksins... Búinn að kveikja á jólaseríum í öllum gluggum heima... Það er mikil vinna að hengja upp þessar seríur í alla gluggana en það flýtti aðeins fyrir að ég tók þær ekkert niður eftir síðustu jól...
Posted
4:54 e.h.
by Unknown
Nærðist á kalkún í gær í tilefni Thanksgiving í USA. Fjölskylda mín bjó nefnilega úti í 4 ár þegar ég var yngri og finnst okkur gaman að halda áfram að éta kalkún á Thanksgiving. En kalkúnn hefur samt verið orsök að einu stærsta deilumálinu í fjölskyldu minni. Þessi minnig er mesta "trauma" úr æsku minni... númer 2 er jóladagatalið sem var étið frá mér (bloggið hér fyrir neðan) og númer þrjú var þegar ég puttabrotnaði. Það sem málið snérist um, er að á síðasta Thanksgiving hjá okkur í USA, þegar ég var 8 og systir mín 6, þegar við borðuðum kalkúninn, fékk systir mín legginn en ég fékk efri hlutan af vænginum. Málið er að það elska allir að naga í fjölskyldu minni og er leggurinn alltaf æðislegur. Vanalega át maður mikið af kjúklingaleggjum og þetta var í fyrsta skipti sem ég hafði komist í tæri við risa stóran kalkúnalegg... Þessi kalkúnaleggur var eins og kylfa á stærð fyrir litla krakka eins og okkur og var þetta bara draumabiti minn... nema það að systir mín fékk hann allan. Ég fékk hinsvegar efri hlutan af vænginum, sem lítur út eins og leggurinn nema er miklu minni, á stærð við venjulegan kjúklingalegg, og kjötið er allt öðruvísi. Engin át hin legginn því við náðum bara að klára hálfan kalkúninn. Næstu daga sat kalkúnninn inní eldhúsi þar sem fólk gat plokkað í hann og fengið sér bita. Hin leggurinn var alltaf eftir og plokkaði ég alltaf píni pínu lítinn bita af honum nokkru sinnum til að fá smakk og ég gat varla beðið eftir að fá að hirða hann allan. Eftir einhverja daga bið þar sem ég svaf varla á nætunar vegna leggsins á heilanum, þá ákvað ég að fara inní eldhús og bara rífa leggin af og éta hann allan... Ég hleyp niður tröppunar og inní eldhús, spenntari en ég hef nokkurntíman verið á æfinni og æði að kalkúninum... þá er leggurinn HORFINN...!!! Ég stend þarna orðlaus í lengri tíma starandi á kalkúninn og gatið þar sem leggurinn var... Svo lít ég við og þá er systir mín labbandi um með rosa stórt bein í hendinni og er að klára að naga síðustu örðuna af leggnum... ég varð alveg eyðilagður... ég var búinn að sætta mig við að hafa ekki fengið einn legg... en að systir mín hafi fengið þá báða...! Þessi saga kemur alltaf upp þegar við borðum kalkún og fynst öllum þetta mjög fyndið nema mér því engin man alveg hvernig þetta var og finnst þetta bara vitleysa í mér. Ég man þetta eins og þetta hafði gerst í gær. Ég get sagt þér hvor leggurinn var eftir og hvernig kalkúnninn snéri á borðinu. Það hefur verið reynt að bæta þetta upp mörgum árum síðar í jóki þegar pabbi keypti auka leggi og ég fékk 3 kalkúnaleggi en systir mín engann. Það var lítil sárabót. Maður var búinn að stækka töluvert og voru legginir því svo litlir miðað við þessa upprunalega að það var bara ekki sambærilegt. Þeir voru einnig mjúkir og litlausir en hinir voru glansandi brúnir og stökkir eins og í teiknimyndunum... Þið finnið hvergi nógu stóra kalkúnaleggi fyrir mig því sem krakki voru þeir HUGE... ef það ætti að réttlæta þetta alveg núna, þá myndi vera strútur í matinn og ég fengi báða leggina og systir mín þyrfti að horfa á eftir þeim... Ég er samt löngu hættur að pæla í þessu... þetta kemur bara reglulega í tal hjá fjölskylduni í gríni. En hinsvegar ef þið væruð einhverntímann með strút í matinn, þá megiði alveg bjóða mér með... ég tek með mér einn gest...