Posted
5:04 e.h.
by Unknown
Hey...! Halloween stemning á Hard Rock... Börn sem koma í búningum fá frían ís. Þó maður sé ekki barn, né á barn, er samt spurning hvort maður skellur upp John Lennon kollunni og hringlóttum sólgleraugum og reynir að betla frían ís... og svo segist ég vera að halda uppá afmælið mitt (sem var jú á laugardaginn) og fæ annan frían ís... That sounds like a plan...!
Posted
3:39 e.h.
by Unknown
Ég er bara minna ykkur á að hafa sælgæti tilbúið handa krökkunum í kvöld vegna hrekkjavökunnar. Ég man það byrjað fyrir svona fimm árum að einhverir foreldrar klæddu krakka sía upp og sendu þá af stað að biðja um nammi í húsum í hverfinu. Af hverju í óskupunum var fólk að þessu! Það hefur aldrei verið haldið uppá þetta og það var ekki einu sinni mikið talað um hrekkjavöku. Um 95% veit ekki einu sinni hvenær hún er...! Allt í einu birtust við hurðina heima frekar fúlir krakkar í búningum því þau bjuggust ekki við að fá nammi hjá okkur frekar en í hinum 100 húsunum á undan því engin var viðbúinn þessu. En vegna þess að pabbi fer reglulega í viðskiptaferðir þá kemur hann ALLTAF með nokkur karton af tiggjói heim. Það eru að meðaltali 5 full karton af tyggjó heima hvenær sem er. Þannig við byrjum að útbýtta tyggja og fyrr en varir eru allir krakkarnir á 108 RVK. svæðinu bettlandi tyggjó hjá okkur. Þetta hefur heppnast það vel að næsta ár fóru fleiri krakkar á stjá og svo fleiri og fleiri...! Þau vita ekki einu sinni um hvað hrekkjavakan snýst. Þau eiga að segja segja:,,Grikkur eða Gott" (Trick or Treat) og ef þau fá ekki gott, þá eiga þau að gera grikk... Eggja-, klósettpappírs- og raksápusalan í USA ríkur upp á hrekkjuvöku. Að vísu getur eggjasalan farið fyrr upp því snillingarnir vilja láta þau vera orðin fúl þegar þeir loksins kasta þeim í húsin. Þannig að börnin góð... ef þið fáið ekki nammi, hendið eggjum í húsin, skreytið tréin með klósettpappír og sprautið raksápu yfir allan bílinn og ég get lofað ykkur að þið fáið nammi á næsta ári...!
Posted
3:14 e.h.
by Unknown
Fann það...!!! Ég vissi að ég hafði sett það, þar sem ég setti það... ég var bara búinn að gleyma því... hafðir leytað þar sam marg oft en ekki fundið það... That's life... Því mikilvægari sem hluturinn er, því meiri líkur er að finna hann ekki...!
Posted
3:04 e.h.
by Unknown
OK... hér með tilkynni ég einn stærsta galla minn...! Það byrjaði allt á því að það uppgötvaðist að ég er lélegur leitari... ég finn aldrei neitt... Ég ákvað að gera eitthvað í því og setja hluti alltaf á ákveðna staði sem ég man eftir... Málið er að ég man aldrei hvar þessir staðir eru... Ég legg frá mér hlutinn og hugsa:,,OK, uppá þessari hillu, í þessu herbergi, við hliðina á möppunni."... Þetta er bara allt of miklar upplýsingar... Ég er búinn að vera labba um í 90 mín í leit að skjali sem ég lagði svo vel og vandlega frá mér að það er ekki séns að finna það. Svo labba ég um og horfi í kring og hugsa: "Ég myndi eflaust setja skjal á svona stað" en þar er ekkert. Ég er ennþá veri þegar ég er að fela eitthvað eða geyma eitthvað sem má alls ekki tínast, því þá set ég það ekki í allra augsýn. Ég er kannski með stöðumælakort og vill setja það á ákveðin stað heima svo ég finn það næst þegar ég legg, þannig að ég fel það og hugsa:,,Snilld! Engum dettur í hug að leita hér" .. en svo þegar ég fer að leita... þá náttúrulega dettur mér ekki í hug að leyta í hinum staðnum heldur... ég er jú mannlegur... Og loksins þegar ég finn kortið er ég kominn með 3 stöðumæla sektir...! Það er erfitt fyrir mig að vara klárari en ég og alltaf vera að leika á sjálfan mig, því það bitnar á mér, þegar ég er vitlausri en ég var... skiluru...
Posted
2:49 e.h.
by Unknown
Fokk...! Ég óska að ég hefði ekki fattað að ég væri jafnvígur á báðar þegar ég borða popp. Núna er ég svo var um mig og er alltaf að pæla hvor hendina ég á að nota... Lennti í því að nota báðar í einu og reyndi að troða öllu uppí mig... Popp út um allt gólf... Ætli fótboltamenn sem eru jafnvígir á báðar lappir lenda í sömu vandræðum... geta ekki ákveðið með hvorri löppinni á að skjóta... nota báðar í einu... og flúga á hausinn... Ég vona það... það er langt síðan ég hef hlegið að fótbolta...
Posted
2:44 e.h.
by Unknown
Ég var búinn að steingleyma að það er Hrekkjavaka í kvöld (Halloween) 31. okt. Ég ólst upp í U.S.A. og fékk að fara á stjá... Fyrst var ég (6 ára) Captain Kirk úr Star Trek... Vissi EKKERT hver það var... ég vildi vera einhver úr Star Wars (mamma keypti búningin). Ég var basicly með grímu af mannesku á andlitinu. Hefði getað verið hevr sem er...Árið eftir vildi ég vera He-Man, en mamma keypti einhvern búning sem var "sagt væri" úr He-Man, þannig ég endaði sem Hordac, vondi kallin í She-Ra teiknimyndinni (systir He-Man). Loksins síðasta skiptið sem ég var á hrekkjavöku í USA var ég Maðurinn Með Ljáinn... Dunn dunn duuuunnnn (svona spennandi tónn). Svo basicly kemur maður til Íslands og er alltaf kúreki eða pönkari öll grunnskóla árin á Öskudag því það voru ekki til almennilegir búningar. Ég hef að vísu klætt mig í góðan búning síðan þá... Dimmiteraði frá M.H. sem Valkyrja, með 2 körfubolta sem brjóst... gat ekki einu sinni reimað skónna mína. Sem betur fer var spegill á baðherginu á barnum yfir hlandskálinni svo ég sá hvert ég var að miða. Svo var ég John Lennon í 30 ára afmæli bróður míns... endaði á karíókíbarnum (sem er hættur við hliðina á Kaffi Austurstræti) en fékk ekki að taka neitt lag... Svo þegar ég kom einhverjum vikum seinna var skorið á snúruna þegar ég syngjandi "Like A Virgin"... Þeir hafa greinilega fattað að ég væri að ljúga með söng...
Posted
1:44 e.h.
by Unknown
Hey vá...! Ég var að fatta að ég er jafnvígur á báðar hendur þegar ég borða popp...
Posted
1:15 e.h.
by Unknown
OK.. það er líka greinilegt að mig vantar Gestabók... Það er komið fullt a fólki, eflaust með mikið til málanna að leggja en vegna... ég veit það ekki... "feimni" eða eitthvað, þá fæ ég ekki nógu mikið af "feedback" því það eina sem ég hef er e-mail adressa mín þarna á vinstri hönd og margir vilja ekki vera að senda tölvupóst... En ef einhver vill hjálpa mér þá má hann senda mér "ahem" tölvupóst... sem útskýrir bestu leið til að setja upp gestabók hjá blogginu. Mér finnst mjög flott eins og hún er hjá Betu Rokk þar sem hægt er að kommentera á hvern lið... en aðrar hugmyndir eru velkomnar... Takk
Posted
1:09 e.h.
by Unknown
Ég veit það virðist vera smámunasemi í mér að vera að röfla yfir 50kr... en ég er aðallega að röfla yfir blekkingunni sem þeir eru að beita manni... Ég er forvitinn að vita hvað lítill bjór í glasi kostar þarna... Spurning hvort ég fer næst á djammið með mæliglas með mér...
Posted
1:04 e.h.
by Unknown
BJÓR VIÐVÖRUN...! Fyrir mann sem kann að meta góðan bjór... þá kann ég ekki að meta verðið á honum... Það rýkur upp úr öllu valdi og virðist vera hærra í hvert sinn sem ég fer út. Nú er það síðan orðið verra. Við vorum á Thorvaldsen Bar og þar var STÓR bjór á 650 kr. Þegar glasið kemur finnst okkur glasið hálf skrítið og spyrjum þjóninn hvort þetta sé í raun STÓR bjór. Hann segir:,,Jú auðvitað!" og við borgum 650 kr. fyrir. Svo er bjórinn drukkin en hann var frekar fljótur að klárast. Þá næst pöntum við bjór í flösku 33cl. sem kostaði 600kr. Áður en þjónnin tekur glasið, þá heltum við úr 33cl flöskunni í STÓRA bjórglasið og hvað haldiði? Það fyllti glasið alveg upp að topp...! Þegar maður fær bjórinn er hann ekki einu sinni alveg upp að topp, en 33cl flaska sem ég hef alltaf talið vera lítinn bjór fyllir glasið alveg, þannig að maður fær rétt minna en úr flösku. en samt eru þeir að rukka mann meira og kalla það STÓRANN bjór. Ég hélt að þetta væri einsdæmi við Thorvaldsen Bar en nú hefur frést af samskonar "svindli" á Kaffibrennslunni... Kæru bjórelskendur, hafið augun opinn og passið ykkur þarna úti... þetta er harður heimur sem elskar ykkur ekki... nema stundum... og þá er ógeðslega gaman...
Posted
12:24 e.h.
by Unknown
Var að dæma í stuttmyndasamkeppni hjá nokkrum gagnfræðiskólum í gær. Það komu nefnilega 60 norskir unglingar til Íslands til að gera stuttmyndir með íslenskum unglingum. Eftir að hafa gert handrit og tökuplan þá skiluðu þau frá sér um 20 myndum, allar á ensku. Mikið er norski hreimurinn skemmtilegur... svipað og Svenske Kokken í Prúðuleikurunum (sem ég hef alltaf grunað að væri í raun norskur en ekki sænskur). Það sem ég var hinsvegar hissa á var að flestar myndirnar voru um eiturlyf og kynlíf. Þá á ég ekki við bara svona fyllirí og hass heldur pilluát og sprautufíkn. Svo var meira segja ein mynd um ungar lessur (svona Fucking Amal mynd). Ég var í einum þessara gagnfræðiskóla fyrir 8 árum síðan (Réttarholtsskóla) og ég man ekki eftir neinu svona... Er ég svona rosa gamaldags...?
Posted
10:56 f.h.
by Unknown
Vá... yfir 3000 manns að skoða bloggið mitt en samt hafa aðeins rétt yfir 80 manns skoðað vefsíðu mína...? Spurning hvort ég ætti að segja frá töfrum ÞYNNKUBANA DAUÐANS þar... Gott að það styttust í helgina því nýtt fólk er alltaf að lesa sér til um ÞYNNKUBANA DAUÐANS en upprunalega bloggið er frá mánudeginum og er að finna hérna rétt fyrir neðan frá [10/28/2002 1:50:56 PM].
Posted
10:45 f.h.
by Unknown
Ég er búinn að vera hringja nokkur símtöl til Færeyja í morgun og er ekki alveg að venjast því að þeir segja alltaf hæ í lok símtalsins þegar ég segji bæ. Mér finnst eins og ég verði að byrja samtalið aftur...
Posted
10:41 f.h.
by Unknown
Morgunmatur... Pízzu afgangur... Það eru til margar leiðir til þess að borða pízzu... ég hef prófað þær flestar... Borða venjulega frá oddinum á sneiðinni, borða skorpuna fyrst, klemma hana í miðjunni og borða svo, rúlla hverri sneið upp eins og pönnuköku og éta frá endanum. Þetta er allt fínnt er er ekkert miðað við mína nýju aðferð. Það minnst subbulegast og þægilegast að klemma píssuna í miðjunni og bíta svo en þá fær maður svo mikið brauð yst og góðgætið innst að bragðið týnist. Sama gildir þegar maður rúllar upp sneiðinni. Þá er góðgætið allt inní. Ef maður bítur beint í finnst mér brauðið líka alltaf vera fyrir. Þess vegna byrjaði ég að éta pízzu á röngunni... bara eins og Homeblest kex með súkkulaðið niður. Hinsvegar verðuru að fara mjög varlega þegar þú étur pízzu þannig. Það dugar ekki að snúa henni bara á hvolf. Ég komst að því fyrir tveimur buxum síðan. Þú verður að snúa henni að þér og beina henni næstum beint uppí loft. Svo hallar þú þér yfir og bítur í þannig að osturinn og áleggið lendi á tungunni þar sem allir bragðlaukarnir eru. Brauðið fer bara upp í góm og chillar þar á meðan þú færð æðislehgt bragð í munninn. Þú verður hinsvegar að tryggja að þú beist sneiðina alveg í sundur því annars geturu dregið með þér ostin og áleggið af pízzunni sem ég komst að fyrir skyrtu og bindi síðan síðan. Ég mæli með að þú æfir þig ein/nn á meðan þú fullkomnar þessa list því þú lítur út eins og algjör hálviti ef þú gerir þetta vitlaust. Ég á hinsvegar góða vini sem eru vanir vitleysunni í mér og þeir studdu mig og hvöttu mig áfram þar til að ég gat fullkomnað tæknina og það er betra en nokkur pízza...
Posted
10:30 f.h.
by Unknown
Æji... þoli ekki þegar ég er með háværan síma og hringi óvart á faxtæki!!! Píííííp dauðans og nú suðar allt í eyranu á mér...
miðvikudagur, október 30, 2002
Posted
12:19 e.h.
by Unknown
Magnað hvað maður verður að vera með mikið gel til að halda hárinu beinu í íslenskri veðráttu. Hár manns verður eins og gaddar og hefur tilhneygingu til þess að rífa á manni bolinn þegar maður skiptir um föt...
Posted
10:10 f.h.
by Unknown
ÞYNNKUBANI DAUÐANS...! Vá... Ég ennþá ofarlega á Tilverunni. Ég var að blogga um það í fyrradag þannig fyrir þá sem vilja fá að læra ÞYNNKUBANA DAUÐANS... þá farið á blogg hérna rétt fyrir neðan frá [10/28/2002 1:50:56 PM]. Ég feitletra alltaf ÞYNNKUBANA DAUÐANS svo það er auðveldara að finna það... Mikið held ég að fólk þarf á þessu að halda...
Posted
9:50 f.h.
by Unknown
Þá er ég búinn með Tricky Business eftir Dave Barry.og ég verða að viðurkenna að ég er frekar fyrir vonbrigðum. Hún var alls ekki eins fyndin og Big Trouble og svo miklu ofbeldishneygðari. Ég var ekki að búast við glæpó sögu...! Svo fór hann of hratt á milli gamanefnis (2 gamlir kallar sem laumuðust út úr elliheimili til að fara að í fjárhættuspil, eða útúr reikt skipshljómsveit) yfir í ofbeldu (slatti af gaurum skotnir eða pýndaðir) yfir í drama. Hún er að vísu fljótlesin (kláraði 60% í gær) og maður verður helst að lesa allan seinni hlutan í einu því atburðarásin er svo hröð. Alveg eins og maður fer ekki að pása Die Hard til að fara að kúka...! Næsta bók, The Science Of The Diskworld 2, The Globe eftir Terry Pratchet, 50% gamansaga, 50% raunvísindi. Ég vona að ég get hlegið meira yfir þessari bók en þeirri síðustu. Hinsvegar eru vikulegir dálkar Dave Barry alltaf eitthvað til að hlægja upphátt yfir.
þriðjudagur, október 29, 2002
Posted
1:26 e.h.
by Unknown
Ég er ekki alveg viss af hverju ég notaði orðið 50 í báðum limrunum... það er bara svo góður hljómur í því... Fimm-Tí-U... Fiiiimmmm-tííí-uuuuu
Posted
1:21 e.h.
by Unknown
Varð að koma með aðra limru sem mér datt í hug.
Posted
9:53 f.h.
by Unknown
ÞYNNKUBANI DAUÐANS...! Magnað... Ég var bara að taka eftir að það er vísað á mig á Tilverunni. Ég var að blogga um það í gær þannig fyrir þá sem vilja fá að læra ÞYNNKUBANA DAUÐANS... þá farið á blogg hérna rétt fyrir neðan frá [10/28/2002 1:50:56 PM]. Ég hef prófað ýmislegt til að losna við þynnku en þetta er það eina sem hefur virkað. Þetta er miklu betra en svona "hangover stoppers" sem maður kaupir út í bensínstöð sem hefur aldrei virkað á mig né vini mína... Þannig lesið, lærið og lifið lífinu næstu helgi...
Posted
9:29 f.h.
by Unknown
Oh, maður er svo sybbin. Það var allt of mikið að gerast í draumum mínum í nótt... liggur við að ég vakni með hasperur. Var enn og aftur í skólaferðalagi í Þórsmörk nema núna kom ég að innganginum að vondum kastala í Super Mario Bros. Þá kemur DJ. Kári í Bíó Reykjavík og byrjar að mixa einhver töfluleikja lög, ég smyr mér nesti og fer svo í kapp Hauk í Horni um hver er fyrstur að drepa vondakarlinn. Ég vinn náttúrulega og fæ í verðlaun útskrifrar fer til Spánar. Eftir mikið sukk og djamm þar þá eru einhver vandræði í einhverjum trjám fyrir utan einn skemmtistaðinn. Ég skipti um föt og kem aftur sem Spiderman, rekst þá á Chloe (fyrirsætuna sem ég hef aldrei hitt áður) en hún er klædd sem Catwoman og svo Michelle Pfeiffer (sem var Catwomaní bíómyndinni) í þröngum rauðum samfestingi með rauða grímu og logandi hár. Þá kemur einhver risa trjá-draugur (?) sem ég reyna að stoppa en Michelle Pfeiffer kveikir í honum og öllum trjánum. Við það vakna ég... Af hverju er ekki hægt að taka upp drauma... þá gæti ég frammleitt tonn af kvikmyndum í staðinn fyrir að rembast við að skrifa handrit daginn út og inn... Það hefði líka verið gaman að eiga á spólu, Chloe í Catwoman búningi...
mánudagur, október 28, 2002
Posted
7:11 e.h.
by Unknown
Ég verð að segja frá bestu afmælisgjöf EVER...!
Hún er frá strákunum sem báru ábyrgð á því að gefa mér þvottavél í fyrra. Þeir gerðu enn betur núna, því þessi gjöf er gæði fram yfir magn. Hún segir allt sem segja þarf. Þetta er leikstjórastóll...! Svona ekta með tau baki þar sem er áletrað:
Ragnar Eyþórsson
Director
Actor, Producer
Writer, Cinematography, Music & Sound Effects, Editing, Visual Effects, Stunts, Costume Design, etc.
Það voru flestir þeirra á þessari mynd hérna sem gáfu mér stólinn. Æðisleg gjöf... AAAAAAAaaaaarrrrghasta SNILLD...! Já... og Steini, Takk fyrir æðislegt vasaúr... AAaarrrghasta snilld líka.
Posted
2:50 e.h.
by Unknown
Við gerðum lyftu tilraun á gamla vinnustaðnum mínum. Við fórum jafn mörg og talan sagði til um en vorum aðeins þyngri. Lyftan fór framhjá neðstu hæðinni og við festumst í hálftíma þar til einhver gat opnað að utan. Mæli ekki með því að prófa þetta ef þú ert méð fólki með innilokunarkennd með þér... og þeim finnst EKKI fyndið ef þú læst vera að kafna...
Posted
2:39 e.h.
by Unknown
Var í lyftu áðan... Hvað er málið með hámarksþygd og fjölda... Það stóð 8 manns eða 630 kg. Til að byrja með kæmust ekki fleiri en 5 í lyftuna og svo er 630 kg aðeins 78,75 kg á mann... Íslenski karlmenn af minni kynslóð eru örugglega að meðaltali 1.80 og þá kjörþyngd um 80 kg. Karlmenn eldri en ég eru lærri að meðaltali en aldurinn hefur bætt við aukakílóum og þeir eru enn þyngri. Segjum svo að þú ferð í lyftu með 7 öðrum. Þú og vinur þinn um 80 kg. Þrír eldri menn um 90 kg. Þeir báðir með skjalatöskur (samt. 10 kg.) Tvær sætar stelpur sem þú veist ekkert hvað eruð þungar og svo feitlaginn kona sem þú giskar væri allavega 80 kg.. Ætlar þú að spyrja stelpurnar hvað þær séu þungar? Þær geta móðgast... Eða ýtiru feitu konunni út...? en þá halda stelpunar að þú sért hálfviti... Eða tekur áhættuna að festast í lyftunni því að feitu karlanir ættu hvort sem er ekki séns í stelpunar...?
Posted
1:50 e.h.
by Unknown
Ég vill núna útskýra fyrir ykkur ÞYNNKUBANA DAUÐANS... Bróðir minn kenndi mér hana eftir að hafa lesið um þynnku í Lifandi Vísindum. Það em gerist náttúrulega í líkamanum eftir fyllirí er mikið vatnstap (þess vegna er þvagið alveg rosa gullt daginn eftir), síðan er mikið steinefnatap. Það fór allt í að brjóta niður áfengið. Þannig að það sem best er að gera er að kaupa stauk af gostöflun í Hagkaup eða út í apóteki sem á stendur "Fjölvítamíni + Steinefni". Það fæst ekki í öllum Hagkaup búðunum né öllum apótekum en "trust me" það er fyrirhafnarinnar virði að leyta af því. Hagkaup Skeifan og Kringlu og Lyfja Lágmúla hafa verið með þetta. Síðan eigið til einn orkudrykk. Magic virkar best. Síðan farið þið á fyllerí...drekkið mikið og hafið gaman. Svo þegar þið eruð kominn heim, þá helliði orkudrykk í stórt glas og svo 2 töflur af steinefninu. Þetta freyðir eins og motherf*cker. Drekkið allt og svo eitt stórt vatnsglas og farið að sofa. Það sem þetta gerir fyrir líkaman er að þegar þið eruð sofnuð þá eruð þið náttúrulega að safna orku. Vanalega fer svo rosa mikið af orku í að brjóta niður áfengið og að vinna steinefnin en af því að þið voruð að drekka orkudrykk þá eruð þið með auka orku sem fer í þetta allt. Síðan dælir líkaminn steinefninu um líkaman og brýtur niður áfengið. Þegar þið vaknið eruð þið bæði laus við áfengið á blóðinu og svo eruð þið miklu hvíldari... Svo náttúrulega var vatnsglasið til að bæta upp vatnstapið. Hinsvegar ef að ykkur finnskt þynnkupiss mjög gult þá bíðið bara og sjáið steinefnadrykks pissið. Það er svo skær gullt að ég mæli með sólgleraugum ef þið ætlið að horfa beint á bununa. Hinsvegar ef þið drukkið mikið af "Blue Pig" orkudrykknum þá verður bunan græn... AAAaaarrrgasta snilld...
Posted
1:33 e.h.
by Unknown
Jæja... mánudagur aftur.
Skál fyrir vel heppnaðri helgi... Var að taka til til 4:00 um morguninn föstudags nóttina. Fyrst var kaffiboð fyrir fjölskylduna og svo party fyrir vini og vandamenn um kvöldið. Man ekki hvað partýið var lengi... fórum náttúrulega út á pöbbarölt eftit það. Ætlaði að nota þynnkubana dauðans þegar ég kom heim, sem er 2 vítmíns-gostöflur með steinefnum útí orkudrykk en sofnaði bara í sófanum með fullt glas og vaknaði gólfinu blár og kístraður... Algjör þynnku-strumpur... Ég strumpaðist svo í sturtu til að skola þessa bláu leðju af mér áður en ég fór í barna afmæli hjá fósturdóttur bróður míns. Fann svo loksins tíma til þess að horfa á Hollywood Ending. Góður endir á góðri helgi.
föstudagur, október 25, 2002
Posted
11:47 e.h.
by Unknown
OK... bara korter eftir... Það virðist vera hálf dapurt að eyða föstudagskvöldi á undan afmæli sínu að blogga en ég er náttúrulega að undirbúa svaka fest á morgun... ég á jú líf...!
Posted
11:11 e.h.
by Unknown
Úfff... Meira draslið...
Ég er búinn að vera að taka til á ALLAN DAG vegna afmælis á morgun... Alveg að leka af mér svitinn. Tek mér núna smá bjór pásu áður en ég held áfram. Ákveð lík að segja nokkur orð núna því Blogger serverinn lá niðri áðan. Ég var að uppfæra heimasíðuna mína aðeins. Ég bara breytti grafíkinni. Það á ennþá eftir að bæta meiri texti... er í vinnslu eins og alltaf. Jæja... klukkutími í miðnæti. Þetta eru síðustu orð mín sem 23 ára fýr... svo verð ég 24 ára durgur... Þokkalegt.
Posted
9:45 f.h.
by Unknown
Daginn...
Er ennþá að reyna að kveikja á fattaranum. Ég bý nefnilega fyrir neðan skrifstofuna sme ég vinn hjá þannig ég vakna 2 mín áður en ég á að mæta og er ekki alveg kominn með heilann í gang fyrir en eftir smá tíma... Draumurinn minn í nótt endaði (fyrir 10 mín síðan) á því að Jennifer Love Hewitt war að giftast 200kg gaur frá Bali með 80cm þykkt afró, Nicole Kidman (njóskari) og nýfætt barn henn (sem bar ný byrjað að labba) var tekinn höndum af Rússmeskum njósnara (í rosa Kósakka búningi), sem hennti henni í Econoliner þar sem fyrir var Calista Flokkhart (Ally McBeal) og barn. Ég fékk að fá far með þeim en þurfti að vera afturí á milli þeirra. Þetta var eflaust fyrsti hluti af æsispennandi atburðarrás en því miður vaknaði ég þegar ég missti greiðu á gólfið í bílnum og fékkhugljómun um lausn á öllum Fractal hlutum (stærðfræðihugtak, fléttið því upp). Ég vildi að ég væri að ýkja en svona dreymir mig... Einnig vildi ég að ég mundi eitthvað um þessa stærðfræðilausn um Fractal hluti... hún var svo einföld...
fimmtudagur, október 24, 2002
Posted
11:54 f.h.
by Unknown
Fólk er að streyma inná bloggið hjá mér... Teljarinn segir mér það... En svo þegar ég skoða heimsókninar nánar þá eru sumar bara 0:00 á lengd... Hvernig í ósköpunum er hægt að vera svona svöggur. Síðan er ekki einu sinni búinn að hlaða sér... Þetta lækkar verulega meðaltals tíman sem fólk er að skoða... Hinsvegar vill ég þakka þeim sem var 16:46 á síðunni minni fyrir að rífa aftur upp meðaltalið... Svona á að gera það...
Posted
9:29 f.h.
by Unknown
Var að muna að draumur minn í gær endaði líka skringilega. Ég stóð bara hugsandi í lokin og þá kom einhver drúp rödd yfir eins og í bíó sem endaði drauminn á: ,, En þá vissi hún að heimurinn var ekki blár, rauður og grænn... heldur fjólublár, appelsínugulur og gulur" Prófið að segja þetta með djúpri röddu... þetta hljlómar frekar flott... en ég veit ekkert hvað þetta þýðir...
Posted
9:21 f.h.
by Unknown
Góðan daginn... Eins og vanalega dreymdi mig fáranlega í nótt... Man ekki alveg um hvað þetta var en ég fékk allavega að hanga með besta vini mínum sem býr nú í Danmörku. Svo endaði draumurinn á því að ég vara að losa flækjur í sippibandi í einhverjum tilgangi... en ég veit ekki hvaða...
miðvikudagur, október 23, 2002
Posted
5:00 e.h.
by Unknown
Hvað er í gangi...? Er fólk sofandi útí bæ...? Það er aðeins búið að setja einn hlekk í allan dag hjá Tilverunni og það var auglýsing...
Posted
11:05 f.h.
by Unknown
Þokkalegt... Til hamingju með mig...
Í dag er ég búinn að búa í heilt ár í íbúðinni minni. Ég flutti inn á fyrra, þriðjudaginn 23/10/2001, eftir 10 daga vinnu í að græja íbúðina. Sérstakar þakkir fara til Óla Stein sem var með mér marga tíma á dag að mála allt svæðið og bóna öll gólfin. Það var mikið verk því þetta voru 158 fermetrar. Svo var dótinu mínu komið fyrir og húsgögnum og var þetta fyrsta nóttin sem ég svaf þarna. Ég kom svo öllu fyrir á sinn stað, hengdi upp myndir og kláraði að þrífa og var búinn að öllu u.þ.b. 5 mínútum áður en fyrstu gestirnir mættu í innfluttnings/afmælis partíið laugardaginn 27. okt. Það var besta party ever og voru flestir gestirnir saman í einni gjöf sem var glæ ný þvottavél... AAAaaarrrghasta snilld. Líf mitt hefur næstum verið fullkomið síðan þá...
Posted
10:29 f.h.
by Unknown
Af hverju líður alltaf svona langt á milli þess að Woody Allen mynd kemur út í Bandaríkjunum og að hún sé sýnd hér. Hollywood Ending kom út í vor í USA og er nú kominn á DVD en ég bíst ekki við að sjá hana hér fyrr en í vor í fyrsta lagi. Sama var með Curse Of The Jade Scorpion og Small Time Crooks. Þetta er snillingur sem kemur næstum mynd út á ári en Evrópa sem kann að meta hann betur en heimamenn hans þurfa að bíða eftir að sjá verkin hans í lengri tíma. Næst mynd skrifuð og leikstýrð eftir hann sem er á leiðinni heytir Anything Else og skartar honum sjálfur ásamt Jason Biggs (American Pie), Christina Ricci, Jimmy Fallon (Saturday Night Live), Glenn Close og Danny DeVito. Þið getið kynnt ykkur hana aðeins á IMDB.
Posted
10:03 f.h.
by Unknown
Jesss...
Nýja Woody Allen myndin var að koma til mín í póstinum. Hún heytir Hollywood Ending, skrifuð og leikstýrð af snillingnum sjálfum ásamt því að hann leikur aðalhlutverkið. Myndin skartar einnig Tea Leone, Treat Williams, George Hammilton og Debra Messing (úr Will and Grace). Fjallar um leikstjóra sem er búin að vera gera auglýsingar í lengri tíma eftir að blómaskeiðinu hans lauk. Hann fær loks tækifæri til að leikstýra aftur almennilegri kvikmynd en rétt fyrir tökurnar fær hann sálræna blindu og sér ekki neitt. Þessi mynd er í léttari kanntinum eins og síðustu myndir hans (Curse Of The Jade Scorpion og Small Time Crooks) en er víst alveg rosa góð. Vinur minn sem hatar Woody Allen sá hana í Bandaríkjunum í sumar og fannst hún alveg frábær. Hann er núna snúinn á réttu brautina og er ég byrjaður að mata hann fleiri Woody Allen myndum ú safni mínu. Fyrir þá sem ekki hafa aðgang að Hollywood Ending, þá endilega kíkið á Curse Of The Jade Scorpion og Small Time Crooks, báðar út á vídeóleygum. Einnig bendi ég á Sweet and Lowdown með Sean Penn, argasta snilld sú...
þriðjudagur, október 22, 2002
Posted
8:44 e.h.
by Unknown
Jújú... teljarinn virðist vera að virka... Ég er kominn með nokkrar heimsóknir en því miður eru þær allar ég nema ein... Hver sem þú er, sá eini sem fann mig, þá þakka ég þér fyrir heimsóknina og vona að þú hafir haft gaman af.
Posted
8:33 e.h.
by Unknown
Velkominn í matreiðslukúrs öreiga... Þrátt fyrir fjárnám á ég ennþá til spagettí og einnig munaðarvöru sem ég kýs að kalla túnfiskur í dós. Möguleikarnir eru endalausir um hvað ég get búið til... Synd að ég gleymdi að setja gráðostinn í pokann í gær í 10-11, skildi hann bara eftir á afgreiðsluborðinu þó svo ég borgaði fyrir hann. Hann hefði virkilega gert mér kleift að malla ótrúlegustu hluti... eins og til dæmis gráðosta pasta með túnfiski... argasta snilld. En... engin gráðostur... ekkert gráðostapasta.
Posted
4:14 e.h.
by Unknown
Þá föru öll plönin fyrir helgina. Ég ætlaði að halda afmælispartý með fullt af bjór og bollu. Nei, nei... Maður fær bréf í póstinum um að það á að gera fjárnám hjá mér!!! Ég þarf að moka út öllum laununum mínum sem ég ætti að fá um mánaðarmótin (1.nóv) + slatta af næstu launum (1.des) strax til einhverjar Lögheimtu annars koma þeir og hirða það sem þeir geta fundið heima hjá mér... Ekki nóg með það, heldur þegar ég gat loksins reddað peningnum sem átti að borga samkvæmt bréfinu, þá er búið að hækka um yfir 30.000. Þau sögðu að bréfið er búið að vera svo lengi í kerfinu (frá 29.5.2002) að það sé búið að hækka svona mikið. Ég var að fá bréfið fyrir helgi!!! Núna þarf ég að redda 30.000 í viðbót fyrir 9:00 í fyrramálið svo engin kemur og bankar uppá hjá mér. Ef það kemur ekkert blogg frá mér á morgun þá er það vegna þess að þeir hirtu tölvuna mína...
Posted
1:35 e.h.
by Unknown
Var á leiðinni í hádegismat og sá um 10 manns að mótmæla með einum borða fyrir framan Alþingi. Þau voru að frjósa úr kulda. Þegar ég kom úr mat skömmu seinna voru þau horfinn. Ætli Alþingi taki ákvaðranir, um hluti sem fær fólk til að mótmæla, eftir veðri. Ef það er mikið frost og vindur þá vita þeir að fólk nennir ekki að standa fyrir utan með skilti og borða á lofti sem fjúka bara...
Posted
11:35 f.h.
by Unknown
Hafið þið heyrt nýja lagið með Bubba...? Hann er að syngja um að Guð sinn sé kona.
Sumum gæti fundist það skrítið en hér eru tíu atriði sem benda til þess að guð sé kona:
1. Hún getur ómögulega valið hvaða litir hennta honum best þannig hún skiptist á að nota vor liti, sumar liti, haust liti og vetur liti.
2. Kennir karlmanninum (Adam) um að taka eplið af trénu í Paradís.
3. Fær móðursýkiskast og vælir í 40 daga og 40 nætur svo Nói neyðist til að byggja örk.
4. Hefur ekki útrýmt öllum öðrum trúarbrögðum/guðum því henni vantar vinkonur.
5. Baktalar samt vinkonur sínar.
6. Útrýmdi eina almennilega karlaklúbbnum, Ásgarður, þar sem menn grilluðu og drukku öl eftir smá leiki.
7. Lætur karlmenn "halda" að þeir ráða heiminum en það er hún sem togar í alla spottana.
8. Konur eignast börnin svo þær fá meðlagið.
9. Þú skalt ekki girnast KONU nágrannans... jájá, en hvað með nágrannan sjálfann... það er allt í lagi?
10. Gerði Matgræðgi, Leti, Losta að dauðasyndum...
Posted
10:52 f.h.
by Unknown
Vissuð þið að...: Ef einn af hverjum 10 er hommi og einn af hverjum 10 er örvhentur, þá er ein á móti 100 að hitta örvhentan homma...
Posted
9:58 f.h.
by Unknown
Mikið hata ég Vírusa...!!! AAAaaarrrgh...!!!
Það kom upp vírus í gærmorgun á einni vél í skrifstofunni og svo aftur í morgun. Það sem þessi vírus gerir er að setja "backdoor" forrit á vélin, þannig að það sé hægt að komast inná hana af netinu, og vírusinn setur alla prentara í gang og prenntar endalaust. Við erum með ágætir Laser prentara með 3 skúffum fyrir mismunandi pappír. Þessi helv*tis vírus prenntar úr öllum skúffunum og tæmir þær og þetta kom fyrir tvisvar... MEGI ALLIR VÍRUS HÖNNUÐIR fá KLAMEDÍU, LEKANDA, SÍFILIS, FLATLÚS, HERPES OG KYNFÆRAVÖRTUR OG ALLAR NÆRBUXUR ÞEIRRA FYLLAST AF GREFTRI...!!!
mánudagur, október 21, 2002
Posted
8:29 e.h.
by Unknown
Hvað er málið.. er ekki hægt að skrifa íslenska stafi í svæðið hér til hægri...? Gengur erfiðlega. Vona að það breytist eftir þetta blogg.
Posted
8:27 e.h.
by Unknown
Ég skil ekki alveg af hverju ég sit hér núna við tölvuna að reyna að kreista eitthvað gáfulegt úr mér til að skrifa í staðinn fyrir að vera elda mér kvöldmat... Garnagaulið er byrjað að yfirgnæfa tónlistina. Ég er ennþá að hlusta á Tears For Fears... Ath. Lagið Mad World úr Donnie Darko er bara "cover" útgáfa of Tears For Fears laginu en er algjör snilld. Finnst hún betri en upprunalega útgáfan. Hins vegar er lagið Head Over Heals í Donnie Darko flutt af Tears For Fears. Bara láta ykkur vita. Leytið endilega að Mad World úr Donnie Darko soundtrackinu.
Posted
8:14 e.h.
by Unknown
Núna er best að velja sér góðan teljara... Spurning hvort sé hægt að fá einhvern sem telur aðeins í 77 sinnum töflunni. Þá virðist alltaf ógeðslega margir vera að skoða.
Posted
10:08 f.h.
by Unknown
OK... ég er nýr byrjaður að blogga og er að reyna að koma frá mér bulli sem fólk les... en... hvernig veit maður hvort einhver les allt þetta...? Er sjálfvirkur teljari fyrir hönd Bloggers eða þarf maður að gera allt sjálfur í þessum heimi?
Posted
9:58 f.h.
by Unknown
Mánudagur...
Svakalega er langt í helgina... Ég sem á afmæli á laugardaginn... Jamms, 26. október. Svo leitar maður að frægu fólki sem á afmæli á sama dag og maður sjálfur, þá finn ég bara Hillary Clinton... frekar slappt. Svo eru alltaf allir að spekulera hvað á að gefa mér í afmælisgjöf... Ég bið eiginlega alltaf bara um föt, DVD mynd, eða eitthvað fyrir tölvuna (prenntara, scanner, brennara). Málið er að ég fæ bara föt. Fólk heldur að það sé ekkert merkilegt að gefa DVD mynd... eða að einhver annar gefur mér DVD og vill ekki líka gefa DVD. Málið er að mér langar alltaf mest í DVD. Ég væri lang ánægðastur ef að ég fengi bara DVD... en sjáið til... á laugardaginn fæ ég ekki neitt DVD eflaust. Bara bol, buxur, peysu og jafnvel jakka og skó... Þessu spái ég.
sunnudagur, október 20, 2002
Posted
11:16 f.h.
by Unknown
Sunnudagsmorgunn
Ég vanrækti ritstörfin í gær vegna mikill anna. Það átti nú að vera rólegt en móðir mín átti afmæli þannig að ég fór snemma út að leyta að gjöf. Svo var hádegismatur heima hjá foreldrum mínum sem var frekar langur. Svo á leiðinni heim sannfærði ég bróður minn um að kaupa sér DVD spilara, sem hann gerði og ég hjálpaði honum að setja hann upp og lánaði honum nokkrar myndir. Þá virtist all vera búið fyrir daginn en þá var hringt í mig frá Laugardalshöllinni. Fyrir mánuði fékk ég og félagar mínir í Bíó Reykjavík lánaða 150 stóla þaðan og þeir vildu fá þá aftur á næstu 2 tímunum. Með hjálp bróður mins og lítillar kerru fluttum við yfir 3 tonn af stólum og rétt náðum fyrir tónleikanna... Meira vesenið... Þá var ekkert eftir nema fara heim og fá sér bjór... Auðvitið...
föstudagur, október 18, 2002
Posted
4:16 e.h.
by Unknown
Ég veit ekki hvort þið hafið áhuga á þessu en þetta eru bækurnar sem ég þarf helst að lesa...
Tricky Business eftir Dave Barry, gamansaga...
The Science Of The Diskworld 2, The Globe eftir Terry Pratchet, 50% gamansaga, 50% raunvísindi.
The Universe in a Nutshell eftir Steven Hawkins, stjarneðlisfræði, skammtafræði og afstæðiskenningin. Æðisleg eðlisfræði.
Night Watch, nýjasta Terry Pratchet bókinn sem kemur út í nóvember. Terry Pratchet fer alltaf ofarlefa á listann. Gaman/ævintýrasaga.
Woody Allen on Woody Allen, Hér fjallar leikstjórinn um myndirnar sínar.
The Beatles Anthology, Ég bara verða að fara koma mér í að lesa þessa bók.
Á eftir þessu koma slatti af kvikmyndabókum og einnig restin af Terry Pratchet bókunum. Ég hef lesið þær allar áður en það er frekar langt síðan. Ég var byrjaður á Diskworld þar sem komnar eru yfir 20 bækur, búinn að lesa mig aftur upp að 15. Terry Pratchet var einn vinsælasti höfundur Breta og fóru bækur hans alltaf á topp sölulistanna, nema þegar Harry Potter kom út.
Posted
4:04 e.h.
by Unknown
Meira um bækur...
Í fyrra ætlaði ég að vera búinn að lesa fyrstu Lord Of The Rings og fyrstu Harry Potter bókina áður en myndirnar komu út en komst ekki í það. Núna er önnur myndin af Lord Of The Rings og Harry Potter að koma út og mig langar að lesa bækurnar áður en ég vill ekki lesa þær fyrr en ég les fyrstu bækurnar... en fyrst að ég er búinn að sjá myndirnar þá fóru bækurnar neðst á forgangs listann og ég kemst ekki í að lesa þær... og þá bætast við hinar tvær í viðbót. Það er bara mánuður í Harry Potter og tveir í Lord Of The Rings og ég næ alls ekki að lesa allar 4 bækurnar plús allar sem eru á undan. Svo koma þriðju myndirnar um Harry Potter og Lord of The Rings og ég vill helst vera búinn að lesa bækurnar en þarf að klára hinar fjórar og er því kominn með 6 bækur neðst á listanum mínum... Þetta hleðst utan um sig þangað til að bókahrúgan hrynur á mig og grefur mig undir... Þá gefst mér kannski smá tími til að lesa þangað til að björgunarmenn finna mig...
Posted
3:56 e.h.
by Unknown
Af hverju hefur maður aldrei tíma til neins...?
Ég er loksins byrjaður aftur að lesa á kvöldin áður en ég sofna en gera það samt ekki nógu oft þannig að ég er frekar lengi með hverja bók. Sem betur fer er ég með það gott minni að ég glata ekki söguþræðinum, þó svo það gerðist alltaf yfir bókum sem maður VARÐ að lesa í skóla. Maður var varla kominn yfir á næstu blaðsíðu áður en maður var búinn að gleyma hvað stór að síðunni á undan. En með bækur sem maður les ótilneyddur þá get ég geymt hana í lengri tíma og haldið áfram... og það er einmitt það sem ég hef gert. Málið er að ég hef tilhneygingu til að kaupa nýjar og nýjar bækur þó svo að ég er ekki búinn með þá sem ég er að lesa. Ef ég sé bók í bókabúð sem mér líst vel á fyllist hræðslu um að bókin verði ekki þarna næst þegar ég kem eða ég bara gleymi henni... þannig ég kaupi alltaf bókina og set hana í stafla af bókum sem ég á eftir að lesa. Svo forgangs raða ég bækurnar eftir því sem mig langar mest að lesa þannig að neðst í staflanum eru bækur sem mig langar að lesa en hef bara ekki komist í... ég les ekki nógu hratt til að komast niður staflan. Hann bara vex og vex og verður áminning um að ég verð að slaka aðeins á vinnu og vitleysu og gefa mér tíma fyrir mig... en ég á samt eftir að sjá svo margar bíómyndir líka!!!
Posted
3:43 e.h.
by Unknown
Kominn á næsta lesefni...
Tricky Business eftir Dave Barry. Þetta er einn uppáhalds rithöfundur minn og eflaust sá fyndnasti. Hann hefur í mörg ár starfað sem blaðamaður og skrifað vikulega pistla sem eru svo teknir saman í bækur. Að uppástungu vinar síns, Steven King (sem er með honum í hljómsveit, báðir gítarleikarar) þá skrifaði hann sína fyrstu skáldsögu fyrir nokkrum árum sem hét Big Trouble og var hún svo sem ágæt. Sem aðdáendi fannst mér hún samt ekki nógu fyndin (en fyndari en marg sem þið eigið eftir að lesa): Stuttu eftir útgáfu hennar var farið í að gera kvikmynd úr henni sem hét líka Big Trouble, leikstýrt af Barry Sonnenfeld (Men in Black) og í henni voru meðal annars Tim Allen, Rene Russo, Stanley Tucci, Tom Sizemore, Johnny Knoxville o.fl. Fléttið því bara upp á IMDB (Internet Movie Database). Allavega hún var nýlega sýnd í bíó og fannst mér hún mjög góð... mæli með henni...Svo skrifaði hann aðra bók sem heitir einmitt Tricky Business og var hún að koma út í september. Ég er forvitinn að vita hvort bókin kemur hingað til lands því ég hef aðeins séð eina aðra bók eftir hann hér. Ég fékk mín frá Flórida (þar sem hann starfar) og byrjaði á henni í gær. Ekki kominn mjög langt en lýst mjög vel á hvert stefnir.... og... þessi bók er með endi... ólíkt Salmon of doubt (sjá fyrri blogg).
Posted
3:31 e.h.
by Unknown
Eftir að hafa lokið við þessa ágæti en endalausu bók, The Salmon of Doubt, las ég nýjasta heftið af Empire, breskt kvikmyndatímarit... en ég hata að það kemur hér ekki fyrr en að mánuðurinn er hálfnaður. Ég var áskrifandi í fyrra og fékk það sirka 8. eða 9. hvers mánaðar... (náttúrulega 8 eða 9 dögum seinna en Bretar). En hér í bókabúðunum kemur það ekki fyrr en um 15. eða 16. hvers mánaðar... Þá gefst manni svo stuttur tími til að lesa það og skrifa svo eitthvað lesendabréf tilbaka, ef það er eitthvað sem maður vill benda á eða getraun sem maður vill taka þátt í, áður en næsta tölublað fer í prenntun... Fyrir utan hvað blöðin koma seint... þá er verðið á þeim hérna hreint okur... Það er á um 1.400+ krónur... Maður getur verið áskrifandi í heilt ár fyrir um 45 pund. Ég bara er ekki lengur með kreditkort vegna óviðráðanlegra aðstæðna og get því ekki panntað mér áskrift... Ef einhver vill blæða áskrift á mig skal ég leyfa ykkur að lesa blaðið þegar ég er búinn með það... en svo verð ég að fá það aftur.. ég er safnari.
Posted
3:20 e.h.
by Unknown
Listi yfir hluti sem ég VERÐ að gera yfir helgina...
Nr.1... Ekkert!
Yess....
Posted
3:19 e.h.
by Unknown
Enn annar föstudagur...
Er það bara ég eða snýst lífið bara um að komast af alla vikuna til að njóta föstudags. Þó svo það bíði manns ekki djamm og djús þá er þarna í vikulokinn betri heimur.
Posted
2:59 e.h.
by Unknown
Nýr dagur...
Magnað hvað ég er annaðhvort vannærður eða ofnærður...
Engin morgunmatur og komst ekki í að fá mér hádegismat... Nældi mér að vísu í hálfa Skyr.is dollu um 14:00. Var of upptekinn við að búa til dreyfimiða fyrir Stanley Kubrick Maraþon sem ég og félagarnir í Bíó Reykjavík ætlum að halda í næsta mánuði til að borða hádegismat. Fylgist vel með því...
miðvikudagur, október 16, 2002
Posted
8:33 e.h.
by Unknown
Hér er mynd sem þið ættuð að sjá...
Donnie Darko. Gerist 1988 og fyrir utan gott handrit, leik og leikstjórn þá er tónlistinn æðisleg. Helduru að ég hafi ekki dottið í að hlusta á Tears For Fears,,, Ég skoðaði titlana á lögunum og kannaðist ekki við öll lögin... en þegar ég loksins hlustaði á þau þá þekkti ég þau öll. Ég mæli eindregið með að þið reynið að fá aðgang að þessum lögum. Ég er búinn að hlusta á sömu lögin á replay í 3 tíma... Þessi eru í eftirlæti
Shout... Þetta þekkja allir... Shout, Shout, Let it all out, These are the things I can do without. Come on, I'm talking to you. Come one!
Everybody Wants To Rule The World... Þið hljótið að þekkja þetta...
I Know This Much Is True... Frábært lag... Steve Buscemi söng það í lok Wedding Singer.
Head Over Heals... Lag úr Donnie Darko... Þið þekkið það um leið og þið heyrið það. Uppáhalds lagið mitt með þeim í augnablikinu.
Mad World... Hafði aldrei heyrt það fyrr. Gott lag... en svo er ennþá betri útgáfa á Donnie Darko soundtrakkinu. Þá er það æðislegt, sérstaklega inní myndinni.
Fyrst þið eruð á annað borð að lesa þetta þá getið farið eftir ráðum mínum og leigt þessa spólu. Reddið ykkur svo tónlist eftir Tears For Fears... Lifi 80's
Posted
7:58 e.h.
by Unknown
Meira um lífið...
Ég var að lesa síðustu bókina hans Douglas Adams. Fyrir þá sem þekkja hann ekki þá skrifaði hann eina fyndustu bók allra tíma: The Hitchhikers Guide To The Galaxy. Þaðan er frasinn "The Life, The Universe and Everything" kominn. Í þeirri bók færðu að vita svarið að lífinu, heiminum og öllu saman. Þetta var trílogía í fimm bókum og eftir þær skrifaði hann tvær bækur um Dirk Gently ásamt öðrum verkum. Hann var að vinna að þriðju Dirk Gently bókinne eða jafnvel sjöttu Hitchhiker bókinni (hann var ekki búinn að ákveða.) þegar hann fékk hjartáfall og dó í fyrra. Hinsvegar kom út bók sem heitir Salmon of Doubt þar sem tekið var allt dótið sem var í skúffum hans og í tölvunni og sett saman til að mynda loka bókina hans. Hún byrjar á fullt af greinum og viðtölum og endar loks á sögunni sem hann var að vinna að þegar hann dó. Hann var með ýmis uppkost og útgáfur og ritstjórinn blandaði saman því sem honum fannst best og púslaði þannig saman sögunni. Málið er að ÞAÐ VANTAR HELMINGINN AF SÖGUNNI...! Þeir skilja mann eftir í miðri atburðarás akkúrat þegar allt er að gerast að það virðist vera lausn á hlutunum eða allavega meiri vísbendingar en svo er bara stoppað... Maður getur ekki einu sinni ímyndað sér hvað gerist næst því hann er að tala um hálfa ketti, Nashyrninginn Desmond, halastjörnu og margt annað sem allt tengist einhvern veginn en það er ekki fyrir mannlegan mann að átta sig á því. Hvað á ég nú að gera. Maður gæti haft miðilsfund og reynt að ná sambandi við hann, en ef það tækist talaði hann eflaust bara um hvað hann væri mikill vísindamaður og trúði ekki á miðilsfundi.
Posted
7:01 e.h.
by Unknown
Já, hvar á að byrja...
Segjum kannksi aðeins eitthvað um lífið. Til að byrja með er lífið allt of stutt til að fást við stafsetningarvillur. Þannig að strax hef ég leið til að einfalda líf mitt með því að hafa engar áhyggjur af þeim. Í flestum tilfellum eru þetta hvort sem er innsláttarvillur og ef ég fer að hægja á mér og hugsa um það sem ég skrifa þá byrjar meður að leiðrétta allskonar hluti og janfvel hættir við að segja það sem manni lihhur á hjarta. Og ég var að taka eftir geðveikum villum í síðustu setningu en í þrjósku minni ætla ég ekki að leiðrétta þær. Það er ekker "e" í "maður" né "h", hvað þá tvö svoleiðis í "liggur"
Annað sem ég veit er að engin nennir að lesa of langa málsgrein...